Fréttir - Eyjafréttir - 17.08.2000, Page 11
Fimmtudagur 17. ágúst 2000
Fréttir
11
Nú styrkir Herjólfur ÍBV, kemur
styrkur þeirra til ykkar í formi frírra
ferða?
,NIei.“
Horft til Vestmanneyja
Oft er talað um að ÍBV sé markaðs-
lega mjög mikilvægt andlit Vest-
mannaeyja út á við, hvemig finnst þér
það metið af hálfu Vestmannaeyja-
bæjar eftir sameiningu Þórs og Týs?
„Eg vissi að eftir að við vomm
búnir að stíga þetta skref yrði mikið
fylgst með okkur hjá öðmm félögum.
Menn innan íþróttahreyfingarinnar
uppi á landi, sem hafa verið að spá í
sameiningu félaga þar, hafa horft
mjög til okkar og fylgjast vel með því
hvemig okkur hefur tekist að vinna
þetta. Persónulega finnst mér best
hversu hinn almenni bæjarbúi hefur
tekið þessu vel og það er töluvert
mikið af nýjum andlitum sem maður
sér í félaginu. Jafnvel þó að enn sé
sama lykilfólkið í ÍBV-íþróttafélagi og
var í forsvari Þórs og Týs, þá emm við
að fá inn nýja aðila sem em tilbúnir að
veita okkur lið. Hins vegar vil ég
segja að oft á tíðum finnst mér tillegg
íþróttahreyfingarinnar vanmetið af
bæjaryfirvöldum. Við höfum átt undir
högg að sækja eins og reyndar lands-
byggðin öll. Ég held að þessi mikli
kraftur sem IBV hefur verið að færa
inn í bæjarlífið, bæði með glæsilegum
sigmm, mótshaldi og ýmsum uppá-
komum, hafi haldið Vestmanna-
eyjum mjög vel á kortinu og vakið
mikla athygli á okkar heimabyggð.“
Viltu nefna einhver dæmi þar sem
þér fmnst að bæjarfélagið hafi ekki
staðið sig gagnvart ÍBV-íþróttafélagi?
„Nei. Það má hins vegar segja að
íþróttahreyfingin sé ekkert annað en
fólkið í bænum og auðvitað hefði
bærinn getað komið betur að ýmsu, en
ég er að mörgu leyti sáttur við aðkomu
bæjarins að íþróttamálum í Eyjum.
Ég held að ósanngjamt væri að segja
annað, þó að viljum alltaf sjá eitthvað
meira og sitthvað betur gert.“
Ekki slegist um
ábyrgðarstöður
Þú nefndir áðan að sama lykilfólkið
væri mikið í stjómunarstörfum IBV-
íþróttafélags og var áður í forystu Týs
og Þórs. Þetta hefur verið gagnrýnt,
hvað viltu segja um það?
„Eðli málsins samkvæmt hlutu
sömu menn að veljast til forystu í nýju
félagi og er ekki óeðlilegt, þar sem
nýtt félag ætlaði sér ákveðinn tíma til
að móta félagið. Ég átti samtal við
formann íþróttafélaganna í Keflavík
þar sem sameining hefur átt sér stað.
Hann sagði að mestu mistökin hjá
þeim hafi líklega verið að skipta út
öllu fólki. Það hefði reynst þeim mjög
illa. Hitt er annað mál að það er ekkert
slegist um að komast í ábyrgðarstöður
innan hreyfmgarinnar, en það em ekki
allir sem hafa tilfmningu fyrir því.
Það er ekkert bankað á dymar. Ég
sagði á síðasta aðalfundi hjá félaginu
að þar sæti fólk sem búið væri að
starfa saman í allt að 15 til 20 ár, en
við sæjum litla endumýju í ráðum og
stjómum. Ég sagði þetta miður. Ég
hefði viljað sjá meiri nýliðun og held
að allir þeir sem em með mér í for-
ystunni myndu fagna því ef meira af
nýju fólki kæmi inn í stjómina.“
Hafið þið eitthvað reynt til þess að
fá nýtt fólk í forystuna?
,dá það hefúr verið gert og það em
margir þungavigtarmenn í félaginu
sem vinna feikn mikið starf, en þeir
bara vilja ekki binda sig í stjómum,
ráðum og nefndum, jafnvel þó að þeir
séu reiðubúnir til að taka að sér
einstök ákveðin verkefni og leysa þau
með sóma.“
Skilum miMu til bæjarins
Nú er oft talað um að mótin, sem
haldin em í nafni ÍBV og þjóðhátíð,
séu að skila góðum peningum til
bæjarins, jafhvel að þessar uppákomur
séu stærstu tekjuliðimir yfir ferða-
mannatímann, ekki síst fyrir þá sök að
gestir á þessum uppákomum em að
stoppa í Eyjum í nokkra daga, hveiju
er þetta að skila hreyfingunni?
,T>etta skilar okkur miklu og stendur
að mestum hluta undir íþróttastarfinu.
Ég hef nú sagt, í hálfkæringi reyndar,
að ef ætti að ráða ferðamálafulltrúa
sem stæði undir nafni ætti hann að
vera starfsmaður IBV, vegna þess að
félagið er að reka alveg óyggjandi
stærstu ferðamannauppákomur í bæn-
um. Auðvitað skilar þetta ómetan-
legum tekjum í bæjarfélagið. En það
sem að ég er ósáttastur við er að
margir sem njóta góðs af því sem
verið er að gera, láta ekki íþrótta-
hreyfinguna njóta þess í neinu. Ég hef
til dæmis heimildir fyrir því að
þjóðhátíð sé að færa meiri virðisauka í
bæinn heldur en til að mynda jólin.
Ég hefði viljað sjá til dæmis fyrirtæki
í bænum koma meira að þessu, svipað
og þegar fyrirtæki á Akureyri komu að
markaðssetningu Halló Akureyri.
Auðvitað er það líka álag, bæði á
stjómendur þjóðhátíðar og félagsins;
að búa við að leggja allt undir áður en
þjóðhátíðin byrjar og sitja svo einir
uppi með skellinn ef illa gengur. A
meðan er fjöldi aðila að hafa mjög gott
út úr þessu og taka engan þátt í því.
Eins og fyrir þjóðhátíðina núna, að hér
skyldu vera aðilar niðri í bæ sem voru
að auglýsa Húkkaraball á móti því
Húkkaraballi sem við höfum staðið
lyrir í mörg ár. Ég er mjög ósáttur við
þetta. Þetta er ekki bara spuming um
samkeppni heldur líka siðferði í við-
skiptum."
Sáttur við árangur
meistaraflokkanna
Þór segir að miðað við það sem um-
leikis er íþróttahreyfmguna finnist
honum árangur meistaraflokkanna
ásættanlegur. „Meistaraflokkur
kvenna lá undir töluverðri gagnrýni í
blöðum vegna þess að svo mikið væri
um aðkeypta liðsmenn. En meist-
araflokkamir em bara svona í dag og á
meðan menn geta sýnt fram á að geta
rekið þetta með þessu og haldið
liðunum í hæstu gæðum og náð
árangri, þá er það mjög gott. Hitt er
annað mál að við höfum verið að sjá,
bæði í knattspymunni og hand-
boltanum einstaklinga úr yngri
fiokk-unum sem famir em að banka
vel á dymar í öllum greinum. Þetta
sýnir að yngra starfið er að skila mjög
góðu.“
Óformlegir kaffifundir
Finnst þér vera sami áhugi í sjálfboða-
liðastarfinu í ÍBV-íþróttafélagi, eins
og hann var í Þór og Tý á sínum tíma
og hver em tengslin nú við hinn
almenna félagsmann, em þau næg,
þegar kemur að stómm ákvörðunum?
„Það em haldnir óformlegir kaffi-
fundir einu sinni í viku. A þessa fundi
mæta stundum 30 til 40 manns þar
sem leitað er eftir hugmyndum og
hjartslætti félagsmanna. Þar hafa
orðið til vinnuhópar þar sem komið
hafa fram tillögur og lausnir á ýmsum
málum. Mér er tíl efs að nokkurt félag
innan íþróttahreyfingarinnar sé í
tengslum við félagana á þennan hátt.
Mér finnst mesta breytingin vera hjá
foreldrunum. Það vom kannski fleiri
sjálfboðaliðar hér áður af hreinni
hugsjón, en núna er algengara að
foreldrar fylgi bömunum sínum. Það
var ekki eins algengt fyrir 10 til 15
ámm. Núna em foreldramir orðnir
lykilatriði og félaginu mikill styrkur."
Hvað um væringar milli handbolta
og fótbolta sem eiga óánægjugmnn í
því að IBV-íþróttafélag sé bara knatt-
spymufélag?
„Eins og kom fram hér áðan, þó
vom þetta nánast tvö félög (handbolti
og fótbolti). Mér finnst þessar tvær
íþróttagreinar og forsvarsmenn þeirra
vera að nálgast meira hver annan
innan ÍBV-íþróttafélags. Þetta ræðst
líka alltaf af þeim persónum sem fara
með ferðina hverju sinni. Það er
ekkert stjómskipað vald sem getur
búið til eitthvert flæði þar sem allt er
slétt og fellt. En ég er sannfærður um
að það verða alltaf einhverjar vær-
ingar. Það er bara mannsins eðli og sá
sem er mikill kappsmaður fyrir sína
grein hann vill henni mest. Eðlileg
samkeppni er af hinu góða, en hún má
ekki fara út í það að menn fari að
skaða hver annan. En að ÍBV-
íþróttafélag sé bara ÍBV-knattspymu-
félag vísa ég á bug. Eðli hlutarins
samkvæmt er meiri velta í fót-
boltanum. en kannski má segja á móti
að ódýrara sé að reka handboltann
heldur en fótboltann, en aðkoma ÍBV-
íþróttafélags til deildanna er sú sama."
Uppbygging aðalskrifstofu
Sú gagnrýni heyrist að aðalfundir
ÍBV-íþróttafélags séu haldnir seint og
ekki á þeim tíma sem lög félagsins
kveða á um, hvemig stendur á því?
„Að stærstum hluta liggur það í því
að við höfum verið að þróa og koma
því á að aðalskrifstofan haldi utan um
allt bókhald. Bókhaldið var dreift
mjög víða. Það vom sér gjaldkerar og
em reyndar enn fyrir shellmót,
pæjumót og þjóðhátíð. Til þess að
geta haldið aðalfund verðum við að
vera búnir að fá bókhald einstakra
deilda og flokka inn á aðalskrifstofu,
færa það upp og láta endurskoðanda
fara yfir það. Dráttur aðalfundar hefur
fyrst og fremst stafað af þessu.
Samkvæmt lögum félagsins eiga allir
reikningar að vera klárir fyrir
aðalfund. Núna er þetta í mjög góðu
lagi og hefðum getað haldið aðalfund
um mánaðarmótin júní/júlí, en okkur
fannst við vera komnir of nálægt
þjóðhátíð og þess vegna ákvað
stjómin að halda ekki aðalfund núna
fyrr en í lok ágúst, þegar fólk er komið
úrsumarfríum.“
Nú hafa tjárfestingar félagsins verið
gagnrýndar og þá sérstaklega veitínga-
tjaldið inni í Dal og endurbætur á stóra
sviðinu, og núna sfðast húsnæði undir
þjóðhátíðardót og tæki félagsins. Eru
þetta ótímabærar fjárfestingar og of
stór biti fyrir félagið?
„Auðvitað var þetta mjög stór biti
og dýrar framkvæmdir inni í Dal.
Hins vegar gera ekki allir sér grein
fyrir því að til þess að hægt sé að halda
þjóðhátíð, þarf að sækja um ýmis leyfi
til opinberra aðila. Kröfumar vegna
reksturs veitingatjaldsins em bara
orðnar það miklar að ekki var hægt að
komast undan því. Nákvæmlega
sömu kröfur em með sviðið varðandi
hreinlætisaðstöðu og aðstöðu fyrir
starfsfólkið. Hitt er annað mál að
menn tóku þá ákvörðun að gera þetta
vel og litu til þess að þama væri verið
að búa í haginn til næstu 10 til 15 ára.
Við getum ekki bara gert þá kröfu til
þjóðhátfðar að hún skili hagnaði, en
leggjum svo ekkert til hennar.
Varðandi húsnæðiskaupin stóðu menn
frammi fyrir því að koma hlutum
félagsins í geymslu á einn stað,
hlutum sem áður höfðu verið hingað
og þangað um bæinn og lágu jafnvel
undir skemmdum. Þetta er mjög dýr
búnaður sem við höfðum ekkert
geymslurými fyrir. Við teljum okkur
hafa fengið hagstætt tilboð í gott og
hentugt húsnæði, sem stjórnin og
þjóðhátíðamefnd voru sammála um
að ganga að. Það hefði verið eðlilegt
að boða til félagsfundar um málið, en
tíminn var bara of naumur. Stjómin
hafði hins vegar samband við fjölda
virkra félagsmanna sem studdu þessa
ákvörðun.“
Yfirgangur
íþróttahreyfingarinnar
Einnig heyrist sú gagnrýni að íþrótta-
hreyfingin vaði yfir allt í Dalnum og
spyiji hvorki kóng né prest um neitt og
eyðileggi meira en hún byggi upp
jafnvel með góðum huga, hvað viltu
segja um það?
„Ég held að ansi lítið væri búið að
gera í Dalnum ef íþróttahreyfingin
hefði ekki komið að þessu og
þjóðhátíð líklega löngu dottin upp
fyrir. Ég held að enginn sé fær um að
reka þjóðhátíðina nema íþróttahreyf-
ingin. Annars staðar, þar sem
einkaaðilar vom að reyna að setja upp
sambærilegar hátíðir, endaði það með
gjaldþrotaævintýrum. Það má
kannski segja ef veður hefur verið
leiðinlegt að ljótt hefur verið um að
litast í dalnum, en það hefur náð að
jafna sig.“
Viðkvæm búningamál
Menn kvarta líka undan því að alltaf
sé verið að breyta búningunum lið-
anna og það sé ekki IBV-íþróttafélag
sem ráði þessum breytingum, heldur
styrktaraðilamir?
„IBV-íþróttafélag hefur síðasta
orðið í þeim málum, það fer ekki á
milli mála, en breytingar hafa verið
gerðar með vilja og vitund aðal-
stjómar. Hreyfingin rekur sig ekki
nema hafa fjármuni og hluti af þessu
er aðilar sem tilbúnir eru til að gera
betri samninga, ef ákveðnar breytingar
eru gerðar og mér finnast í raun ekki
stórvægilegar í þessu samhengi. Við
erum heldur ekkert einir um þetta, en
ég vil vera íhaldssamur í þessu og
stíga slík skref varlega.“
En kostar þetta ekki ærinn pening
og þá sérstaklega fjölskyldur sem eiga
böm í yngri flokkunum, sem æfa með
félögunum, að skipta út búningum og
galla á hverju ári?
„Þú átt þá við tríkótana. Jú ég er
sammála því að það hefur verið of
laust í reipunum og ég vil sjá að meira
aðhald verði í því og ekki sé verið
með stórar breytingar sem auka
útgjöld fjölskyldna. Við viljum hins
vegar sjá sömu aðkomu hjá flokkum í
öllum greinum. Þetta er líka að hluta
til komið vegna þess að þeir aðilar
sem verslað er við hafa ekki getað
skaffað það sama á milli ára.“
Þór segir að í jafn stóru félagi og
ÍBV- íþróttafélag er, megi alltaf búast
við gagnrýni „Eflaust verður umræða
alltaf uppi í svo stórri hreyfingu, því
að sitt sýnist hveijum. Auðvitað á öll
sanngjöm gagnrýni rétt á sér, en ég
held að allir sem að þessu koma vilji
gera hlutina sem best og bera framtíð
æsku eyjanna og byggðarlagsins fyrir
bijósti."
Er Þór Vilhjálmsson eitthvað að velta
fyrir sér að hætta á næsta aðalfundi?
„Ég er búinn að vera lengi í þessu
og ég er nú að vonast lil að einhverjir
taki við af mér. Það þarf að verða
endumýjun hjá okkur eins og öðmm.
Það sem liggur fyrir er að vita hvaða
fólk vill vera áfram og hverjir vilja
koma að þessu, en á þessu stigi get ég
ekki sagt meira.“
Benedikt Gestsson
ÍBV-Íþrottafélag hefur átt fleiri íslands- og bikarmeistara í
handbolta og fótbolta en nokkurt annað íþróttafélag frá því það var
stofnað 1997. Hér er mynd af íslandsmeisturunum 1998 þegar
meistaraflokkur IBV hampaði tveimur bikurum.