Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 05.03.1998, Qupperneq 8

Fréttir - Eyjafréttir - 05.03.1998, Qupperneq 8
8 Fréttir Fimmtudagur5. mars 1998 Herer ekkert föndur í gangi -segja sex galvaskar smíðakonur sem mæta einu sinni í viku í smíðastofu Barnaskólans og lóta smíðadrauma sina rætast undir vökulli leiðsögn Valgeirs Jónassonar. Það virðist aldrei vera dauð stund í Barnaskólanum. Síðan í haust hefur Valgeir Jónasson bygginga- meistari og handmenntakennari skólans verið að kenna konum smíðar einu sinni í viku. Valgeir segir að hann vilji ekki kalla þetta smíðanámskeið, heldur finnist honum betra að kalla þetta smíða- kvöld. Það eru sex galvaskar smíða- meyjar sem fylla smíðastofuna hlátri, þegar ég geng inn. Það er létt yfir þeim, þó ekki leyni sér einbeittur áhugi úr svipnum þar sem þær vinna að jafn ólíkum verkefnum og þær eru margar. Eg er greinilega staddur í ranni áhugasamra kvenna, þar sem Völundur sjálfur hefur náð að fanga huga þeirra og haga hönd. Allt mjöy frjálstá smíóakuöldunum Valgeir segir hugmyndina að þessu átta til tíu ára gamla. „Það var hrein tilviljun að ég fór að kenna smíðar við Bamaskólann og í framhaldi af því datt upp í hendurnar á mér að kanna undirtektir og prófa þetta. Þetta er því í raun og veru tilraun. Hins vegar vil ég ekki kalia þetta námskeið, heldur I Björg llalgeirs víð bor inn. smíðakvöld og á þeim grundvelli hefur þetta verið rekið. Þetta er því nokkuð frjálst og ekkert verið að jagast yfir því þó fólk mæti kannski ekki í hverri viku. Þær bara koma og fara eftir því sem þær hafa tíma til.“ Hvemig er svo árangurinn hjá þeim? „Ég hélt nú í fyrstu að hér yrðu smíðuð leikföng og varð mjög feginn þegar ég komst að því að engin vildi smíða leikföng, heldur eitthvað veglegra og skemmtilegra, og góða nytjahluti. Borðstofuborðið hennar Þuru Matt stenst til dæntis allar kröfur, sem gerðar eru til vandaðra húsgagna. Það er öllum reglum fylgt og útlitið og hönnunin er í góðu samræmi. Hún hefur einnig vélunnið sjálf allt sem þurfti. Hins vegar nýtur hún kannski góðs af því að hún var að læra rafvirkjun, þannig að allar mælingar liggja mjög vel fyrir henni.“ Standa slg allar mlög vel Valgeir segir að Þura sé þó ekkert einsdæmi í hópnum, því þær hafa allar staðið sig mjög vel og nefnir garðhúsið hennar Bjargar og mjög skemmtilega kistu sent Helga Dís smíðaði. „Hún segir að kistan sé í kántrýstíl, sent ég er nú ekki al veg klár á hvaða stfll er, en hún var mjög falleg, nýstárleg og svolítill framúr- stefnutaktur í henni. Þær hafa líka kontið með gamla hluti sem þær hafa verið að gera upp og laga. Þannig að þetta hefur gengið upp á allan hátt.“ Kostar þetta mikið? „Þær borga allt efnið, svo er smá gjald fyrir mínum kostnaði, eins og ég sagði þetta er tilraun og ég bý við það að vera ekki með kennararéttindi, svo að ef einhver með kennararéttindi sækir um, þá verð ég eðlilega að víkja. Þannig hefur þetta verið í bakhöndinni að hafa að einhvegu að hverfa ef sú staða kæmi upp. Eg var í þrjátíu ár í byggingarvinnu og hef ekki nokkum áhuga á því að fara í hana aftur.“ Varð að taka auglýsinyuna niður um leið og ég setti hana upp Valgeir segir að þessi kennsla hafi Galuaskur smíðahópurinn inni í garðhúsinu hennar Bjargar. f.v. Björg Guðjónsdóttír, Björg Valgeirsdóttir, Helga Dís Gísladóttir, Margo Benner, meistarinn Valgeir, Sigurbjörg Úskarsdóttir og Þura Matthíasdóttír ekki verið auglýst neitt þegar hann ákvað að byrja á þessu í haust. „Ég hengdi auglýsingu upp á töflu héma á kaffistofunni í skólanum og ég varð að hlaupa upp stigann aftur og rífa hana niður, vegna þess að það voru komnar svo margar á listann. Það munu vera einar átján konur á biðlista núna“ Hann segir að konumar komi alls staðar að og starfi ekki eingöngu við skólann. „Ein er meinatæknir á sjúkra- húsinu, ein vinnur hjá verkalýðs- félaginu, ein er á skrifstofunni hjá skipalyftunni, tvær í ræstingum í skólanum. „Og hvað gerir þú Helga Dís,“ spyr hann snaggaralega stelpu að spartla kistil sem hún er að smíða. Og það stendur ekki á svarinu: „Ég er smíðaséníið,“ segir hún og hlær. Og ein er smíðaséní botnar Valgeir kankvís á svipinn." Hvemig verður með framhaldið á smíðakennslunni? „Við verðum að minnsta kosti fram á vorið og í framhaldi af þvf verður málið endurskoðað út frá kostnaði. En það er ekki spuming að áhuginn er fyrir hendi. Og þessar stúlkur eru að smíða á fullu. Það er ekkert föndur í gangi hér. Eftir að þetta jafnvægi náðist í hópinn, að hér ætluðu bara að vera konur sem vildu læra að smíða og ekkert annað. Þær hafa haldið þetta út. Þetta tók mjög ákveðna stefnu strax“ Hann segir að aldur stelpnanna sé frá tvítugu og upp að fimmtugu. „Aldurinn skiptir engu máli í sjálfu sér. Þetta er spuming um að þær megi vera úti eftir klukkan átta á kvöldin. „Svo em þær allar tryggðar. Ég keypti ábyrgðatryggingu fyrir starfsemina, sem er nauðsynlegt vegna þess að hér em vandmeðfarin tæki sem þarf kunnáttu við. Enda stend ég nú yfir þeim ef þær eru að vinna við vélamar.“ £ Sigurbjörg Úskarsdóttir íhugul á suipinn. Þarf að uera með puttana í öllu Þura Matthíasdóttir er ein þeirra sem sækir smíðakvöldin og ég spyr hana þar sent hún er niðursokkin í að leggja síðustu hönd á borðstofuborð úr furu sem hún hefur verið að smíða síðan í haust. Hún segist ætla að fara heim með borðið á morgun, en þar ætlar hún að bæsa það. Hún segir að ástæðan fyrir veru hennar í smíðinni eigi sér engar djúpstæðar ástæður. „Þetta er bara spuming um að vera að fikta í einhverju dótaríi og áhugi fyrir því að vera með puttana í öllu.“ En af hverju borðstofuborð? „Það vantaði borðstofuborð heirna hjá mér, svo ég hófst bara handa á því. Eg leitaði mér að hugmyndum með því að fletta blöðum, bæði útlendum og íslenskum til þess að hafa eitthvað að byggja á, svo mótaðist hugmyndin hægt og rólega og þetta er niður- staðan. Reyndar hefur borðið breyst töluvert á þessunt tíma, en það var allt til bóta. Ég vildi ná svona traustlegum gömlum stfl, en samt með dálitlum léttleika líka. En þetta verður stórt og mikið borð.“ Þura segir að smíðamar séu rnjög skemmtilegar og er ekki frá því að einhvers staðar leynist í henni Völundur. „Maður væri ekki í þessu ef manni þætti þetta ekki gaman, svo er Valgeir mjög góður að benda manni á góðar lausnir, ef maður stendur frammi fyrir einhverju vandantáli. Svo er gott hvað hann er duglegur að spjalla. Hann þrýtur aldrei spjallefni. Fólk er heldur ekkert að stressa sig á hlutunum héma. Þetta bara hefur sinn gang.“ Fuglahúsenenginnfugl Sigurbjörg Oskarsdóttir segist hafa verið að smíða hillu og fuglahús sent þó sé ekki ætlað fyrir fugla, heldur hugsað sem skraut á vegg, en hún segir svona fuglahús vera mikið í tísku í dag. Hún segir að það sé enginn djúpstæður áhugi fyrir smíðum hjá sér, heldur hafi hún viljað prófa eitthvað nýtt. „Reyndar var ég aldrei í smíði sem krakki og hugsanlega liggur ástæðan þar, en aðallega er þetta þörf fyrir að prófa eitthvað nýtt. Svo er líka ákveðin ánægja samfara því að sjá hlutina verða til og geta sagt að maður hafi smíðað þá sjálfur.“ Sigurbjörg segir að næsta verkefni sem hún ætli að hefjast handa á sé skóhilla og svo langi hana að smíða fataskáp. „Ég er ekkert að hætta. Þetta er svo skemmtilegt. Reyndar finnst mér of lítið að vera bara einu sinni í viku og hefði ekkert á móti því að vera í smíðinni tvisvar í viku. Ekki skemmir að Valgeir er rnjög skemmtilegur, enda einn með öllu þessu líflega kvenfólki." Garðhús fyrir barnabarnið Björg Guðjónsdóttir er að smíða garðhús sem hún segist ætla að gefa barnabarni sínu. Hún er ekki alveg viss unt að hún vilji tjá sig nokkuð um áhuga sinn á smíðum, en hugsar málið og kemst að þvf að úr þvf hún geti smíðað hús hljóti hún að geta talað um það. „Mig hefur alltaf langað til að sntíða, svo að ég dreif mig í það þegar þetta tækifæri kont. Þetta er mjög gaman, en dálítið mál að reisa svona hús. En Valgeir hefur verið mjög duglegur við að leiðbeina og aðstoða mig.“ Hún segir að hana langi til að smíða borð, stól og hillu og að vonandi verði af því. ,Þetta gefur manni mjög mikið og helst hefði ég viljað kaupa smíðagræjur og halda áfram í bflskúmum hjá mér. Hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér,“ segir Björg og heldur áfram að huga að garðhúsinu. Glerlistahona aó smióa Margo Renner segir ástæðuna fyrir áhuga sínum á smíðum tengjast því að búa eitthvað til með höndunum. „Ég er glerlistakona og vinn aðallega í gler, en viður á ekkert illa við mig, svo er þekking Valgeirs og félagsskapurinn er ffábær.“ Margo segist ætla að taka þátt í sýningu í Reykjavík í maí en þá verður mikil handverkssýning haldin í Laugardalshöllinni. „En ég ætla eingöngu að sýna glerverk þar. Þó að viðurinn og glerið séu ólíkir miðlar, þá Þura Matthíasdóttir að leggja síðustu hönd á boróió.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.