Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2000, Page 15
Fimmtudagur 15.júní2000
Fréttir
15
myndlistarmaður hátíðarinnar
FÓLK á öllum aldri sótti sýninguna og hér er Ragnar með mæðgunum Ragnheiði Borgþórsdóttur og
Októvíu Andesen og þriðju dömunni í beinan kvenlegg henni Silja, dóttur Ragnheiðar.
að plata mig í þetta núna. Ég kæri mig
bara ekkert um að vera í sviðsljósinu
og hef ekkert sóst eftir því. Sumir em
ekki fyrr búnir að setja einhverja
klessu á blað að hún er komin á
sýningu. Auðvitað er það sjálfsagt og
eðlilegt að listamenn komi myndum
sínum á framfæri ef þeir hafa áhuga á
því, en einhvem veginn hef ég ekki
verið mikið fyrir það.“
En núna verður yfirlitssýning á
verkum þínum?
,Já, elsta myndin er líklega frá
1943, en ég mundi nú ekkert eftir
þeirri mynd. Þetta hefur nú bara verið
í drasli hjá mér niðri í kjallara. En nú
er ég hættur að vinna og er að reyna að
gaufa eitthvað í þessu.“
Ragnar gengur nú um vinnustofuna
með blaðamanni og sýnir honum
nokkrar myndir. „Þessi mynd er nú
máluð þegar ég fór norður á Mývatn
íyrir þijátíu og Ijómm árum, og máluð
á staðnum en hefur verið í skissublokk
hjá mér. Eins er þessi sem hér er.
Þessa málaði ég einu sinni á Húsafelli.
Við Pétur Friðrik fómm þangað, en
hann var í sveit þama og málaði þar
mikið á sumrin. Og hér era fleiri
myndir sem ég hef ekki séð lengi
sjálfur. Héma er til að mynda gamli
tíminn. Ég man eftir þessu öllu
saman, að vísu málaði ég þessa eftir
lítilli svarthvítri ljósmynd 6 x 9.“
„Þetta er þar sem Einar ríki
byrjaði," segir Ragnar og dregur fram
vatnslitamynd og lýsir því sem sést á
myndinni: „Héma er Eilífðin sem
kölluð var. Gísli Johnsen byijaði
þama en Einar keypti þetta svo. Ég
man vel eftir þessu. En af hverju
húsið var kallað Eilífðin veit ég ekki,
líklega hafa gárangamir fundið upp á
því. Líklega vegna þess að þetta var
svo stórt og mikið þá. Þetta var svo
kallaður Kumbaldi, einhvers konar
salthús og þar vora haldin brúðkaup
og svoleiðis. Og þetta var
Austurbúðin, en þar verslaði Bryde,
og þama var kolaport," segir Ragnar
og lýtur yfir myndimar sem raðað
hefur verið upp meðfram veggjunum
á vinnustofu hans.
„Héma era svo myndir sem ég fann
í fyrra eða hitt í fyrra. Við voram að
rissa einu sinni í Hafnarfirðinum þegar
ég var í skólanum og ég setti svo lit í
þetta síðar.“
Ragnar segir að þó hann hafi ekki
sýnt myndir sínar, þá hafí hann alltaf
farið á sýningar, bæði í Eyjum og
Reykjavík. „Eg hef yfirleitt alltaf farið
á sýningar, en hef gert minna af því í
seinni tíð. Astæða þess er kannski
fyrst og fremst sú að ég hef ekkert
gaman af því lengur. Eg ætla hins
vegar ekkert að dæma nútímamyndlist
en persónulega verð ég oft fyrir
vonbrigðum. Maður kemur inn á
sýningu og það er ekkert að sjá. Það
var til dæmis verið að taka í notkun
stórt listasafn í Danmörku fyrir
nokkram áram sem heitir Arken og ég
kom einu sinni á. Þar var ekkert af
gestum og engin hrifning. Þar héngu
myndir eftir einhvem Svía, sem virtist
vera heimsfrægur. Hann átti þama
þrjár myndir sem vora íjórir til fimm
metrar á kant og á þeim vora tvær
klessur, ein græn og önnur svört. Einn
amerískur listamaður var þama líka
með sýningu sem sagður var stór-
kostlega frægur. Hann hafði strengt
víra á milli homa í salnum og á
honumn héngu tveir stálstólar á hvolfi.
Ég skil þetta ekki, skilur þú það?
Þama var hins vegar sægur af
starfsfólki sem hékk í þremur hópum
og spjallaði saman. Starfsfólkið sagði
að það hefði verið ráðinn nýr
listfræðingur og hann vildi hafa þetta
svona.“
Má segja að myndlistin sé ekki í
neinum tengslum við fólkið í landinu?
„Það er kannski of mikið sagt. Ég er
ekki að segja að það sem er eldra sé
allt gott, en manni finnst þetta dálítið
vera komið út og suður. Þegar fólk er
hætt að fara á sýningar, þá er eitthvað
að. Það var nú skrifað um listasafnið
Arken í dönsku blöðin og ráðamenn
sögðust ekki borga fyrir þetta, ef
stefna safnsins yrði svona áfram. Þá
vora hengdir upp í hluta safnsins
viðurkenndir listamenn til þess að
reyna að fá fólk í húsið og mun hafa
íjölgað eitthvað fyrir vikið.“
Benedikt Gestsson.
EITT af málverkunum á sýningunni er af húsum Gísla J. Johnsen
sem Einar ríki Sigurðsson eignaðist síðar. Þarna reis
Hraðfrystistöðin síðar en hennar örlög urðu að hún fór undir hraun
1973.
Uti a linnu.
DAGAR hta og tona foru að venju fram um helgina og voru
Fréttir mættar á staðinn. Gefur hér að líta nokkrar myndir frá
hátíðinni sem stóð vel undir nafni.
OLAFUR Stolzenwald hefur undanfarin ár verið einn af
máttarstólpum Daga lita og tóna.
ÁRNI Johnsen alþingisniaður og Elías Björnsson formaður
Sjómannafélagsins Jötuns sameinast í tónlistinni.