Fréttir - Eyjafréttir - 17.08.2000, Side 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 17. ágúst 2000
Lundauppskriftakeppni Frétta og Magga Braga:
Stór Biarnareyiarlundi,
marineraður og grillaður
Vinningshafi í lundauppskrifta-
keppni Frétta og Magga Braga er
Pétur Steingrímsson, Bjarnarey-
ingur og eftir öllum sólarmerkjum
dómnefndar keppninnar hinn lið-
tækasti lundakokkur ekki síður en
lundafangari.
Það var úr vöndu að ráða fyrir
dómnefndina að meta gæði og frum-
leika innsendra uppskrifta sem voru
töluvert á annan tuginn. Dómnefnd
stóð á blístri eftir að hafa metið
innsendar uppskriftir og óvíst að þeir
sælkerar hafi lent í annarri eins veislu
dýrindis kræsinga.
Það vakti nokkra athygli dómnefndar
að æ algengara er að rauðvín séu
notuð í lundauppskriftunum og einnig
sem drykkjarföng með lundanum.
Þótti dómnefndinni slíkur áhugi vel
við hæfi með þeirri villibráð sem
lundinn vissulega væri. „Eyjamenn
eru greinilega að ná upp miklum
kúltúr í kringum eldamennsku og
neyslu lundans, og er það vel,“ sagði
Maggi Braga. „Þó að klassískar upp-
skriftir standi ætíð fyrir sínu, þá
megum við ekki gleyma að Eyjamenn
eru alltaf að verða meiri heimsmenn
og nauðsynlegt að uppfæra þjóðlega
rétti í samræmi við kall tímans hveiju
sinni.“
Verðlaunin að þessu sinni, eins og
reyndar áður, er matarkarfa frá Heild-
verslun K. Kristmanns með fjöl-
breyttu sælkerafóðri, sem ætti að
nýtast verðlaunahafanum og öðrum
Eyjamönnum í frekari könnunar-
leiðangra um unaðsakra matargerðar-
listarinnar. Fréttir og Maggi Braga
óska verðlaunahafanum til hamingju
með sigurinn með von um að halda
megi aðra keppni að ári. Hér fer á
eftir uppskrift Péturs og vonum við að
Eyjamenn prófi nú uppskriftina.
Stór Bjarnareyjarlundi,
marineraður og grillaður:
Lundinn er flakaður og lagður í
marineringu í McCormick grillsósu
(orginal) í 6 - 8 tíma áður en hann er
grillaður. Athugið að hita þarf grillið
vel, áður en steikingin hefst.
Lundaflökin grilluð í 3 - 4 mínútur á
hvorri hlið og krydduð með
sítrónupipar.
Annars er smekkur fólks mjög
misjafn á því hvemig það vill hafa
bringumar steiktar og því er best að
það fikri sig áfram í steikingunni. Mér
og mínum vinum finnst þessi grilltími
bestur.
Sósa:
Þá er komið að sósunni með
steikinni. Ég mæli með tvennum
sósum og auðvitað þá í sitt hvom lagi.
Ein krukka af sýrðum rjóma.
Ein matskeið af Vogaídýfu með
kryddblöndu.
Þessu er hrært saman. Síðan er
púrrulaukur skorinn í smátt og settur
út í og hrært saman við.
Einnig er til mjög góð tilbúin
hvítlaukssósa sem heitir „I einum
grænum" Hún er einnig mjög góð
með þessarri lundauppskrift og þá
beint úr dollunni.
Meðlæti:
Næst er það meðlætið. Mjög gott er að
hafa eftirtalið með þessum rétti:
Uppskrift eitt: Jöklasalat með
smáttskomum tómötum, agúrku og
fetaosti.
Uppskrift tvö: Svo er líka nauðsynlegt
að hafa með þessu beikon, lauk,
sveppi og papriku, skorið smátt og
„svissað" aðeins á pönnu (léttsteikt).
Svo er alveg nauðsynlegt að drekka
með þessu rauðvín og mæli ég með
Cantarita sem bmggað er úr frönskum
Cabernet Sauvignon þrúgum í Chile.
Cantarita er með miklu beijabragði og
má kenna dulítinn eikarkeim af því.
Ég mæli með '98 árganginum Gott er
að hafa tvær til þrjár flöskur við
hendina.
Einnig má líka steikja lundaflökin á
pönnu og þá er gott að hella miklum
rjóma yfir og þykkja síðan með
maisenamjöli. Má setja smá slettu af
rifsberjahlaupi út í sósuna og leyfa að
malla pínu litla stund. Einnig mjög
gott.
Verði ykkur að góðu.
Með Bjarnareyjarkveðju
Pétur Steingrímsson
Blátindur
ekki alveg
gleymdur
Glöggir menn hafa tekið eftir
því að búið er að mála
„landsíðuna“ á Blátindi þar
sem hann stendur í gamla
slippnum og blasir við þeim
sem leið eiga vestur
Strandveginn. Reyndar hefur
skipið staðið þar undanfarin
ár, veðri og vindum til ánægju,
en unnendum sögunnar til
gremju og armæðu. Þeir eru
margir sem telja fortíðina ekki
síður mikilvæga en nútíðina og
þess vegna sé það skylda að
jafn sögufrægu skipi og
Blátindi sé sýndur sá sómi sem
þeir hinir sömu telja að megi
efla skilning og þroska þeirra
sem nú eru á dögum. Tryggvi
Sigurðsson, Sigurður Jónsson,
Sæmundur Arnason og
Sigurður Tryggvason hafa
verið að hlúa að Blátindi þar í
slippnum ef mætti verða
honum nokkur vörn þá er
haustar og vetur sest að.
Sigurður Jónsson sagði að
stefnan væri að koma skipinu í
skoðunahæft stand. „Blátindur
er smíðaður í Eyjum árið 1947
af Eggert Gunnarssyni
skipasmið, fóðurbróður
Tryggva Sigurðssonar. Skipið
er nokkuð heillegt og er í sinni
upprunalegu mynd þar í
slippnum utan að það vantar á
það vantana. Þegar Blátindur
kom aftur til Eyja var meira að
segja vélin ganghæf. Þannig að
það ætti ekki að verða mikil
þraut að endurreisa Blátind.
Þetta er aðeins spurning um
Blátindur þar sem hann blasir við vegfarendum sem leið eiga vestur Strandveginn
vilja til verksins.“
Um fjármögnun þessa verks
sem nú er hafið sagðist
Sigurður ekki geta tjáð sig
mikið en vissulega kostaði allt
peninga. „Tryggvi hefur
fjármagnað núverandi verk úr
eigin vasa og ég veit að Sigtrygg
Helgason, Benediktssonar
langar að koma að því verki
líka. Annars er fjámögnunin
óljós á þessu stigi málsins. Hins
vegar er ekki úr vegi hér og nú
að kalla til fleiri, ef ske kynni að
hægt væri að virkja menn til
þess að veita Blátindi þá
vegsemd sem hann á skilið,“
sagði Sigurður.