Fréttir - Eyjafréttir - 05.03.1998, Blaðsíða 7
Fimmtudagur5. mars 1998
Fréttir
7
Helga Jónsdóttir, stjórnandi Litlu lærisveinanna:
Geisladiskurinn
ermntsjöttabam
-segir hún um Gleðifréttir með Litlu
lærisveinunum sem kom út um síðustu
helgi. Er hann eitt merkasta framtak sem
fram hefur komið í barnatónlist ú íslandi
Litlu lærisueinarnir ásamt stjórnanda sínum, Helgu Jónsdóttur.
Tónlist og söngur hefur Iengi staðið
traustum fótum í Vestmannaeyjum.
Bæjarfélagið hefur getað státað sig
af því að eiga sína eigin tónlist og
tónlistarhefð. Hin einu sönnu
Eyjalög tengjast flest þjóðhátíð og í
textum þeirra eru samskipti
kynjanna, náttúra Vestmannaeyja
og þjóðhátíðarstemmningin hafin til
skýjanna. Aftur eru Vestmanna-
eyjar komnar á kortið í tónlistinni
en úr allt annarri átt, eða nánar
tiltekið úr Landakirkju þar sem í
tvö ár hafa hijómað lög þar sem
Guði er sungið lof og dýrð. Lögin
eru eftir Helgu Jónsdóttur sem
stjórnar Litlu lærisveinunum,
sönghóp krakka á aldrinum frá átta
ára upp í tólf ára. Litlu læri-
sveinarnir hafa starfað í tvö ár og í
síðustu viku kom út geisladiskur
með lögurn Helgu í flutningi
Lærisveinanna.
Diskur og myndtiand
Diskurinn og myndband, sem honum
gert var við eitt lagið, voru kynnt f
safnaðarheimilinu á laugardaginn fyrir
kórfélögum, foreldrum þeirra og
öðrum velunnurum. Við það tækifæri
sungu Litlu lærisveinamir nokkur lög.
Sjálfir útgáfutónleikamir vom f
Landakirkju á sunnudagskvöldið. Þar
sungu þeir undir ömggri stjóm Helgu
lögin af diskinum. Húsfyllir var og
undirtektir frábærar. Lögin eru fjöl-
breytt og áhrifin koma víða að,
gyðingleg sveifla, suður amerískur
sömbutaktur, salsa, rokk, öll em þau
sungin með sömu gleðinni og
innlifuninni.
Helga Jónsdóttir er hin dæmigerða
íslenska kona, sinnir bömunum fimm,
heimili og fjölskyldufyrirtækinu,
bakaríi sem ber nafn manns hennar,
Amórs Hermannssonar. Það að Helga
skuli eiga fimm böm er kannski ekki í
frásögur færandi, og að hún sé
útivinnandi húsmóðir telst heldur ekki
stórfrétt en að hún skuli verja tóm-
stundum sínum í að semja lög og
texta, æfa upp kór til að flytja lögin og
stjóma honum sýnir að þar fer kona
sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti
brenna.
Uar hippi og söng um blóm og írið
Þegar rætt var við Helgu eftir tónleika
Litlu lærisveinanna á sunnudags-
kvöldið var hún að springa af stolti
yfir góðri frammistöðu krakkanna.
„Þetta var stórkostleg stund og
krakkamir stóðu sig frábærlega. Þau
hafa þurft að læra mikið og nú urðu
þau að notast við undirleik af
geisladiski sem gerir ennþá meiri
kröfur til þeirra. En allt gekk að óskum
og ég er mjög ánægð,“ segir Helga.
Þegar Helga er spurð að því hvenær
hún hafi byrjað aðsemja lög segir hún
að það megi rekja allt til hippatímans.
„Ég var sannur hippi og söng um ást,
stríð, frið og blóm. Þá var ég alltaf að
dunda við að semja lög en þegar ég
komst til trúar á Jesú Krist árið 1977
byrjaði ég að semja gospeltónlist.
Þessi tónlist mín hefur verið að berast
út um iandið og em lögin sungin í
kristnum söfnuðum urn allt land og
sumt hefur komið út á snældum."
Helga segist hafa byijað fyrir alvöru
að semja lög og texta fyrir böm í
kringum 1980. Aðspurð segist hún
vera stautlæs á nótur en er nú í
Tónlistarskólanum þar sem hún
einbeitir sér að tónfræði. „í mínum
huga verður lag og texti ekki aðskilið,
yfirleitt er ég að hugleiða einhverja
sögu úr Biblíunni út frá því sem ég
texta með einfaldri Guðfræði svo
bamið fái skilið, síðan sem ég lagið,
lögin em einföld og grípandi, textamir
stuttir og endurteknir, því böm elska
endurtekningar, þetta hef ég allt í huga
þegar ég sest niður til að semja, það
sem knýr mig áfram er sú þrá að öll
böm á íslandi fái að vita að Jesús
elskar þau og öll böm viti hversu
dýrmæt þau em Guði.
Prestarnir hvöttu Helgu til dáða
Upphafið að Litlu lærisveinunum má
rekja til þess að Fríkirkjan Vegurinn
fékk hjá mér nokkur lög og texta sem
sett vom á snældu. Hún komst í
hendumar á prestunum okkar, Bjama
Karlssyni og Jónu Hrönn Bolladóttur,
sem strax sýndu því áhuga að fá lögin
inn í kirkjustaifið hér,“ segir Helga.
Var mér boðið að koma og kenna
þessi lög í sunnudagaskóla Landa-
kirkju, síðan var okkur Amóri boðið
að starfa áfram við sunnudagaskólan.
Þá er það fræðsludeild þjóðkirkjunnar
sem fær spumir af þessum lögum frá
Landakirkju og vilja athuga hvort þeir
gætu notað eitthvert þeirra til að gera
myndband sem auglýsingu fyrir
sunnudagaskóla þjóðkirkjunnar.
í framhaldi af því urðu Litlu læri-
sveinamir til og verður kórinn tveggja
ára í þessum mánuði. ,Fyrst kölluðum
við til tíu krakka en þegar upp var
staðið komust færri að en vildu.
Annað sem Helga Ieggur áherslu á er
sönggleðin og frjálsleg framkoma og
tónleikamir á sunnudaginn sýndu að
það hefur tekist. „Þau hafa æft
hreyfingar með lögunum og t.d.
notum við táknmál í sumum þeirra.
Höfum við leitað til kunnáttufólks í
þeim efnum þannig að við erum ekki
með merkingarlaust handapat heldur
táknmál sem allir sem það kunna geta
skilið."
Lausnarorðíö er agí
Þegar Helga er spurð að því hvort ekki
liggi mikii vinna að baki þess að æfa
upp kór sem skipaður er 33 krökkum,
segir hún að lausnarorðið sé agi. „Það
eru gerðar kröfur sem þau skilja, þau
eru komin á æfingar til að vinna, og
við vinnum öll mjög vel, einnig er
mikilvægt að hrósa þeim. Það þarf líka
að brjóta upp starfið öðm hvom og þá
reynum við að bregða á leik.
Þegar Helga er spurð um útgáfu
geisladisksins segir hún að þar sé
eingöngu verið að svara eftirspum
eftir lögum hennar. í tengslum við
diskinn hafi strax verið ákveðið að
gera myndband. Það sé krafa tímans
vilji menn fylgja eftir útgáfu á tónlist í
dag. „Það var oft haft samband við
okkur og spurt hvenær yrði gefinn út
geisladiskur. Síðan er það ákvörðun
sóknarnefndar fyrir tilstuðlan prest-
anna að ráðast út í þessa útgáfu. Þetta
tók níu mánuði frá því fyrsti tónninn
er tekinn upp þar til útgáfudagurinn
rann upp og nú er verið að gantast
með að diskurinn sé sjötta bamið
hennar Helgu. Er ég alveg sátt við þá
samlíkingu.“
Helga segir að margir hafi kornið að
verki og það hafi gert þetta mögulegt.
í því sambandi nefnir hún sérstaklega
prestana, sóknarnefnd, foreldra bam-
anna í kómum. ,Foreldramir stóðu sig
einstaklega vel. Það er ótrúlega
auðvelt að fá fólk til að vinna. Það var
sama hvað kom upp á, það var aldrei
neitt mál að leysa það. Kórstarfið
hefði aldrei gengið nema prestamir
hefðu stutt við bakið á okkur.“
Helga segir að útgáfa geisladisksins
sé talandi dæmi um að það sé ekki nóg
að ein manneskja telji sig hafa
hæfileika eða hugsjón til að fram-
kvæma hlutina. „Það gerist ekkert ef
maður fær ekki stuðning. Þennan
stuðning fékk ég og því sé ég þennan
draum minn rætast, að stuðla að
boðun fagnaðarerindisins."
Hugsjónastarf
Helga segir þetta hugsjónastarf af
sinni hálfu. „Það var ákveðið atatvik
sem vakti mig til umhugsunar. Ég
varð hissa á því að til væm böm hér á
landi sem vissu ekki að Guð væri til.
Trúin á Guð er besta veganesti sem
bamið fær til að halda af stað út í lífið.
Lítill söngur sem það lærði í
sunnudagaskólanum gæti skipt
sköpum seinn meir og takist mér að sá
fræjum trúarinnar með þessum disk
verð ég hamingjusöm,“ sagði Helga
að lokurn.
Högni Hilmisson, Brynjólfur Snorrason og Arnór Hermannsson er meðal
hljófæraleikara I Gleðifréttum Litlu lærisueinanna.
Elísa GuðjónsdótUr og Sandra Guðjónsdóttir.
Elísa Guðjónsdóttir, sem er tíu ára,
hefur starfað í Litlu lærisveinunum
frá upphafi en reyndar heldur hún að
hún hafi ekki mætt á fyrstu
æfinguna.
Þegar Elísa er spurð að því hvað
henni þyki skemmtilegast stóð ekki
á svarinu. „Það er skemmtilegast að
syngja," sagði Elísa með svip sem
gaf greinilega til kynna að henni
fannst spumingin asnaleg. „Það er
líka gantan þegar við förum í
æfingabúðir. Ég ætla að halda áfram
að vera í Litlu lærisveinunum og
syngja á nteðan ég hef áhuga.“
Þegar Elísa er spurð að því hvort
ekki hafi verið gaman á
átgáfutónleikununi, svaraði hún
játandi. „Ég var svo lítið kvíðin en
þetta gekk allt vel,“ sagði Elísa.
Sæbjörg Helgadóttir er 11 ára og
syngur einsöng í Ég má ei gleyma.
Hún segir að kórinn hafi verið
nýstofnaður þegar hún byrjaði.
Henni finnst gaman að taka þátt í
starfi Litlu lærisveinanna en hún
neitar því ekki að hafa verið svolítið
stressuð þegar hún söng einsöng í
kirkjunni.
En hvemig fannst henni að heyra í
sjálfri sér á geisladiskinum? „Mér
fannst skrýtið að syngja í hljóðnema
þegar lögin voru tekin upp en ntér
fannst ekkert skrýúð að heyra í sjálfri
mér. En mér fannst ntyndbandið
rosalega flott.“
Elísa er ekki alveg nteð það á
hreinu hvort hún ætlar að leggja
sönginn fyrir sig í framú'ðinni. „Það
gæti vel verið,“ svaraði hún
leyndardómsfull á svipinn.
Sandra Rögnvaldsdóttir, sem er tíu
ára, byrjaði fyrir ári síðan. nánar
tiltekið á öskudaginn í fyrra. Sandra
segir að sér finnist öll lögin
skemmtileg en skemmtilegast finnst
henni, Ég má ei gleynta. „Ég ætla að
halda áfrani á nieðan mér finnst
þetta gaman," segir Sandra. „Helga
er ekkert ströng og mér finnst
textarnir ekkert erfiðir. Það var
gaman að koma fram og syngja í
Landakirkju fyrir allt fólkið en ég
kveið fyrir eins og flestir held ég.“
Orri Arnórsson er ellefu ára og
syngur einsöng í Regnboganum.
Hann svarar því játandi að gaman sé
að taka þátt í kómum en stundum
finnst honum Helga vera svolítið
sú-öng.
„Mér fannst mjög skrýtið að heyra
í sjálfum mér," segir Orri og hann er
ákveðinn í að halda áfram á
tónlistarbrautinni. „Ég er f söng en
æfi píanó. Mér finnst lögin öll
skemmtileg en Nói er í mesfu
uppáhaldi hjá mér. Við erum bara
tveir strákamir í kómum og ég vil sjá
fleiri. Sérstaklega vil ég fá annan
strák til að syngja með mér í Regn-
boganum,“ segirOrri.
Sæbjörg Helgadóttir.
OrriArnórsson.