Fréttir - Eyjafréttir - 08.01.1998, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur8.janúar 1998
Sælkeri vikunnar -
Ostalæri
Síðasti sœlkerí
ársins 1997, Vilborg
Gísladóttir, skoraði
á Hallgrím Sigurðs-
son að taka við og
liann hefur nýja áríð
sem sœlkeri vikunn-
ar.
„Ég vil þakka henni Villu fyrir að
skora á mig. Mér þótti vænt um það.
Ég hef gaman af að brasa og ekki
síður ánægju af því að borða góðan
mat. Ég ætla að bjóða upp á læri með
ostasósu sem er bæði einfalt og alveg
hræðilega gott.
Ostalæri:
1 lambalæri
salt, pipar og Season All
Steikið lærið á venjulegan hátt, t.d.
í steikarpotti.
Ostasósa:
Hallgrfmur Sigurðsson, sælkeri.
Haft er frjrir satt
- Að framsóknarmenn uppi á landi
vilji að í Eyjum verði boðið fram sér.
Ekki mun sami áhugi á því hér og vilja
menn í Eyjum halda áfram undir
merki V-listans.
- Að mikið sé spáð í framboðsmál
flokkanna. T.d. heyrast nokkur nöfn
nefnd á V - listann.
- Þrálátur orðrómur er á sveimi um
að fyrrverandi fréttastjóri okkar hér á
Fréttum, Þorsteinn Gunnarsson, ætli
sér að fara fram. Má gera ráð fyrir að
útgáfa Eyjablaðsins tæki kipp ef jafn
ritglaður maður og Þorsteinn færi
fram fyrir listann.
- Einnig hefur nafn Jóhannesar
Olafssonar verið nefnt. Ef satt er að
þessir tveir ætli fram, má segja að
knattspyrnan fái verðuga fulltrúa á
framboðslistana í vor og jafnvel hægt
að tala um slagsíðu.
- Nú má velta því fyrir sér hvort
handboltafólki þyki ekki ástæða fyrir
það að vera á varðbergi gagnvart
hagsmunagæslumönnum knatt-
spyrnunnar. Verður gaman að sjá
hvort einhverjir kandídatar koma frá
öðrum íþróttagreinum en knatt-
spyrnu.
sveppir
I rauðpaprika
1 græn paprika
1 camembert ostur
2 pelar rjómi
Saxið sveppi og papriku og brúnið á
pönnu. Bætið osti og rjóma út á og
látið malla þar til osturinn er bráðinn.
Sjóðið kartöflur og afhýðið þær,
setjið þær í skúffuna hjá kjötinu.
Hellið sósunni yfir kjötið og
kartöflumar og setjið í ofn í 15 til 20
mínútur. Þetta er borið fram með
fersku salati, hvítlauksbrauði og
hrísgijónum ef vill.
Ég ætla að skora á Homfirðinginn,
nafna minn, Guðmundsson. Ég veit
að hann er liðtækur í eldhúsinu og
snillingur þegar kemur að
sjávarréttum.
Stúlka
Þann 29. des. sl.
eignuðust þau
Helga H.
Henrysdóttir og
Ólafur
Gunnarsson
stúlku. Hún var
52 cm. og 16
merkur.
Það er stóra systir
Þóra Fríða
Olafsdóttir sem er
með henni á
myndinni
Ljósmóðir var
Björg Pálsdóttir
Leiðist að ganga frá þvotti
Þrettándagleði ÍBV er orðin einn
af föstu punktunum í
skemmtanahaldi í Eyjum. Áður
fyrr varþað Knattspyrnufélagið
Týr sem hafði veg og vanda af
þrettándanum en eftir
sameiningu féiaganna erþað
ÍBV semsérumhann. Margir
hafa verið viðloðandi
þrettándann um áratuga skeið
og einn afföstum jólasveinum
er Einar Friðþjófsson sem er
Eyjamaður vikunnar á nýhöfnu
ári.
Fullt nafn? Einar Friðþjófsson.
Fæðingardagur og ár? 13. sept.
1950.
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? Kvæntur
Húsvíkingnum Katrínu Freysdóttur og
við eigum þrjú börn.
Menntun og starf? Fyrri hluti af BA
prófi í ensku og sögu. Starfa sem
leiðbeinandi við Framhaldsskólann í
Vestmannaeyjum.
Laun? Sæmileg.
Helsti galli? Fljótfær.
Helsti kostur? Sanngjarn, segi ég.
Kannski eru ekki allir sammála mér í
því.
Uppáhaldsmatur? íslenskur
lambahryggur.
Versti matur? Ég held að ég hafi
ekki smakkað hann ennþá. Og þó,
mig rámar í að hafa fengið siginn fisk
á mínum yngri árum og hef ekki
áhuga á að endurtaka það át.
Uppáhaldsdrykkur? Bjór.
Uppáhaldstónlist? Tónlistáranna
1964 til 1970, Bítlarnir og Rolling
Stones.
Hvað erþað
skemmtilegasta
sem þú gerir?
Vera mátulega í
glasi í góðra
vina hópi.
Hvað er það
leiðinlegasta
sem þú
gerir? Að
ganga frá
þvotti. Éger
ágætur að
setja í vélina en
hitt finnst mér
hundleiðinlegt.
Hvað myndirðu
gera ef þú ynnir
milljón í happdrætti? Fara til
Kanarí með fjölskylduna.
Uppáhalds stjórnmálamaður? Mér
fannst Ólafur Ragnar alltaf góður og
finnst raunar enn þó að hann sé
kominn á aðeins annan vettvang.
Uppáhalds íþróttamaður? Óskar
Valtýsson, vinur minn, við spiluðum
lengi saman hér í den.
Ertu meðlimur í einhverjum
félagsskap? Já, Kiwanis og svo er ég
í stjórn KSI.
Hvert er eftirlætissjónvarpsefnið
þitt? íþróttir og þá sérstaklega
knattspyrnan.
Uppáhaldsbók? Gaukshreiðrið.
Hver eru helstu áhugamál þín? Þau
tengjast flest íþróttum.
Hvað metur þú mest í fari annarra?
Heiðarleika og hreinskilni.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra? Ranglæti gagnvarl
náunganum.
Fallegasti staður sem þú
hefurkomiðá? Þaðer
fallegt í Vestmannaeyjum.
En ég hef komið nokkuð
víða og það er fátt sem
jafnast á við Mývatn á
góðumsumardegi.
Hvað ertu lengi búinn
að vera viðloðandi
þrettándann? Égbyrjaði
1968 og það hefurekki
dottið úr ár síðan.
Er gaman að standa í
þessu? Já, það er alveg
feikilega gaman. Og menn vaxa
ekki upp úr þessu, þetta er einhvers
konar ástrfða sem menn verða háðir.
Menn hætta ekki fyrr en þeir eru orðnir
bundnir við hjólastól.
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir
þessi orð:
-Þrettándinn? Gleði.
-Týr? Sorg.
-Helgi Lása? Hlátur.
Eitthvað að lokum? Ég vona bara
að þrettándinn lifi sem lengst.
Nýfazddir Vestmannaeyingar
Stúlka
Þann25. nóv. sl.
eignuðust þau
Kristbjörg
Þorvarðardóttir
og Fred W.
Berkley, stúlku.
Hún var 14
merkur og 52 cm.
Hún hefur verið
skírð Anita Björt.
Ljósmóðir var
Guðný
Bjarnadóttir.
Stúlka
Þann 20. nóv. sl.
eignuðust þau
Hafdís
Hannesdóttir og
Jóhann Þór
Jóhannsson,
stúlku.
Hún var 15 og hálf
mörk og 52 cm.
Bræðurnir Hannes
og Sindri halda á
litlu systur.
Ljósmóðir var
Guðný
Bjamadóttir.
Stúlka
Þann 20. nóv. sl.
eignuðust þau
Sigþóra
Guðmundsdóttir
og Geir
Reynisson stúlku.
Hún var55cm.
og 17,5 merkur.
Það er stóri
bróðir,
Guðmundur sem
er með henni á
myndinni
Ljósmóðir var
Drífa Bjömsdóttir
Drengur
Þann 18. des. s.l.
eignuðust María
Sigurbjörnsdóttir
og AdolfÞórsson
dreng. Hann vó 16
merkur og var 55
cm.
Stóra systir hans,
Sólveig
Adolfsdóttir heldur
á honum á
myndinni.
Ljósmóðir var
Guðný
Bjarnadóttir.