Fréttir - Eyjafréttir - 17.08.2000, Blaðsíða 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 17. ágúst 2000
Pysjuvertíðin stendur sem hæst
Lundapysjurnar fóru að láta
sjá sig fyrir þjóðhátíð, í
litlum mæli þó, en í síðustu
viku fóru þær að láta sjá sig
svo um munaði. Samfara því
hefur börnum í þessum
bráðnauðsynlegu
björgunarstörfum f jölgað til
muna. Má sjá þau skjótast á
milli húsa og hópast niður á
bryggjur þar sem er að finna
helstu veiðistaðina.
Krakkarnir eru að allt
fram á morgun og daginn
eftir þarf að sleppa og þá eru
helstu staðirnir Eiðið,
Skansfjaran, Hamarinn og
Höfðavíkin. Fréttir kíktu við
í Höfðavíkinni á
sunnudaginn þar sem fjöldi
barna og fullorðinna var
mættur til að sleppa
pysjunum. Einn bætti um
betur því hann mætti með
fullorðinn lunda sem hann
hafði fundið og fangaði í
bænum nóttina áður.
ÞAÐ þarf lagni til að halda á pysjunum því þær berjast um af miklum krafti og reyna að beita goggnum eftir mætti. Þess vegna flnnst sumum
vissara að vera með vettlinga.
ÞAÐ er vissara að vera með góða vettlinga á höndum þegar maður er með fullorðinn lunda í höndunum.
Hallgrímur Helgi fann fullorðinn lunda í bænum á aðfaranótt sunnudags. Lundinn var frískur að sjá
en þrátt fyrir það gekk vel að handsama hann og fljótur var hann að taka flugið þegar honum var sleppt.
FYRSTA lundapysjaní ár? Systkinin Erna, Sindri og Hlynur
Georgsbörn fundu þessa pysju á flmmtudeginum fyrir þjóðhátíð og
ekki annað að sjá en að hún væri orðin fullburða pysja. Krakkarnir
fundu hana á Hásteinsveginum og gæti hún verið sú fyrsta sem
kemur í bæinn á árinu..
Um mánaðamótin júlí ágúst hittust sex afkomendur Bjarneyjar Ragnheiðar Jónsdóttur heima hjá Hólmfríði
Sigurðardóttur. Þær eru fjórar kynslóðir systra og allar í kvenlegg
Sitjandi frv. Systurnar Jóna Jóhanna Jónsdóttir, 92 ára, fædd í Vestmannaeyjum og Bjarney Ragnheiður
Jónsdóttir, 94 ára, fædd í Kanada, móðir Gerðar og Hólmfríðar.
Standandi fr v. systurnar Linda Kristín Ragnarsdóttir dóttir Hólmfríðar og Ragnars og Ragnheiður Anna
Georgsdóttir, dóttir Hólmfríðar. Tanja Björk Ómarsdóttir, dóttir Lindu og Omars Birkissonar. Þá systurnar
Hólmfríður Sigurðardóttir og Gerður Guðríður Sigurðardóttir, og Rakel Ýr Ómarsdóttir, dóttir Lindu og
Ómars Birkissonar.
ÞEGAR pysjunum hefur verið sleppt er ýmislegt hægt að gera í
fjörunni og er gamla spilið alltaf vinsælt.