Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2000, Qupperneq 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 15. júní 2000
Dagar lita og tóna: Ragnar Engilbertsson málari sem að þessu sinni v;
Myndlistin í bakgrunni
-En þó ég hafi ekki málað mikið hef ég alltaf haft nóg að gera
Ragnar Engilberts-
son hélt yfirlits-
sýningu á mynd-
verkum sínum á
Dögum lita og
tóna um
hvítasunnuna, en
þetta var jjaf n-
framt fyrsta
sýning hans í
Eyjum frá því að
hann byrjaði að
mála, fyrir utan
tvisvar sinnum
sýndi hann
nokkrar myndir í
búðargluggum í
Eyjum. Ragnar er
hógvær og lítil-
látur maður og
segist aldrei hafa
haft áhuga á því
að trana sér fram
og allra síst með
myndir sínar.
Ragnar er fæddur árið 1924 og lauk
málaraiðnnámi árið 1946, en segir að
hann hafi byrjað að fíkta við að mála
myndir í kringum 1940, þannig að
ferill hans spannar um sex tugi ára.
Árin 1942 - 1945 var hann við nám í
Handíðaskólanum sem Lúðvík Guð-
mundsson hafði stofnað í Reykjavík
sem síðar varð Myndlista- og hand-
íðaskóli Islands. Kurt Zier var þá
yfirkennari þar. 1947 hélt hann síðan
til Kaupmannahafnar til þess að nema
við Konunglegu myndlistaraka-
demíuna, þar sem hann var við nám í
þijá vetur undir handleiðslu Kirsten
Iversens. Á þessum árum voru
nokkrir íslenskir málarar við nám í
Kaupmannahöfn sem síðar urðu þjóð-
frægir listamenn. Má þar nefna
Jóhannes Geir, þó hann hafi ekki verið
á Akademíunni, Hrólf Sigurðsson,
Pétur Friðrik, Maríu Ólafsdóttur, Einar
Baldursson og fleiri.
Var það ekki mikil ákvörðun að halda
til Kaupmannahafnar til náms?
„Eg hafði mjög gaman af því og
þetta var ágætur tími. Þetta slampaðist
af einhvem veginn, allt kostaði þetta
peninga, en pabbi styrkti mig eitthvað.
Þetta var ágætur hópur. Eg man að
við vorum margir Islendingamir og
héldum okkur mest saman, en
auðvitað hafði maður alltaf eitthvað
samband við Danina. Við vomm
samt mikið út af fyrir okkur en Dön-
unum fannst að við væmm heldur
RAGNAR segist ekki geta annað verið en ánægður með viðtökurnar sem sýningin fékk. Aðsókn var góð og seldust flest verkin.
mikið í hóp. Það var ekki að við
vildum ekki vera innan um Danina,
heldur æxlaðist þetta svona.“
„Hvaða augum var það litið í
Eyjum að fara til Kaupmannahafnar í
myndlistamám á þessum ámm?
„Það hafa sjálfsagt einhverjir verið
hissa á því og svo vom aðrir sem vom
hrifnir. Eg veit ekki hvemig viðhorfið
hefur verið almennt en sjálfsagt hefur
það þótt skrídð.“
Þú lærðir líka málaraiðnina?
,Já, ég lauk því námi árið 1946. Þá
fór ég líka upp á Selfoss og var við að
mála Ölfusárbrúna og fleira, en ég var
á Selfossi í eitt og hálft ár. I Eyjum
var ekkert að gera á þessum ámm.
Það var alltaf verið að bíða eftir að
verðbólgan hjaðnaði og ekkert byggt
héma, hins vegar var nóg að gera í
Reykjavík og á Selfossi."
En þú varst þijú ár í Danmörku, það
hefur ekkert komið til álita að flengjast
þar?
„Nei, ég fór heim 1951, en ég hafði
þó alltaf komið heim á sumrin. Það
vom ekki tekin nein próf í skólanum.
Það var ekki eins og í dag þegar menn
verða magisterar."
Nú voru miklar hræringar í list-
heiminum þegar þú varst í
Kaupmannahöfn?
Jú, það er víst og mikið að gerast í
Frakklandi, sérstaklega í abstraktinu.
Eg var hins vegar lítið í því þó að mér
líki stefnan ágætlega. Ég hef lítið
stundað myndlistina nema aukalega.
Ég var yfirleitt í öðm.“
Hvemig stendur á því að þú helgar
þig ekki myndlistinni algerlega?
„Ég veit það nú ekki. Þetta þróaðist
bara svona. Ég kom beint til Vest-
mannaeyja að utan og stoppaði ekkert
í Reykjavík. Ég hef heldur aldrei
haldið sýningu hér í Eyjum eftir að ég
kom frá námi og sinnt óskum þar um
lítið. Ég átti stundum myndir á
samsýningum Myndlistarfélagsins í
Reykjavík og tvisvar átti ég myndir á
sýningum í Danmörku. Að örðu leytí
var ég ekki mikið að koma myndum
mínum á framfæri og málaði frekar
lítið á tímabili. Ég hef alltaf haft nóg
að gera þó að ég hafi ekki verið að
mála myndir.“
Er þetta vegna hlédrægni eða
feimni?
„Ég veit það ekki. Ætli það hafi
ekki verið svo í og með. Og kannski
togaði myndlistin aldrei svo mikið í
mig að ég vildi snúa mér að henni
eingöngu. Fyrst eftir að ég kom að
utan hélt ég nú nokkru sambandi við
Jóhannes Geir og Hrólf, Pétur Friðrik
og Einar Baldvin og við hittumst
svona framan af, en ég hef lítið sinnt
því undanfarið."
Hvaða myndefni hafa verið þér
hugleiknust í gegnum tíðina?
„Ég hef aðallega verið í náttúru-
myndum, eins og þú sérð héma. Ég
hef alltaf haft gaman af að mála með
vatnslitum, því mér finnst þeir írískari.
Þó að ég segi sjálfur, þá held ég að ég
hafi verið seigari með þá í gamla daga,
en það er nú eins og það er.“
Áttu þér einhveija listamenn sem að
þú hefur leitað til og telja má
áhrifavalda í myndum þínum?
„Nei, enga sérstaka?"
En hvernig stendur á því að þú
hefur aldrei sýnt í Eyjum?
„Ég sýndi jú tvisvar í búðarglugg-
um áður en ég fór út og hef aldrei
haldið sjálfstæða sýningu og ætlaði
mér aldrei að gera það, en þeir vom nú
RAGNAR í vinnustofu sinni á heimili sínu að Hilmisgötu 3.