Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2000, Side 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 15 júní 2000
Dagar lita og tóna 2000:
Kristjana kom sá og sigraði
Kristjana Stefánsdóttir:
Perla
hátíðarinnar
Dagar lita og tóna voru haldnir í
Akóges um hvítasunnuna að
venju. Myndlistarmaður
hátíðarinnar var Eyjamaðurinn
Ragnar Engilbertsson sem sýndi
olíu- og vatnslitamyndir og
teikningar. Sýning hans fékk
frábærar viðtökur og seldi hann
flestar myndirnar.
Djassinn var að venju í
hávegum hafður. Að þessu sinni
bar meira á ungu fólki meðal
tónlistarfólksins þó traustar stoðir
hátíðarinnar eins og Árni Elfar,
Tómas R. Einarsson og Ólafur
Stolzenwald létu sig ekki vanta.
Framlag Eyjamanna, Ó, vinir
Óla með Ola í Laufási í farar-
broddi var líflegt og sannar
tónlistarlegt mikilvægi Lúðra-
sveitar Vestmannaeyja fyrir
bæjarfélagið því þar liggja rætur
blásaranna.
Annars gátu Eyjmenn unað vel
við sinn hlut í tónlistinni því ef
spiiararnir voru ekki tengdasynir
Eyjanna gátu þeir margir rakið
ættir sínar til Eyja og annar af
skærustu stjörnum hátíðarinnar,
Birkir Freyr Matthíasson er
borinn og barnfæddur Eyja-
maður. Er Birkir Freyr einn af
bestu trompetleikurum landsins,
kraftmikill en um leið Ijúfur og
með skemmtilega tæran tón.
En af öðrum ólöstuðum var það
Kristjana Stefánsdóttir söngkona
frá Selfossi sem var stjarna
hátíðarinnar. Hún er hiklaust ein
besta djasssöngkona sem
Islendingar eiga í dag og hafa
yfirleitt átt. Flutningur hennar var
á allan hátt frábær og í hennar
meðförum ganga þekkt lög eins og
t.d. Summertime og Love for Sale í
endurnýjun lífdaganna. Það er
ekki oft sem fólk fær að upplifa
slíkt í tónlist en það gerðist í
Akóges á laugardags- og
sunnudagskvöldið.
Það var mikill happafengur fyrir
áhugafólk um tónlist að fá Krist-
jönu Stefánsdóttur djasssöngkonu á
Daga lita og tóna. Kristjana kom
þar fram í fyrsta skipti á Islandi
eftir að hún lauk námi við
Konunglega tónlistarháskólanum í
HoIIandi með hreint frábærum
árangri. Útskrifaðist hún með
hæstu einkunn sem gefin er, 9,5+.
Söngur hennar á hátíðinni var
hápunkturinn og mun seint
gleymast þeim allt of fáu sem létu
sjá sig í Akóges í ár.
Kristjana kom frá Hollandi fimm
dögum áður en hún flaug til Eyja til að
koma fram á Dögum lita og tóna í
Akóges. f Hollandi stundaði hún nám
við Konunglega tónlistarskólann í
Haag sem er annar af tveimur stærstu
listaháskólum Hollands. í samtali við
Fréttir sagðist Kristjana ekki geta
verið annað en ánægð með árang-
urinn. „Ég kláraði námið á þremur
árum í stað fjögurra og fékk 9,5+ í
einkunn sem er hæsta einkunn sem
gefin er við skólann því alltaf má gera
betur,“ sagði Kristjana. Samkvæmt
heimildum blaðsins er Kristjana tíundi
söngnemandinn sem nær þessum
árangri í 30 ára sögu skólans sem á
þessum tíma hefur útskrifað nokkur
þúsund nemendur. Auk þess má geta
þess að Kristjana er fyrsta útskrifaða
djasssöngkona Islendinga.
Lokaprófið voru 50 mínútna tón-
leikar sem sjö dómarar dæmdu og var
niðurstaða þeirra ljós nokkrum mín-
útum eftir að tónleikunum lauk. Þeir
gáfu mér hæstu einkunn og ég fékk
sömu einkunn á tækniprófinu."
Hollandsdrottning er sérlegur
vemdari skólans í Haag sem að sögn
Kristjönu hýsir frægustu barrokdeild í
Evrópu og að hennar mati er Holland
eitt heitasta landið í tónlist í Evrópu í
dag. „Þama ægir saman öllum
hugsanlegum tónlistarstefnum og
margt spennandi er að gerast."
Hvað með framtíðina? „Hún er óráðin
enda er ég svo nýlent. Mér var boðið
að fara í mastersnám við skólann og
taka það á einu ári stað tveggja. Ég hef
ekki ennþá tekið ákvörðun um það
hvort ég tek þessu boði eða ekki. En
það sem er framundan eru tónleikar á
frægri tónlistarhátíð í Viitasaari í
Finnlandi með finnsk-íslenska
kvintetinum eða Finlce, sem er finnsk-
íslensk hljómsveit sem varð til í
Hollandi. í júlí verð ég svo með
tónleika á Jómfrúnni í Lækjargötunni
með Agnari Má Magnússyni
píanóleikara og svo mun Finlce leika
á djasshátíð Reykjavíkur í september."
Kristjana á sér líka draum um að
fara út og starfa þar sem söngkona.
„Það er svo margt spennandi að gerast
og draumurinn er að fara út og vinna
fyrir mér sem söngkona. Það stendur
jafnvel til að ég fari í tónleikaferð um
Þýskaland með þýskum og
hollenskum spilurum."
Kristjana var að mæta í þriðja eða
fjórða skiptið á Daga lita og tóna og
núna var hún varla búin að taka upp úr
töskunum þegar hún dreif sig til Eyja.
„Það er alltaf ljómandi skemmtilegt að
koma og syngja í Eyjum. Lundinn er
frábær og humarsúpan hans
Hermanns klikkar aldrei. Það var líka
gert meira fyrir okkur tónlistarfólkið
en áður og var ekki síst gaman að fara
í bátsferðina. Það er líka alltaf gaman
að syngja fyrir Vestmannaeyinga. Þú
færð ekki líflegri og skemmtilegri sal
því fólk er svo ófeimið við að láta
tilfinningar sínar í Ijós. Ég mun
örugglega kíkja við í haust með
hljómsveitina mína og syngja fyrir
ykkur," sagði Kristjana sem er komin
í hóp bestu söngvara sem Island hefur
alið og var perlan á Dögum lita og
tóna.
HERMANN Einarsson formað-
ur Listvinafélagsins, sem stóð
fyrir hátíðinni.
ÓSKAR á Háeyri var kynnir á
hátíðinni og fórst það vel úr
hendi.
Birkir Freyr Matthíasson:
Framhaldsnám erlendis
Birkir Freyr Matthíasson er einn af
okkar bestu tronipetleikurum eins
og gestir á Dögum lita og tóna fengu
að kynnast á laugardagskvöldið.
Hann lék eins og engill og var einn
af hápunktum hátíðarinnar.
Birkir, sem er 25 ára, er borinn og
bamfæddur og fannst honum ánægju-
legt að fá tækifæri til að spila á
æskuslóðunum þó áheyrendur hefðu
að ósekju mátt vera fleiri. „Ég er ekki
mikið að gera í dag en í vetur var ég
að kenna í Vesturbæjarskólanum hjá
Lárusi H. Grímssyni, bróður hennar
Báru og í Tónlistarskólanum í
Reykjavík. Næsta vetur er ég búinn að
fá heila stöðu í Vesturbæjar-
skólanum,“ sagði Birkir þegar hann
var spurður um hvað hann væri að
gera í dag.
Birkir byrjaði tónlistamám 1980, þá
sex ára gamall, í Tónlistarskóla Vest-
mannaeyja og varð trompetið fljótlega
fyrir valinu. „Ég tók nokkrar blaðsíður
á blokkflautu þegar ég byrjaði en svo
var það trompetið og höfum við átt
samleið síðan. Ég var í Tónlistar-
skólanum í Eyjum til 1988 en svo
útskrifaðist ég 1997 með kennara-
réttindi."
Birkir segir að námi sínu sé langt í
frá lokið og í dag er hann í tímum hjá
Sigurði Flosasyni saxafónleikara og
stefnir hann á framhaldsnám erlendis.
„Ég er búinn að fá inni í skóla í Miami
á Florida í haust en ég veit ekki hvort
það gengur upp hjá mér peningalega.
Ef ekki þá frestast það um eitt ár að ég
fari út og þá gæti Holland orðið fyrir
valinu því þar em engin skólagjöld."
Birkir hefur eins og flestir aðrir
tónlistarmenn á íslandi mörg jám í
eldinunt. Hann leikur með Stórsveit
Reykjavíkur, er nýhættur í hljóm-
sveitinni Jagúar og er svo að spila
djass út um borg og bý.
Þegar Birkir er spurður að því
hvaða tónlist hann aðhyllist nefnir
hann strax klassík og djass. „Ég geri
ekki upp á milli klassískrar tónlistar
og djassins en að öðm leyti er allt í
gangi hjá mér. Síðustu ár hef ég lítið
verið í klassíkinni sem ræðst kannski
af því að þar em færri tækifæri. í
Sinfóníuhljómsveitinni em þrír tromp-
etleikarar, allt bráðungir menn þannig
að möguleikamir þar em ekki miklir.
Það em líka óneitanlega fleiri tækifæri
fyrir okkur sem emm í spunanum. Ég
hef t.d. spilað inn á plötur með
rokkhljómsveitum auk þess sem
maður er að spila djass.“
Hvemig fannst þér að koma fram á
Dögum lita og tóna? „Það var mjög
skemmtilegt en ég hefði viljað sjá
fleiri gesti. Þeir vom fleiri síðast þegar
ég spilaði þama og eins hefðu mátt
vera fleiri spilarar. Svo var ekki
leiðinlegt að fá þetta tækifæri til að
spila með Kristjönu Stefánsdóttur sem
er frábær söngkona," sagði Birkir að
lokum.