Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2000, Qupperneq 17
Fimmtudagur 16. júní 2000
Fréttir
17
Njáll Kolbeinsson fyrrum skipstjóri á Gandí VE:
Spurt er????
Vorum
deilu
reknir vegna
um fiskverð
GANDÍ VE sigldi fánum prýddur til hafnar í Vestmannaeyjum þann 29. júní 1999, nú tæpu ári seinna
er honum lagt og áhöfninni sagt upp.
Uppsögn áhafnarinnar á línubátnum
Gandí VE, sem nú er í eigu
Vinnslustöðvarinnar, kom nokkuð á
óvart því stjómendur Vinnslu-
stöðvarinnar höfðu lýst því yfir að
báturinn yrði gerður út áfram eftir
sameiningu félagsins og Gandís ehf.
Skipstjórinn segir að uppsögnin hafi
komið eins og blaut tuska framan í
áhöfnina og hann gefur ekki mikið
fyrir skýringar Vinnslustöðvarinnar
um að tillögur um niðurskurð á kvóta
sé ástæða uppsagnarinnar. Það sé ekki
rétt heldur megi rekja uppsögnina til
deilna um fiskverð sem þó hafi ekki
að hans mati verið komin í
óleysanlegan hnút.
Njáll Kolbeinsson, iyrrum skipstjóri
á Gandí VE, segir að mikil umskipti
hafi orðið hjá áhöfninni á síðasta ári.
Fyrir réttu ári síðan keypti Gandí ehf.
sem fyrir átti neta- og snurvoðarbátinn
Gandí VE, línubát frá Noregi sem
fékk nafnið Gandí VE. Um leið var
gamla bátnum lagt. Síðastliðinn vetur
tilkynnir Gunnlaugur Ólafsson
útgerðarmaður mannskapnum að
hann hafi ákveðið að sameinast
Vinnslustöðinni. „Hann sagðist vera
nokkuð sáttur við þessa niðurstöðu því
skip og kvóti yrðu áfram í
Vestmannaeyjum og Vinnslustöðin
hefði geftð út að báturinn yrði gerður
út afram og allir héldu vinnunni. Þegar
Vinnslustöðvarmenn funduðu með
okkur segjast þeir vera ánægðir með
að hafa fengið þennan myndarlegan
bát í flota félagsins og okkur til staífa.
Þeir sögðu að öflugt línuskip væri góð
viðbót og þeir ætluðu sér að setja
mikinn kvóta á bátinn og gera hann út
alltárið," segirNjáll.
„Þegar Vinnslustöðin tekur við
bátnum er gert við okkur það sem
kallast fiskverðssamkomulag. Við
vorum ekki sáttir við það en ákváðum
að fara af stað enda samningurinn
uppsegjanlegur með mánaðar-
íyrirvara."
Njáll segir að þá hafi áhöfnin farið
að bera sig saman við aðra báta og þá
hafi komið í ljós að fiskverðið sem
Vinnslustöðin greiddi var með því
allra lægsta sem þekkist á línubátum.
„Það sama gilti þó bátamir væru
tengdir fiskvinnslustöðvum eins og
Gandí. Málin þróuðust þannig að los
komst á mannskapinn og ég sýndi
þeim í Vinnslustöðinni fram á að ég
væri að missa mannskap af því að
menn voru að fá betri laun fyrir sömu
vinnu á öðrum bátum. Var svo komið
að það var erfitt fyrir mig að manna
bátinn."
Þannig er staðan þegar Gandí fer í
slipp í lok maí. Eftir hálfan mánuð í
landi fara þeir á sjó 7. júní sl. „Þá lét
ég Binna og Stefán í Vinnslustöðinni
vita af því að ég teldi víst að áhöfnin
segði upp fiskverðinu. Það er síðan
gert með faxi þann 7. júní. Daginn
eftir komum við í land til að skila af
okkur manni. Þá var okkur tilkynnt að
við værum allir reknir og það ætti að
stoppa bátinn strax. Þeir báru fyrir sig
tillögum Hafró um minni afla-
heimildir á næsta fiskveiðiári. Það
kemur manni spánskt fyrir sjónir því
Gandí er sá bátur sem á mesta
möguleika á að ná utankvótafiski og
ennþá eru þrír mánuðir eftir af
fiskveiðiárinu. Það er ekki vafi í
mínum huga að það var uppsögn á
fiskverði en ekki tillögur Hafró sem
urðu til þess að þeir ráku okkur. Því til
staðfestingar er rétt að það komi ffam
að engum okkar var boðið upp á
endurráðningu ef aðstæður breyttust
og báturinn færi af stað aftur. Og
mikið lá þeim á því við fengum
pokann okkar í miðjum túr."
Njáll sagðist ekki vita annað en að
rekstur Gandís hafi gengið vel. Því til
staðfestingar sagði hann að stutt væri
síðan útgerðarstjóri Vinnslustöðvar-
innar hefði sagt sér að afkomutölumar
væm góðar. Því væri samt ekki á móti
mælt að illa hefði gengið að manna
bátinn. „Það var m.a. vegna þess sem
ég ræddi um að hækka fiskverðið, að
gera Gandí samkeppnishæfari um
menn vana línuveiðum sem ekki eru á
hverju strái. Kröfumar vom ekki
miklar því með því hefðum við ekki
náð meðalverði í línuflotanum."
Tímasetning uppsagnarinnar er í
meira lagi undarleg að mati Njáls því
2. júní var hluthafafundur í Vinnslu-
stöðinni sem endanlega samþykkti
sammna Gandís ehf. við Vinnslu-
stöðina hf. Og nú stendur hann uppi
atvinnulaus eftir níu ára starf hjá
Gandís, þar af þrjú ár sem skipstjóri.
„Við vomm 14 í áhöfn og þar af vom
fimm og sex heimamenn. Nú þurfum
við allir að leita okkur að nýrri vinnu.
Sjálfur hringdi ég til Grindavíkur í leit
að vinnu á línubát því mér líkar vel á
línuveiðum. Hvað Vinnslustöðina
varðar, þá varð ég ekki var við mikinn
áhuga á að ráða okkur áfram enda hef
ég takmarkaðan áhuga á að vinna þar
áfram. Og eitt er ég þó þakldátur fyrir,
það vom aðkomumenn en ekki
Eyjamenn sem sýna okkur þessa
framkomu," sagði Njáll að lokum.
Afhjúpa
minnismerki
við Mormóna-
poll í sumar
Islenska mormónafélagið í Utah í Bandaríkjunum
hyggst reisa minnisvarða á svæði við Torfmýri fyrir
ofan svonefndan Mormónapoll föstudaginn 30. júní
nk.
Minnismerkið er um 3,7 m á hæð og sjálf styttan er 2,1
m á hæð. A fæti minnismerkisins verða árituð nöfh þeirra
Vestmannaeyinga sem héldu í víking til Ameríku og
settust að í Spanish Fork í Utah á árunum 1850-1890.
Þetta fólk var það eina sem hefur yfirgefið Island af
trúarlegum ástæðum og ferðuðust 6000 mílur til að hefja
nýtt h'f og byggja Síon.
Eins og áður segir er áætlað að minnismerkið verði
komið upp föstudaginn 30. júní. Talið er að um 30-40
manns frá Utah heimsæki Eyjamar í tilefni af þessari
athöfn og fylgist með þegar Lil Shephard forsvarsmaður
félagsins afhjúpar styttuna.
MINNISMERKIÐ verður um 3,7 m á hæð og
styttan 2,1 m á hæð.
Ætlar þú á
kristnihátíð
undir Löngu og
á Hörgaeyri á
sunnudaginn?
Binni í Vinnslustöðinni:
-Eg hef ekkert
ákveðið í þeim
efnum enn þá.
Unnur Katrín Þórarinsdóttir:
Sigurður Ingi Ingólfsson:
Því miður verð ég
fjarverandi, annars
hefði ég farið.
Reyni helst að lara í
þær göngumessur
sem haldnar hafa
verið og við hjónin
mjög fylgjandi
kristilegu slarfi.
Bergur M. Sigmundsson:
-Eg ætla vona að ég
lifi það að komast í
Löngu um helgina ,
gegnheill og sann-
kristinn maðurinn.
Stefán Sigurjónsson:
-Já, ég ætla mér það
og taka á einhvern
hátt þátt í hátíðinni.
Eg vona bara að
ekki verði neitt 17.
júní veður þann 18.
Guðmundur Sigfússon:
-Er ekki búinn að
ákveða það.
Sigubjörg Axelsdóttir:
-Já, já að sjálfsögðu
ætlaég. Viðverðum
endilega að fylgjast
með.
Gríniur Gíslason:
-Já, ég er nú ekki í
vafa um það, því ég
ler með súpuna
þangað. Það er
ekkert flóknara en
það.
Þórðarson
-Það er alls ó-
ákveðið en líklega á
éj> ekki von á því.
Eg verð að ölluni
líkindum á EM í
knattspyrnu heima í
stofu.