Fréttir - Eyjafréttir - 05.03.1998, Blaðsíða 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 5. mars 1998
Séra Bjarni hlaut bindandi kosningu í Laugarnesssókn:
Átu það ekki víst
Nú hefur verið kunngjört að séra
Bjarni Karlsson mun hljóta starf
sóknarprests Laugarnesssóknar í
Reykjavík. Hann segist ekki hafa
gengið að embættinu sem vísu,
enda margir hæfir menn sem
sóttu um starfið. „Mér er efst í
huga þakklæti til allra þeirra sem
stutt hafa mig í starfið, en tíminn á
eftir að skera úr um hvernig þetta
vinnst. Ég mun starfa hér í
Vestmannaeyjum fram í maí og
ljúka fermingum eins og ráð er
fyrir gert.“
Bjami segir hlutverk kristins
safnaðar að vera vettvangur
guðssamfélags þar sem fólk mótast
til góðra verka. Hins vegar séu
sóknir í þéttbýli oft á tíðum öðru vísi
samsettar. „Það má ktmnski segja að
meiri dreifing sé í söfnuðum
þéttbýlli staða. Hér í Eyjum er
söfnuðurinn miklu mið-lægari og
safnaðarvitund mjög sterk, þannig að
söfnuðurinn getur mótað starfið
nteira í sainvinnu við sinn prest.
Fólk er þannig séð nánara og
kannski samheldnin meiri.“
Hann segir að þrátt fyrir að annað
safnaðarlíf sé nijög líflegt í Vest-
mannaeyjum, þá efli það kristni og
kristilegt starf. „Það styrkir kristni
að hafa sem flesta söfnuði. Þetta er
eins og að eiga góða granna, en það
er ekki þar með sagt að það þurfi að
búa inni á gafli hjá þeim. Sérhver
hefur sitt og sínar venjur og hefðir,
en öll erum við kristnir bræður og
systur.“
Bjami segir að það hafi ekki verið
neitt fomilegt samstarf milli safnað-
anna í Eyjum, heldur hafi það verið
byggt á umburðarlyndi og velvild.
Bjami hefur mikið látið til sín taka
siðferði sjávarútvegsins, eins og
fundir hér í Eyjunt hafa sýnt um það
efni og ekki síður vel heppnuð för
hans til Noregs á dögunum. Er
siðfræði sjávarútvegsins fyrir róða,
þegar þú hverfur til starfa í annari
sókn?
„Nei, nei,“ segir Bjami. „Sið-
fræðiumræðan mun halda áfram og
engin ástæða til að telja þetta stund-
aruppákomu. Nú er jafnvel það
skemmtilegasta eftir í þessari sið-
fræðiumræðu, því þriðjudaginn 10.
mars kl. 20:00 mun undir for-
merkjum fullorðinsfræðslu Landa-
kirkju verða kynning á málefnum
norsku ráðstefnunnar. Málið verður
tekið upp álfæðsluhelgi Landakirkju
föstudaginn 20. mars kl. 20:00. Á
þann fund mun koma annað hvort
heimspekingur eða mannfræðingur
til þess að leggja mat á ráð-
stefnutextann. Einnig mun dr. Sig-
urður Ámi Þórðarson koma frá
fræðsludeild biskupsstofu en fundar-
stjóri mun verða prófessor Erlendur
Jónsson heimspekingur."
Kuldakastið kemur fram hjá Bæjarveitum:
Álagið slð öll met
Friðrik Friðriksson hjá Bæjar-
veitum segir að vegna kulda-
kastsins sem gengið hafi yfir
síðastliðna viku hafi álagið á kerfið
að öllum líkindum aldrei verið
meira frá því veitan var stofnuð.
„Það hefur verið gríðarlegt álag á
hitaveitunni. Meginástæða þess er
kuldakastið og ekki síður að loðnu-
frysting er nú á fullu. Við höfum ekki
fengið þá orku sem við höfunt viljað
fyrir rafskautaketilinn vegna þess að
spennir hjá Búrfellsvirkjun annar ekki
álaginu. Á rafskautaketilinn er keypt
ótryggt rafmagn af Landsvirkjun.
Þegar þess nýtur ekki við þurfum við
að hita vatnið með svartolíu.
Ástæðuna fyrir rafmagnsleysinu á
föstudaginn var, má rekja til þess að sá
spennir fór yfir hámarksálag. Allar
inn á þessum spenni og af völdum
þess álags hefur ótryggt rafmagn verið
skert við okkur."
Friðrik segir að stór hluti af
Suðurlandi sé hitaður með rafmagni.
þess vegna hefur forgangsorka verið
skert til bæjarins. En skerðingin til
Vestmannaeyinga frá því á mánu-
daginn í fyrri viku er um 16 klukku-
stundir á sólarhring. „Við höfum því
keyrt dísilvélar fyrir hátt í þriðjung af
allri orkunotkun í bænum. Við
kaupunt forgangsorku af Rarik en
þegar hana vantar skerða þeir aflið við
okkur.
Friðrik segir að Bæjarveitumar geti
keypt rafmagn fyrir fjórðungi hærra
verð en venjulega. Með tilliti til þess
segir hann að betra sé að keyra
dísilvélamar.
Sigurgeir Jónsson
skrifar
tt+degi
Opna Tvistmótið í snóker:
Þegar báðir vinna á sjöunni
Það er dramatísk þögn við græna
borðið í kjallaranum í
Kiwanishúsinu. Tveir billiardspil-
arar eru að útkljá í oddaleik hvor
þeirra kemst áfram í Opna
Tvistmótinu sem hefur staðið yfir
síðan í janúar. Áhorfendur eru
margir og spilararnir tveir eru
Kiwanismaðurinn Páll Pálmason,
fyrrum markvörður IBV, og
Akógesinn Jóhann Pétursson, lög-
maður. Jóhann vann fyrsta ramm-
ann, Páll annan rammann og nú er
oddaleikur um hvor þeirra kemst í
úrslit. Jóhann hefur haft betri
stöðu framan af leiknum en Páll
sótt í sig veðrið og nú er komið að
því að ein kúla er eftir á borðinu,
báðir vinna á sjöunni, svörtu
kúlunni.
Það er leikið af mikilli varúð,
vamarleikur í fyrrúmi, hvomgur ætlar
að leggja hinn. Loks fer Páli að leið-
ast þófið, svarta kúlan liggur svo sem
hálfan metra frá homi, nálægt batta og
hvíta kúlan nokkuð úti á borðinu. Páll
ákveður að reyna hana í hom, miðar
vandlega og sendir þá hvítu þétt-
ingsfast á þá svörtu. -Bang, hún snýst
heilan hring í horninu ntilli batta, fer
ekki niður, rennur meðfram enda-
battanum og lekur ofan í hitt hornið.
Páll andvarpar feginsamlega, Jóhann
getur greinilega ekki leynt ákveðnum
vonbrigðum og áhorfendur tauta sín á
milli um heppni. Páll er kominn í
úrslit, Jóhann út í kuldann. En það er
í snóker eins og öðrum íþróttum, þar
er það oft heppnin sem ræður og að
þessu sinni var hún á bandi Páls.
Snóker er vinsæl íþrótt víða um
heim. Sérstaklega er það á Bretlands-
eyjum sem vinsældir hennar eru
miklar, t.d. mun snóker vera næstvin-
sælasta íþróttin sem sýnd er í
sjónvarpi þar, einungis knattspyrnan
sem fleiri horfa á. Á íslandi hefur
þessi íþrótt notið sívaxandi vinsælda,
þ.á.m. íVestmannaeyjum. Raunar var
einu billiardstofunni í Eyjum lokað í
vetur vegna erfiðleika í rekstri. En
tveir klúbbar í Eyjum hafa komið sér
upp góðri aðstöðu fyrir íþróttina.
Kiwanismenn eiga tvö keppnisborð
og Akógesar eitt. Öll em þessi borð af
löglegri keppnisstærð. Haldin em mót
hjá báðum félögum og eins keppa þau
sín á milli.
En nú í janúar ákvað Birgir
Sveinsson, í Tvistinum, að koma á
„opnu móti“ þar sem félagsmenn
þessara tveggja klúbba gætu keppt.
Ákveðið var að leika með forgjöf
þannig að hinir slakari ættu jafna
möguleika móti meisturunum. For-
gjöf í snóker er öfug við forgjöf í golfi
Páll mundarkjuðann.
þar sem þeir bestu em með 0. í snóker
eru þeir bestu með háar tölur og
andstæðingurinn fær þá tölu á
„ballann“ sinn í upphafi leiks. Hæstu
forgjöf í Vestmannaeyjum hefur
áðumefndur Páll Pálmason, 35,
nokkrir eru með 28, allmargir 21 og
svo niður úr, alveg niður í 0.
Metþátttaka var í Opna Tvist-
mótinu, 48 skráðu sig til leiks. leikið
var með útsláttarfyrirkomulagi, sá sem
tapaði tveimur leikjum var úr leik.
Kiwanismenn stóðu sig öllu betur,
enda reyndari í íþróttinni og að lokurn
stóðu þrfr Kiwanismenn uppi, þeir
Guðmundur Jóhannsson, Jón Óskar
Þórhallsson og Páll Pálmason. í
forkeppni kom í Ijós að Guðmundur
hreppti þriðja sætið en um efsta sætið
kepptu þeir Jón Óskar og Páll. Sá
úrslitaleikur fór fram sl. föstudag og
var margt um manninn í
Kiwanishúsinu þegar þessir ágætu
snókerspilarar hófu leikinn kl. hálfsjö.
Jón ðskar vann fyrsta rammann
með öryggi og áhorfendur hvísluðust
á um að hann myndi taka „gamla
brýnið" í nefið. En Páll er
gamalreyndur refur sem ekki lætur
taka sig á taugum. Hann vann annan
ranimann af öryggi. Þriðji ramminn
var í járnum og ekki fyrr en á svörtu
kúlunni sem Páll náði að knýja fram
sigur. Nú vonuðust flestir eftir því að
Jón Óskar ynni næsta ramma þannig
að um hreint oddageim yrði að ræða.
En sú varð ekki raunin á. Páll spilaði
af gamalkunnu öryggi og tryggði sér
sigur og þar með efsta sætið.
Öll umgjörð verðlaunaafhend-
ingarinnar var hin glæsilegasta af
hendi þeirra Kiwanismanna sem sáu
um mótið. Snæddur var kvöldverður
og verðlaun síðan aflient. Páll nr. eitt,
Jón Óskar nr. tvö og Guðmundur nr.
3. Elías Baldvinsson, formaður
nefndarinnar, fór á kostum í ræðu
sinni og fleiri góðir létu ljós sitt skína,
þ.á.m. Hallgrímur Tryggvason sent
skildi ekkert í því hvað mönnum
gengi illa að vinna hann Palla Pálma.
Hallgrímur vann nefnilega það afrek í
1. umferð að leggja hann að velli
Birgir Sveinsson, sem gaf öll
verðlaun til keppninnar, tilkynnti að
þetta yrði hér eftir árviss viðburður og
fögnuðu menn því vel.
Birgir í Tuistinum. Guömundur Jóhannsson forseti Kiwanisklúbbsins, Jón Úskar
Þórhallsson og Páll Pálmason.
Af bakhjörlum
íþróttir eru allra meina bót. A.m.k. eru þeir
margir sem halda því fram. Hér áður fyrr voru
íþróttir stundaðar af kappi, ekki síður en nú. Þó
tinnst skrifara sem einn hlutur sérstaklega hafi
breyst í iðkun íþrótta frá því í gamla daga. Það
er orðið miklu fjárfrekara að stunda íþróttir nú til
dags en var á sínum tíma. Áður fyrr voru menn
yfirleitt að keppa innanbæjar og það kostaði
sáralítið annað en keppnisbúning og skó og það
kostuðu íþróttamennirnir yfirleitt sjálfir. Nú til
dags em keppnisferðalög bæði upp á land og til
útlanda snar þáttur í íþróttaiðkun fólks og það
útheimtir peninga, ferðalög eru nefnilega ekki
ókeypis. Þá reynir á forsvarsmenn viðkomandi
íþróttafélaga að hafa alla króka í frammi til að
afla tjár. Kunnar eru margar slfkar aðferðir og
hefðbundnar, svo sem öflun auglýsinga og
happdrætti hvers konar (tombólur eru aftur á
móti ekki lengur í tísku).
En það nýjasta og um leið það besta í
starfsemi íþróttafélaga er það sem á enskri tungu
kallast að hafa ákveðinn „sponsor" eða „spons-
ora“ sem „sponsorera“ starfsemina. Á íslensku
hefur þetta orð verið þýtt með orðinu styrktar-
aðili sem er auðskilið en gallinn sá að það er of
langt. Þessir styrktaraðilar hafa svo styrkt starf
félaganna nteð fjárframlögum. Nú hefur nýtt
orð verið tekið í notkun um þá aðila sem styrkja
íþróttafélög og aðra sem aðstoðar eru þurfi. það
er orðið bakhjarl sem er gott orð að öðru leyti en
því að ungt fólk skilur ekki merkingu þess. Þá
er ekki unnt að rnynda sagnorð af því og verður
því að tala um bakhjarla sem styrkja eða styðja
við starfseinina.
í nær öllunt tilvikum em þessir bakhjarlar stór
og fjársterk fyrirtæki sem velta hundruððum
milljóna eða milljörðum árlega. Peninga-
stofnanir og olíufyrirtæki hafa verið með
vinsælli bakhjörlum og hafa stutt vel við bakið á
ýmsunt félögum, þ.á.nt. í Vestmannaeyjum.
T.d. var Olíufélagið Esso aðalbakhjarl ÍBV
liðsins í knattspymu sl. sumar og standa vonir til
að svo verði áfram. Annað olíufélag, Skeij-
ungur, hefur stutt við handbolta hjá ÍBV í vetur
að ógleymdu hinu árlega Shellmóti þar sem
Skeljungur er líka bakhjarl.
En nú stefnir í óefni. Þessi tvö félög, sem
bæði styrkja ÍBV, em keppinautar í sölu á elds-
neyti. Ogísumarlíturútfyrirvandræði. Uppi
við flugvöll er stórt og mikið skilti, hið fyrsta
sem ferðamenn sjá þegar kernur út úr
flugstöðinni. Þar stendur: „Við vinnum
saman,“ og svo koma merki IBV og Skeljungs.
Væntanlega sætta þeir Esso-menn ekki við þetta
skilti þegar fótboltavertíðin hefst.
Skrifari hefur fyrir því nokkuð ömggar heim-
ildir að innan íþróttahreyfingarinnar í Vest-
mannaeyjum séu uppi ýfingar vegna þessara
bakhjarlamála. Til að mynda munu til búningar,
merktir öðru olíufélaginu. sem til stendur að
nota í sumarfyrir yngri flokkana. Slíkt mun hitt
félagið náttúrlega ekki taka í mál sem bakhjarl
að leikið verði í búningum þar sem keppi-
nauturinn auglýsir.
Þetta mun vera hið erfiðasta mál að leysa og í
fljótu bragði sér skrifari aðeins eina leið til að
leysa það. Hún er sú að olíufélögin Esso og
Skeljungur fari að dærni Þórs og Týs og
sameinist í eitt félag. Þar með ætti að verða
friður í málum íþróttahreyfingarinnar í Eyjum
og er það ekki í raun og veru það sem málið
snýst um? Sigurg.