Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2000, Qupperneq 1
GLEROG SPEGLAR
HÚSEV
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA
Framleitt í Vestmannaeyjum
27. árgangur • Vestmannaeyjum 15.júní 2000 • 24. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax:481 1293
HALLA Ingolfsdóttir frá Akureyri gerði sér lítið fyrir og
dró stærsta fiskinn á hvítasunnumóti SJÓVE. Alls drógu
um 60 kepppendur rúm tíu tonn á mótinu. Veður var
gott mótsdagana. Sjá bls. 13
r
Agætis síld, en langt að sækja
Sfldveiðar fyrir austurlandi hafa verið með ágætum og hafa skip
Vinnslustöðvarinnar landað í Eyjum
A mánudaginn landaði Kapin 900 tonnum, en hafði landað fyrir sjó-
mannadaginn um 400 tonnum og Sighvatur var að leggja af stað til Eyja seinni
partinn í gær með 1300 tonn. Að sögn Stefáns Friðrikssonar hjá
Vinnslustöðinni er leitast við að landa í Eyjum, þrátt fyrir langa siglingu.
„Siglingin á miðin tekur um tvo og hálfan til þijá sólarhringa. Sfldin er falleg,
en hún hefur verið erfið viðureignar, auk þess sem veður hefúr sett strik í
reikninginn," sagði Stefán.
íslendingur siglir frá Reykjavík 17. júní:
f
Atta Eyjamenn í
níu manna áhöfn
-Ferðin leggst vel í mig, segir Gunnar Marel
A þjóðhátíðardaginn, 17. júní
leggur víkingaskipið Islendingur
upp í fyrsta hluta leiðar sinnar til
Vesturheims. Þá verður siglt til
Búðardals þaðan sem siglt verður í
kjölfar Eiríks rauða til Grænlands
og síðan sem leið liggur til Vínlands
sem Leifur heppni fann árið 1000.1
áhöfninni eru níu manns, ein kona
og átta karlar og eru þeir aliir
Eyjamenn.
„Formlega hefst siglingin 17. júní
þegar við siglum frá Reykjavík til
Búðardals," sagði Gunnar Marel
Eggertsson skipstjóri í samtali við
Fréttir í gær. „Búðardalur stendur við
Hvammsíjörð þaðan sem Eiríkur
rauði sigldi til Grænlands. Við fömm
frá Búðardal 24. júní en hvenær við
siglum frá landinu ræðst af veðri og
vindum og ís sem er meira en í
meðallagi í ár.“
Gunnar Marel áætlar að vera á
Grænlandi 15. júlí og þaðan á að sigla
áleiðis til Nýfundnalands í síðasta lagi
20. júlí. „Þar eigum við að koma við á
tíu eða ellefu stöðum og enda í Saint
John. Þaðan liggur leiðin til New
York en þangað eigum við að vera
komnir 5. október. En áður en þangað
kemur eigum við að koma við á 25
stöðum í formlegar heimsóknir."
í áhöfninni verða auk Gunnars, Jóel
Gunnarsson, Heijólfur Bárðarson,
Elías Jensson, Hörður Guðjónsson,
Hörður Adólfsson og Stefán Geir
Gunnarsson. „Strákamir em allir
fæddir í Eyjum nema Pálmi sem búið
hefur þar í nokkur ár. Níundi
skipveijinn, Ellen Ingvadóttir kemur
aftur á móti af fasta landinu.“
Hann segir að siglingin leggist vel í
sig. „Það er mesta stressið að koma
sér af stað. Ég var að fá haffæmis-
skírteinið í dag og strákamir hafa
verið að sigla með mér þannig að allt
er að verða tilbúið. Togarinn Hrísey
EA sem Samheiji hf. á mun fylgja
okkur yfir hafið þannig að fyllsta
öryggis er gætt.“
Ríkisstjómir Islands og Nýfundna-
lands fjármagna ferðina að stærstum
hluta. „Þeir leggja fram 70% en sjálfur
varð ég að útvega 30%. Hefur mér
gengið ágætlega að fá styrktaraðila.
Peningamir fara meðal annars í laun
handa áhöfninni," sagði Gunnar
Marel sem að lokum bað fyrir kveðju
til allra sem hann þekkir í Éyjum.
Allri áhöfn Gandís VE sagt upp:
Erum að bregðast við
breyttri kvótastöðu
-segir framkvænndastjóri og ber af sér að
ástæðan sé deila um fiskverð
Áhöfninni á Gandí VE var sagt upp
í síðustu viku. Fullyrt hefur verið að
uppsagnir áhafnarinnar á Gandí
stafi af deilu um fiskverð. Frá-
farandi skipstjóri segir aftur á móti
að fiskverðsdeila sé ástæða upp-
sagnarinnar.
Binni í Vinnslustöðinni sagði að
ekki væri í sjálfu sér um deilu að ræða
og alls ekki um fiskverð. „Við
munum væntanlega missa um 1000
tonna þorskkvóta, en gert var ráð fyrir
að Gandí myndi veiða 12 til 15
hundmð tonn af þorski þegar sam-
runaferlið var undirbúið, og áður en
skýrsla Hafró var birt á dögunum.
Gandí var þá uppiskroppa með kvóta
og fyrir lá að honum yrði lagt af þeim
sökum. í samrunaferlinu var gerður
leigusamningur þar sem við lögðum
til þorskkvóta sem við áttum umfram.
Nú em þær forsendur brostnar. Við
gerðum verðsamning sem átti að gilda
til næstu áramóta, en áhöfnin sagði
honum upp.“
Binni sagði að þetta mál snerist
fyrst og fremst um kvótastöðu
Vinnlsustöðvarinnar. „Við emm með
of mörg skip og of lítinn kvóta og við
emm einfaldlega að bregðast við
breyttri kvótastöðu. Skipinu hefur því
verið lagt og áhöfninni sagt upp, en
hvað verður um skipið get ég ekki
sagt á þessari stundu.“
Njáll Kolbeinsson er á allt öðm
máli. „Það er ekki vafi í mínum huga
að það var uppsögn á fiskverði en ekki
tillögur Haffó sem urðu til þess að þeir
ráku okkur. Því til staðfestingar er rétt
að það komi fram að engum okkar var
boðið upp á endurráðningu ef
aðstæður breyttust og báturinn færi af
stað aftur. Og mikið lá þeim á, því við
fengum pokann okkar í miðjum túr,“
segirNjáll. Sjábls. 17
TM-ÖRYGGI
FYRIR
FJÖLSKYLDUNA
Sameinar öll tryggmgamálin
áeinfaldanog
hagkvæman hatt
Bílaverkstæðið Bragginn s.f.
Réttingar og sprautun
Flötum 20 - Sími 481 1535
fl
Viðgerðir og smurstöó
m
Sumaráætlun
Frá Eyjum Frá Þorlákshöfn
Alladaga kl. 08.15 kl. 12.00
Aukaferðir fimmtud., föstud. og sunnud.
kl. 15.30 kl. 19.00
4«^Herjólfiir
Sími 481 2800 - Fax 481 2991