Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 05.03.1998, Blaðsíða 9

Fréttir - Eyjafréttir - 05.03.1998, Blaðsíða 9
Fimmtudagur5. mars 1998 Fréttir 9 Margo, Helga Dís og Björg spá í gullakistilinn er þetta allt saman handverk. Hins vegar liggur mín listræna hug- myndavinna miklu nær glerinu og skartgripum sem ég hef líka verið að hanna. Meters langur listi Helga Dís er enn einbeitt við að spartla kistilinn sinn og segist alltaf hafa Iangað til þess að smíða. „Reyndar erum við mæðgur ég og Björg. Það var því mamma sem benti mér á þennan möguleika en hún er að vinna héma í skólanum. Nú og ég ákvað að troða mér með.“ Ætlaðir þú að passa mömmu að hún færi sér ekki að voða við smíðamar? „Nei,“ segir hún. „Hins vegar hefur mig alltaf langað til að búaeitthvað til sjálf. Núna er ég að smíða kistil, sem verður undir ýmis konar dót.“ Ætlar þú að halda áfram í smíðinni? ,Já ég verð héma þangað til ég verð rekin,“ segir Helga Dís og hlær. „Eða þangað til Valgeir fær nóg af mér. Ég á meters langan lista yfir það sem mig langar til að gera og áhuginn eykst alltaf ef eitthvað er. Svo er Valgeir mjög góður. Hann er mikill sagna- brunnur og segir miklar hetjusögur sem eru ágætar. Þær mættu þó kannski vera meira krassandi." Meiri áhugi á saumaskap en smíðum og spýtum Björg Valgeirsdóttir er dóttir Val- geirs sem hefur verið að leiðbeina konunum. En Björg rekur líka sauma- stofuna Sprett úr spori hér í Vest- mannaeyjum ásamt móður sinni. Hún segist ekki vera neinn siðgæðisvörður á pabba sinn eða vera honum andlegur styrkur gagnvart þessum föngulega kvennahópi. „Reyndar vildi hann ekki hafa mig með, því hann vildi vera einn með öllum þessum konum. En það hefur nánast verið mitt lífsmottó að gera ekki eins og pabbi segir manni.“ Björg segir að hún hafi aldrei þolað smíðar þegar hún var bam, bæði var það rykið og draslið sem fylgir því sem pirraði hana og henni fannst hún alltaf vera þurr á höndunum. „Enda ákvað ég það snemma að maðurinn minn myndi aldrei verða smiður, en auðvitað er hann smiður, alveg eins og pabbi. Hins vegar hef ég verið að biðja manninn minn að smíða eitt og annað sem hefur vantað á heimilið, en það hefur ekkert gengið, svo það er kannski ástæðan fyrir því að ég er hér, heldur en brennandi áhugi á smíðum og spýtum.“ Þú rekur saumastofu héma í bæn- um? „Já ég og mamma erum með vefnaðarvöruverslun, saumastofu, prjónastofu og bmggbúð, og við saumum allt sem beðið er um. Allt frá prestshempum til samkvæmiskjóla og það er nóg að gera. Ég hef miklu meiri áhuga á því að sauma og prjóna. Annars er allt handverk skemmtilegt hverju nafni sem það nefnist." Björg er að smíða fatahengi fyrir bömin sín, en segir að verkefnalistinn sé langur. „Mig langar að smíða framlengingu á eldhúsborðið hjá mér og skáp í eldhúsið, sem ég hef lengi beðið eftir," segir Björg að lokum. Benedikt Gestsson Tómasoy Siyuröur. Þjónustustjóraskiptu urðu hjá Islandsbanka á þriðjudaginn. Tómas Pálsson fráfarandi þjón- ustustjóri hefur nú fengið starf fulltrúa útibústjóra en Sigurður Friðriksson áður þjónustufulltrúi hefur fengið starf þjónustustjóra. Tómas Pálsson segir að hann sé ánægður með nýja starfið og að ábyrgð hans sé svipuð og áður hjá bankanum. Hann segir að hann hlakki til að takast á við ný verkefni í nýju starfi og hann líti björtum augum á nánara samstarf við útibússtjórann, þó að viss söknuður sé af gamla starfinu. „Við tókum upp störf þjónustufulltrúa þegar bankinn var stofiiaður nítján hundmð níutíu og eitt. og markmiðið með því var að veita viðskiptavinunum persónulegri þjónustu. ÞjónustufullU'úinn veit um stöðu hvers og eins og viðskiptavinurinn vill fá persónulega þjónustu." Sigurður Friðriksson hefur verið bankastarfsmaður í 12 ár. þannig að hann býr yfir mikilli reynslu. ,Æg er Vestmannaeyingur og vel flestir þekkja mig hér í bænum. Ég var yfirgjaldkeri í sjö eða átta ár og eitt og hálft ár sem þjónustufulltrúi. Ég hlakka til að takast á við nýtt starf og vonast eftir góðu samstarfi við við- skiptavini og staifsfólk bankans." Sigurður segir að starf þjónustu- stjóra sé töluvert stjómunarstarf sem snúi að öllum þáttum útibibúsins. „Það má búast við að með nýjum mönnum komi nýjar áherslur, hins vegar hef ég aðeins verið einn dag í starfinu og tíminn leiðir í ljós hvem- ig starfið mun rnótast" Þemaviku Hamarsskóla lauk með borðahldi og órshótíð ó föstudaginn var. Vikan var liður í vímuefnaótaki skólans og bar yfirskriftina: Heilbrigð sál í hrauslum líkama í síðustu viku var var haldin þemavika í Hamarsskóla sem bar yfírskriftina „Heilbrigð sál í hraustum líkama“. Þemavikan er hluti af átaki skólans gegn vímuefnum. Starfíð miðar að því að krakkarnir geti náð að hugsa sjálfstætt og taka sjálfstæðar ákvarðanir. Þessu markmiði er reynt að ná með verkefnum sem byggja upp sjálfstraust nemendanna, þannig að þau verði hraustir og sjálfstæðir einstaklingar. Krökkunum var skipt í þrjá hópa eftir aldri og fengu allir verkefni sem hentuðu hverjum aldursfíokki. Meðal þeirra verkefna sem krakkarnir spreyttu sig á voru dans, leiklist, tjáning, ræðumennska, sjálfsmynd, eróbikk. Kennararnir skiptu sér niður á hópana og og nemendunum var einnig blandað innbyrðis, en einnig voru fengnir leiðbeinendur utan úr bæ vegna sumra verkefnanna. A föstudeginum var svo farið í að skreyta skólann og leggja síðustu hönd á ýmis atriði sem voru svo flutt á árshátíð elstu krakkanna um kvöldið. Það var mikið fjör hjá nemendunum þennan fostudagsmorgunn og allir á fullu við að Ijúka verkefnum sínum og verða klár fyrir árshátíðina. Meðal hópa sem störfuðu þessa viku hjá elstu nemendunum voru: hjólabrettahópur sem hannaði og skipulagði hjólabrettaleikvang sem þeir hafa fengið vilyrði fyrir að komið verði upp \ið skólann í sumar, kvikmyndahópur sem vann ötullega að gerð myndar sem þeir kalla Bankaránið, ljósmyndahópur sem Halla Einarsdóttir leiðbeindi og tölvuhópur sem var á fullu í því að setja upp heimasíðu undir leiðsögn Sylvie Achard. Ragnheiður Borgþórsdóttir var tískuhópnum til leið- beiningar, þar sem farið var í snyrtingu, málun og framkomu, en það voru átján stelpur sem komust í hópinn. Hins vegar sýndu strákarnir þessum hópi lítinn áhuga. Hún segir að hugmyndin sé frá stelpunum komin, en hlutverk hennar sé bara að fínpússa hlutina. „Hugmyndin var sú að byggja upp sjálfið hjá stelpunum og kenna þeim að koma fram, ekki bara sem sýningarstúlkur, heldur ekki síður sem sjálfstæðir einstaklingar með eigin þarfír og Ianganir.“ Arshátíðin byrjaði með borðhaldi klukkan átta um kvöldið, þar sem snætt var lambalæri með frönskum og kokteilsósu. I eftirrétt var svo ís. Hver bekkur var svo búinn að skreyta sína stofu svo að borðhaldið mætti verða í frábrugðnu umhverfi hins venjulega skóladags. Ymsar úuiefninyar og uiöurkenninyar uoru uióhaföar á árshátióinni. Fr.u. mesta karlkyns Ijóskan. mesta krúttið, herra Hamarsskóli, ungfrú Hamarsskóli, mesta kvenkyns Ijóskan og besti kennarinn. Kuikmyndagerðarmenn f ramtíðarinnar stilltu sér upp að lokinni töku á síðustu senu stórmyndarinnar Bankaránið. F.u. Matthías Þór, Dauíð Þór, Sæuar Þór, Jónas Þórir, Hlynur Stefáns, Hlynur Tryggua og Snorri Páll. Tískusýningin tókst með ágætum. Hér eru tvær sýningarstúlkurnar á fullri keyrslu í fötum frá Flamingo. Vngrí nemendur skólans höfðu verið í félagsuist ræðumennsku og leiklist tjáningu og fjöldanum öllum af áhugasömum uerkefnum. Hjólabrettagengið fyrir aftan líkan af hjólabrettaleikuangi sem beir hönnuðu og útfærðu. fr. u. Valur, Stebbi, Suenni, Biggi, Árni og Siggi.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.