Morgunblaðið - 15.10.2014, Qupperneq 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
16
16
L
GONE GIRL Sýnd kl. 7 - 10
DRACULA UNTOLD Sýnd kl. 8 - 10
TOMBSTONES Sýnd kl. 5:40 - 8 - 10:20
SMÁHEIMAR 2D Sýnd kl. 5:40
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND UM
EINKASPÆJARA SEM FLÆKIST INN Í
HEIM EITURLYFJASALA
LIAM NEESON
ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON
MARGUR ER
KNÁR
ÞÓTT HANN SÉ
SMÁR...
-Empire
-H.S.S., MBL
★★★★★
-T.V., biovefurinn
★★★★★
-V.J.V., Svarthöfði.is
Spænska rithöfundinum Car-los Ruiz Zafón hefur tekistað búa til heillandi heimspennu og svika, ógnar og
illsku, hugdirfsku og göfgi, leynd-
ardóma og ráðgáta í bókaflokki sín-
um um Kirkjugarð gleymdu bók-
anna. Fyrsta bókin í flokknum,
Skuggi vindsins, var bráðskemmti-
leg lesning og grípandi og hélt frá
fyrstu blaðsíðu til
þeirrar síðustu. Í
þriðju bókinni,
Fangi himinsins,
tekst Ruiz Zafón
ekki jafn vel upp,
en þó er ekki
hægt að kvarta
því að bækur
hans eru eins og
völundarhús, full-
ar af óvæntum uppákomum og ófyr-
irséðum vendingum.
Sögusvið bókarinnar er Barcelóna
í lok sjötta áratugar 20. aldar og
kringum 1940. Þetta er valdatími
Francos og hann liggur eins og mara
á spænsku samfélagi þar sem allir
eiga sér leyndarmál og falda sögu,
ekki síst sögupersónur Ruiz Zafons.
Aðalsöguhetjurnar eru Daniel
Sempere og hinn litríki og skemmti-
lega ósvífni – eða hreinskilni – félagi
hans, Fermin Romero de Torres,
sem báðir vinna í fornbókasölu föður
Daniels.
Eins og búast má við leika bækur
stórt hlutverk í Fanga himinsins.
Gamlar bækur, óskrifaðar bækur,
vondar bækur og góðar bækur. Sag-
an hefst þegar dularfullur maður
kemur inn í bókabúðina, kaupir
verðmætt eintak af Greifanum af
Monte Cristo og skilur það eftir með
skilaboðum til Fermins.
Ruiz Zafon reynir að flækja sög-
una eftir megni. Lesandinn er dreg-
inn aftur í tímann þar sem Fermin
dúsir í fangelsi ásamt rithöfundinum
David Martín. Fangelsisstjórinn á
metorð sín að þakka að vera vel gift-
ur, en hann vill verða menningarpáfi
landsins frekar en tukthúsmeistari
og ætlast til þess að Martín hjálpi
honum að hefjast til vegs og virð-
ingar.
Hún segir frá niðurdrepandi tím-
um og óhugnaði og er full af harmi,
en um leið er yfir frásögninni ævin-
týrablær og hún geislar af þrótti og
lífsgleði þeirra, sem hafa engu að
tapa og geta látið skeika að sköpuðu.
Sagan er skemmtilega fléttuð og
Ruiz Zafón er mikil sögumaður og
Sigrún Ástríður Eiríksdóttir þýðir
hana lipurlega.
Gert er ráð fyrir því að bækurnar
í þessum flokki verði fjórar og segir í
upphafi að þær megi lesa í hvaða röð
sem er eða sem stakar sögur. Það er
ekki alls kostar rétt því að í lok
Fanga himinsins er lesandinn skil-
inn eftir í lausu lofti og dæmdur til
að vera fangi í völundarhúsi höfund-
arins þar til fjórða og síðasta bókin
um veröld Kirkjugarðs gleymdu
bókanna kemur út.
AFP
Sagnagleði Carlos Ruiz Zafón kann að halda lesandanum við efnið.
Í völundarhúsi
Ruiz Zafóns
Mál og menning
Fangi himinsins bbbmn
Höfundur: Carlos Ruiz Zafón. Þýðandi:
Sigrún Á. Eiríksdóttir. 284 bls. 2014.
KARL BLÖNDAL
BÆKUR
Uppfærsla National Live Theatre í
Lundúnum á hrollvekju Mary
Shelly, Frankenstein, eftir leik-
gerð Nicks Dear, verður sýnd í
Bíó Paradís á fimmtudaginn, 16.
október.
Leikstjóri sýningarinnar er hinn
heimskunni kvikmyndaleikstjóri
Danny Boyle og er upptakan frá
árinu 2011. Johnny Lee Miller fer
með hlutverk vísindamannsins
Viktors Frankensteins en hann
hefur áður leikið fyrir Boyle, í
kvikmyndinni Trainspotting frá
árinu 1996. Benedict Cumberbatch
leikur skrímslið, sköpunarverk
Frankensteins.
Tvær útgáfur af leiksýningunni
verða sýndar í Bíó Paradís. 16.,
18. og 19. október mun Benedict
Cumberbatch fara með hlutverk
skrímslisins og Jonny Lee Miller
með hlutverk vísindamannsins en í
seinni útgáfunni, sem sýnd verður
25. og 30. október og 2. nóvember,
skipta þeir um hlutverk.
Frankenstein í leikstjórn Danny Boyle í bíó
Hryllingssaga Naomie Harris í hlutverki Elizabeth Lavenza, unnustu Victors
Frankensteins, og Johnny Lee Miller í hlutverki skrímslisins.
Kvikmyndaleik-
arinn og leik-
stjórinn Robert
Redford er næsti
handhafi hinna
virtu kvikmynda-
verðlauna sem
kennd eru við
Charlie Chaplin
og The Film Soc-
iety of Lincoln Center veitir árlega.
Redford verður 42. verðlaunahafinn
en meðal þeirra sem veitt hafa við-
urkenningunni viðtöku eru Alfred
Hitchcock, Billy Wilder, Elizabeth
Taylor, Meryl Streep og Tom Hanks.
Formaður valnefndarinnar segir
Redford ekki bara vera þekktan og
dáðan leikara, leikstjóra og fram-
leiðanda, heldur hafi hann lílega
gert meira af því að kynna verk
ungra kvikmyndagerðarmanna en
nokkur annar í bransanum.
Redford hlýtur
Chaplin-verðlaun
Robert Redford
Breski raftónlistarmaðurinn Mark
Bell er látinn, 43 ára að aldri. Bell
var áhrifamikill upptökustjóri og
minnast fjölmiðlar hans ekki síst
fyrir umfangsmikið samstarf
þeirra Bjarkar Guðmundsdóttur.
Að sögn talsmanns útgáfufélags
Bells lést hann eftir skurðaðgerð.
Hann sló í gegn snemma á tíunda
áratugnum, í dúettinum LFO sem
hann stofnaði ásamt Gez Varley og
teljast þeir til brautryðjenda á sviði
dansvænnar raftónlistar.
Bell stýrði upptökum á plötu
Bjarkar, Homogenic, árið 1997 og
varð einn af hennar nánustu sam-
starfsmönnum. Bell starfaði til að
mynda einnig með Depeche Mode.
Virtur Mark Bell var einn af nánustu samstarfsmönnum Bjarkar Guðmundsdóttur.
Raftónlistarmaðurinn Mark Bell látinn