Málfríður - 15.10.2005, Blaðsíða 2
2 MÁLFRÍÐUR
• Greinar þurfa að berast ritstjórn Málfríðar á tölvutæku
formi og vistast sem MS Windows Word 6.0/95 eða Mac
Word skjöl. Skrárnar má annað hvort senda á disklingi
ásamt útprentuðu eintaki eða sem viðhengjur í tölvupósti
en þá þarf að geta þess að skil efnisgreina séu rétt.
• Myndir af höfundum svo og annað myndefni þarf að
ber ast á pappír eða tölvutæku formi sem tiff, eps eða jpg
skrár í minnst 300 pt upplausn.
• Vegna birtingar Málfríðar á Netinu þurfa höfundar að
veita samþykki fyrir birtingu greina sinna með því að
fylla út sérstakt eyðublað höfunda sem finna má á vefsíðu
ritstjórn ar á Netinu og senda það síðan í pósti eða faxa til
ritstjórn ar.
• Áskrifendur Málfríðar geta breytt póstföngum sínum
vegna aðsetursskipta o.s.frv. með því að senda tölvu-
póst beint til Ástu St. Eiríksdóttur hjá Kennarasambandi
Íslands (KÍ). Netfang: asta@ki.is.
• Ósk um nýja áskrift þarf að berast til viðkomandi félags
tungumálakennara eða einhvers í ritstjórn Málfríðar.
Sama gildir um lok áskriftar.
Leiðbeiningar um frágang greina
Birting greina
Þeir sem óska birtingar greina í tímaritinu Málfríði eru
beðnir um að snúa sér til ritstjórnarmanna.
SÓKRATES menntaáætlun ESB styrkir
skólafólk og menntastofnanir
Umsóknarfrestur 1. febrúar 2006 fyrir næsta skólaár
SÓKRATES/COMENÍUS
– Endurmenntun kennara
Styrkir eru veittir til leik-, grunn- og framhaldsskólakennara til að sækja endurmenntunar-
námskeið í e-u þátttökulandi Sókratesar (30 Evrópulönd) í 1-4 vikur.
– Evrópsk samstarfsverkefni skóla
Samstarfsverkefni / þróunarverkefni a.m.k. þriggja skóla á leik-, grunn- og framhaldsskóla-
stigi frá þátttökulöndum Sókratesar.
– Tungumálaverkefni – nemendaskipti
Nemendaskiptaverkefni skóla, þar sem tveir nemendahópar frá ESB löndum skiptast á 2 vikna
gagn kvæmum heimsóknum a.m.k. 10 nemendur í hóp 12 ára og eldri.
– Evrópsk aðstoðarkennsla í tungumálum
Leik-, grunn- og framhaldsskólar auk fullorðinsfræðslustofnana geta sótt um að fá evrópskan
aðstoðar kennara í tungumálakennslu. Aðstoðarkennararnir fá styrki frá sínu heimalandi.
– Aðstoðarkennsla í Evrópskum skólum
Íslenskir stúdentar sem lokið hafa a.m.k. 2 ára háskólanámi og stefna að tungumála kennslu
geta sótt um styrki til að dvelja í 3-8 mánuði í e-u ESB landi við aðstoðarkennslu í skólum.
– Námskeið / námsgagnagerð
Samstarfsverkefni a.m.k. þriggja stofnana frá ESB/EES löndum við að koma á fót endur-
menntunarnámskeiðum fyrir kennara eða vinna við námsgagnagerð. Umsóknarfrestur
1. mars 2006.
Nánari upplýsingar og aðstoð við umsóknir veita Elín Jóhannesdóttir og Ragnhildur Zoëga,
Landsskrifstofu SÓKRATESAR/Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, Neshaga 16, 107 Reykjavík.
sími: 525 4311, fax: 525 5850, netfang: rz@hi.is, elinjoh@hi.is, www.ask.hi.is