Fréttir - Eyjafréttir - 17.08.2000, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 17. ágúst2000
Bókvitið
'askana
Hamskipti og fábreytt fjóslíf
Síðasti bókaunnandi, Sigurður
Georgsson skoraði á Eyjólf Guð-
jónsson að taka við af sér sem bóka-
unnda vikunnar. Eitthvað virðist
Sigurður hafa farið í geitarhús að leita
ullar, því að Eyjólfur þessi virðist hafa
gufað upp af eyjunni og ekki spurst af
honum tangur né tötur síðan. Er það
grunur bókamanna að téður Eyjólfur
hafi tekið sér Vegahandbókina í hönd
og haldið á vit þjóðveganna að upp-
lifa þar nokkuð þau undur og stór-
merki sem utan Eyja kunna að
leynast. Það er því kannski ekki Ur
vegi að Vegahandbókin fái að njóta
síns réttmæta sess. En þar sem
Eyjólfur mun hafa tekið hana með sér
verður kynning á efni bókarinnar að
bíða betri tíma og áhugasömum vísað
á bókasafnið, en þar má iðulega finna
margt fágætra bóka.
Annars er nú svo með allar bækur,
ef grannt er skoðað að þær eru oft
nokkurs konar vegahandbækur um þá
óljósu stigu sem fólk þræðir á sínum
lífsvegi. Það vill segja nokkurs konar
lífsvegahandbækur, sumar hveijar má
taka sér til nokkurrar eftirbreytni og
lærajafnvel eitthvað af á meðan aðrar
segja mest lítið og stundum ekki neitt,
jafnvel að þær ali á heimsku og fávísi
af ýmsu tagi. Allt um það verða
slíkar bækur ekki taldar upp hér, en
rétt að benda á að menn gæti sín í
Bókakötturinn er bókaunnandi
vikunnar
lestrinum, hvaða nafn bækur annars
kunna að bera.
Hér verður þó tilnefnd ein bók sem
um leið er ævisaga kattar nokkurs af
fjósakyni og er ekki verri fyrir það,
hvorki bókin né kötturinn. Bókin
heitir „Betrunarvist meðal heiðingj-
anna - Saga af ónafngreindum ketti.“
Bókin er skrifuð af ketti um kött og er
því öðrum þræði sjálfsævisaga og
gaman að fylgjast með þeim
hamskiptum sem kötturinn tekur frá
mannheimum yfir í fábreytilegt
fjóslífið í kattartilvistinnni. Margir
lærðir menn hafa lagt og reyndar
fundið út djúpar meiningar og harð-
vítugan svartan húmor í sögunni, þar
sem engu er eirt, hvorki helgum né
heiðingjum. Bókin hefur því þótt
skólabókardæmi um þá tvíhyggju
sem felst í svart/hvítum skoðana-
skiptum manna, sem að lokum leiðir
til exístensíalískrar nauðhyggju, sem
svo endar í þráhyggju og meðferð hjá
sálfræðingum. Stendur því lesandi
eftir nokkuð illa ringlaður og veit vart
hvort kötturinn var að leika sér að
músinni eða músin að kettinum. Þess
ber að geta að bók þessa er mjög erfitt
að nálgast og hefur hún aðallega
gengið í vafasömum ljósritum og
skuggalegum eftirprentunum neðan-
jarðar, þó mun eitt eintak vera til á
þjóðskjalasafninu, en það er hvorki til
útláns né lestrar. Að lokum þakkar
Bókakötturinn fyrir sig og skorar á
Jón Helga Erlendsson sérfræðing
Frétta í konum að mæta til leiks í
næsta þátt og segja vonandi frá hald-
góðum bókum um leyndardóma
kvenna.
Erfitt að stjórna mörgum
börnum og pysjum
Þessa dagana standa yfir tökur á
J* , kvikmyndinni Pysjuþjófnum. Þar sem
b leikstjóri og framleiðandi myndarinnar á
ræturað rekja til Eyja og á sterkar taugar
hingað, þótti við hæfi að gera hann að
Eyjamanni vikunnar.
Fullt nafn? Sveinn Magnús Sveinsson.
Fæðingardagur og ár? 15. október
1953.
Fæðingarstaður? Reykjavík.
Fjölskylduhagir? Maki er Auður
Elísabet Guðmundsdóttir. Við eigum
þrjár dætur auk þess sem ég á son frá
fyrri tíð.
Menntun og starf? Menntaður í
kvikmyndagerð í Kaliforníu og lærði
einnig markaðsfræði þar. Hef rekið Plús
Film frá 1986.
Laun? Misjöfn.
Bifreið? Land Cruiser 92.
Helsti galli? Ætla
mér stundum um of.
Helsti kostur? Ég held ég sé
sæmilegur í mannlegum sam-
skiptum. Hef reynt að varðveita
barnið í mér.
Uppáhaldsmatur? íslenskt lamb.
Versti matur? Hákarl.
Uppáhaldsdrykkur? íslenskt vatn
þessa stundina.
Uppáhaldstónlist? íslenskt rokk.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir? Eiga góða stund
með konunni og prinsessunum.
Hvað er það leiðinlegasta sem
þú gerir? Standa íbílaviðgerðum
og garðvinnu.
Hvað myndirðu gera efþú ynnir
milljón í happdrætti? Fara með
fjölskylduna til Afríku á vit villi-
dýranna.
Uppáhaldsstjórnmálamaður?
Enginn.
Uppáhaldsíþróttamaður? Ætli
maður verði ekki að segja Siggi, litli
bróðir.
Ertu meðlimur í einhverjum
félagsskap? Það gefst lítill tími til slíks. Ogþó,éger
Þróttari og í félagsskap sem heitir Þrettán þreyttir
Þróttarar.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Vel gerðar heimilda-
myndir um fólk og mannlíf.
Uppáhaldsbók? Þær eru margar á náttborðinu en
lítið um lestur.
Hvað metur þú mest í fari annarra? Jákvæðni og
þegar menn eru tilbúnir að finna lausnir á vanda-
málum.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?
Mér leiðist blaðamenn sem vekja mig árla morguns til
að svara misviturlegum spurningum.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Jökulgil
á Landmannaafrétti. Og Vestmannaeyjar.
Hvernig tengist þú Vestmannaeyjum? Langafi
minn, Sveinn Jónsson, var búsettur í Eyjum. Hann
átti m.a. Júlíönu, Ársæl og Svein, afa minn. Ég er
náskyldur Sælunum.
Hvernig ganga tökurnar? Þær hafa gengið vel. Þó
er stundum erfitt að stjórna
mörgum börnum og pysjum.
Nóg afpysjum? Já, þó lentum við
í vandræðum á þriðjudagskvöld
þegar við gleymdum okkur í
gleðinni við að sleppa pysjum og
urðum uppiskroppa með þær.
Er gott að gera kvikmyndir í
Vestmannaeyjum? Já, hér eru
si/o margir fallegir staðir sem njóta
sín íkvikmynd.
Hvenær fáum við að sjá
afraksturinn ísjónvarpinu? Ég á
að vera búinn að skiia af mér í lok
október. Þá verður heilmikil hátíð
úti þar sem allar 17 myndirnar
verða sýndar. Svo er það dag-
skrárstjóri sjónvarpsins sem ræður
því hvenær myndin verðursýnd og
ég veit ekki hvort það verður fyrir
eða eftiráramót.
Eitthvað að lokum? Égvilþakka
foreldrum, börnum og pysjum fyrir
jákvæð viðbrögð og að hafa ekki
látið okkur fara í taugarnar á sér.
Ég vona bara að ég geti staðið
upprétturað myndinni lokinni.
Nýfæddir ?cr
Vestmannaeyingar
Þann 6. ágúst
eignuðust Jórunn
Lilja Jónasdóttir
og Helgi Sævar
Hreinsson son.
Hann vó 14
merkur og var 55
cm að lengd. Á
myndinni með
honum er
fjölskylduvinur,
Grétar Þór
Þórsson.
Ljósmóðir var
Valgerður
Ólafsdóttir.
Orðspor__________________________________ /►
- Það gerast mörg ævintýri í kringum þjóðhátíð og sum skondin. Af nýliðinni hátíð
segir af hjónum einum sem búið hafa sér huggulegt heimili í austurbænum hér á
eyjunni. Þau komu sum sé heim til sín kvöld eitt og var þá nokkuð brugðið, því
íbúðin var full af viðlegubúnaði af ýmsu tagi, sem þau vissu ekki til að ætti að vera
þar. Þau finna enga skýringu á þessu og láta þar við sitja. Líður svo að nóttu. Er
þá bankað á dyr hjá hjónum þessum og úti standa peyjar nokkrir og koma nokkrar
vöflur á þá þegar þeir kannast ekki við þann er upp lauk dyrunum. Spyrja þó hvort
Óli og Svala eigi ekki heima þar. Húsráðandi kannaðist ekki við það. Kom þá í Ijós
að peyjar þessir höfðu farið húsavilt, þegar þeir hentu inn farangri sínunn fyrr um
daginn. Leystist það mál allt farsællega og peyjarnir fengu sinn viðlegubúnað.
Líður svo allt með ágætum þar til daginn eftir að aftur er bankað hjá sæmdar-
hjónum vorum. Eru þar peyjarnir aftur mættir og nokkuð spyrjandi á svip, en bera
þó upp erindið: „Við gleymdum víst túnfisksalati í ísskápnum hjá þér.“ Ekki fer þó
sögum af því í hvaða maga salatið lenti.
- Það styttist í að áhugasamir um ferjurekstur skili inn tilboðum í rekstur
þjónustuæðarinnar Herjólfs. Eitt og annað er spjallað í því sambandi og heyrist nú
að þeir sem reka Breiðarfjarðarferjuna Baldur hugsi sér gott til glóðarinnar að færa
út kvíarnar, með því að bjóða i rekstur Herjólfs. Eins og alkunna er hefur mikil
uppbygging verið hjá þeim Baldursmönnum, þar sem þeir dóla með túrista milli
skerja og þúfna um Breiðafjörðinn. Sjá þeir mikil sóknarfæri fyrir sambærilega
notkun á Herjólfi á milli úteyja.
- Og enn af útboðs og ferjumálum, því fréttir herma (reyndar óstaðfestar) að þeir
sem reka Baldur og Hríseyjarferjuna (mjólkurflutningabátinn) séu í samrunahug-
leiðingum og hyggist bjóða sameiginlega í rekstur Herjólfs. Hefur jafnvel heyrst
að að þeir séu komnir í viðræður við erlend ferjufyrirtæki og hljómar þar Stena-Line
oftar en önnur stórveldi sem stunda slíkan rekstur. Þykja möguleikar þeirra mjög
vænlegir þar sem fyrirliggjandi er vínveitingaleyfi hjá Stena-Line, sem uppfyllir
staðla Evrópusambandsins, en eins og alkunna er hefur vínveitingaleyfi, sem
Herjólfsmenn hafa sótt um, týnst af ókunnum orsökum. Telja menn að „lobbíistar"
í Brussel hafi togað í ýmsa vínveitingaspotta til þess að minnka líkur Herjólfsmanna
á að halda áfram rekstri Herjólfs.
- Miklar framkvæmdir hafa verið við Strandveginn nú í vikunni, nánar tiltekið fyrir
framan kaupfélagið á steinsteyptum kanti sem skilurað bílastæði Kaupfélagsins
og Strandveginn. Hafa verktakar unnið að því að koma þar upp mikilli fánaborg,
trúlega til að flagga kaupfélagsfánunum á hátíðarstundum. Þykir mörgum þetta
nokkur undur og staðsetningin fáránleg. Fyrir utan þá slysahættu sem ýmsir sjá
að þessi framkvæmd bjóði heim, þá heyrist kurr meðal starfsmanna Frétta, sem
benda á að af þessu sé hin mesta sjónmengun. Hafa þeir haft hina dásamlegustu
útsýn til Heimakletts af bekkjum sínum, en talið er að sú sýn hafi verið mjög
leiðbeinandi fyrir þá málsvörn og skjól sem hin eina sanna eyjahugsun á í blaðinu.
Til að bæta gráu ofan á svart hugsa nú margirtil þess með nokkrum ugg að þegar
kaupfélagsfánarnir fari að blakta við hún fyrir utan glugga Frétta muni það
hugsanlega raska meintri rótgróinni pólitískri sannfæringu starfsmanna blaðsins.
Mun stjórnarformaður blaðsins því nú leita að námskeiðum fyrir starfsmennina,
hvar efla mætti mótstöðuna við hugsanlegri rangpólitískri ertingu, sem stafa kynni
affánunum.
Á döfiimi 4*
7 7. til 24. ágúst Tilboðsvika í Brímnesi, líka í
hádeginu
19. ágúst Áríegt sumargríll ÁTVR í
Heiðmörk. Grill og gleði út í
eittmeð allri fjölskyldunni
7 9. ágúst Golfmót Eyverja haldið á
golfvellinum í Eyjum kl. 13
7 9. ágúst Stöðvamótið í golfi hefst kl.
09.00