Málfríður - 15.10.2005, Qupperneq 30
30 MÁLFRÍÐUR
fellow who sees unicorns munching lilies“?
(Ljúkið við söguna)
Notkun kennslubóka – ýmsar leiðir til að
nálgast texta
At mati Marios er gallinn við allflestar kennslubæk-
ur sá að þær fjalla um einhvern þriðja aðila, en ekki
„þig og mig“. Þar af leiðandi er það viðfangsefni
kennarans að koma fyrstu og annari persónu inn í
námið til að hjálpa nemendum að ná betri tengingu
við námsefnið. „Our task is to get the students to
engage with the texts“.
Mario sýndi okkur nokkrar mismunandi leiðir
til að vinna með lestexta. Viðfangsefnið var grein,
sem hann hafði skipt upp í búta í samræmi við efn-
isgreinaskiptingu hennar. Síðan beitti hann fjórum
mismunandi upplestraraðferðum við að leiða okkur
í gegnum fjórar fyrstu efnisgreinarnar.
• Fyrsta efnisgrein: Upplestur (dictation). Mario
las upp fyrstu efnisgreinina og við skrifuðum
hana niður.
• Önnur efnisgrein: Mario las upp 4 setningar og
við máttum aðeins skrifa niður fyrsta og síðasta
staf hvers orðs. Síðan fylltu pörin í eyðurnar.
• Þriðja efnisgrein: Mario las hana upp nokkuð
hratt svo við höfðum aðeins tíma til að hripa
niður stikkorð (= a dictogloss exercise). Pörin
reyndu síðan að skrifa upp setningarnar í heild
sinni.
• Fjórða efnisgrein: „segulbandsupplestur“.
Mario þóttist vera segulbandstæki, og við áttum
að gefa honum fyrirmælin START, STOP og GO
BACK TO. Síðan hófst upplesturinn og með-
limir hópsins kepptust um að hrópa áðurnefnd
fyrirmæli, stundum hver í kapp við annan.
Þetta form var áreiðanlega ruglingslegt fyrir
suma, en var eigi að síður spaugileg og „öðru-
vísi“ aðferð til að nálgast texta.
„Málfræðibréf“
Í upphafi hvers dags fengum við handskrifað bréf
frá Mario þar sem hann deildi með okkur ýmsum
vangaveltum, ásamt því að kynna viðfangsefni
dagsins. Hann spurði jafnframt hvort við hefðum
einhvern tíma skrifað nemendum okkar bréf. Hann
hvatti okkur til þess, því það gæti opnað okkur nýjar
leiðir til að nálgast nemendur, einkum þá feimnari.
Bréfin verða vitaskuld að vera skrifuð frá hjartanu til
þess að þau hafi tilætluð áhrif: „These letters must
‘smell real’ in order for them to work“ sagði Mario.
Bréfin kallaði hann „grammar letters“ þótt þau fjöll-
uðu ekkert endilega um málfræði. Sjálfur sagðist
hann nota bréfaskriftir til að deila hugmyndum og
hugarástandi sínu með nemendum, kynna ný við-
fangsefni eða málfræðiatriði, ræða það sem væri
að gerast innan hópsins, koma af stað upprifjun,
o. s. frv. Síðan bætti hann við: „If I don’t write to my
[students], why should they take the written lang-
uage seriously?“
Dagur 4: Ritun af ýmsum toga
Dagurinn hófst á æfingum í að klappa og telja.
Æfingarnar höfðu það að markmiði að vekja okkur,
því Mario sagðist hafa komist að því að við værum
um margt ólík nemendum hans af öðrum þjóðern-
um. Þeir væru yfirleitt hressir í upphafi dagsins, en
þörfnuðust síðan uppörvunar þegar liði á daginn.
Við værum hins vegar vart vöknuð í upphafi dags,
en virtumst til í að halda endalaust áfram þegar
komið væri fram yfir hádegi. Annars var aðalvið-
fangsefni dagsins ritun og bréfaskipti.
Bréfaskipti innan hópsins
Enn á ný afhenti Mario okkur bréf. Í bréfi þessa dags
reifaði hann gagnsemi bréfritunar í kennslu og bað
okkur síðan bæði um að skrifa honum til baka bréf
um okkar eigin reynslu af ritun á erlendum tungu-
málum. Hann bað okkur einnig um að skrifa öðrum
í hópnum um hvað sem er. Bréfin átti að afhenda um
leið og þeim var lokið og síðan átti maður að reyna
að svara þeim bréfum sem manni bárust. Allt þetta
fór fram í þögn; fyrirmæli Marios voru í bréfinu og
hljóðalaust urðu þátttakendur við beiðni hans. Hver
og einn kom sínu bréfi til skila til kennarans og tók
svo til við að skrifa til annarra í hópnum. Mario sjálf-
ur skrifaði í gríð og erg og náði að ég held að svara
með stuttu bréfi öllum þeim bréfum sem honum
bárust. Geri aðrir betur!
Skrifað út frá textasýnishornum
Mario sýndi okkur bókina The Pillow Book of Sei
Shonagon sem skrifuð var af japanskri hirðmey á 10.
öld. Í bókinni er að finna safn ýmiss konar texta; til
að mynda lásum við stuttan lista yfir hluti sem höf-
undi fannst vekja upp hreinlætistilfinningu, annan
lista yfir hluti sem gáfu höfundi óhreinindatilfinn-
ingu og þann þriðja yfir hluti sem þóttu unaðslegir
(sá listi var lengstur). Í kjölfarið bað Mario okkur um
að velja okkur einn af þessum listum sem fyrirmynd
eigin lista. Markmiðið var að sýna fram á gagnsemi
þess að skrifa eftir fyrirmynd án þess þó að herma
nákæmlega eftir fyrirmyndinni.
Ritunaræfingar í pörum
Ritunarþjálfun í tungumálakennslu getur farið fram