Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2000, Page 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 15. júní 2000
Addi í London opnar Ijósmyndasýningu í Akóges:
Ljósmyndarinn höndlar sekúndubrotið
/
Laugardaginn 17. júní næstkomandi kl. 14.00 mun Isleifur Amar
Vignisson (Addi í London) opna sýningu á ljómyndum í Akóges.
Addi er áhugaljósmyndari og hefur ætíð einbeitt sér að ljósmyndun
sólarlagsins og fuglamyndum, en einn stærsti vettvangur ljósmynda
hans er þó trúlega Heimaklettur í öllum sínum blæbrigðum, birtu og
litasamspili ljósaskiptanna. Addi hefur stundað ljósmyndun sem
áhugamál í 25 ár. Addi ætlar að sýna litljósmyndir í ýmsum
stærðum, hvar Eyjamar sjást í öllum breytileika birtunnar og ekki
sfður frá óvenjulegum sjónarhornum.
Addi segir að staðið hafi til í mörg
ár að koma upp sýningu. „Svo að
fæðingin hefur verið löng," eins og
hann orðar það. „Nú var bara rétti
tíminn og kannski upplagt á nýrri
öld að hefja hana með fallegri
sýningu frá Vestmannaeyjum."
Hann segir að áhuginn á ljósmyndun
hafi líklega kviknað út frá náttúrunni
og umhverfi Eyjanna. „Breytileikinn
og fegurðin er svo mikil héma og
margt fallegt sem ég hef viljað eiga til
minningar."
En hversu nálægt kemst ljósmyndin
því að fanga minningu?
„Hún getur komist nokkuð nálægt
því. Ég á til að mynda gífurlegt safn
af Þjóðhátíðarmyndum sem oft
kveikja miklar minningar. Einnig
myndir frá lundaveiðum, sem ég hef
stundað í ein þrjátíu ár. Þetta segir
mjög margt og skilur mikið eftir. Ég
hef alla tíð spáð mikið í fugla og
stundum finnst mér að í Eyjum megi
menn ganga betur um náttúruna og að
ekki sé borin næg virðing fyrir henni
og margir em sammála mér í því. Ég
tel að fuglinn sé eitt það dýrmætasta
sem við eigum, því hann gefur okkur
gífurlega mikið, en lundinn er sá fugl
sem ég held hvað mest upp á. Ég vil
líka koma því að, að ungt fólk skoði
meira umhverfi sitt og gefi sér smá
tíma í það frá tölvunni."
Addi er Vestmannaeyingur í húð og
hár, en segir að ljósmyndaáhuginn
hafi ekki verið tekinn inn með móður-
mjólkinni. „Nei, ég held að þetta sé
ekki neitt í fjölskyldunni. Ég held að
ég sé sá eini í fjölskyldunni sem er
svona ljósmyndaglaður. Hvaðan þetta
kemur er því ekki gott að segja, nema
ef vera kynni áhuginn á íjöllum og að
þvælast um Eyjuna. Ég hef því alltaf
verið mikið náttúrubarn og þannig
kom ljósmyndaáhuginn af sjálfu sér."
Addi byijaði ekki að taka Ijósmyndir
fyrir alvöru fyrr en eftir gos. „Ég tók
u.þ.b. tvö til þrjú hundruð myndir í
gosinu og sá mikið eftir því að hafa
ekki tekið fleiri, en þá átti ég ekki eins
góðar vélar og í dag. Ég byrja svo
fljótlega upp úr 1975 að taka myndir í
alvöru og síðustu ár er ég líklega
búinn að taka um það bil 25 þúsund
myndir. Þetta er dýrt hobbý en
skemmtilegt."
Addi segir að hann hafi sýnt áður á
sýningu því hann hafi verið með
ljósmyndir á samsýningu fyrir einum
15 árum. „Við vorum nokkrir saman
í ljósmyndaklúbbi og höfðum aðstöðu
uppi í Arnardranga og vorum þá að
leika okkur með svarthvítar myndir.
Síðan hef ég ekkert tekið svarthvítar
myndir. Aður en ég tek myndir er ég
búinn að pæla lengi í ákveðnum
stöðum til þess að ljósmynda á. Mér
finnst einhvem veginn að þegar ég er
upp í fjöllum eftir harkið í vinnunni að
þá nái maður að slappa af. Það er
eiginlega ekkert sem jafnast á við að
geta horft yfir Eyjamar. Maður er
eiginlega í allt öðmm heimi."
Reynir þú í ljósmyndum þínum að
ná þessum heimi sem er allt öðm vísi?
, Já, þær sýna og segja það sem segja
skal. Þegar veður er gott héma,
jafnast held ég fátt á við Eyjamar.
Eins og reyndar margir útlendingar
hafa sagt sem hingað hafa komið og
hafa líkt Eyjum við eyjuna Caprí. Ég
held að Vestmannaeyjar séu eins
konar Caprí norðursins."
Heldurðu að Vestmannaeyingar geri
sér almennt grein fyrir þeim galdri
sem er héma í Eyjunum?
„Ég veit það ekki. Það er þá held ég
frekar eldra fólkið. Unglingamir í dag
þvælast ekki lengur upp í fjöll til að
veiða lunda og í dag sést varla
unglingur taka fram háf. Hugsunin er
allt öðm vísi en áður var."
Sólarlagið er Adda mjög hugleikið
og þess vegna spyr ég hann að því
hvað valdi?
„Ég bý nú héma í Vesturbænum og
út um stofugluggann hjá mér blasir
eiginlega málverk við mér. Ég hef því
getað fylgst vel með sólarlaginu og ég
held að misjöfn birtan hafi kveikt í
mér og ég fengið áhuga á því að festa
hana á filmu. Ef ég sé að eitthvað
sérstakt er að gerast rýk ég út með
myndavélina. Mér finnst til dæmis
hrikalegt ef ég næ ekki að festa
einhverja stemmningu á filmu, því
það er einmitt augnablikið sem getur
verið svo magnað. Svo er þetta líka
hluti af því að gera Eyjunum skil."
Þú hefur stúderað Heimaklett í
gegnum linsuna og jafnvel svo náið að
minnir á vísindamann sem skoðar sýni
í gegnum smásjáraugað?
„Þegar ég byijaði í lundaveiði á
sínum tíma var ég mikið upp á
Heimakletti og úti í Löngu. Þá fór
ekki fram hjá manni að bergið var
stórbrotið og ég hugsa að þetta hafi
kviknað af því. Þá sá ég að
Heimaklettur býr yfir svo miklu.
Nú er oft talað um ljósmyndara sem
mikla dellu- og tækjakalla, ert þú
mjög hugfanginn af tækninni við
ljósmyndunina?
, Já, upp á síðkastið hef ég verið það
og ég hef verið að fá mér betri vélar.
Ég held samt að í þessu sé þetta mikið
í ljósmyndaranum sjálfum. Nýjustu
tækin em ekki endilega aðalatriðið og
margir okkar fæmstu ljósmyndara em
að nota gamlar vélar enn þá í dag.
Þetta er spurning um að hafa auga
fyrir umhverfinu. Mér finnst oft að
þeir sem em að taka myndir pæli ekki
nógu mikið í því sem þeir em að
mynda. Það hlýtur að vera eitthvað í
ljósmyndaranum sjálfum sem hvetur
hann áfram. Það er engin ljósmynda-
vél betri en sá sem er á bak við
linsuna. Það er ljósmyndarinn sem
ræður ferðinni og smellir af. Þó vélin
sjái ýmislegt þá ræður ljósmyndarinn
niðurstöðunni og höndlar sekúndu-
brotið."
Eins og áður segir opnar sýning
Adda á laugardaginn kl. 14.00 og
verður opin til kl. 22.00 og á sunnudag
er opið frá kl. 14.00 til 22.00. Allir
em velkomnirog Vestmannaeyingar
og gestir í Eyjum hvattir til að skoða
sýninguna og kynnast þeim galdri sem
umlykur Eyjamar og Addi hefur náð
að fanga í gegnum linsu ljósmynda-
vélarinnar.
Benedikt Gestsson
ísleifur Arnar Vignisson (Addi í London) við nokkrar ljósmynda sinna sem hann mun sýna í Akóges um
helgina.