Málfríður - 15.10.2005, Side 22
22 MÁLFRÍÐUR
þeir nemendur sem tóku þátt í könnuninni þegar
náð ótrúlega góðum tökum á að skilja einfalt mælt
mál á ensku miðað við að þeir eru byrjendur. Til þess
að fá gleggri mynd af stöðunni þarf að leggja skim-
un ina fyrir fleiri hópa. Ef þær vísbendingar sem þá
fást eru á sama veg, þarf að hafa þær til hliðsjónar
við skipulagningu í kennslu og vali á námsefni.
Næstu skref
Í ljósi þessara niðurstaðna var í upphafi árs 2005 sótt
um framhaldsstyrk sem nota á til að fá betri mynd
af hlustunarfærni nemenda. Byggir sú ákvörðun á
vísbendingum fengnum úr ofangreindri könnun
um að hugsanlega eiga námsmarkmið fimmta bekkj-
ar í ensku við um yngri nemendur.
Verður á haustdögum 2005 gerð könnun meðal
nemenda í fleiri skólum, bæði innan Reykjavíkur og
úti á landi. Ákveðið hefur verið að leggja hlustunina
fyrir í bæði 4. og 5. bekk. Þegar þær niðurstöður
liggja fyrir verður hafist handa við að kanna í
hvaða mæli samhljómur er milli skilnings nemenda
á mæltu máli og hæfni þeirra í að tjá sig á málinu.
Nemendur, kennarar og stjórnendur þátt töku skól-
anna fá bestu þakkir fyrir samstarfið.
Goethe-Zentrum
Reykjavík
Kulturprogramm
Kurse und Stipendien
Bücher, Videos, Zeitungen, Zeitschriften
Ideen für den Deutschunterricht
goethe@goethe.is
www.goethe.is
Laugavegi 18, í húsi Máls og menningar, sími 551 6061