Morgunblaðið - 15.10.2014, Side 26

Morgunblaðið - 15.10.2014, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014 ✝ María SigrúnGunnarsdóttir, fæddist í Reykjavík 26.8. 1968. Hún lést á Landspít- alanum 1.10. 2014. Foreldrar henn- ar eru Gunnar Hjörtur Gunn- arsson, f. 1942 og Jónína Melsted, f. 1944. Systkini Mar- íu eru: 1) Gunn- laugur M. Gunnarsson, f. 1963, börn hans eru Hrafnkell Gunn- laugsson og Jónína Melsted, 2) Ingibjörg Gunnarsdóttir, f. 1966, maki Pétur Daníelsson f. 1975, börn Daníel, Helga Björg og Lilja Kristín, 3) Sveinborg hún á tvö börn og 3) Auður Héðinsdóttir, f. 1971, hún á tvær dætur. María ólst upp í Breiðholti og Seljahverfi og gekk í Fella- og Ölduselsskóla. Hún kláraði stúdent frá Menntaskólanum við Sund, B.ed. í kennslufræði frá Kennaraháskóla Íslands og BA í þjóðfræði í Háskóla Ís- lands. María kenndi víða á fyrstu búskaparárunum, vet- urinn eftir kennaranámið kenndi hún í Hrísey 1991-92, á Djúpavogi 1993-94, Hrafnagili 1994-96, Reykhólum 1998-2000 og frá aldamótum í Réttarholts- skóla. Veturinn 1996-97 vann hún á leikskóla í Tromsö, einn- ig hafði hún starfað veturinn 1992 við leikskólann Arn- arborg. Nokkur sumur starfaði María við landvörslu á Þingvöll- um. Útför Maríu fer fram frá Há- teigskirkju í dag, 15. október 2014, og hefst athöfnin kl. 13. Gunnarsdóttir, f. 1979, maki Eiríkur G. Ragnars, f. 1979, barn óskírð- ur Eiríksson. Eig- inmaður Maríu er Gísli Héðinsson, f. 1969, börn Ágústa Mjöll, f. 1997, Hjörtur Snær, f. 1997 og Una Sóley, f. 2007. Foreldrar Gísla eru Héðinn Baldvinsson, f. 1940 og Ágústa Lárusdóttir, f. 1941, systkini Gísla eru: 1) Gunnar Pétur Héð- insson, f. 1961, maki Ingibjörg Valgeirsdóttir, f. 1959 þau eiga þrjú börn og 3 barnabörn, 2) Sigríður Héðinsdóttir, f. 1968, María hefur kvatt, hún er far- in í sína síðustu ferð. Það eru margar minningar og góðar til- finningar sem koma upp í huga mér þegar ég horfi til þessara tveggja áratuga sem við höfum átt saman. Við vorum samhent í mörgu eða eins og í góðu stjórn- arsamstarfi sammála um veiga- mestu atriðin sem gerði búskap okkar farsælan. Eins og gefur að skilja hefur hún kennt mér margt, hún var nú kennari og það náði lengra en til veggja skólastofunnar. Mér er það minnisstætt fyrsta veturinn okk- ar þegar við kenndum á Djúpa- vogi þá áttum við það til að fara í helgarbíltúra þegar vel viðraði. María nýtti þessar stundir þar sem mér var engrar undankomu auðið og flutti fyrir mig fyr- irlestra um stjórnmál. Ég var nefnilega ungur, frjáls og áhyggjulaus. Eftir þessa bíltúra fór ég að hallast meira að sam- rekstri og samyrkju, mín rök héldu lítið gegn rökum Maríu þá og svo oft síðar. Það einkenndi Maríu dálítið, þ.e. rökfesta, fylgni við sannfæringu sína og ekki síst umhyggja, bæði til sinna nánustu og heildarinnar. María féll frá eftir glímu við krabbamein sem stóð yfir með hléum frá upphafi árs 2009. Núna, eftir að baráttu hennar er lokið og ég lít til baka, get ég ekki annað en dáðst að baráttu hennar og verið henni afar þakklátur hversu góður sjúk- lingur hún var, eins og hún var góð móðir og lífsförunautur. Sjaldan kvartaði hún og aldrei gerði hún ósanngjarnar kröfur til okkar. Hún bar sinn harm í hljóði og bar ekki tilfinningar sínar á torg. Henni var umhug- að um að halda hefðbundnu heimilislífi og raska ekki rútínu barnanna. Ég tel hana hafa náð að halda sem mestum lífsgæðum sem einstaklingur í hennar stöðu gat átt og vona innilega að við börnin höfum náð að gera henni baráttuna auðveldari. Við héldum áfram að ferðast, njóta náttúrunnar og vera úti, þangað sem hún sótti mikinn kraft. Hún útskrifaði sig af krabbameins- deildinni í sumar til að halda beint upp í flugvél til Akureyrar svo hún næði nokkrum dögum í Vaglaskógi með okkur Unu og systkinum sínum. Margur hefði viljað taka fyrstu dagana eftir spítalavistina rólega en María var ákveðin að nýta þetta tæki- færi og erum við öll ánægð að það gekk upp þrátt fyrir nokkr- ar hindranir. Ég kveð þig, elsku María mín, og þakka fyrir allar sam- verustundirnar. Ég veit þú vakir áfram yfir velferð okkar. Gísli Héðinsson. Ingibjörg, María, Helga og Anna Sigga. Við vorum fjórar frænkur fæddar með um árs millibili og ólumst fyrstu árin upp hver nálægt annarri á Rauðarárstíg 3 í stigagangi ömmu Helgu. Í kringum 1970 fluttum við allar í Breiðholtið og bjuggum þar fram á unglings- árin og jafnvel lengur. Við vor- um leikfélagar, enda hæg heimatökin. Oft heyrðist kallað á okkur, einmitt öll nöfnin í romsu ofan af svölum ömmu. Nú er sú yngsta í hópnum fallin frá, langt fyrir aldur fram og verður sárt saknað af öllum sem hana þekktu. María var ákveðin en frekar feimin sem krakki. Hún hafði Ingibjörgu systur sína alltaf sér við hlið og lét hana oft um að vera í far- arbroddi. Minningarnar eru góð- ar hvort sem þær eru frá Rauð- arárstígnum, úr Breiðholtinu eða frá Þingvöllum með ömmu Helgu. Þegar leið á unglingsárin tók María pönktímabilið inn, hún fékk mikinn áhuga á tónlist og sótti tónleika stíft. María var að komin í Menntaskólann við Sund þegar ég flutti utan til náms og skrifuðumst við reglu- lega á. Þá kom í ljós hversu orð- hög og mikill stílisti hún var. Það var tilhlökkunarefni að fá bréfin frá henni og fylgjast með því sem á daga hennar dreif. Hún heimsótti mig til Austur- ríkis þar sem við ferðuðumst um landið í vikutíma á puttanum og var það ógleymanleg ferð. María lagði mikla áherslu á það í þessu ferðalagi að við tækjum myndir af okkur saman á sem flestum viðkomustöðum. Ég held hún hafi þarna verið á undan sinni samtíð með því að taka „selfie“- myndir í gríð og erg. Í dag er ég þakklát fyrir þessar myndir. María var náttúrubarn. Hún lét sig dreyma um nám í lands- lagsarkitektúr en ákvað svo að fara í kennaranám. Þegar hún hleypti heimdraganum og fór að kenna hingað og þangað um landið kom það vel í ljós. Hún naut þessa tíma og drakk í sig umhverfið á hverjum stað, eign- aðist vini og uppáhaldsstaði. María og Gísli urðu par og skelltu sér tvö til Tromsö í Nor- egi, þar sem Gísli nam. Þau komu þó fjögur heim aftur því í Tromsö fæddust tvíburarnir Ágústa Mjöll og Hjörtur Snær. Þar sýndi María sig í nýju hlut- verki sem mamma og fór henni það mjög vel. Sólargeislinn hún Una Sóley kom svo síðar þegar fjölskyldan var flutt í Goðheim- ana. Meðfram kennslu vann María við landvörslu og var flokkstjóri í unglingavinnunni. Það er ekki hægt að hugsa til Maríu öðruvísi en að brosa og rifja upp húmorinn sem aldrei var langt undan, þegar við hitt- umst var alltaf stutt í hlátur- sköstin og fíflaganginn. María veiktist fyrir 7 árum en þrátt fyrir það dró hún ekki af sér, heldur tók hlutunum með jafnaðargeði, kvartaði ekki og naut lífsins. Fjölskyldan og vin- irnir stóðu þétt í kringum Maríu og fjölskyldu hennar í veikind- unum og okkur sem ekki vorum á Reykjavíkursvæðinu var hald- ið vel upplýstum um gang mála. Við sem fengum að kynnast Maríu vorum heppin og margar góðar minningar um hana munu lifa í hugum okkar. Ástvinum og fjölskyldu Maríu votta ég mína dýpstu samúð. Anna Melsteð. Þá hefur María frænka mín kvatt þetta jarðlíf. Loks laus úr líkamans þrautum eftir margra ára baráttu við krabbamein. Þá baráttu háði hún hetjulega og með æðruleysi. Við frændsystkinin vorum af öðrum og þriðja að skyldleika, ég lið ofar en hún samt eldri, sem ekki er nýlunda í þessari stóru ætt. Samgangur var mikill hér á árum áður, sérstaklega þegar María langamma hennar og amma mín var á lífi. Ömm- urnar eru jú oftast límið sem heldur afkomendaskaranum saman. Ég átti því láni að fagna að eiga mikil samskipti við Ingi- björgu ömmu hennar en hún var föðursystir mín. Í afkomenda- boðum Ingibjargar fékk bróð- ursonurinn stundum að smygla sér með og þannig má segja að ég hafi náð að kynnast Maríu betur heldur en gerist og geng- ur í hraða nútímans. María var allt frá barnæsku minni mér of- arlega í huga. Hún hafði næmt og hárbeitt skopskyn sem þó særði engan og þar fann ég mikla tengingu milli okkar frændsystkina. Hún var því glaðvær og skemmtileg kona og það geymi ég alltaf í minning- unni. María hafði til að bera afar sterka réttlætiskennd eins og hún á kyn til. Allt óréttlæti þar sem gengið var á hlut þess minnimáttar þoldi hún ekki. Hún var því réttlát kona og hjartahlý. Þessu tengt voru því jafnréttismál henni einkar hug- leikin. María var kennaramennt- uð og starfaði við sitt fag. Hún hafði gaman af sögu landsins, sögu ættar sinnar og þjóðlegum fróðleik. Hún var því ættrækin og mikil útivistarkona. Árið 2012 lauk hún námi í þjóðfræði við Háskóla Íslands og fjallaði loka- ritgerð hennar um reynsluheim og ævistarf Ingibjargar ömmu sinnar sem húsfreyju í Ísafjarð- ardjúpi og síðar á Akranesi. Þetta þótti mér fróðleg og skemmtileg ritgerð og ég er ekki í vafa um að María hefur haft ánægju af ritun hennar og Ingibjörg amma hennar að segja frá. Ég vil hér að leiðarlokum þakka Maríu frænku minni afar skemmtileg og ógleymanleg kynni. Ég er þess fullviss að við munum finnast aftur á betri stað með bros á vör og með gleði í sinni. Kæra fjölskylda; Guð veri með ykkur og blessi ykkur öll. Gunnar Guðjohnsen- Bollason. „Mamma var að benda mér á að sækja um að komast í flugu- veiði í Laxá í Laxárdal. Þetta heitir Kastað til bata og mér finnst að við eigum að fara.“ Þessi skilaboð lágu í innhólfinu mínu frá Maríu á vordögum fyr- ir 4 árum. Ég var að sjálfsögðu sammála því að þangað ættum við að fara saman, á vit ævintýr- anna. Málin þróuðust því miður á þá leið að ég komst í hópinn en María ekki. Hún lét það nú ekki á sig fá, heldur samgladdist mér innilega og fékk síðan ít- arlega skýrslu úr þessari frá- bæru ferð þegar við hittumst á orlofshelgi á Eiðum sem Krabbameinsfélag Austfjarða hélt þá um haustið. Kynni okkar Maríu hófust ár- ið 2008 þegar við lágum saman á kvennadeild Landspítalans. Það tókst strax með okkur góður vinskapur, enda María með skemmtilegri manneskjum sem ég hef kynnst. Þegar kom að því að María ætti að útskrifast harðneitaði hún að fara, það væri svo gaman hjá okkur og við ættum eftir að tala um svo margt. Heim fór þó María enda farin að þrá að komast heim til Gísla og barnanna sem hún var svo stolt af. Við vorum duglegar að halda sambandi og það varð fastur lið- ur að hittast yfir kaffisopa eða skreppa á einhvern vænan og grænan veitingastað þegar ég átti leið til Reykjavíkur. Fyrir tveimur árum, þegar lífið tók krappa beygju hjá okkur, urðum við þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast fámennum og sam- heldnum hóp í Ljósinu. Þar höf- um við átt margar gæðastundir saman. Það er gaman að segja frá því að María komst í veiði- ferðina sína með Kastað til bata í fyrra ásamt tveimur öðrum úr hópnum. Ég var sérstaklega ánægð með að þær fengju líka að njóta þeirrar stórkostlegu reynslu. María var einstakt eintak af manneskju. Hún var hnyttin og gamansöm, svolítið forn, fróð um land og þjóð, náttúrubarn og veðurnörd sem leiddist aldrei að spá í veðrið. Ég er óendanlega þakklát fyrir okkar kynni og er viss um að örlögin hafa haft eitt- hvað með þau að segja. Hvíl í friði, elsku vinkona, takk fyrir samfylgdina sem var allt of stutt. Kæri Gísli og börn, foreldrar, systkini og aðstandendur, megi Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Iðunn Geirsdóttir. Ekkert okkar man nákvæm- lega hvernig við kynntumst. Þetta var eins og náttúrulögmál, María Sigrún varð sjálfsagður hluti af lífinu eins og hún hefði alltaf verið með okkur og án hennar verður tilveran ekki söm. Mögulega hefur það verið tónlistin sem færði okkur sam- an, þarna þegar við fyrir til- viljun setjumst í sama bekk, á öðru ári í menntaskóla. Vel má ímynda sér að við höfum öll átt það sameiginlegt að passa illa inn í það uppasamfélag sem þá einkenndi Menntaskólann við Sund. Að minnsta kosti deildum við lífsviðhorfum – og húmor, björtustu minningarnar eru um linnulausan hlátur, sem oftar en ekki orsakaðist af snörpum at- hugunum Maríu á umhverfi sínu. Þetta var ekki stúlka sem hafði mikla þolinmæði gagnvart tilgerð eða uppskafningi af neinu tagi; sjaldan hefur orðið hjartahrein lýst neinni mann- eskju eins vel. Það má þó ekki túlka sem svo að María hafi ver- ið eitthvað einföld, hún var hrein og bein, hlý og hugmyndarík, óbilandi í vináttu sinni en afar krítísk á það sem henni fannst ekki vera lagi. Og hún hafði líka húmor fyrir sjálfri sér, einkenni sem gerði hana enn meira heillandi. Þegar þær Gunnþórunn leigðu saman árið eftir mennta- skólann gáfust fjölmörg tilefni til ýmiss konar samkvæma, þar sem María var að sjálfsögðu hrókur alls fagnaðar. Hófsmann- eskja ávallt, en félagsvera al- gjörlega fram í fingurgóma með endalausan áhuga á fólki og um- hyggju fyrir velferð þess sem skilaði sér í sérlega farsælum kennsluferli hennar. Þá voru umræðurnar við eldhúsborðið meðan fylgst var með störfum fisksalans á neðri hæðinni ákaf- lega skemmtilegar, enda ekki töluð vitleysan. Þetta voru sann- arlega góðir dagar og vináttan hélt áfram þó leiðir skildu í námi, en eins og gengur þá fækkaði samverustundum þegar lífið leiddi fólk í ólíkar áttir og til ólíkra landa. Síðustu árin tók- um við þó upp reglulegar sam- komur á ný og eignuðumst þá fleiri ómetanlegar minningar. Sérstaklega ber að nefna frækn- ar matarveisluferðir í sumarbú- stað fjölskyldunnar á Þingvöll- um: fyrsta verkið var ævinlega að stinga freyðivínsflösku í frystinn. María var stúlka sem fór sín- ar eigin leiðir og hafði ekki þörf fyrir að fylgja straumum og stefnum hefða og norma. Þó var hún ekkert endilega í uppreisn – hún einfaldlega fylgdi sinni sýn á sjálfa sig og heiminn og lét ut- anaðkomandi áhrif sig litlu skipta. Þrátt fyrir að gangast ekki upp í því sem almennt telst til kvenlegs hégóma átti hún þó sinn þokka, sem fólst meðal ann- ars í þykku og síðu ljósbrúnu hári. Og hvað sem á dundi óx það á ný, þétt og mjúkt, en um- fram allt fallegt, sannkölluð höf- uðprýði fallegrar konu sem nú hefur horfið úr lífi okkar, allt, allt of snemma. María var mikil fjölskyldu- manneskja og missir foreldra hennar og systkina, og Gísla, Ágústu, Hjartar og Unu er sárari en orð fá lýst. Við vottum þeim og öðrum aðstandendum hennar okkar innilegustu samúð á meðan við minnumst Maríu með endalausri hlýju. Gunnar Gunnarsson, Gunn- þórunn Guðmundsdóttir, Úlfhildur Dagsdóttir. Það er dýrmætt á lífsleiðinni þegar manni hlotnast að eignast sanna og trausta vini. Við vorum svo heppnar að kynnast Maríu á einni af þessum stundum þar sem ævilöng vinátta verður til. Við vorum menntaskólapæjur í sumarvinnu við garðyrkju í Hljómskálagarðinum og María var verkstjórinn okkar. Allar er- um við ólíkar og höfum farið mismunandi leiðir í lífinu en eitthvað gerðist þetta sumar í miðri Reykjavíkurborg sem varð til þess að við stofnuðum sauma- klúbb og bundumst órjúfanleg- um vináttuböndum sem hafa nú haldið í tæp þrjátíu ár. María var elst í hópnum og mikill áhrifavaldur. Tónlist var henni mikilvæg alla tíð og hún fylgdist vel með nýjustu tónlist- arstraumunum, líkaði yfirleitt best það sem unglingarnir voru að hlusta á og hægt var að dansa við. Þetta sumar í Hljóm- skálagarðinum kynnti hún okkur fyrir sínum uppáhaldshljóm- sveitum og fyrr en varði vorum við allar farnar að hlusta á fram- sækið rokk. María var mikil úti- vistarmanneskja og náttúrubarn fram í fingurgóma sem vissi ekkert skemmtilegra en að ferðast um landið, fara í útilegur eða skreppa í sumarbústað. Hún hafði frumkvæði að því að saumaklúbburinn skipulagði ferð í Þórsmörk þetta fyrsta sumar okkar og varð það upp- hafið að ótalmörgum sauma- klúbbsferðalögum um landið. María var einstök manneskja, bæði með sinni sýn á lífið og í viðmóti. Áhugi hennar á um- hverfi sínu öllu og mannlífi var smitandi. Það má með sanni segja að hún hafi alltaf farið sín- ar eigin leiðir og lét aldrei sam- félagslegan þrýsting eða tísku- strauma leiða sig. Hún hafði þann eiginleika að segja skemmtilega frá, var vel upplýst og hafði sterkar skoðanir á því sem tengdist hennar sýn á lífið. Stundirnar með Maríu voru allt- af ánægjulegar, fullar af hlýju, gleði og hlátri því hún var mikill húmoristi. Eftir að María veiktist höfum við vinkonurnar fylgst af van- mætti með hetjulegri baráttu hennar. Nú er þeirri baráttu lokið. Þó að við trúum því að á himninum hafi stjörnunum fjölg- að um eina þá vantar sárlega hana Maríu hér hjá okkur. Við erum þakklátar fyrir að hafa fengið að kynnast einstakri konu og taka þátt í lífinu með henni. Elsku Gísli, Hjörtur, Ágústa og Una, þið hafið misst óendanlega mikið en minningin um einstak- lega góða manneskju mun hlýja okkur öllum. Sannir vinir eru þeir sem snerta hjarta manns. Það gerði María og mun hún alltaf eiga stað í hjörtum okkar. Saumó, Anna Björg, Ásta Sóllilja, Guðrún, Kolbrún og Sigurlaug. Maríu hittum við fyrst í Skóg- rækt Reykjavíkur fyrir um 30 árum en það er langur tími í ár- um talið en allt of skammur tími með Maríu. Hún var einstök vin- kona sem gerði allt skemmtilegt með leiftrandi frásögn, gleði og kímnigáfu og sögumaður af guðs náð, með djúpa og áhrifamikla rödd sem hreif alla. Í skógrækt- inni plöntuðum við ótal trjám og hafa þau vaxið og dafnað í gegn- um árin eins og vináttan. Þar sem áður voru berir melar eru nú fallegir skógar, enda óx allt og dafnaði í kringum Maríu. María var fróðleiksfús og stöðugt að læra eitthvað nýtt um lífið og tilveruna sem hún deildi ávallt með öðrum. Hún starfaði sem kennari þar sem góðir eiginleikar hennar og hjartagæska nýttust vel. Hún kom jafnt fram við alla og gerði engan mannamun. Henni fannst mikilvægt að hver og einn fengi að njóta sín á eigin forsendum og að allir fyndu sinn farveg þar sem hæfileikar þeirra fengju að skína. Hún var með aðalatriði lífsins á hreinu, þ.e. að vera góð manneskja og góð fyrirmynd, þannig var María. María var mikill náttúruunn- andi og útivistarmanneskja og naut þess að ferðast með Gísla og sólargeislunum þremur, Ágústu Mjöll, Hirti Snæ og Unu Sóleyju. Hún var dugleg, já- kvæð og bjartsýn og hafði hag barnanna ávallt að leiðarljósi. María lét ekki erfið veikindi aftra sér frá því sem hún vildi gera. Í sumar þegar veikindin versnuðu kom berlega í ljós úr hverju hún var gerð. Hún fór til Spánar með fjölskyldunni og norður á land í bæði skiptin beint af spítalanum. Alltaf hélt hún áfram, kvartaði aldrei og lét nánast ekkert stoppa sig. Þetta geta aðeins dugnaðarforkar. María var ákaflega félagslynd og vinmörg og í þessi 30 ár sem við nutum samvista við hana bar aldrei skugga á. Við vinkonurn- ar hittumst oft og spjölluðum og hlógum saman. Hún var næm á líðan og tilfinningar annarra og betri hlustanda var ekki hægt að finna. Hún hafði næmt auga fyrir góðu jafnvægi í mannleg- um samskiptum, og maður fann vel fyrir því að henni fannst mikilvægt að allar raddir fengju ekki bara að heyrast heldur njóta sín og hljóma vel. María hafði alltaf þessa hreinu einlægni og forvitni sem svo margir glata með árunum; ekki María, hún vandaði sig bara meira við lífið eftir því sem árin liðu, Hún var til fyrir- myndar á svo mörgum sviðum, svo heil og sönn og hafði aldrei hátt um eigið ágæti. Að því leyti kenndi hún manni svo margt, svo ótalmargt sem maður kemur María Sigrún Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.