Fréttir - Eyjafréttir - 17.08.2000, Page 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 17. ágúst 2000
Pysjuþjófurinn kviki
Tökum þet
ikmyndaður í
Eyjum
-
FRÁ upptökum á Pysjuþjófnum á
Vestmannabrautinni á mánudagskvöldið.
Sveinn Magnús lengst til hægri leggur á
ráðin með sínu fólki.
Ekki draumurinn að verða leikari
Ingvar Örn sagði að systir sín hefði séð auglýst eftir leikurum í Fréttum og
hann ákveðið að prófa og fengið hlutverkið. Hann sagðist aldrei hafa leikið
áður.
„Mér hefur samt gengið vel og líst vel á myndina, en hvort ég verð nokkuð
frægur eftir þetta veit ég ekki.“
Langar þig til þess að verða leikari þegarþú verður stór?
„Það er nú ekki draumurinn, en samt er aldrei að vita.“
Hvemig líst þér á þennan strák sem þú leikur?
„Bara ágætlega. Hann er þó frekar fátækur og rænir pysjum frá Önnu og
Braga og gerir margt af sér. En hann er samt ágætis strákur."
Lið kvikmyndatökumanna frá
Plúsfilm hefur verið við tökur á
barnamyndinni „Pysjuþjófurinn"
í Vestmannaeyjum undanfarna
daga. Myndin er samstarfsverk-
efni 17 Evrópulanda, verður ein
mynd gerð í hverju landi og síðan
sýndar í sjónvarpi í öllum
löndunum. Leikstjóri og
framleiðandi myndarinnar er
Sveinn M. Sveinsson hjá Plúsfilm
og stóð hann í stórræðum uppi á
Stakkó síðastliðinn mánudag
ásamt tökuliðinu og fjölda krakka
sem leika í myndinni. En aðrir í
áhöfn Plúsfilm eru Bergsteinn
Besti Björgvinsson tökumaður,
Jón Kjartansson hljóðmaður,
Erlendur Bl. Cassata kranastjóri,
tækja- og kyntröll og síðast en ekki
síst frændi Hjördísar, Alfreð Skúta
Böðvarsson, Ijósamaður og Jóna
Sigríður Guðmundsdóttir sem
hefur umsjón með búningum og
lcikmunum auk þess að lcika
mömmuna af miklum
skörungskap.
I stórum dráttum gcngur sagan út
á að cfnt er til mikillar keppni
meðal krakka í Eyjum um hver
þeirra getur fundið flestar pysur
og sleppt á haf út. Vegleg verðlaun
eru í boði, en verðlaununum er
haldið leyndum til þess að auka á
spcnnuna meðal krakkanna. En
eins og oft vill verða þegar keppnin
stendur sem hæst ætla sumir að
redda sér pysjum með
óheiðarlegum hætti, svo upp
spinnst óvænt atburðarrás. Það
eru þrjú aðalhlutverk í myndinni
og með þau fara Ingvar Örn
Bergsson sem leikur Axel
pysjuþjóf, írena Dís
Jóhannesdóttir sem leikur Önnu
og Hjálmar Viðarsson sem leikur
Braga en þau eru meintir þolendur
pysjuþjófsins. Blaðamaður
fylgdist með upptökum í vikunni
og spjallaði stuttlega við
aðalleikarana og leikst jórann.
Sveinn stendur ábúðurfullur í
brekku með gjallarhorn og reynir
að ná athygli kvikra að ekki sé
minna sagt lcikaranna. Hann
útskýrir fyrir þeim hvernig atriðið
er útfært sem á að fara að skjóta,
þegar ró er komin á hópinn.
Atriðið snýst um þegar
bæjarstjórinn er að segja
krökkunum frá keppninni. Svo
biður leikstjórinn um þögn þegar
allir eru klárir á hlutverkum
sínum og upptuka hefst. „Tökum
þetta aftur,“ segir hann svo,
þolinmæðin uppmáluð, og farið er
yfir atriðið á ný. Svona líður
dagurinn í stórum dráttum með
pælingum um sjónarhorn
staðsetningar og svo framvegis.
Það er komið fram á kvöld þegar
næst í leikstjórann við hús uppi á
Vestmannabraut þar sem verið er
að „skjóta“ pysjuþjófnaðinn.
Sveinn segir að tökur hafi gengið
vel þennan dag, enda séu
krakkarnir mjög þolinmóðir.
„Þetta hefur gengið eins og í sögu,
veðrið eins og best verður á kosið
og engin vandamál komið upp.
Eyjamenn hafa tekið mjög vel á
móti okkur og allir tilbúnir að
greiða götu okkar eftir bestu getu.“
Sveinn sagði að tökur hefðu gengið
samkvæmt áætlun. „Við erum
búnir að vera í Eyjum síðan á
miðvikudaginn í síðustu viku og
um helgina bættust fleiri við. Við
gerum ráð fyrir að upptökum Ijúki
í kvöld, en þær hafa gengið mjög
vel og vil ég nota tækifærið til þess
að þakka Vestmannaeyingum fyrir
frábærar móttökur. Þessi tími
hefur verið góður tími að ekki sé
minna sagt,“ sagði Sveinn og var
rokinn í næstu töku.
Stundum pirrandi að
endurtka tökurnar
Irena Dís lcikur Önnu og ég spyr
hana hvort hún sé að leika í fyrsta
skipti?
, Já, og finnst það mjög gaman.“
Hvemig stelpa er Anna?
„Anna er systir Braga, en þau taka þátt
í keppni um að ná flestum lunda-
pysjum. Síðan kemur steluþjófur og
stelur pysjunum þeirra, en hann hafði
komist að því hver verðlaunin voru,
og langar mikið í þau.“
Ætlar þú að verða leikkona þegarþú
verður stór?
„Ég veit það ekki, en þetta er æðis-
lega gaman, þó að það sé pirrandi að
þurfa stundum að gera aftur og aftur.“
Hlakkarðu ekki til að sjá myndina,
þegar hún er búin ?
Jú.“
Heldurðu að þú eigir kannski ejiir að
verða frœg leikkona?
„Nei, það held ég ekki.“
Mæðgin leika saman
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir
leikur mömmuna í myndinni, en
auk þess sér hún um leikmuni og
búninga.
Hún sagði að hún hefði farið með
syni sínum í prufutöku og þá vantaði
móður og fannst hún tilvalin í móður-
hlutverkið. „Nú, og sonur minn
Hjálmar fékk líka eitt af þremur
aðalhlutverkunum. „Ég lék einu
sinni á sviðinu hjá Leikfélagi Vest-
mannaeyja, en þá var verið að sýna
Saumastofuna eftir Ragnar Kjartans-
son og var í einu aðalhlutverkinu þar.
Ég hef hins vegar aldri spreytt mig
fyrir framan kvikmyndatökuvél, það
er alveg nýtt fyrir mig.“
Hvernig finnst þér að vinna við
kvikmyndagerð ?
„Það er mjög gaman og á örugglega
eftir að verða miklu skemmtilegra og
mikil vinna framundan. Ég sé líka um
búningana og að allt sé til staðar sem
vera á í leikmyndinni hverju sinni.“
Hefurðu áhuga á því að leggja
kvikmyndaleik fyrirþig?
„Nei, það held ég ekki, en það er
gaman að prófa þetta og allir sem
standa að þessu em frábærir."
Nú leikur sonur þinn í myndinni, er
Itann dálítið efnilegur?
„Já, já, og kom mér ekkert á óvart
að hann var valinn.“
I þeim töluðu orðum kemur
Hjálmar dl Jónu og ég spyr hvort hann
hafi leikið í kvikmynd áður.
„Nei, en mér finnst þetta mjög
gaman. Ég leik strák sem heitir Bragi,
en hann á systur sem heitir írena.
Pysjuþjófurinn stelur svo pysjum frá
þeim eina nóttina.“
Hvernig strákur er Bragi, er hann
einhver töffari?
„Nei hann er bara venjulegur
strákur á hjóli.“
En hann er duglegur að bjarga
pysjum, eða Itvað?
„Jú stundum, en ég sjálfur búinn að
ná svona hundrað pysjum. En mesta
sem ég hef fundið af pysjum var einu
sinni með Óla frænda mínum, en hann
er á bíl og við fundum 103 pysjur á
einu kvöldi. Við vomm sko með allri
hljómsveitinni hans.“
JONA Sigríður og Hjálmar
leika saman í Pysjuþjófinum.
AÐALLEIKARARNIR, f.v. írena Dís Jóhannesdóttir, Ingvar Örn Bergsson og Hjálmar Viðarsson eiga
eftir að koma fyrir sjónir sjónvarpshorfenda í a.m.k. 17 Evrópulöndum.