Fréttir - Eyjafréttir - 17.08.2000, Page 13
Fimmtudagur 17. ágúst 2000
Fréttir
13
W. Michael Joseph Weldone frá Indlandi heimsækir ísland:
Mynd í Fréttum flýtti
fyrir vegabréfsáritun
-og sparaði honum fjögurra daga lestarferð til og frá Bombay
Fyrir skömmu var staddur hér á
landi W. Michael Joseph Weldone
frá Madras á Indlandi og í ferðinni
heimsótti hann Vestmannaeyjar.
Hér á landi var hann á vegum
íslensku Húmanistahreyfingarinnar
og í fylgd Sigrúnar Þorsteinsdóttur
sem starfar hjá Samtökunum.
Sigrún var á ferð á Indlandi sl.
vetur og sagði hún frá þeirri reynslu
sinni í Fréttum. Þar birtist m.a.
mynd af Michael sem átti eftir að
auðvelda honum að komast til
Islands.
Michael, sem er 33 ára, hefur í
nokkur ár starfað að málefnum stétt-
leysingja sem búa við verstu kjörin á
Indlandi. Þegar Húmanisthreyfingin
íslenska hugði á landvinninga á
Indlandi setti hún sig í samband við
hreyfinguna sem Michael starfar íyrir.
Sjálfur tilheyrir hann miðstétt, er
kvæntur og á tvö böm. Konan heitir
Rossalin og bömin Paul Weldone og
Catrin Veronica. „Ég og fjölskylda
mín emm ágætlega sett,“ segir
Michael. „Ég vinn við læknisfræði-
legar rannsóknir, við eigum okkar
eigið hús og ég get menntað bömin
mín. Við lifum venjulegu lífi, eigum
reyndar ekki bfi, en við emm með
síma og eigum sjónvarp og tölvu.“
MICHAEL og Sigrún með cintak af blaðinu góða sem kom til hjálpar þegar skrifræðið á Indlandi ætlaði
að lcggja stein í götu hans.
Allur frítími í lflcnarstörf
Þegar vinnudegi lýkur hjá Michael
taka við störf fyrir stéttleysingjana.
„Ég vinn við líknarstörf öll kvöld og
helgar og ég er svo heppinn að eiga
góða fjölskyldu sem skilur mig og
styður í störfum mínum lyrir aðra.“
Væri þessum tíma ekki betur varið í
að vera með fjölskyldunni eða afla
henni tekna? „Ég er mjög sáttur við
það sem ég er að gera og með mína
stöðu. Sé ég ekki ástæðu til að eignast
meira og lífið snýst bara um peninga.
„Ég var 19 ára þegar ég byrjaði
hjálparstarfið og sé árangur með
hverju árinu sem líður."
Hreyfingunni hefur vaxið fiskur um
hrygg og Michael segir að eftir því
sem fleiri komi til liðs við hann og
hans fólk sé hægt að hjálpa fleirum.
„Þegar fólk sér framfarir hjá okkur
ganga fleiri í hreyfinguna. Ef við
hugsum þetta eins og afkomulínu hjá
venjulegu fyrirtæki þá hefur hún verið
upp á við frá byrjun. Við byrjuðum á
að taka að okkur 12 eða 13 munaðar-
laus böm stéttleysingja en í dag em
þau 280. Eftir að við hófum samstarf
við Islensku Húmanistahreyfinguna
hafa hjólin farið að snúast fýrir alvöru
og stefnum við á að 1000 böm verði í
okkar umsjá áður en árið er á enda.“
Bömin em oftast tekin af götunni,
þeim komið á bamaheimili þar sem
þau fá húsaskjól og mat og menntun.
Þá er einnig reynt að aðstoða tjöl-
skyldur stéttleysingja, sem em án allra
réttinda í indversku samfélagi, til
koma undir sig fótunum. Þarf oft ekki
háa upphæð til að fjölskyldur nái að
koma undir sig fótunum og bömin eigi
möguleika á menntun.
Kemst í kynni við íslendinga
Michael hafði haft spumir af ís-
lenskum ferðamönnum á ferð í
Madras en það var ekki fyrr en fyrir
tæpum tveimur ámm að hann komst
fyrst í tæri við fólk frá þessari fjarlægu
eyju í norðri. „Þá hitti ég Guðnýju
Guðmundsdóttur og Gunnar Kvaran
og seinna hitti ég Kjartan Jónsson frá
Húmanistahreyfingunni. Það var faðir
Martin sem kynnti okkur en hann
hafði fylgst með því sem við vomm að
gera,“ segir Michael en þess má geta
að faðir Martin er sá sem tók við 30
milljónum frá íslensku þjóðinni fyrr í
sumar. íslenska þjóðkirkjan hafði
Starfsfólk óskast
Stafsfólk óskast á vaktir og í aukavinnu. Reyklaus
vinnustaður. Uppl. á staðnum. /\
FLUGFELAGISLANDS
Sumaráætlun gildir til 1. október
Fjórar ferðir á dag
Bókanir og upplýsingar um flug í s. 481 3300
www.flugfelag.is
forgöngu um söfnun peninganna sem
á að verja til aðstoðar stéttleysingjum.
„Kjartan vildi komast í samband
við fólk sam væri félagslega sinnað og
benti faðir Martin honum á okkur.
Upp úr því stofnuðum við Húmanista-
hreyfingu á mínum heimaslóðum og
nú kemur Kjartan til okkar á þriggja
mánaða fresti til að aðstoða okkur.
Sigrún kom svo út í janúar og var
hennar hlutverk að ná til kvenna og fá
þær til liðs við okkur. Náði Sigrún
góðum árangri."
íslandsferðin
Allt varð þetta til þess að Michael
ákvað að fara til íslands en það ætlaði
ekki að ganga þrautalausl. „Ég byrjaði
á að setja mig í samband við íslenska
ræðismanninn í Madras og sfðan það
ítalska því ég varð að fara í gegnum
Italíu á leið minni til Islands. Ég segi
ekki að ég hafi komið að lokuðum
dyrum en skrifræðið er mikið og
úrskurðurinn varð sá að ég yrði að fara
1400 km leið til Bombay til að fá
vegbréfsáritanir. Mér leist illa á það
því þetta er tveggja sólarhringa ferð
hvora leið í lest auk þess sem miklar
rigningar á þessum tíma hefðu gert
mér erfitt íyrir.“
Það vildi svo til að Michael var með
eintak af Fréttum þar sem Sigrún
sagði frá ferð sinni til Indlands og þar
var m.a. að finna mynd af Michael.
„Ég sýndi þeim blaðið og það liðu
ekki nema 30 mínútur þangað til ég
var kominn með vegabréfsáritun til
Islands. Það sama gerðist á ítölsku
ræðismannsskrifstofunni og hingað er
ég kominn, þökk sé Fréttum."
Michael dvaldi hér á landi í lok júlí
og kom í heimsókn til Vestmannaeyja
með Sigrúnu. Honum fannst mikið til
Islands og Islendinga koma en ekki
leist fólkinu heima á ferðina til
landsins kalda. „Nafnið bendir á ís og
fólk efaðist um að ég þyldi kuldann,"
sagði hann en ekki sá hann ástæðu til
að kvarta yfir veðrinu. „Móttökumar
hafa verið frábærar og hvar sem ég hef
komið er maður eins og einn af
fjölskyldunni. „Það er margt að sjá hér
á landi. Ég hef séð hveri, komið í Bláa
lónið og Vestmannaeyjar eru fallegasti
staður sem ég hef séð. Þær eru eitt-
hvað svo áþreifanlega enn í mótun.
Fólk býr hér við góð skilyrði og t.d. er
umferðin miklu agaðri en ég á að
venjast. Það er allt svo hreint og miklu
tilkomumeira en ég hafði séð á mynd-
um frá íslandi," sagði Michael að
lokum.
MYNDIN góða. Á mynd-
inni, sem birtist í
Fréttum, er Michael með
einum af skjólstæðingum
sínum.
Eyjar
2010