Morgunblaðið - 15.10.2014, Síða 21

Morgunblaðið - 15.10.2014, Síða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014 Fréttastofa Norður-Kóreu, KCNA, segir að einræðisherra landsins, Kim Jong-Un, hafi í gær komið fram opinberlega í fyrsta sinn síðan 3. september. Blöð birtu myndir af honum í gær, hann var m.a. sýndur fara í eftirlitsferð í nýtt hverfi fyrir vísindamenn er hanna gervitungl og eldflaugar. En heilsan virðist ekki í lagi og studdist Kim, sem er 32 ára, við staf. Kim lýsti að sögn „mikilli ánægju með húsakynnin í nýja hverfinu“. Ekki voru birtar sjónvarpsmyndir af leiðtoganum og því óljóst hve al- varleg veikindi hans eru, hvort hann var yfirleitt fær um að ganga óstuddur, að sögn BBC. En vanga- veltur um að Kim hafi verið steypt af stóli virðast ekki hafa verið á rökum reistar, ef marka má mynd- irnar. Kim tók við völdum að föður sín- um, Kim Jong-Il, látnum árið 2011. Í desember í fyrra rak hann valda- mikinn frænda sinn úr embætti og lét lífláta hann, að sögn fyrir valda- ránstilraun. Athygli vakti í gær að Hwang Pyong-So, hershöfðingi sem var í fararbroddi þegar þriggja manna nefnd háttsettra manna í Norður-Kóreu kom óvænt í heim- sókn til Suður-Kóreu fyrir skömmu, var meðal þeirra sem hylltu Kim ákaft. Nefndin ræddi ýmis sam- skiptamál við suðurkóreska valda- menn og var því velt upp að hún hefði hugsanlega tekið við af Kim. kjon@mbl.is AFP Leiðtogi Kim Jong-Un, með staf, skoðar nýtt vísindahverfi í höfuðborginni Pjongjang. Æðstu embættismenn skrifa vandlega hjá sér vísdómsorðin. Inn á sviðið eftir meira en mánaðar fjarveru  Kim Jong-Un virðist enn vera við völd í Norður-Kóreu Í skýrslu sem verið er að undirbúa fyrir biskupafund hjá kaþólsku kirkjunni kveður við nýjan og mild- ari tón gagnvart stöðu samkyn- hneigðra og einnig gagnvart frá- skildu fólki. Hvatt er til þess að kirkjan bjóði báða þessa hópa vel- komna. Frans páfi hefur áður sagt að ekki beri að fordæma óhefð- bundið fjölskylduform. Ljóst er samt að ákaft er deilt um málið meðal biskupa og presta, að sögn New York Times. Einnig hafa afrískir prelátar margir verið í fararbroddi þeirra harðlínumanna sem vilja banna samkynhneigð með lögum, hún sé synd sem ekki sé hægt að fyrirgefa. Í nokkrum Afr- íkuríkjum er dauðarefsing við sam- kynhneigð. En páfi hefur tekið af- stöðu og skipaði t.d. á föstudag sex skoðanabræður sína í forystuhóp biskupafundarins, hópurinn á að undirbúa lokaskjal fundarins. Eng- inn sexmenninganna er frá Afríku. Biskuparnir segja í skýrsludrög- unum að samkynhneigðir hafi fram að færa ýmsa „hæfileika og eig- inleika“. Þeir spyrja hvort kirkjan geti ekki tekið við þeim og virt kyn- hneigð þeirra án þess að grafa und- an hefðbundnum kenningum kirkj- unnar um fjölskylduna. „Hvernig get ég sett mig í dómarasætið?“ eru orð sem oft er vitnað til en þau lét Frans á sínum tíma falla þegar rætt var um samkynhneigða og trúna. Vitað er að fjöldi kaþólikka á Vesturlöndum álítur að stefna Róm- arkirkjunnar varðandi þessi mál en einnig getnaðarvarnir og hjónaskiln- aði sé úreltar kreddur. Samkvæmt kenningum kirkjunnar mega frá- skildir ekki þiggja sakramenti þar sem þeir hafa brotið gegn banni við skilnaði. En kirkjan veitir undan- þágur og hefur verið lagt til að heim- ildin verði rýmkuð. kjon@mbl.is Mildari tónn í Páfagarði  Samkynhneigðir boðnir velkomnir Stærsta kirkjudeildin » Alls eru kristnir menn í heiminum um 2,4 milljarðar, um helmingurinn kaþólikkar. » Ekki er ætlunin að mæla með hjónabandi eða staðfestri sambúð samkynhneigðra held- ur „virða hvern einstakling“. AFP Nýbreytni Frans páfi hefur breytt mjög ímynd Rómarkirkjunnar. www.volkswagen.is Nú bjóðum við Volkswagen Tiguan Sport & Style drekkhlaðinn af sportbúnaði, á freistandi tilboði sem erfitt er að standast. Komdu og reynsluaktu þessum frábæra bíl. Það kæmi okkur ekki á óvart ef þú vildir taka hann með þér heim eftir rúntinn. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði VW Tiguan. Kominn í sportgírinn. 6.750.000 kr. Tiguan Spo rt & Style D iesel 2.0 TD I á freistandi tilboði: Þú sparar 7 15.000 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.