Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2000, Side 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 15. júní 2000
FASTRÁÐNIR starfsmenn Eimskips í Vestmannaeyjum með tölvubúnaðinn. F.v. Þóra Hrönn
Sigurjónsdóttir fulltrúi, Marta Jakobsdóttir fulltrúi, Bragi Júlíusson verkstjóri, Geir Halldórsson
lyftaramaður, Grétar Agústsson lyftaramaður og Jóhann Kristján Ragnarsson afgreiðslustjóri.
Starfsmenn Eimskips
í Eyjum tölvuvæddir
í mars síðastliðinn var greint frá
ákvörðun stjórnar Eimskipafé-
lagsins að bjóða öllum fastráðnum
starfsmönnum Eimskips á íslandi
heimilistölvu og prentara til afnota
gegn vægu gjaldi. Starfsmenn
sýndu þessu framtaki mikinn áhuga
og hefur stór hluti fastráðinna
starfsmanna nýtt sér tilboðið. Síð-
astliðinn fimmtudag var starfs-
mönnum Eimskips í Vestmanna-
eyjum afhentar tölvur sínar í blíð-
skapar veðri á gámasvæði félgsins í
Eyjum.
Að sögn Jóhanns Kristjáns Ragn-
arssonar afgreiðslustjóra Eimskips í
Vestmannaeyjum er markmiðið með
tölvugjöfinni að gefa starfsmönnum
hér á landi kleift að nota tölvu heima
hjá sér og auka þar með þekkingu sína
og notkunarmöguleika upplýsinga-
tækninnar. Hann sagði að þetta væri
jafnframt liður í því að gefa fjöl-
skyldum starfsmanna kost á að nýta
sér þessa nýju tækni. „Fræðsludeild
Eimskips mun síðan skipuleggja
grunnnámskeið eftir þörfum fyrir þá
starfsmenn sem litla sem enga reynslu
hafa af tölvunotkun, en jafnframt
hefur Eimskip milligöngu um að
bjóða intemettengingu fyrir þá sem
þess óska og tengingu við póstkerfi
félagsins.“
Tölvumar sem era af gerðinni
Compaq Deskpro EP-6600 vora
afhentar með nýjasta Windows
hugbúnaði, Word, Excel, Publisher,
og Microsoft stýrikerfinu. Einnig
fengu starfsmenn afhentan Epson
Stylus Color 460 litaprentara. Gengið
var frá samningi við Tæknival um
kaup á tölvubúnaðinum að undan-
gengnu útboði.
Knattspyrna: Landssímadeild kvenna
Jafntefli sejn ÍA
Kvennalið ÍBV náði ekki að fylgja
eftir góðum árangri gegn Vals-
stúlkum í fjórðu umferð íslands-
mótsins en síðasti leikur stelpnanna
gegn Breiðablik hér heima var
frestað vegna landsleiks ensku
leikmanna IB V. Lokatölur í leikn-
um gegn IA var 1-1 en það voru
heimastúlkur sem náðu forystunni
en Hjördís Halldórsdóttir náði að
jafna fyrir ÍBV rétt fyrir leikhlé.
Heimir Hallgrímsson sagði að
leikurinn hafi verið mjög svo
kaflaskiptur. „Við áttum í vök að
verjast allan fyrri hálfleikinn og var
nánast um einstefnu að ræða, en Petra
stóð sig stórkostlega í markinu og
bjargaði okkur oftar en ekki. í seinni
hálfleik var þessu hins vegar öfugt
farið og við pressuðum þær stíft, en
voram hrikalega óheppnar upp við
markið. Við áttum meðal annars tvö
sláarskot, eitt í stöngina og svo
fengum við víti sem við nýttum ekki.
Biddý var svo rekin útaf þegar um 20
mínútur voru eftir og þá datt þetta
aðeins niður hjá okkur. Þetta era
náttúralega mikil vonbrigði og ég held
að það sé óhætt að segja að þetta séu
tvö stig töpuð. Þær vora að vísu að
taka þijá gamla jaxla í liðið og ætluðu
að leggja allt í þetta, en við verðum
samt sem áður að vinna svona leiki,
við verðum bara að læra af þessu,“
sagði Heimir.
Knattspyrna: Landssímadeild kvenna og 3. deild karla
KFS 03 ÍBV stelpurnar fá liðsstyrk
Svo gæti farið að 3. deildarlið KFS
fái liðsstyrk á næstu dögum. Heyrst
hefur að Dragan Manojlovic
fyrrverandi leikmaður IBV hafi
haft samband við fyrrverandi
formann IBV, Jóhannes Olafsson
og beðið hann um að koma sér á
framfæri hjá íslenskum liðum.
Jóhannes hefur eins og allir vita
verið einn dyggasti stuðningsmaður
KFS, og fannst því tilvalið að Ganni
eins og Dragan er kallaður myndi leika
með KFS. Nú er verið að hnýta
nokkra lausa enda og ef allt gengur
eftir mun Ganni spila með KFS út
tímabilið. Leikmaðurinn var með ÍBV
árin 1994-95 en áður hafði hann spilað
með Þrótti Reykjavík í gömlu 2.
deildinni.
Rússneskur leikmaður hefur verið
fenginn til liðs við kvennalið IBV.
Leikmaðurinn sem heitir Svetlana
Bahnskaya er um þrítugt og að upplagi
vamarmaður en hefur spilað á
miðjunni líka. Heimir Hallgrímsson
sagði í samtali við Fréttir að leik-
maðurinn væri ekki í toppæfingu og
því erfitt að sjá hversu góð hún væri."
Hún kemur til okkar að eigin ósk og er
í tíu daga reynslu. Hún er búin að
mæta á eina æfingu en ég ætla ekki að
fara dæma hana út frá því.“
Nýr íþróttasalur tilbúinn
1. september 2001:
Greiðslubyrði
bæjarins 25
milljónir á ári
Eins og fram kom í síðasta
tölublaði Frétta þá samþykkti
bæjarráð að reisa tvöfaldan
íþróttasal við Iþróttamiðstöðina. I
framhaldi af samþykkt bæjarráðs
og tillögu í bæjarstjórn Vest-
mannaeyja hefur Guðjón Hjör-
leifsson bæjarstjóri verið í við-
ræðum við fulltrúa Gerum gott
betra ehf. og Steina og Olla ehf.
Jafnframt hefur bæjarstjórn rætt
við fulltrúa Lífeyrissjóðs Vm.,
Islandsbanka, Sparisjóðs Vest-
mannaeyja, Landsbanka Islands
og NÍB (Norræna Fjárfestinga-
bankans) og Glitnis í sainvinnu við
Isiandsbanka.
Staða málsins var sú að Glitnir var
tilbúinn að fjármagna byggingu og
leigja Vestmannaeyjabæ nýjan
tvöfaldan íþróttasal til 25 ára. I lok
leigutímans yrði síðan greitt 1,5 -
2,5% af byggingarkostnaði sem er
uppgreiðsluverð. Það kom fram hjá
Guðjóni í bæjarráði að miðað við
upplýsingar Glitnis þá gæti leiguverð
á ári verið um 25-26 milljónir króna
m.v. annuted leigusamning með
1,5% álagi á Libor vexti sem era um
5,25% eða samtals 6,75%.
Guðjón segir að bærinn sé með
mjög hagstæðan lánasamning við
Kaupþing og álag á Liborvexti er
0,75% auk 0,2% aukakostnaðar og
Liborvextir era um 4,5% eða samtals
5,45%.
Mismunur er um 3 milljónir kr.
lægri fyrir bæjarsjóð á ári, auk
uppgreiðsluverðsins í lok rúmar 4,5
milljónir króna. Auk þess er mis-
munur á lántöku- og stimpilkostnaði
upp á 1,4% eða um 4,2 milljónir
króna. Mismunur á ári m.v. 25 ár er
því að meðaltali um 350 þúsund kr.
Tillaga Guðjóns hljóðaði upp á að
samið yrði við Steina og Olla ehf.
um byggingu nýs íþróttasalar, 54,3 x
48 metrar að stærð ásamt 270m2
rými. Salurinn yrði vestan við
Iþróttamiðstöðina og núverandi
anddyri nýtt áfram og endurhannað
m.t.t. þessarar breytingar. I salnum
yrðu áhorfendabekkir fyrir u.þ.b.
800-1000 manns. Um er að ræða
löglegan keppnisvöll fyrir miðjum
sal. I almennri notkun yrði gert ráð
fyrir tveimur völlum (20x40m) og
veggur yrði til þess að skilja þessa
sali að.
Búningsklefar yrðu 2, þ.e. 2x2
með sameiginlegri baðaðstöðu sbr.
núverandi klefar. Einnig yrði gert
ráð fyrir dómaraherbergi og
kennaraherbergi.
Greiðslubyrði á ári yrði um 23
milljónir en á móti sparast 7,5
milljónir vegna þess að hætt verður
rekstri Týs- og Þórsheimilis, eða
nettó um 15,5 milljónir króna. I
upphaflegum hugmyndum var gert
ráð fyrir nettókostnaði bæjarins 12-
15 milljónir m.v. 30 ára leigutíma og
þá var salurinn 2.304 m2 en er nú
2.606 m2.
Forsenda fyrir að þetta gangi eftir
er samkomulag við Steina og Olla
um að hætt verði við framkvæmdir
við tengibyggingu sem vera átti á 2.
hæð Iþróttamiðstöðvar ásamt til-
heyrandi framkvæmdum er tengjast
tengibyggingunni. Jafnframt verði
hætt við framkvæmdir um byggingu
tækjageymslu austan íþróttasalar
ásamt framkvæmdum á neðri hæð
Iþróttamiðstöðvar.
Auk þess að framkvæmda-
kostnaður verði ásættanlegur með
beinum samningi við Steina og Olla
ehf. og að bæjartæknifræðingi verði
falið að yfirfara verksamning í
samvinnu við bæjarstjóra.
Áætlaður kostnaður er tæpar 310
milljónir króna og gert verður ráð
fyrir framkvæmdakostnaðinum á
árinu 2000 og 2001.
Áætlaður afhendingatími er 1.
september 2001.
Samkvæmt upplýsingum bæjar-
stjóra er ekki gert ráð fyrir stúku við
Hásteinsvöll í þessum pakka.
NÚVERANDI íþróttasalur er fyrir löngu orðinn of lítill.
FLUGFELAGISLANDS
Sumaráætlun gildir til 1. október
Fjórar ferðir á dag
Bókanir og upplýsingar um flug í s. 481 3300
www.flugfelag.is