Fréttir - Eyjafréttir - 05.03.1998, Blaðsíða 15
Fimmtudagur5. mars 1998
Fréttir
15
Sigmar var hetja ÍBV
-í baráttusigri gegn Fram á útivelli
„Eyjahraðlestin“ niætti liði
Framara í Nissandeildinni síðast-
liðið sunnudagskvöld. Fyrir þenn-
an leik höfðu Framarar unnið 10
heimaleiki í röð og voru í 2. sæti
deildarinnar. En það skipti engu
máli fyrir fríska Eyjamenn, seni
héldu uppteknum hætti frá síðustu
leikjum, og þeir gerðu sér lítið fyrir
og lögðu Fram að velli í spennandi
leik, 23 - 24. í hálfleik var staðan 14
-13 Fram í vil.
Vamarleikur ÍBV-liðsins hefur verið
skotheldur að undanfömu og á því
varð engin breyting. Framarar komu
mjög ferskir til leiks og höfðu
undirtökin allan fyrri hálfleikinn en
Eyjamenn misstu þá aldrei langt
framúr sér og var munurinn aðeins 1
mark í hálfleik. 14-13. I seinni
hálfleik setti ÍBV síðan í fluggír og
munaði þar mest um markvörslu
Sigmars Þrastar, sem hreinlega lokaði
markinu í nokkrar mínútur og á því
tímabili komst IBV í 5 marka forystu.
Framarar áttu ekkert svar við leik
Eyiamanna og þurftu að játa sig
sigraða, 23 - 24.
Eyjamenn áttu sannkallaðan topp-
leik á sunnudaginn var. Simmi var
hreint út sagt frábær og varði 22 skot í
leiknum, þar af 14 í seinni hálfleik.
Vörnin gat ekki verið betri og
sóknarleikurinn tjölbreyttur. með
Robertas í broddi fylkingar.
Mörk ÍBV: Robertas 8. Belánýi 6/6,
Guðftnnur 4, Svavar 4, Hjörtur I og
Sigurður I.
Varin skot: Sigmar Þröstur 22/1
Robertas hefur verið í
broddi fylkingar í sákn
ÍBV og hefur fyllilega
staðið undir þeim
væntingum sem til
hans voru gerðar.
Helga Eggerts íslandsmeistari í þrístökki
íslandsmótið í frjálsum, 15 -18 ára,
var haldið í Kópavogi og Bald-
urshaga dagana 21.- 22. febrúar
síðastliðin. Frá Vestmannaeyjum
tóku þátt þrír keppendur, þau
Helga Eggertsdóttir, Katrín Elías-
dóttir og Arni Oli Olafsson.
Árangur krakkanna var sem hér
segir: Helga Eggertsdóttir, 17 ára, varð
íslandsmeistari í þrístökki án atrennu
og stökk hún 7.29 m. Einnig hlaut
hún önnur verðlaun í þrístökki með
atrennu þar sem hún stökk 10.94 m.
Hún hlaut önnur verðlaun í
langstökki með atrennu þar sem hún
stökk 5.09 m. Hún varð í þriðja sæti í
60 m hlaupi á 8,3 sekúndum sem er
nýtt Vestmannaeyjamet. Þá varð hún í
fjórða sæti í langstökki án atrennu þar
sem hún stökk 2.38 m.
Katrín Elíasdóttir, sem er á 17. ári,
stóð sig einnig vel og hlaut hún önnur
verðlaun í langstökki án atrennu þar
sem hún náði 2.47 m. Hún varð í
áttunda sæti í kúluvarpi, með 4 kg.
kúlu, sem hún kastaði 8.63 m. Er það
Vestmannaeyjamet.
Að lokum var það svo Ámi Óli
Ólafsson, sem er á 15. ári, sem náði
Vestmannaeyjameti í kúluvarpi, með
4 kg. kúlu, sem hann kastaði 11.82 m.
Keppendur á Islandsmeistaramótinu ásamt þjálfara sínum. Frá vinstri: Árni Óli Ólafsson, Katrín Elíasdóttir, Helga
Eggertsdóttir og Karen Inga Ólafsdóttir þjálfari.
Hópurinn ÍBV fékk hvorki meira né minna en 10
rétta f hópleiknum um helgina og skaust upp að
hliðnni á Don Revie á toppi D-riðiIs. Árangurinn var
með ágætum um helgina og voru nokkrir hópar með
9 rétta og fjölmargir með 8.
Þátttakendur hópleiksins em beðnir að hafa í liuga,
þar sem riðlakeppninni er að ljúka, að 9 bestu
vikumar verða látnar gilda og verður lélegustu
vikunni hent út. Fjórir efstu hópar fara áfrain í 2
úrslitariðla og lenda fjórir efstu í Á-riðli með tjómm
efstu í B-riðli og svo tjórir efstu hópamir í C og D í
hinum úrslitariðlinum. Efstu hópamir taka með sér 4
stig í úrslitin eins og áður. Hópamir í 2. sæti taka með
sér 2 stig, 3. sæti 1 stig og hópamir sem verma 4. sæti
síns riðils taka ekki með sér stig í úrslitariðilinn sinn.
Þurfi að skera úr um sæti í riðlunum hjá hópum sem
em jafnir, em lakari raðir þeirra teknar saman og
látnar skera úr um sæti. Sömu aðferð verður beitt
þegar komið er í úrslitakeppnina sjálfa þurfi að skera
úr á einhveiju stigi hennar.
Staðan í riðlunum þegar 2 umferðir em eftir:
A-riðill: Geiri smart 60, Tveir flottir 60, Charlotta 55,
Bláa Ladan 53, Hengdur og spengdur 52, Ár-
menningar 51, Flug-eldur 51, Húskross 50, Rauðu
djöflamir 50, Seinheppnir-SH 50, Hurðaskellar 44.
Bommi og frú 42, Kertasníkir 42 og Munda 42.
B-riðill: Dautt á Vatni 57, Allra bestu vinir Ottós 56,
Bæjarins bestu 56, Villta vestrið 55, jójó 53. Klaki 53,
Beyglaður ljósastaur 52, Hamar 52, Pömpiltar 52,
Tvíbökur 52, Snúmsniffararnir 50, Tveir á toppnum
50, Mariner 48, Baukamir44.
C-riðill: ER 56. Burt með íhaldið 55, Styðjum Roy
Evans 54, Maur 53, Sig-bræður 53, Búðarráp 52,
Doddaramir 51, HSÞ 51, A-team 50, ER-jrs 50, í
Vörina 50, Gráni gamli 49 og Hænumar48.
D-riðill: Don Revie 57, IBV 57, K-tröllin 56,
Reynistaður 56, HH-flokkurinn 54, Jagama 53, Sigló-
sport 53, Frosti feiti 52, Austurbæjargengið 49,
Sveitasnakk 49, kaffí Ermasund 48, Kaffi klikk 48,
VSOP 45, Guðmundur VE 44, Klapparar 44.
Eins og sjá má er staðan nú mjög spennandi og
verður gaman að fylgjast með árangrinum næstu
helgi, en þar verða margir leikir úr 1. deildinni í
Englandi, en færri leikir verða í úrvalsdeildinni vegna
leikja í ensku bikarkeppninni.
Ekki er spennan minni í Monrad leiknum, en þar
urðu sætaskipti á toppnum um síðustu helgi. Sigfús
Gunnar í FOTO skaust á toppinn með sigri á
Hengdum og spengdum, en Andy Cole sem var á
toppnum fyrir helgina tapaði fyrri Haraldi Þór, sem er
að rifna úr monti yfír þessum sigri. Segir sagan að
Halli hringi í Cole reglulega þessa dagana. Önnur
úrslit urðu sem hér segir:
Huginn Helga- Sigurjón Birgis. 7-10, Sig-bræður-
Ólafur Guðm. 7-10, Sigg'Oli - Friðfinnur 8-9,
Þrumað á þrettán - Hlynur Sigmars. 10-0, Guðni Sig.
- Eggert Garðars. 9-10, Haukur Guðjóns - Bjössi Ella
10-11, Kári Fúsa - Sigurjón Þorkels 10-10, Húskross
- Georg og fél 10-7, ER - Klaki 10-9 og Jakob Möller
sat hjá.
Staðan á toppnum er því: Sigfús Gunnar 19, Andy
Cole 18, Friðfinnur 17. Eddi Garðars 14.
f næstu viku spila Eggert Garðars og Húskross,
Þrumað á þrettán og Andy Cole, Sig-bræður - Haukur
Guðjóns., SiggÓli - Sigurjón Birgiss., Hlynur
Sigmarss - Jakob Möller, Siguijón Þorkels - ER,
Georg og fél. - Haraldur Þór, Hengdur og spengdur -
Huginn Helga, Óli Guðmundss - Guðni Sig.,
Friðfinnur - Klaki, Bjössi Ella - Sigfús Gunnar. Kári
Fúsa situr hjá.
Þá er bara að leggja hausinn f bleyti og spá í snúinn
seðil næstu helgar og gæti sú vika skorið úr um
hveijir standi uppúr f riðlakeppni hópleiksins. Opnað
verður fyrir getraunasöluna í Týsheimilinu á
laugardaginn kl. I0:00ogeropiðtil 13:45.
Erfitt hjá 2.flokki
Annar flokkur karla í handknattleik
spilaði einn leik f íslandsmótinu,
hér f Eyjum um helgina. ÍBV
strákar mættu þá frísku liði ÍR-inga
og máttu þola 11 marka tap, 23-34.
Eyjastrákar voru yfirleitt skrefi á
eftir gestunum í þessum leik en þó
ber að geta þess að stór hluti 2.
flokks ÍBV er skipað leikmönnum,
sem spila með þriðja og jafnvel
fjórða flokki, þannig að styrk-
Ieikamunurinn á þessum strákum er
þó nokkur. ÍBV strákar gerðu sitt
besta í þessum leik en það dugði
skammttil. Staðan íháltleik var 12
- 18. I seinni hálfleik misstu
Eyjamenn ÍR-inga enn lengra fram
úr sér og lokatölur, sent fyrr segir
23 - 34. Bestu ntenn ÍBV í þessum
leik voru Ríkharð Guðmundsson
(3.flokki) og Óskar Jósúason. Mjög
frískir og spilandi leikmenn.
Mörk ÍBV: Óskar 7, Ríkharð 7/2,
Sigurður Ari 2, Gunnar B. 2, Unnar
2, Elías 12 og Þorsteinn 1.
Varin skot: Davíð 4, Kristinn 1.
Auglýsingastríó í
uppsiglingu?
Knattspymudeild ÍBV hefur farið
fram á heintild til að setja upp
auglýsingu á norðurgafli Iþrótta-
miðstöðvarinnar. Öll auglýsinga-
mál á knattspyrnuvöllum bæjarins
sem eru keppnisvellir liða knatt-
spymudeildar eru alfarið á þeirra
vegum en ekki annara deilda.
Hyggist knattspymudeild breyta
því fyrirkomulagi mun íþrótta- og
æskulýðráð skoða málið frekar.
Þess ber að geta að handknatt-
leiksdeild ÍB V er með auglýsingu á
téðum gafli og menn hafa af því
verulegar áhyggjur að einhverjar
auglýsingaerjur ntuni blossa upp á
milli deildanna.
Fréttir úr ensku
* Lið þeirra Bjamólfs Lárussonar
og Ólafs Gottskálkssonar, Hibern-
ian, tapaði enn einum leiknum í
skosku úrvalsdeildinni. Þá fengu
þeir lið Celtic í heimsókn og
töpuðu, 0-1.
* Crystal Palace, lið Hermanns
Hreiðarssonar, er heldur ekki að
gera góða hluti í ensku
úrvalsdeildinni. Palace tapaði þá á
heimavelli fyrir Coventry, 0-3.
Hemtann spilaði allan tírnann í vöm
Palace. Ástandið er nú orðið frekar
slæmt hjá félaginu, þar sem liðið
situr nú á botni deildarinnar og
hefur enn ekki unnið einn einasta
heimaleik í deildinni
ÍBV í 5. sæti
Annar flokkur kvenna spilaði í
úrslitakeppni íslandsmótsins í inn-
anhússknattspymu unt þar síðustu
helgi. Eyjastúlkur uppskáru ekki
mikið í þessari ferð. Þær töpuðu
báðum leikjum sínunt í riðla-
keppninni en unnu lið IBA, frá
Akureyri, í leik um 5.sætið
Bjarni þjálfari ársins
Bjami Jóhannsson, þjálfari meist-
araflokks ÍBV var kjörinn þjálfari
ársins 1997 af Félagi þjálfara.
Framundan
Aðeins einn leikur verður í íþrótta-
miðstöðinni í næstu viku en á
miðvikudag mætir ÍBV liðið HK.