Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2000, Side 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 15. júní 2000
Landa-
KIRKJA
- lifandi samfélag!
15. júní fimmtudagur
Kl. 14.30 helgistund á Sjúkrahúsinu
2. hæð.
Heimsóknagestir velkomnir.
18. júní sunnudagur
KI. 11.00 Kristnihátíðarafmæli í
Vestmannaeyjum.
Helgiganga frá Landakirkju að
Löngu. Fólk siglir með Lóðsinum
yfir. Setning kristnihátíðar í Eyjum
og Messa á Hörgaeyri. Fögnum
kristni á landtökustað Gizzurar
Hvíta og Hjalta Skeggjasonar
þúsund ámm eftir að þeir lögðu
kirkjuvið á land á Hörgaeyri. Margt
verður um dýrðir. Hátíðarkór
Vestmannaeyja og Litlir
lærisveinar syngja og
lúðrasveitarfélagar spila. Fjöldi
fólks ungra og aldinna aðstoða við
athöfhina. Formaður sóknamefndar
flytur hátíðarávarp. Báðir
Eyjaklerkar flytja messuna.
Stórbrotin náttúran undir Heima-
kletti verður notuð sem kirkjustæði.
Altarið, altaristaflan og hvað eina
tekur mót af undursamlegri
náttúrunni.
Vestmannaeyingar, sýnum í
verki undir hvers merki við
söfnumst. Mætum öll prúðbúin,
eftir því veðri sem Guð gefur og
fylkjum liði undir merki krossins.
21. júní miðvikudagur
Kl. 20.30 Opið hús í KFUM&K-
húsinu fyrir unglinga. Undir-
búningur helgigöngu á Þingvelli í
fullum gangi.
Prestar Landakirkju minna á nýtt
símanúmer kirkjunnar 488 1500.
Hvíta-
SUNNU-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20:30 Samkoma
Laugardagur
Kl. 20:30 Bænasamkoma
Sunnudagur
Kl. 11.00 Vakningasamkoma fyrir
alla sem þurfa að vakna og hina
líka.
Allir velkomnir í
Hvítasunnukirkjuna.
Aðvent-
KIRKJAN
Laugardagur 17. júní
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Allir hjartanlega velkomnir.
Biblían talar sími
481-1585
Fjölskyldu-
stemmnins
Knattspyrnudeiid ÍBV bauð upp á
fjölskyldustemmningu á leik IB V
og Leifturs á laugardaginn. í boði
var sérstakt miðatilboð fyrir
fjölskyldufólk, sem fólst í því að ef
mamman eða pabbinn keypti
miða á leikinn fékk makinn og
börnin frítt inn. Leiktæki voru við
Týsheimilið meðan á leiknum stóð
þar sem krakkarnir léku sér á
meðan foreldrarnir horfðu á
leikinn.
Að leik loknum var boðið upp á
grillaðar pylsur og drykki við Týs-
heimilið þar sem stuðningsmenn
ÍBV og bæjarbúar gátu heilsað
upp á leikmenn IBV og rætt við þá
í návígi.
Þessu framtaki var vel tekið og
voru það ekki síst grilluðu
pylsurnar að gera.
JMk m j)
|JM|
Mótorcross: íslandsmótið á Akureyri
Þokkalegur áransur Eyjamanna
Um helgina tóku fjórir af þeim
fimm Eyjamönnum, sem kepptu á
mótorkrosskeppninni hér í Eyjum,
þátt í annarri umferð Islands-
mótsins sem fram fór norður á
Akureyri. Þeir Sigurður Bjarni,
Ómar, Pétur og Sæþór voru núna
með og var árangur þeirra svip-
aður og hér heima en Siggi Bjarni
var efstur þeirra félaga, í tólfta sæti.
Siggi Bjami sagði í samtali við
Fréttir að brautin hefði verið sér-
staklega erfið fýrir þá félaga enda allt
öðruvísi jarðvegur í brautinni en þeir
eiga að venjast. „Við vorum í dálitlum
vandræðum til að byrja með en
náðum fljótt að læra inn á brautina.
Hér heima er vikur í brautinni en
þama er bara mold sem er allt öðmvísi
og fyrir vikið urðum við fljótlega
þreyttir. Samt sem áður klámðum við
allir og mér fannst sérstaklega gott hjá
Pétri og Sæþóri að ná að klára þetta
enda er þetta þeirra fyrsta tímabil.
Einnig lenti Pétur í því að hafa
íslandsmeistarann, Ragnar Inga á
bakinu á sér um tíma, en það drapst á
hjólinu hjá Pétri og stuttu seinna kom
Ragnar Ingi úr stökki og lenti hrein-
lega á bakinu á Pétri. Þeir meiddust
báðir eitthvað lítillega en hörkuðu
báðir af sér og klámðu keppnina."
sagði Sigurður.
Nú var mikið gert fyrir keppendur
hér í Eyjum, var eitthvað svipað upp á
teningnum fyrir norðan?
,Já, það er óhætt að segja að allar
aðstæður hafi verið frábærar. Við
gistum í tjöldum á tjaldsvæðinu og
höfðum m.a. sundlaug út af fyrir
HÚSEV
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA
Inni eða út
MlKIÐ ÚRVAl
okkur. Eftir keppnina var svo að
sjálfsögðu haft gaman enda em flestir
kcppendumir á aldrinum 25-35 ára og
með íjölskyldur. Annars vomm við
líka mjög heppnir með veðrið, frábært
veður var þegar við komum norður og
svo á keppnisdag var skýjað og smá
úði, sem hentar best fyrir brautina."
Hvað er framundan?
„Næst er mót á Reykjavíkursvæð-
inu um miðjan næsta mánuð og við
ætlum þá allir að vera með. Þess má
geta að við emm með í liðakeppninni.
Team Bragginn heitir liðið eftir
styrktaraðilanum og ég held að við
séum í fjórða sæti af átta liðum. Svo
er væntanlegt KTM liðið til Eyja og
þeir ætla að hafa með sér fyrrverandi
heimsmeistara og taka með okkur
æfingu á brautinni hér, þannig að við
slökum hvergi á.“
FRÁ mótinu í Vestmannaeyjum í síðasta mánuði.
Kynning: Komið og bragðið á Ijúffengri skógarberjatertu.
Kaffihlaðborð laugardag 17. júní og
sunnudag 18. júnífrá kl. 15.00 til 17.00.
r
Urval af kökum og brauði ásamt margs konar ítölsku kaffidrykkjum
frá Lavazza, s.s. Swiss Mokka, Cappucino o.fl.
Notaleg þjóðhátíðarstemmning í fallegu umhverfi.
LUNDINN, veitingahús