Morgunblaðið - 15.10.2014, Side 35
rannsóknastofnana og líftækni-
fyrirtækja á Nýja-Sjálandi 1993,
stundaði rannsóknir við Líftækni-
stofnun háskólans í Cambridge,
Englandi, 1997 og 1999 og við
Lífefnaverkfræðideild University
College í London 2008.
Hörður var formaður Lífefna-
fræðifélags Íslands 1972-74, varafor-
maður Félags háskólakennara 1976-
78, formaður þess 1986-88 og sat í
samninganefnd 1987-92, var fulltrúi
Félags háskólakennara í Há-
skólaráði 1978, 1980-82 og 1993-95,
sat í undirbúningsnefndum vegna
rannsóknaráðstefna læknadeildar
HÍ, sat í þróunarnefnd HÍ, var aðili
að hönnunarnefndum og verkefnis-
stjórnum vegna byggingar lækna-
deildarhúss 1974-93, sat í Vísinda-
nefnd læknadeildar og formaður
hennar 1989-91, sat í fjármálanefnd
HÍ 1994-96 og í ráðgjafarnefnd fyr-
ir ráðstefnurnar Enzyme Eng-
ineering Conferences, sat í fjár-
málanefnd raunvísindadeildar, var
forstöðumaður Efnafræðistofu
Raunvísindastofnunar og síðar Líf-
efnafræðistofu sömu stofnunar og
sat jafnframt í stjórn stofnunar-
innar. Hann skipulagði og stýrði al-
þjóðlegri ráðstefnu, Affinity 2009, í
Reykjavík 2009.
Hörður er félagi í fjölda vísinda-
félaga, innlendra og erlendra, hef-
ur skrifað mikinn fjölda greina, rit-
gerða og greinargerða á sviði
lífefnafræði, sem og blaðagreinar
um málefni háskóla. Hann hefur
tvisvar hlotið Hagnýtingarverðlaun
Háskóla Íslands, „Uppúr skúff-
unum“.
Með hófstillt áhugamál
En hefur vísindamaðurinn tíma af-
lögu fyrir áhugamál?
„Já, en þeim er stillt í hóf. Áhuginn
hefur legið í störfum mínum, í
kennslu og rannsóknum. En við eig-
um stóran garð hérna í Vestur-
bænum og ég nýt þess að bjástra í
honum og reyna að halda honum við.
Ég hef allan minn kennsluferil
stundað blak og leikfimi, ásamt fleiri
kennurum við HÍ, lengst af hjá
Valdimar Örnólfssyni. Fyrir áratug
eða svo fór ég að ganga um óbyggðir
landsins með Ferðafélagi Íslands.
Ég fer nú ekki nema eina ferð á ári,
en þetta eru allt upp í sex daga, ynd-
islegar gönguferðir sem minna mig á
að ég er lifandi. Loks hef ég gaman
af að taka ljósmyndir, einkum á
ferðalögum eins og þessum.“
Fjölskylda
Hörður kvæntist 9.1. 1971 Mar-
gréti Oddsdóttur, f. 28.9. 1945, fyrrv.
dagskrárstjóra Rásar 1 við Ríkis-
útvarpið. Hún er dóttir Odds Sigur-
bergssonar, f. 19.5. 1917, d. 14.8.
2001, fyrrverandi kaupfélagsstjóra
Kaupfélags Skaftfellinga í Vík í Mýr-
dal, og Kaupfélags Árnesinga á Sel-
fossi, og Helgu Einarsdóttur, f. 6.12.
1922, húsfreyju.
Stjúpdætur Harðar eru Helga Brá
Árnadóttir, f. 25.8. 1966, verkefnis-
stjóri styrktarsjóða Háskóla Íslands,
en sambýlismaður hennar er Jón
Gunnar Þorsteinsson, ritstjóri Vis-
indavefsins, og eru dætur þeirra
Margrét Lára, f. 31.5. 2005, og Þór-
unn Helena, f. 12.11. 2011, en börn
Jóns Gunnars eru Þorsteinn Gunnar,
f. 18.2. 1993, og Valgerður, f. 22.7.
1998; Þórunn Dögg Harðardóttir, f.
15.1. 1969, meðeigandi og verkefna-
stjóri hjá Athygli ráðstefnum, en
maður hennar er Jón Erling Ragn-
arsson, framkvæmdastjóri Mekka
Wines and Spirits, og eru dætur
þeirra Una Brá, f. 14.4. 1993, Andrea
Rós, f. 16.12. 1997, og Telma Ösp, f.
9.10. 2003.
Systkini Harðar eru Haukur F.
Filippusson, f. 16.1. 1939, tannlæknir
í Reykjavík, og Hrefna Filippus-
dóttir, f. 30.1. 1942, húsfreyja í
Kópavogi.
Foreldrar Harðar: Filippus M.
Gunnlaugsson, f. 17.5. 1905, d. 12.4.
1981, sölustjóri hjá Viðtækjaverslun
ríkisins í Reykjavík, og Sigríður
Gissurardóttir, f. 27.11. 1909, d.
28.09. 2006, húsfreyja.
Úr frændgarði Harðar Filippussonar
Hörður
Filippusson
Sigríður Árnadóttir
húsfreyja á Kanastöðum
Guðfinna Ísleifsdóttir
ljósmóðir í Drangshlíð
Gissur Jónsson
hreppstj. í
Drangshlíð undir Eyjafjöllum
Sigríður Gissurardóttir
húsfreyja í Reykjavík
Jón Hjörleifsson
hreppstj. í Eystri-Skógum undir
Eyjafjöllum
Jón Gissurarson
skólastjóri
Gagnfræðaskóla Austurbæjar
Ragnheiður Helga
Magnúsdóttir
prestsfrú á Stað
Pétur
Hoffmann
pr. á Stað
Svava Pétursdóttir
húsfr. á Hrófbergi
Hreinn
Halldórsson
fyrrv.
Evrópumeistari í
kúluvarpi
Sesselja Filippusdóttir
húsfreyja í Halakoti
Magnús Einarsson
b. í Halakoti í Hraungerðishr.
Marta Guðrún Magnúsdóttir
húsfreyja í Ósi
Gunnlaugur Magnússon
b. á Ósi við Steingrímsfjörð
Filippus M. Gunnlaugsson
sölustj. í Rvík
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfr. á Hrófbergi
Magnús Magnússon
hreppstj. á Hrófbergi í Strandasýslu
Ísleifur Magnússon
b. á Kanastöðum í Landeyjum
Guðrún Magnúsdóttir
húsfr. í Eystri-Skógum
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014
Rögnvaldur Kristján fæddist áEskifirði 15.10. 1918. For-eldrar hans voru Sigurjón
Markússon sýslumaður og Sigríður
Þorbjörg Björnsdóttir.
Sigurjón var sonur Markúsar
Bjarnasonar, skólastjóra Stýri-
mannaskólans, og Bjargar Jóns-
dóttur, en Sigríður Þorbjörg var
systir Bjarna, eftirhermu og gam-
anvísnasöngvara, dóttir Björns
Björnssonar, bónda í Álftártungu,
og Jensínu Bjarnadóttur.
Eiginkona Rögnvaldar var Helga
Egilson sem lést 2001 og eignuðust
þau tvo syni, Þór og Geir.
Rögnvaldur lauk prófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík 1937,
stundaði nám í píanóleik hjá M. Ci-
ampi í París 1937-39 og M. Horz-
ovsky og Sascha Gorodnitzki í New
York 1942-45 og lauk prófi í hljóm-
sveitarútsetningum hjá Vittorio Gi-
annini við Juilliard School of Music í
New York 1944.
Rögnvaldur kenndi píanóleik við
Tónlistarskólann í Reykjavík 1945-
86, var yfirkennari við framhalds-
deild píanódeildar skólans frá 1959
og yfirkennari í píanóleik við Nýja
tónlistarskólann frá 1986 og til ævi-
loka.
Rögnvaldur hélt fjölda einleiks-
tónleika, kom fram með hljóm-
sveitum og lék á fjölda útvarps- og
sjónvarpstónleika, hér á landi og
víða um heim, og inn á fjölmargar
hljómplötur. Hann var tónlistar-
gagnrýnandi við Morgunblaðið,
Tímann og Þjóðviljann og gerði
þáttaröð fyrir útvarp, 1985-88, Túlk-
un í tónlist, sem var afar vinsælt út-
varpsefni. Hann var m.a. formaður
FÍT 1977-83, og Einleikarasam-
bands Norðurlanda 1979-81. Hann
hlaut riddarakross hinnar íslensku
fálkaorðu fyrir framlag sitt til menn-
ingarmála á Íslandi, var heiðurs-
borgari Winnipeg-borgar og heið-
ursfélagi Félags íslenskra
tónlistarmanna.
Endurminningar Rögnvalds,
skráðar af Guðrúnu Egilson, eru
bækurnar Spilað og spaugað og Með
lífið í lúkunum.
Rögnvaldur lést 28.2. 2004.
Merkir Íslendingar
Rögnvaldur Sigurjónsson
95 ára
Tafil Zogaj
85 ára
Elínborg Guðjónsdóttir
Kári Þorsteinsson
Petra Gunnarsdóttir
Þór Halldórsson
80 ára
Ingvi Böðvarsson
Jón Gunnar Júlíusson
Magnús Guðmundsson
Ragnhildur Þórarinsdóttir
Þórður Ásgeirsson
75 ára
Haukur Guðmarsson
Líney Skúladóttir
Páll Hannesson
Sigurður Vilhjálmsson
Steinunn Axelsdóttir
Þórður Stefánsson
Þór Símon
Ragnarsson
70 ára
Ásdís Hansen
Lúðvíksdóttir
Guðmundur Emil Pálsson
Gunnar Björnsson
Þórir Sigurðsson
60 ára
Agnar Ívar Agnarsson
Bergrós Björnsdóttir
Bjarni Þór Kristjánsson
Ingibjörg Benediktsdóttir
Jóhann Sigurðsson
Ragnheiður Sigurðardóttir
Ragnhildur Árnadóttir
Unnur Hjartardóttir
50 ára
Ásgeir Þór Ásgeirsson
Elva Björg Vigfúsdóttir
Guðrún Valtýsdóttir
Helene Engkjær
Hrafnhildur Karó Norðdahl
Inga Lóa Hannesdóttir
Ólöf Arnbjörg Þórðardóttir
Rafn Baldur Gíslason
Stephen Mark Francis
Súsanna Guðný
Þorgrímsdóttir
Þórdís Hauksdóttir
Þór Sigurðsson
40 ára
Álfheiður Svana
Kristjánsdóttir
Árni Gunnar Ragnarsson
Björn Vigfús
Metúsalemsson
Christiane Stadler
Dögg Lára Sigurgeirsdóttir
Guðmundur Björgvin
Daníelsson
Magnús Frímann
Ingimundarson
Magnús Unnar Haukdal
Jónsson
Rebekka Halldórsdóttir
Telma Halldórsdóttir
Unnur Valgeirsdóttir
Willy Blumenstein
Valdimarsson
Þórdís Rúnarsdóttir
Þórður Ingimar
Kristjánsson
30 ára
Davíð Hreinsson
Donatas Sedbaras
Eva Ósk Pétursdóttir
Liena Jaunbelzere
Valdimar Ingi Auðunsson
Viktor Ingi Ingibergsson
Þórarinn Örn Þrándarson
Til hamingju með daginn
30 ára Róbert ólst upp í
Reykjavík, býr í Eyjum og
starfar hjá Eyjablikki.
Maki: Helga Dóra Magna-
dóttir, f. 1984, stundar
nám í þroskaþjálfun við
HÍ.
Dætur: Lilja Rut, f. 2008,
og Rakel Jósebína, f.
2011.
Foreldrar: Kristinn Eiðs-
son, f. 1957, tréskurð-
armeistari, og Þórunn
Haraldsdóttir, f. 1957,
starfar við umönnun.
Róbert Már
Kristinsson
30 ára Guðjón ólst upp á
Akureyri, hefur verið bú-
settur þar lengst af og er
nú verkamaður hjá
Slippnum á Akureyri.
Bræður: Björn Hjálm-
arsson, f. 1974, sjómaður,
og Birkir Hjálmarsson, f.
1975, sjávarútvegsfræð-
ingur hjá Granda.
Foreldrar: Hjálmar
Björnsson, f. 1945, húsa-
smíðameistari, og Pálína
Jónsdóttir, f. 1948,
sjúkraliði.
Guðjón Unnar
Hjálmarsson
30 ára Hlynur býr í
Reykjavík, stundaði nám í
grafískri hönnun og starf-
ar sjálfstætt.
Systkini: Sigríður Jóna
Ingólfsdóttir, f. 1982;
Haukur Ingólfsson, f.
1990, og Vilhjálmur Ingi
Ingólfsson, f. 1994.
Foreldrar: Kristín María
Kjartansdóttir, f. 1961,
skrifstofumaður, og Ing-
ólfur Hauksson, f. 1960,
fjármálastjóri Glitnis. Þau
búa í Reykjavík.
Hlynur
Ingólfsson
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklu meira, en bara ódýrt
Rafgeyma-
hleðslutæki/
vaktarar
Bílamottur
Startkaplar
Vasaljós í miklu úrvali
Laufsuga 3000W
Fötur/Balar/tunnur/
stampar, mikið úrval
9.995
Tilboð
frá 1.595
frá 795
Laufhrífur
Strákústar
Ruslapokar
Stórir sterkir
Garðvagnar/
Ruslavagnar
frá 7.995
Lauf/
ruslastampar
frá 985
Vinnuvettlingar Pu-Flex
frá 295 Strekkibönd/
farangursteygjur,
rosalegt úrval
frá 385
frá 1.995
frá 595
Rúðuþurrkur
frá 4.995
frá 1.895
frá 295