Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2000, Side 17
Fimmtudagur 20. júlí 2000
Fréttir
17
Dagmar Skúladóttir framkvæmdastjóri Sumarstúlkukeppninnar:
Stelpurnar verða að
sjálfsögðu aðalatriðið
-enda koma þær mikið fram - Þema kvöldsins verður Villta vestrið
DAGMAR: „Auk titilsins, sumarstúlka Vestmannaeyja, verður og valin
vinsælasta stúlkan og Ijósmyndafyrirsætan. Þessir titlar hafa verið veittir
undanfarin ár og eru góð viðbót og tilbreyting í keppninni.“
Sumarstúlkan
2000:
Glæsileg
verðlaun
í boði
Margir leggja Sumarstúlkunni
lið og stúlkurnar fá fjölda gjafa
og vinninga.
Fyrsti vinningur er Edin-
borgarferð fyrir einn í haust frá
Úrval-Útsýn, Flugfélag íslands
gefur fyrstu þremur Ilugferð til
Reykjavíkur, Ffressó gefur öllum
stúlkunum mánaðarkort í heilsu-
rækt, Eðalsport og Flamingo
gefa gjafakort, Hárgreiðslustofa
Guðbjargar og Snyrtistofan
Aníta gefa öllurn stúlkunum
pakka með hár- og snyrtivörum,
Foto gefur myndavél, Bókabúðin
Penninn gefur pakka frá Kodak,
Heildverslunin Grekko og
verslunin Natama við Laugaveg,
sem eru í eigu Sirrýar Garðars
frá Þorlaugargerði, gefa
sumarstúlkunni 10.000 kr.
fataúttekt og allar fá stúlkurnar
pakka frá Islensk-austurlenska,
umboðsaðila Oroblu á íslandi.
Framkvæmdastjóri er
Dagmar Skúladóttir, kynnir og
skemmtanastjóri kvöldsins er
Bjarni Ólafur Guðmundsson,
Ijósmyndari Guðmundur
Asmundsson, búningahönnuður
Selma Ragnarsdóttir, höfundur
málverks á sviði Nada Borosaki,
ljósa- og hljóðmaður Rúnar
Karlsson og aðstoð við
skreytingar Björg Valgeirsdóttir.
Aðalstyrktaraðilar eru Fréttir,
Veisluþjónusta Gríms, Hótel
Þórshamar og Kaffi Tímor,
Úrval Útsýn, Hárgreiðslustofa
Guðbjargar, Snyrtistofan Am'ta
og Flugfélag íslands.
Aðrir styrktaraðilar eru
Metro málning Reynistað, Sprett
úr spori, Eyjablóm, Hressó, Betri
línur, Róma, Foto, Eðalsport,
Flamingo, Tölvun og Bókabúðin
Penninn.
Dagmar Skúladóttir, framkvæmda-
stjóri Sumarstúlkukeppninnar í ár,
segir að undirbúningur keppninnar
hafi gengið með ágætum. Æfingar
hafa verið stífar undanfarið og
mikið lagt í að gera keppnina sem
veglegasta.
„Stelpumar verða að sjálfsögðu
aðalatriði kvöldsins og þær koma því
mikið fram. Þema kvöldsins verður
Villta vestrið, en Selma Ragnarsdóttir
hefur saumað alla búninga á stelp-
umar, sem þær koma fram í á
opnunaratriðinu. Einnig verður tísku-
sýning þar sem stúlkumar koma fram
í fatnaði frá Flamingo og Eðalsport.
Björg Valgeirsdóttir hefur svo verið til
aðtoðar við skreytingar á salnum."
Dagmar sagði að ýmis fleiri atriði
yrðu gestum sumarstúlkukeppninnar
til skemmtunar. „Helga Braga mun
verða með grínatriði, Margrét Bjama-
dóttir og Ólafur Guðmundsson ntunu
syngja einsöng og ungt fólk úr Fim-
leikafélaginu Rán verður með atriði.
Dómnefnd verður á svæðinu, en auk
þess verður dreift atkvæðaseðlum til
gesta sem munu geta látið álit sitt í ljós
og lagt sitt af jTiörkum til vals
sumarstúlkunnar. I dómnefnd em Jón
Helgi Erlendsson frá Fréttum, Guð-
björg Sveinbjömsdóttir frá hár-
greiðslustofu Guðbjargar, Guðbjörg
Guðmannsdóttir frá Snyrtistofu
Guðbjargar, Kristófer Jónsson hand-
hafi gjörvileikatitils Vestmannaeyja
árið 2000, Valgerður Jóna Jónsdóttir
frá snyrtistofu Anitu og hinn frægi
ítalski Antóníó frá Icelandic Models."
Dagmar sagði að auk titilsins,
sumarstúlka Vestmannaeyja, yrði og
valin vinsælasta stúlkan og ljós-
myndafyrirsætan. „Þessir titlar hafa
verið veittir undanfarin ár og em góð
viðbót og tilbreyting í keppninni.
Sigurvegarinn og handhafi titilsins
Sumarstúlka Vestmannaeyja árið
2000 mun að sjálfsögðu hljóta vegleg
verðlaun.
Að venju verður boðið upp á miklar
og veglegar kræsingar í mat og drykk
og verður ekkert til sparað. „Það er
Grímur Gíslason og rómuð
Veisluþjónusta hans sem sér um
matinn og ætlar Grímur að bjóða upp
á spænska tapas smárétti, sem er
nýjung á matseðli sumarstúlku-
keppninnar.“
Dagmar sagði að, byrjað væri að
taka við pöntunum á keppnina og að
mikil eftirspum væri hjá hópum og
einstaklingum að komast á skemmt-
unina. „Hægt er að panta borð í síma
481-2665. Rétt er að geta þess að fyrir
undarlegan áhitting innsláttarpúkans
birtist rangt borðapöntunarsímanúmer
í síðustu fréttum sem leiðréttist hér
með. Verð fyrir manninn á sumar-
stúlkukeppnina er 2800 kr.og 1500 kr.
á ballið á Kaffi Tímor á eftir, en að
sjálfsögðu er hægt að kaupa allan
pakkann og er verðið á honum 4300
kr.“
Að lokinni keppninni á Höfðanum
verður ball á Kaffi Tímor, þar sem
hljómsveitinn Land og synir mun
halda upp dynjandi sumarstúlkustuði
fram eftir nóttu.
Helstu Styrktaraðilar Sumarstúlku-
keppninnar í ár em Fréttir, Veislu-
þjónusta Gríms, Sparisjóður Vest-
mannaeyja, Hótel Þórshamar,
Bókabúðin-Penninn, Metro, Sprett úr
spori, Eyjablóm, Hressó, Betri Iínur,
Róma, Fótó, Kaffi Tímor, Flamingo,
Eðalsport og Flugleiðir.
Skemmtanastjóri kvöldsins verður
hinn síkviki og hressi Bjami Olafur
Guðmundsson, og stúlkunum til
aðstoðar í atriðum kvöldsins em
Davíð Þór Óskarsson, Gústaf Krist-
jánsson, ívar Róbertsson og Bjarki
Steinn Traustason.
Að hafa tilfinningu
fyrir stemmningunni
-segir Bjarni Ólafur, skemmtanastjóri keppninnar
Bjarni Ólafur Guðmundsson, eða
Daddi diskó eins Eyjamenn þekkja
hann trúlega best, hefur verið
kynnir á sumarstúlkukeppnum
Vestmannaeyja frá því um 1990,
eftir því sem hann mundi best.
„Þetta em um það bil tfu ár held ég
sem ég hef haft þennan starfa á
sumarstúlkukeppninni, þó að ég hafi
nú ekki verið kynnir öll þessi tíu ár.
Eg hafði verið dagskrárgerðarmaður á
Bylgjunni og þess vegna vanur
míkrófóninum. Eg var líka skemmt-
anastjóri í Hallarlundi, þar sem við
settum meðal annars upp hin
margrómuðu Eyjakvöld sem vom
mjög vinsæl á sínum tíma og sum
þeirra kynnti ég. Einnig rak ég
tískuvömverslun í Eyjum frá haustinu
1990 í framhaldi af því komst ég í
samstarf við Fréttir vegna sumar-
stúlkukeppninnar. Seinna, þegar ég
var að vinna hjá útvarpsstöðinni FM
957 vann ég náið með fram-
kvæmdastjórum keppninnar um
Ungfrú Island og skipulagði meðal
annars óvissuferð þeirra til Vest-
mannaeyja. Þetta þróaðist síðan út í
að ég varð kynnir á keppnum um
ungfrú Island og ungfrú Reykjavík,
sem ég hef kynnt síðastliðin fjögur ár
og verð núna þriðja árið með herra
Island,“ sagði Daddi þegar blaða-
maður sló á þráðinn til hans.
Daddi sagði að kynnar og
skemmtanastjórar yrðu að hafa sitt-
hvað til bmnns að bera til að geta
tekið að sér þessi störf. „Það er ágætt
að vera sæmilega skýrmæltur, en
jafnframt nauðsynlegt að koma vel
fyrir. En líklega er þetta spuming um
að hafa tilfinningu fyrir stemmningu
og að virkja salinn hverju sinni til að
ná fram rétta andrúmsloftinu og virkja
það í þágu þess atburðar sem er í
gangi hverju sinni. Síðan hefur
reynslan að sjálfsögðu unnið með
manni í gegnum árin.“
Daddi sagði að hann væri alltaf
með klárt handrit að dagskránni
hverju sinni. „Þetta er kannski aðeins
frjálslegra á sumarstúlkukeppninni.
En yfirleitt skrifa ég niður hvert
einasta orð í kynningum mínum og
það hefur gefist mjög vel. Þessar
keppnir hafa verið með stærstu við-
burðum á sumrin í Eyjum og mikið
lagt í þær. Yfirleitt em alltaf vin-
sælustu hljómsveitir landsins fengnar
til þess að spila Eg hef að minnsta
kosti verið kynnir á þremur stöðum
þar sem keppnin hefur verið haldin,
það er í Hallarlundi, Kiwaishúsinu og
ÞESSI mynd er frá því Bjarni
Olafur var að stíga sín fyrstu
skref sem kynnir.
Höfðanum, en líklega hefur keppnin
verið haldin oftast þar.“
Hver finnst þér að lágmarksaldur
þátttakenda í keppninni eigi að vera?
„Einhvem tíma vorum við að velta
þessu fyrir okkur og þá held ég að
niðurstaðan hafi verið að heppilegast
væri að stelpumar væm á 18. árinu,
sérstaklega ef þær hafa áhuga á að
halda áfram í öðmm keppnum, því
sumarstúlkukeppnin væri mjög góður
skóli fyrir þær. Mér skilst að ein-
hverjir af þátttakendum í keppninni
núna hafi tekið þátt í fegurðar-
samkeppnum, en þær keppnir era
miklu erfiðari, bæði er lýsing í salnum
meiri og nálægðin og persónulegur
stuðningur ekki eins mikill.“
Daddi sagði að hann hefði alltaf átt
frábært samstarf við þá sem skipulagt
hafa sumarstúlkukeppni Vestmanna-
eyja og komið hafa að þeim með
einum eða öðmm hætti. „Þetta fólk
hefur verið að standa sig frábærlega.
Eg er svo heppinn að minn hlutur í
þessu er líka áhugamál mitt, sem
tengist markaðs- og sölumálum. Því
þegar maður er kynnir í svona keppni
er maður líka að selja sjálfan sig um
leið,“ sagði Daddi.