Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2000, Page 2
2
Fréttir
fréttir
Alvarleglíkamsárás
Alls voru fjórar líkamsárásir kærðar
til lögreglu en í flestum þeirra var
um minniháttar áverka að ræða.
Ein árásin var hins vegar alvarleg
og átti hún sér stað aðfaranótt 12.
júní sl. á Helgafellsbraut. Tveir
menn, sem voru á heimleið eftir
skemmtun næturinnar, urðu
eitthvað ósáttir sem endaði með
handalögmálum. Varð annar mað-
urinn fyrir töluverðum áverkum og
vai' lagður inn á Heilbrigðis-
stofnunina fVestmannaeyjum. Við
skoðun þar kom í Ijós að hann var
ökklabrotinn og með töluverða
áverka í andliti. Árásarmaðurinn
var handtekinn og fékk hann að
gista fangageymslu lögreglu. Mál-
ið telst að mestu upplýst.
Eignaspjöll
Þrjú eignaspjöll komu á borð
lögreglu í sl. viku. Aðfaranólt 9.
júní urðu lögreglumenn í eftirliti
vitni að því þegar maður braut rúðu
í hurð að Brekastíg. Maður þessi
var handtekinn og var hann töluvert
ölvaður. Hann fékk að gista fanga-
geymslu lögreglu þar til víman rann
af honum. Málið er upplýst.
Skemmdirábifreið
Þann 11. júní var tilkynnt um
skemmdir á bifreið en skorið hafði
verið á þrjá hjólbarða hennar og
vélarhlíf rispuð. Kom í Ijós að
þama höfðu verið þrír 6-7 ára
drengir að verki og höfðu notað
hníf við skemmdimar. Lögreglan
vill, í tilefni af þessu, benda á að
börn eiga ekki að leika sér með
hnífa og er ljóst að í þessu tilviki
em foreldrar að hluta til ábyrgir.
Rúðubrotí
Slökkulstöðinni
Þann 12. júní var tilkynnt um
rúðubrot í Slökkvistöðinni en ekki
er vitað hver var þar að verki.
Lögreglan óskar eftir upplýsingum
um mannaferðir við Slökkvistöðina
aðfaranótt 12. júní sl. og hvetur að
sjálfsögðu þann sem braut náðuna
að gefa sig l'rain.
Faríð varlega við
íbráttavellina
Lögreglan vill benda þeim til-
mælum til ökumanna að aka
varlega við knattspymuvelli bæjar-
ins núna þegar Pæjumótið í
knattspymu er bytjað. Mikil aukn-
ing er á gangandi vegfarendum við
vellina og því rík ástæða til að fara
varlega. Þá em ökumenn hvattir til
að leggja ekki bifreiðum sínum á
Hamarsvegi á meðan á mótinu
stendur heldur nota bifreiðastæði
við íþróttamiðstöðina, Týsheimilið
og Þórsheimilið.
Þjófnaðir
Fjórar þjófnaðarkærur bámst lög-
reglu í sl. viku. Var þarna um að
ræða þjófnað á GSM símum,
reiðhjóli og kventösku.
Rólegtíumferðinni
Lítið var um kæmr vegna um-
ferðarlagabrota í sl. viku eða ein-
ungis tvær kærur vegna vanrækslu
að færa ökutæki til skoðunar.
Fyrsta Kristnihátíðin af þremur í
Vestmannaeyjum á þessu ári nk. sunnudag
Hatiðin helguð fyrsta
kirkjuviðnum á Hörgaeyri
Sunnudaginn 18. júní er þrenn-
ingarhátíð kirk junnar, en hátíð sú
er ævinlega fyrsta sunnudag eftir
hvítasunnu. Grundvöllur þrenn-
ingarhátíðar byggir á hinum
þríeina guði kristinna manna; guði
föður, hans eingetnum syni og heil-
ögum anda.
Dagskrá þrenningarhátíðar að þessu
sinni verður helguð landtöku Gissurar
og Hjalta með kirkjuviðinn 18. júní
árið 1000. Þeir félagar héldu til
íslands að boði Noregskonungs og
skyldu þeir reisa kirkju á fyrsta stað
hvar þeir tækju land, sem samkvæmt
bestu manna vitneskju mun hafa verið
á Hörgaeyri í Vestmannaeyjum áður-
nefndan dag. Héldu þeir síðan til
Þingvalla þar sem þingheimi var tjáð
tilskipun konungs um einn sið í
landinu, sem endaði með feldlegu
Þorgeirs Ljósvetningagoða, hvar hann
fékk sína hugljómun um að
Islendingar tækju friðsamlega við
Kristi.
Séra Bára Friðriksdóttir hefur séð
um undirbúning þessarar fyrstu
Kristnihátíðar af þremur í Vest-
mannaeyjum á þessu ári, ásamt fjölda
annarra, enda mikið lagt í að gera
hátíðina sem veglegasta svo reisa
megi guðshús af stöfum í hjarta hvers
Vestmannaeyings. Bára sagði að
dagskrá hátíðarinnar hæfíst með því
að safnast yrði saman við Landakirkju
klukkan 10.40. „Þar stendur böm-
unum til boða að láta mála á kinnar
sínar helg tákn kristninnar og klukkan
11.00 verður bæna- og ritningarlestur.
Síðan verður haldið í pflagrímsgöngu
að Löngu.“
Bára sagðist vonast eftir mikilli
þátttöku allra Vestmannaeyinga, enda
hefði hún skynjað mikinn áhuga og
byr meðal Eyjamanna síðustu daga
um að fjölmenna til hátíðarinnar.
„Þetta verður táknræn ganga þar sem
gengið verðu í átt til fomrar sögu, hún
skoðuð og horft í átt til framtíðar. í
VETTVANGUR Kristnitökuhátíðarinnar, Skansinn og Langan.
Löngu verður Kristnihátíð Vest-
mannaeyja sett og mun Jóhann
Friðfinnsson formaður sóknamefndar
flytja ávarp."
Spurð um veðurspá svaraði Bára
því til að hún yrði þakklát fyrir það
veður sem guð gæfi. „I helgri bók
stendur að það rigndi jafnt yfir réttláta
og rangláta. Allt veður er guði þókn-
anlegt, hvort heldur gott eða vont,“
sagði Bára.
Margt kristilegt útálátið mun standa
gestum til boða á hátíðinni. Klukkan
12.00 verður messa á Hörgaeyri, hvar
séra Bára Friðriksdóttir þjónar fyrir
altari og séra Kristján Bjömsson mun
flytja hátíðarræðu. Nútíminn og for-
tíðin munu og taka höndum saman,
því að hátíðargestum verður boðið að
senda bænir og kveðjur í flösku-
skeytum og með tölvupósti (les Emil),
sem mun vera nýjasti þjónn drottins í
hérvisdnni. Gestir munu og geta snætt
máltíð drottins og kvenfélagskonur
reiða fram andlegt konfekt að lokinni
messu, en það mun vera næring jafnt
til líkama og sálar. Lúðrasveit
Vestmannaeyja leikur og skátar verða
með fána, hátíðarkór Vestmannaeyja
syngur undir stjóm Guðmundar H.
Guðjónssonar. Fyrsta kirkjuviðar
Eyjanna mun verða minnst með því
að búa til listaverk á staðnum og svo
mætti lengi telja. Rétt er að benda á
að langferðabifreið verður fyrir þá
sem ekki treysta sér í pflagríms-
gönguna og lóðsbáturinn mun flytja
gesti að Hörgaeyri, en vaskir félagar
úr Björgunarfélaginu munu aðstoða
fólk úr og í bátinn. Einnig verður
boðið upp á sújru og brauð á
hafnargarðinum. Á staðnum mun og
verða gestabók úr skinni (les
pergamenti) þar sem hátíðargestir em
hvattir til að skrá nöfn sfn til skoðunar
fyrir gesti Kristnihátiðar árið 3000.
frettir
Þjóðháuðarnefnd
fær leyfi fyrir
Þjóðhátíð 2000
Þjóðhátíðamefnd ÍBV óskaði eftir
leyfi til að halda þjóðhátíð í Her-
jólfsdal dagana 4.-6. ágúst nk.
Bæjarráð samþykkti erindið varð-
andi einkaafnot af Herjólfsdal með
því skilyrði að samráð verði haft
við bæjaryfirvöld þ.m.t. umhverfis-
nefnd. lögregluyfirvöld og Golf-
klúbbinn um afnot af svæði hans.
Auk þess er leyfi þetta skilyrt að
því leyti að þjóðhátíðarnefnd
ábyrgist að Heijólfsdalur og ná-
grenni hans verði hreinsað strax
eftir þjóðhátíð. Bæjaryfirvöld
áskilja sér rétt til þess að hreinsa
svæðið á kostnað ÍBV verði ekki
staðið við þetta skilyrði.
ÁrsskýrslaÁfengis-
ogvfmuvarnaráðs
fvrir áríð 1999
Á fúncb félagsmálaráðs var árs-
skýrsla Áfengis- og vímuvamaráðs
fyrir árið 1999 lögð fram. f
ársskýrslunni komu m.a. frarn
niðurstöður rýnihópa sem unnu að
þarfagreiningu á vegum Áfengis-
og vrmuvamáráðs sl. haust. Til-
gangur hópastarfsins var að greina
hvemig best væri að vinna að
vímuvömum og hvernig ún-æði
Áfengis- og vímuvamaráðs nýttust
sem best í starfi á þeim vettvangi. 1
framkvæmdaráætlun Áfengis- og
vímuvamaráðs árið 2000 er stuðst
við niðurstöður hópanna.
Sjómannadagsráð
gefur 250.000 kr.til
Hraunbúða
Félagsmálaráð þakkar höfðinglega
gjöf Sjómannadagsráðs Vest-
mannaeyja að upphæð 250.000.- til
áframhaldandi uppbyggingar
sjúkraþjálfunar- og líkamsræktar-
aðstöðu á Hraunbúðum.
Leitað nýrra leiða í
forvarnastarfi hjá 16
til 20 ára
Ársskýrsla verkefnisstjómar ísland
án eitarlyfja fyrir árið 1999 ásamt
starfsáætlun fyrir árið 2000 vom
einnig lagðar fram á fundi
félagsmálaiáðs. í starfsáætluninni
kernur m.a. frarn að forvarnastarfi
sem beinist að foreldrum og böm-
um og unglingum á gmnnskólaaldri
verður haldið áfram en jafnframt
verður leitað leiða til að ýta úr vör
verkefnum sem beinast að ungu
fólki á aldrinum 16-20 ára.
Þriggja bíla árekstur
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt Iögreglu í sl. viku, annað var á Birkihlíð þar sem mannlaus bifreið
rann á kyrrstæða bifreið. Hitt óhappið varð á gatnamótum Skólavegar og Vestmannabrautar og lentu
þrír bílar í árekstri þar. Ekki urðu meiðsli á fólki í þessum óhöppum.
FRETTIR
Utgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Heijólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið,