Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2000, Qupperneq 6

Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2000, Qupperneq 6
6 Fréttir Fimmtudagur 9. mars 2000 Ný lögmannsstofa á Bárustíg 15 Tveir góðir með þekkingu og reynslu Síðustliðinn fimmtudag tók til starfa ný lögmannsstofa og fast- eigna- og skipasala að Bárustíg 15 í Vestmannaeyjum. Eigendur og starfsmenn stofunnar eru Jóhann Pétursson héraðsdómslögmaður og Helgi Bragason héraðsdómslög- maður. Jóhann Pétursson er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1981 og lauk kandidatsprófi við Háskóla Islands 1986. Að loknu lögmannsprófi starfaði hann við bæjarfógeta- embættið í Vestmannaeyjum, en stofnsetti eigin lögmannsstofu á Bárustígnum árið 1991, sem hann hefur rekið þangað til. Helgi Bragason kom til starfa við hlið hans síðastliðinn fimmtudag. Helgi Bragason er stúdent frá Fram- haldsskólanum í Vestmannaeyjum árið 1991, hélt þaðan í Háskóla íslands þar sem hann nam lögfræði og útskrifaðist sem cand juris áriðl997. Helgi tók eina önn í Evrópu- og þjóðarrétti í Vín í Austurríki. Að loknu námi hóf Helgi störf hjá sýslumanns- embættinu í Vestmannaeyjum og starfaði þar í tvö og hálft ár, en fjóra mánuði þess tíma starfaði hann sem aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness. Helgi hafði haft í hyggju að fara í framhaldsnám en ákvað að fresta því í bili og sjá hvernig sér reiði af á nýjum vettvangi. Þeir félagar segjast líta framtíðina björtum augum og að full þörf sé á öflugri lögmannsstofu í Eyjum. Jóhann segir að Helgi haft komið að máli við sig fyrir nokkru og rætt hugsanlegt samstarf. „Helgi vann hjá mér á sumrin þegar hann var í námi og mér leist vel á að fá hann til samstarfs. Þetta er kostur gagnvart þjónustunni út á við. Maður þarf oft að vera á ferðinni í þessu starfi og sem einyrki þá er oft enginn til staðar á skrifstoftinni, núna stefnum við að því að annar okkar verði alltaf til staðar á skrifstofunni. Auk þess er alltaf hætta á ákveðinni faglegri einangrun í einyrkjastarfi og að vinna með öðrum er ólfkt skemmtilegra að öllu leyti.“ Helgi Bragason, Johanna Hjálmarsdóttir ritari og hægri hönd þeirra félaga, og Jóhann Pétursson í móttöku sem þeir héldu í tilefni opnunarinnar sl. föstudag. Helgi tekur undir þetta og bendir á að úti á landsbyggðinni sé hætta á ein- angrun í starfi. „Hins vegar eru tvær hliðar á þessu máli, því sérhæfing getur stundum verið góð en líka einangrað menn í hugsun. Til fram- tíðar litið stefnum við að því að byggja upp góða lögmannsstofu í Vestmannaeyjum, og vonandi dafnar þetta það vel að við getum ráðið fleiri til starfa í framtíðinni, við erum að missa svolítið af þessari þjónustu upp á fastalandið. Fólk hér vill fá þjónustu í sinni heimabyggð. Þess vegna leggjum við upp með að gera fyrir- tækið öflugra, Vestmannaeyjum í hag.“ Jóhann og Helgi telja sig einnig hafa mikla þekkingu og reynslu til þess að takast á við fjölþætt verkefni. „Þetta er líklega í fyrsta skipti sem opnuð er lögmannsstofa með tveimur lög- mönnum með heimili og starfsstöð í Eyjum,“ segir Helgi. „Það tekur kannski tíma að vinna sér traust en á móti hef ég góð tengsl við Eyjar og fjölbreytta starfsreynslu bæði sem fulltrúi hjá sýslumannsembættinu og hjá héraðsdómi Reykjaness." Jóhann hefur og fjölþætta reynslu sem fulltrúi hjá bæjarfógetaembættinu sem þá var, og við hvers kyns málafærslustörf. „Það má segja að ég hafi komið að alls konar málum, málum er varða réttindi sjómanna og útgerða, og samskiptin þar á milli og þá ekki bara mál sem bundin hafa verið við Eyjar. Eg hlakka til að starfa með nýjum manni og við vonumsi til að sjá sem flesta á næstunni og munum reyna okkar besta til að leysa hvers manns vanda,“ sögðu þeir félagar að lokunt. Lögmannstofan er opin frá kl.08.00 17.00 alla virka daga og síminn er 488-6010. Þeir félagar hafa einnig opnað vefsíðu og er slóðin ls.eyjar.is Sjóvá-Almennar styrkja nemendafélag Barnaskólans Eins og sagt var frá í síðasta blaði var árshátíð 8. -10. bekkja Barnaskólans haldin á dögunum með matarveisiu og frábærri dagskrá sem nemendur sáu um með dyggri aðstoð valinkunnra leiðbeinenda. Voru þar fiutt dans- og leiklistaratriði, auk þess sem minni kennara og nemenda voru flutt Á árshátíðinni afhenti Aðalsteinn Sigurjónsson, umboðsmaður Sjóvár - Almennra í Eyjum, nemendum peningastyrk sem rann í sameiginlegan sjóð þeirra. Á myndinni má sjá Aðalstein afhenda Erlu Ásmundsdóttur formanni nemendafélagsins styrkinn. Þeir Ómar Garðarsson og Sigurgeir Jónsson hafa á undanförnum mánuðum barist fyrir því áhugamáli sínu að fá Stakkagerðistúnið afhent fyrir nautgriparækt. Fram til þessa hafa þeir gengið bónleiðir til búðar hjá bæjaryfirvöldum, þrátt fyrir mörg erindisbréf til bæjarráðs og viðeigandi nefnda hafa þeir ævinlega fengið synjun. Fyrir skömmu var Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, hér á ferð og notuðu þeir félagar þá tækifærið og báru erindi sitt undir æðsta yfirvald landbúnaðarmála á Islandi. Ráðherra tók málaleitan þeirra félaga af sinni kunnu Ijúfmennsku og vænta þeir þess að nú muni verða tekið á þessum málum af alvöru og festu þegar sjálft landbúnaðarráðuneytið hefur fengið þau til meðferðar. Kynni því að styttast í að Búkolla bauli á Stakka- gerðistúni. Sigurgeir Jónsson Af menningarleysi Eitt af því sem talið er stuðla að brottflutningi fólks af landsbyggðinni á Faxaflóasvæðið, er meira framboð af hvers kyns menningarvið- burðum þar. Skrifari hefur alltaf efast talsvert um þær staðhæfingar. Einhvem veginn gleypir hann það ekki kokhrátt að höfuðástæða þess að fólk taki sig upp og flytjist landshluta milli, sé ásókn í tónleika og leikhús. Raunar hefur hann um það grun að sú ástæða sé af flutningsfólki í og með tilgreind til að réttlæta fiutningana. Jafnfáránlegt og það nú er að fólk skuli endilega þurfa að tilgreina einhverjar ástæður fyrir flutningum. Ef fólk vill af einhverjum ástæðum flytja þá er því það auðvitað frjálst og þarf ekki að standa einum eða öðrum reikningsski! þeirra gerða sinna. Líklega er þetta sjónarmið, að fólk verði að standa öðrum skil á slíkum gjörðum sínum, arfur frá vistarbandstímanum sáluga þegar fólk var langt í frá frjálst að því hvemig það ráðstafaði sinni búsetu. í dag er fólk ekki bundið á slíka klafa (þó svo að einhveijir vildu gjaman innleiða vistarbandið á ný) og ef fólki leiðist að búa í Vestmanna- eyjum eða á Seyðisfirði, einhverra hluta vegna, þá getur það flutt frá slíkum leiðindastöðum til annarra betri og skemmtilegri og þarf ekki að gefa upp neinar ástæður fyrir brotthvarfi sínu. En það er þetta með menninguna. Svo vel hefur gengið að koma því inn að það sé fyrst og fremst skortur á menningarstarfsemi sem veldur búferlaflutningum af landsbyggðinni, að hinir vísu landsfeður em famir að trúa því líka. Og til að draga úr þessum flutningum hefur verið ákveðið að bæta úr menningarleysinu á lands- byggðinni. Hvemig? Með því að byggja menningarhús. Þar með verður fólksflóttinn sennilega stöðvaður líka. Nú er menning í huga skrifara allt annað en hús og til að njóta menningar þarf ekkert endilega að hafa sérhönnuð hús. Raunar segja okkur vísir og miklir menningarvitar syðra að það sé þjóð- inni til mikils vansa að eiga ekki húsnæði við hæfi þegar flytja þarf stórvirki í tónlist. Það sýnir bara og sannar að það er ekki einungis á landsbyggðinni sem menningin á undir högg að sækja, meira að segja í Reykjavík fá menn ekki notið menningarinnar til fulls vegna skorts á við- eigandi húsnæði. Nú hafa góðir menn og konur gegnum tíðina reynt að bæta úr menningarleysi landsbyggðar- innar og sótt okkur heim með hvers kyns uppá- komur, ekki síst á tónlistarsviðinu, þrátt fyrir að ekki hafi verið til staðar viðeigandi menningar- hús er hæfi slíkum uppákomum. Oftar en ekki hefur verið talað um eftir á hversu skammarlega fáir hafi mætt á slíkar uppákomur, ekkert þýði að vera að fá hingað góða listamenn, hér sýni fólk því engan döngun og mæti ekki. Verst af öllu er þó þegar sjálft listafólkið, sem lagt hefur á sig langt og strangt ferðalag í þágu menningar á landsbyggðinni, tekur að kvarta yfir dræmri aðsókn. Skrifari minnist þess t.a.m. þegar þekkt söngkona hélt tónleika í Félags- heimilinu fyrir margt löngu. Þeir tónleikar áttu að hefjast kl. 16 á laugardegi en hófust ekki fyrr en tæpum hálftíma síðar þar sem ekki voru nema tólf manns í salnum kl. 16. Ogþegarsýnt var, um hálffimmleytið, að þeim myndi ekki Qölga frekar, hóf söngkonan sitt prógramm með skamma- og reiðilestri yfir þessum tólf, rétt eins og þeir bæru á því ábyrgð að ekki höfðu fleiri áhuga á söng hennar. Skrifari var í hópi þessara tólf og hann fylltist alveg óskaplegri sektarkennd yfir menningarleysi samborgaranna. Sú sektar- kennd olli því að hann naut ekki tónleikanna og var þeirri stundu fegnastur þegar þeim lauk og þessir tólf menningarvitar Vestmannaeyja laumuðust út með skottið milli fótanna, með menningarleysi bæjarfélagsins á herðunum. Síðan hefur skrifari mjög fækkað ferðum sínum á slíka tónleika, honum leiðist að láta skamma sig fyrir misgjörðir annarra. Svona eftir á að hyggja. I Reykjavík þykir ágætt ef 200 til 300 manns sækja tónleika á borð við þá sem hér var lýst. Það þykir prýðileg aðsókn og raunar ekki óalgengt að gestaíjöldinn fari niður fyrir hundraðið. Og auðvitað ætlast prímadonnumar til að sami fjöldi áhorfenda láti sjá sig á tónleikum annars staðar á landinu þótt ibúafjöldinn sé eitthvað minni þar. Skrifara telst til að þessir tólf samsvari um 300 manns í Reykjavík en hann á ekki von á að slíkur hópur fengi ákúmr fyrir slaka mætingu. En kannski lagast þetta allt þegar við fáum nýtt menningarhús uppi á hrauni. Sigurg.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.