Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2000, Page 10
10
Fréttir
Fimmtudagur 15. júni 2000
iar sem hann er
rikjiiiuim hakjjiilmcnnl
luiuum
Vcslm;inn;icyinca^yi lll
cl\ r. bæOi á sjó nc laiuli.
hal'a áll luill haiis ;ill;m
(.vj^M.iiiiiiiiaú áluiáiiinal han.
'cssai'. •
pppwrhans crn
scnnilcca hcísia ,
l'vrir nci'li lians
yfirmaður Keikó-
verkefnisins. Jeff hefur
sérstöðu meðal hinna
starfsmannanna því hann
hafði oft komið til íslands
og Vestmannaeyja áður en
„frelsun Keikós“ varð
hans aðalverkefni. Þá
veiddi hann hvali fyrir
sjávardýragarð í Banda-
ríkjunum en nú hefur
dæmið snúist við. Jeff sér
líka hlutina í öðru ljósi og
í hans huga er
Keikóverkefnið ein
merkilegasta tilraun sem
gerð hefur verið til að
öðlast skilning á
sjávarspendýmm og um
leið lífinu í höfunum.
Mengun hafanna er ein af
ógnum samtímans og
segir Jeff að með
þekkingu og skilningi á
háhymingum og öðmm
dýrum sem sitja efst í
fæðukeðjunni skapist
möguleikar til að
skilgreina vandamálið og
hve stórt það er.
Keikóverkefnið verður
ekki metið til fjár
-segir Jeff Foster og hann er ekki í vafa um að rann-
sóknirnar á Keikó eigi eftir að skila miklu til komandi
kynslóða ekki síst vegna þeirrar ógnar sem mannkyninu
stendur af vaxandi mengun
Fékk ungur áhuga á dýrum
Jeff Foster er 44 ára gamall, fæddur í
Frakklandi og bjó þar og í Júgóslavíu
til þriggja ára aldurs þegar fjölskyldan
flutti heim til Bandarikjanna. „Pabbi
var í bandaríska hemum og þess
vegna vorum við í Evrópu þegar ég
fæddist," segir Jeff. Fjölskyldan settist
að í Seattle á Kyrrahafsströndinni og
þar ólst Jeff upp og þar lauk hann
háskólanámi. Jeff er elstur systkina
sinna, en þeir eru tveir bræðumir og
hann á tvær systur. „Ég útskrifaðist frá
Washingtonháskólanum í Seattle þar
sem ég nam dýrafræði og tók fyrir
hegðun dýra,“ segir Jeff um uppvöxt
og skólagöngu sína.
Val á námsgrein var engin tilviljun
því faðir hans var mikill áhugamaður
um náttúruna og dýralíf almennt.
„Faðir minn, Jim Foster, gerðist dýra-
læknir eftir að hann hætti í hernum.
Starfaði hann bæði í Bandaríkjunum
og t.d. í Afríku. Þar tók hann við starfi
Diane Fossey sem náði heimsfrægð
eftir að gerð var kvikmynd um störf
hennar með górillum í Rúanda í
Afríku,“ bætir Jeff við. Þarna á hann
við stórmyndina Gorillas in the Mist
með Sigoumey Weaver.
Brúðkaupsferðin
stóð í eitt ár
Upphafíð að starfi föður hans í Rú-
anda má rekja til brúðkaupsferðar
Jeffs og Debru konu hans sem stóð
yfir í eitt ár. „Við ferðuðumst um
Afríku og kynntumst Diane Fossey og
sagði ég föður mínum frá þeim
kynnum. Hann var þá að vinna með
úlfum í Alaska. Hann fékk áhuga á
störfum Diane og endirinn varð sá að
hann flutti til Afríku."
Dýr og ferðalög hafa frá upphafi
verið ástríða Jeffs og tólf ára gamall
fór hann í sitt fyrsta ferðalag. „Ég var
svo 18 ára þegar ég fór í mitt fyrsta
ferðalag erlendis og það var til
Astralíu. Þar vann ég við rannsóknir á
hvíthákörlum."
Ljónsungi sem gæludýr
Jeff hefur haldið áfram ferðalögum þó
hann sé í dag giftur og eigi tvö böm.
„Debra konan mín hefur sama áhuga á
ferðalögum og ég sem kemur sér mjög
vel. Við eigum strák og stelpu, Trevor
tíu ára og Kody fimm ára og hefur
fjölskyldan ferðast talsvert um
heiminn. Meðal annars höfum farið tíl
Japans og Quatemala og á næstunni
liggur leiðin til Bahamaeyja. Trevor
hefur erft áhugann á dýrahfi og verður
hann þriðji ættliðurinn sem heillast af
þessum „samborgumm“ okkar á
móður jörð. Hann er að koma heim
með alls konar dýr og fugla sem hann
hugsar um. Sjálfur var ég nákvæmlega
eins og átta og níu ára gamall átti ég
ljónsunga og hlébarða sem gæludýr.
Þessi dýr voru lítil þegar ég fékk þau
en ég ól þau upp og þjálfaði þar til þau
voru nógu stór til að standa á eigin
fótum.“
Þama má segja að Jeff hafi strax
markað sér stefnu í lífinu, að ala upp
dýr til að sleppa þeim. Hann tók þó
lykkju á leið sinni að því verki sem
hann starfar við í dag, þ.e. að gera
Keikó kleift að takast á við lífið út í
villtri náttúrinni.
„Afskipti mín af hvölum voru með
talsvert öðrum hætti en ég er að gera í