Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2000, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 15. júní 2000
akkaná
Aþreyingarefni frá Larry
ívar Atlason er
bókaunnandi vikunnar
Hörður Þórðarson Tottenham
aðdáandi, leigubílstjóri og fyrrverandi
formaður Elliðaeyjafélagsins skoraði
á mig sem næsta bókaunnanda viku-
nnar og sagði mig mikinn bókaorm,
ég sem lít sárasjaldan í bók.
Til að þakka honum "kærlega" fyrir
áskorunina ætla ég að byrja á einni
sögu af honum. Eins og flestir vita er
Hörður mikill Tottenham Hotspur
aðdáandi. Þegar sú breyting var gerð
á reglum um númeraplötur á bflum að
löglegt var að setja nöfn og þess
háttar í staðinn fyrir bflnúmer fannst
Herði hann heldur betur dottinn í
lukkupottinn. Hann hringir suður og
pantar nafnið „Spurs“ sem er
þekktasta gælunafnið á félaginu.
Honum er tjáð að það sé búið að
panta það.
„Það getur ekki verið,“ segir
Hörður, það eru örfáir Tottenham
aðdáendur á íslandi og á ég að trúa
því að það sé frátekið"
Já, þú verður að trúa því,“ er sagt
hinum megin á línunni.
„En er nokkuð búið að panta nafnið
„Tottari““.
„Nei, það er laust.“
„Fínt,“ segir Hörður „ég ætla að
panta það.“
Merkið kemur síðan til Eyja en fór
aldrei á bflinn. Hörður er síðan
spurður að því hvers vegna merkið sé
ekki komið á bflinn:
„Konan hefur eitthvað á móti því.“
Síðasta bók eða bækur réttara sagt
sem ég las voru eftir Harald
Guðnason „Við Ægisdyr I og II“,
stórmerkilegt rit sem fjallar um sögu
Vestmannaeyja. Við sem erum af
yngri kynslóðinni höfum gott af lestri
svona rits, lífsbaráttu Eyjamanna
fyrrum og hvað miklir frumkvöðlar
voru til í þessu litla bæjarfélagi.
Maður hefur það á tilfinningunni að
sú kynslóð sem nú ræður ríkjum
komist ekki með tæmar þar sem
þessir menn vom með hælana.
Að sjálfsögðu kíkir maður alitaf
annað slagið í bókina um Elliðaey en
hún er um lundaveiðistaði og ömefni
í Elliðaey. Ég hef aftur á móti verið
duglegri að lesa blöð og tímarit í
gegnum tfðina, fyrst var það Andrés
Ond, svo Shoot og eftir það kom
afþreyingarefni sem Larry nokkur
Flynt gefur út mánaðarlega þar sem
listrænt auga ljósmyndarans og góður
húmor em í einum kokteil. Nú til dags
er það Manchester United magasín,
eins og nafnið ber með sér fjallar það
um langbesta knattspymulið Eng-
lands.
Ein spuming í lokin til Harðar:
Hvað gerist á vorin? Svar: Lundinn
kemur og titlar streyma á Old Traf-
ford.
Ég skora á nýkjörinn formann
Elliðaeyjafélagsins Stefán Erlendsson
að vera næsta bókaorm.
Muna eftir lukkutröllinu
Sjóstangveiðimót SjóVe var hatdið um
hvítasunnuhelgina að vanda og munu
þátttakendur sjaldan hafa verið fleiri en
nú, en alls munu 58 veiðikiær hafa verið
skráðar á mótið. Aflahæsti einstaklingur
þátttakenda úrEyjum, aukþess að vera í
aflahæstu sveitinni á mótinu var Ólafur
Tryggvason málarameistari. SjóVe var
stofnað 1962 og Ólafur hefur verið í
félaginu síðan 1981. Hann erveiðimaður
aflífi og sál og er Eyjamaður vikunnar.
Fulltnafn? OlafurTryggvason
Fæðingardagur og ár? 5. desember
1939
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar
Fjölskylduhagir? Tvíkvæntur. Á þrjú
börn með fyrri konunni og eitt barn og
uppeldisson með
þeirri seinni.
Menntun og starf?
Málarameistari. Er
líka með trilluréttindi
og kokkaréttindi upp
að vissu marki.
Laun? Þau eru upp og niður.
Bifreið? Mitshubishi Lancer
Helsti galii? Það verða aðrir að
dæma um.
Helsti kostur? Mér finnst að
aðrirættu að dæma um það líka.
Uppáhalds matur? Pekingönd
Versti matur? Ekki til. Ég borða
allan mat
Uppáhalds drykkur? Mest sóda-
vatn plús wiský efþað erá eftir.
Uppáhaids tónlist? Rock og
Roll.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir? Veiðiskapur, jafnt
gæs sem fiskur
Hvað erþað leiðinlegasta sem
þú gerir? Að hafa ekkert að gera
Hvað myndirðu gera ef þú
ynnir milljón í happdrætti?
Bjóða konunni og börnunum út að borða og hugsa
málið svo á eftir.
Uppáhalds stjórnmálamaður? Það er algert leynd-
areinkamál.
Uppáhalds íþróttamaður? Knattspyrnumaðurinn
Pele og enginn hefur skákað honum síðan hann var
upp á sitt besta.
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? SjóVe og
Veiðifélagi Elliðaeyjar
Uppáhaldssjónvarpsefni? Fótbolti
Uppáhaldsbók? Stóru fuglabækumar les ég mest og
skoða, enda mikill fuglasafnari
Hvað metur þú mest í fari annarra? Góðvild og
góður félagsskapur
Hvað fer mest i taugarnar á þér í fari annarra?
Þegarmenn eru svikulirog standa ekki við sitt.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Held
mikið upp á Skorradalinn.
Hvað er svona skemmtilegt
við sjóstangveiðina? Félags-
skapurinn númer eitt tvö og þrjú.
Það eryfirleitt hresst og kátt fólk
sem stundar þessa íþrótt.
Tekurðu þátt í fleiri sjóstang-
veiðimótum en þeim sem Sjó-
Ve stendur fyrir? Já, ég hef
tekið þátt i mótum á ísafirði,
Akureyri, Siglufirði og Reykjavík.
Hver er galdurinn við að fá
fiskinn til að bíta á agnið?
Það sem maður finnur upp
sjálfur. Ég skreyti slóðann með
því sem ég hef trú á. Það er
misjafnt hvaða fiskur er undir og
bítur á. Og svo má ekki gleyma
litla lukkutröllinu heima, sem
dóttirmín gafmér.
Eitthvað að lokum? Vonandi
verðurgott sumar, svo allirgeti
verið úti að mála.
Nýfæddfyr
stmannaeyingar
9*
Þann 26. apríl eignuðust Margrét Hjálmarsdóttir og Bjöm Grétar
Sigurðsson dóttur. Hún vó 16 merkur og var 54 cm að lengd. Hún
hefúr fengið nafnið Ragna Björg. Ljósmóðir var Valgerður Ólafsdóttir.
©rðfspor /Ir
- Þessari limru var hvíslað að orðsporsskrifara á dögunum:
Það heyrist margt hulið sem ekki má segja
í Heymaey upphátt svo betra er að þegja
um útboð á samgöngumannvirki Eyjanna
Herjólfi þjóðvegi blessaðra peyjanna
Nei! miklu heldur vildu þeirdeyja.
- Eins og kunnugt er hvöttu forsvarsmenn knattspyrnudeildar ÍBV Eyjamenn til
þess að draga að húni fána ÍBV á heimaleikjum ÍBV í meistaradeildinni í sumar.
Dyggir og öflugir stuðningsmenn ÍBV urðu vel við þessum tilmælum og hefur verið
flaggað við fjölda heimahúsa það sem af er keppnistímabilinu til þess að styrkja
hina félagslegu hlið. Hins vegar þóttu stuðningsmenn taka flöggunaráskorunina
helst til alvarlega þegar eftir leikinn við Leiftur síðastliðinn laugardag sáust ÍBV
fánar í hálfa stöng við nokkur hús. íhugar nú stjórn knattspyrnudeildar hvað best
sé að gera í stöðunni. Hefur sú saga spurst að ráð gæti verið að stytta fánastangir
allverulega við hús stuðningsmanna, eða hreinlega að láta flöggunaráskorunina
hreinlega gleymast hægt og hljótt; þykir sú aðferð oft hafa gefist vel í Eyjum.
- Eins og sagt er frá í Fréttum í dag verður mikil hátíð helguð Kristi hinum
krossfesta og kirkjutimbri í Löngu og á Hörgaeyri nk. sunnudag. Hefur vakið
athygli hið andlega konfekt sem kvenfélagskonur ætla að útdeila á hátíðinni. Mun
nammið bæði vera ætlað sál og líkama. Flott trikk í markaðssetningunni segja
trúaðirmenn.
Á dofinni 4*
17. júní ÞjóðhátíBardagur íslendinga og
Vestmannaeyinga (hm).
17. júní Opna Cantat 3 mótið í golfi á ódáinsvöllum
Golfídúbbs Vestmannaeyja
17. júní Kaffi Timor (áður Fjaran). Leitin að fyndnasta
Eyjamanninum. (allt er nú til)
17.-18. júní Lundinn, kaffihlaðborð báða dagana
17. -18. júní Ljósmyndasýnina Isleifs Amars Vignissonar
(Adda í London) í Akógessalnum.
18. júní Kristnihátíð í Vestmannaeyjum. Kirkjuganga
og siglina út í Löngu og útdeiling hins
andlegakonfekts
18.júní Kvennahlaupið á fullu. Mæting kl. 14.30.
Karlar mætum og mótmælum aðskilnaði
kynjanna
20. júní Bæjarstjómarfundur í Tónlistarskólanum kl.
18.00
23. júní Eðalferð með PH-Viking. Veitingar, söngur
og gleði í frábærri ferð.
23. júní Jónsmessugrillveisla inni í Dal á vegum ÍBV
23.-24. júní Námskeið ökuskóla Vestmannaeyja (s.hl.)
23. -29. júní Sæluvika húsmæðra á Laugarvatni
25. júní Stórleikur ÍBV - KRí Landssímadeildinni kl.
14.00
20. júlí Stódeikur ÍBV - ÍA í Landssímadeildinni.
IBV sigur og ekkert annað
22. júlí Sumarstúlkukeppni í Eyjum haldin á
Hölðanum
30. júlí Konungur Noregs afhendir Davíð Oddssyni
forsætisráðheira Stafkirkjuna, sem alhendir
hana biskupi Islands Karli Sigurbjömssyni til
vígslu. Mikið fjör á Skansinum
4. 5. og 6. ágúst Þjoðhátíð Vestmannaeyja. Ekki gleyma jbw