Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 05.03.1998, Síða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 05.03.1998, Síða 12
 12 Fréttir Fimmtudagur5. mars 1998 Áskorun til sjófarenda, aðstandenda þeirra og áhugafólks um slysavarnir: Snúum bðkum saman og berjumst fyrir bænu öryggi íslenskra sjómanna -það gera ekki aðrir fyrir okkur og allra síst LÍÚ, segir Sigmar Þór Sveinbjörnsson sem deilir hart á þá ákvörðun samgönguráðherra að fresta enn gildistöku reglugerðar um sjósefningarbúnað Enn einu sinni hefur samgöngu- ráðherra frestað gildistöku reglu- gerðar um öryggisbúnað fiskiskipa, þ.e. ákvæði er varðar losunar- og sjósetningarbúnað gúmmíbjörgun- arbáta,og þar með svipt fjölda sjó- manna möguleikum næstu tvö ár að fá þetta öryggistæki. Nú er rétt ár liðið síðan átta manna starfs- hópur skilaði áliti sínu til Halldórs Blöndals, en hann fjallaði í heila tíu mánuði um sjósetningarbúnað gúmmíbjörgunarbáta. Góð samstaða nægðl ekki Góð samstaða var um niðurstöður starfshópsins nema fulltrúi LÍÚ Guðfinnur Johnsen var ekki sammála hópnum og sendi samgönguráðherra sérálit. Þar segir: „að LIÚ hafi gert sér vonir um að kröfur til búnaðarins yrðu raunhæfar og framkvæmanlegar. Ennfremur gerði hann og LÍÚ sér vonir um að allir sem að málinu koma gætu verið sáttir við niðurstöður og vissir um að þeim væri hægt að framfylgja án umtalsverðra breytinga á skipunum, og til að komast mætti hjá því einaferðinaenn að fresta gildis- töku eða sniðganga settar reglur, og skapa þannig falskt öryggi fyrir þá sem geta átt líf sitt undir því að búnaðurinn virki eins og til er ætlast.“ Guðfinnur ætlaðist m.ö.o. til þess að öll sjómannasamtök landsins, Sigl- ingastofnun, áhugamenn um öryggis- mál sjómanna og útgerðarmenn í Vestmannaeyjum, beygðu sig fyrir fulltrúa LÍÚ eins og Samgöngu- ráðuneytið hefur gert endalaust í þessu máli á undanfömum árum, það er samstaðan um málið í hans augum. Afstaða fulltrúa Liú En hver voru ágreiningsatriði fulltrúa LÍÚ við hina sjö í hópnum? Jú, þau voru að hann vildi ekki að sjálfvirkur og fjarstýrður sleppibúnaður yrði í skipum lengri en 45 metrar og ekki yrðu gerðar meiri kröfur til sleppi- búnaðar en að hann virkaði við + - 30° hallahom. Þetta voru sértilögur hins „mikla“ áhugamanns LÍÚ um öryggi sjómanna. Hann hefur verið að reyna í þrjú ár að koma 45 m skipum og lengri undan skyldu að vera með sleppibúnað þvert á vilja sjómanna, en þess skal getið að það eru skip þdrra manna sem ráða nú ferðinni ÍLIÚ. lífiágottaðgengiað samgönguráðuneytinu Við endurskoðun á reglugerðinni um öryggisbúnað íslenskra skipa frá 21. mars 1994 var tekið út ákvæði um að fraktskip eigi að vera með sjósetningarbúnað, og er mér sagt af mönnum sem til þekkja að Einar Hermannsson hjá SÍK í Siglingaráði eigi „heiðurinn" af þeirri breytingu. Þeir Einar og LÍÚ mennimir Guð- finnur og Jónas Haraldsson eiga það sameiginlegt að eiga gott aðgengi að Samgönguráðuneytinu. LÍU menn hafa með öllum ráðum reynt að koma því inn hjá ráðuneytisfólkinu og fleirum að ekki sé til viðurkenndur búnaður sem stenst þær kröfur sem gerðar em til hans. Sigmundsbúnaðurinn hefur einn fengiðuiðurkenningu Allir sem hafa fylgst með þessum deilum vita að til er búnaður sem hefur verið samþykktur, (meira segja tvisvar) og heitir Sigmund S2000 og gildir seinasta viðurkenning hans til 6. mars árið 2000. Honum er hægt að koma fyrir á öllum skipum ef vilji er fyrir hendi.En því miður er LÍÚ á móti þessum búnaði og þess vegna reyna þeir með hjálp Samgönguráðuneytis að tefja og helst útiloka að sjómenn fái þennan búnað um borð í skipin sín. Allur málatilbúnaður þessara manna er eitt allsherjar fals sett fram með þann tilgang einan að tefja og sverta þann eina búnað sem staðist hefur prófun, enda lét Sævar Gunn- arsson, einn úr átta manna sleppi- búnaðarstarfshópnum og fulltrúi stærstu sjómannasamtaka landsins, strax í upphafi nefndarstarfa bóka að hann teldi þennan starfshóp eingöngu settan á stofn til að tetja þetta mál. Reynslan sýnir okkur að þetta var hárrétt hjá honum. En hvers vegna eru forustumenn LIÚ á móti þessum björgunarbúnaði? Tilbúnir til að fðrna lif i sjðmanna? Er til einhver skynsamleg skýring á því að þeir eru tilbúnir að gera allt til að tefja þetta mál, þar með að fóma h'fi sjómanna og hafa samgönguráðherra og hans fólk í samgönguráðuneytinu að algjörum viðundrum í augum þeirra sem vinna að öryggismálum sjómanna. Við höfurn reynt að finna ástæðu. og fengið mörg svör hjá mönnum sem unnið hafa að þessu máli, ein skýring af mörgum er þessi: Þegar Sigmundsgálginn var orðinn að veruleika og kominn í nokkur skip hér í Vestmannaeyjum, fundu menn strax þó furðulegt sé, að á þessum árum voru menn á ótrúlegustu stöðum ekki sáttir við að enn einu sinni skyldi vera komið öryggistæki frá Vestmanna- eyjum sem augljóslega myndi fækka dauðaslysum á sjó, allt var gert til að vinna á móti því að tækið fengi viðurkenningu, en að lokum var það viðurkennt, en þá var tækið komið í flest skip í Vestmannaeyjum. En á meðan á þessari baráttu fyrir tækinu stóð var verið að reyna að hanna annað tæki í Njarðvik sem átti að gera sama gagn og Sigmundsjósetning- arbúnaðurinn. Þuí miður stálu beir ekki allri hugmyndinni Útkoman var annar búnaður sem byggður var á hugmynd Signrunds en því miður stálu þeir ekki allri hugmyndinni heldur aðeins hluta hennar. í stað þrýstilofts var notaður gormur sem Vestmannaeyingum var sagt af Iðntæknistofnun nokkrum árum áður að ekki væri heppilegt að nota. Er til bréf þess efnis frá þeirri stofnun. Sjálfvirki hluti þessa búnaðar var og er membra sem Siglinga- málastofnun vildi ekki með nokkru móti viðurkenna þegar Eyjamenn börðust fyrir henni á sínum tíma. Þrátt fyrir þetta var gálginn viður-kenndur strax án nokkurrar baráttu og fyrst án sjálfvirks sleppibúnaðar. Hann hefur þrátt fyrir sína galla bjargað mörgum manslífum á undan-fömum árum, síðast fjórum mönnum af Mýrarfelli ÍS 123 26. júní 1996. ðryggið fyrir borð borið Það verður að segjast eins og er að til voru menn og em enn, sem ekki hugsa um öryggi sjómanna heldur eingöngu um peninga, þeir hófu áróður á móti Sigmundsbúnaðinum en með hinum búnaðinum, mér er sagt að gamli Útvegsbankinn hafi fjármagnað fjöldaframleiðslu á þeim búnaði og hefur eflaust ætlað að gera góða hluti og sýna í leiðinni Vestmannaeyingum, að fleiri gætu búið til sleppibúnað (þó hugmyndinni væri stolið frá Sig- mund). En strax í byrjun komu í ljós gallar á búnaðinum sem vom brotnir gormar og sjálfvirki búnaðurinn virkaði illa er slys urðu. Þegar þetta kom í ljós var strax farið að gera Sigmundsbúnaðinn tortryggilegan. Vestmannaeyingar vildu þá strax setja búnaðina í prófun svo hægt væri að skera úr um hvemig þeir reyndust oghvortþeir stæðust þærkröfursem gerðar væru til þeirra. Það tók nokkur ár að fá þetta í gegn, á meðan voru hundruð búnaða settir urn borð í íslensku skipin. En um síðir voru búnaðirnir sendir til Iðntækni- stofnunar þar sem gerðar voru á þeim prófanir sem leiddu í ljós að Ólsenbúnaðurinn stóðst ekki til dæmis ísingatilraunir. Hlutur iðntæknistofnunar Skýrsla eða skýrslur sem Iðntækni- stofnun gerði vom að mörgu leyti stórfurðulegar, sérstaklega fyrsta áfangaskýrslan sem þeir viðurkenndu um síðir að ekki var gerð á réttum forsendum. Aldrei var minnst á gormavandamálið þó sama stofnun hafi sent bréf um að ekki væri hægt með ömggum hætti að nota gorm í þessi tæki. En það yrði of langt mál að skýra út. I stuttu máli hafa þessi vinnubrögð Iðntæknistofnunar ekki aukið hróður hennar né traust, í það minnsta ekki í sjómannastétt. í kjölfar þessara prófana var sett samasem merki milli þessara búnaða og viðurkenning tekin af báðum 1988, voru þá flest skip komin með bún- aðinn. 15% skipa voru með Sig- mundsbúnað en 85% með Ólsen- búnað. Árið 1994 vantaði sjósetn- ingarbúnað í 60 -70 íslensk fiskiskip, en útgerðarmenn í Vestmannaeyjum hafa allir sett sjósetningarbúnað í skip sín. Iðntæknistofnun gerði tillögu að prófunaraðferð sleppibúnaðar sem byggð var á þessum tilraunum með búnaðina tvo. Til að gera langa sögu stutta var Sigmundsbúnaði í annað sinn veitt viðurkenningarskírteini frá Siglingamálastofnun Ríkisins 6. mars 1995 og gildir hún til 6. mars árið 2000 eins og áður segir. En eins og einn forystumaður sjómannasam- takanna sagði við mig í fyrravetur. ,UIÚ ræður því sem það vill ráða.“ Sigmundsbúnaðurinn viðurkenndur f annaðsinn Þetta sannaðist þegar búið var að endurskoða reglugerðina og Siglinga- málastofnun búin að viðurkenna Sigmundsbúnaðinn í annað sinn, þá neyddust LÍÚ kafbátamir til að koma upp á yfirborðið og þeir sögðu nei, við einir vitum hvað sjómönnum er fyrir bestu og tökurn ekki mark á þessari viðurkenningu Siglingamálastofnunar, við tölum við ráðuneytið og segjum því fólki hvað það á að gera. Það var gert og ráðherra frestaði gildistöku reglugerðar í fimmta sinn, reglugerð sem hann sjálfur var búinn að setja 21. mars 1994 eftir margra ára endurskoðun. En af hverju vill LÍÚ ekki viður- kenna Sigmundsbúnaðinn? Kannski er skýringin einföld. það hlýtur að vera erfiður og súr biti að gleypa og í raun sárt spark í afturendann að viðurkenna að 85% flotans sé með Áður en Sígmundsbúnaðurinn kom til sögunnar uoru björgunarbátar geymdir í kössum á brúarbakinu eins og sést á bessari mynd. Gefur hún vel til kynna hversu erfítt gat verið að komast að bátnum ef hættu bar að höndum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.