Fréttir - Eyjafréttir - 17.08.2000, Blaðsíða 20
Sendibílaakstur
________- innanbæjar
Tapsárir Valsmenn:
Veittust að
Inga Sigurðs
í leik ÍBV og Vals í bikurkcppninni
sl. sunnudag, var Valsmanninum
Alomerovic vísað af leikvelli eftir
grófa tæklingu á Inga Sigurðsson,
leikmann IBV. Valsmenn undu
þeim dómi illa og í leikhléi veittust
þeir Alomerovic og Puracevic,
þjálfari Vals, að Inga og hlaut hann
áverka á hendi af því.
Ingi segir að þeir hafi hnoðast utan í
sér, auk þess sem munnsöfnuðurinn
hafi ekki verið prenthæfur en hann
hafi ekki orðið áverkans var fyrr en
síðar. Við læknisskoðun kom í ljós að
flísast hafði úr beini í þumalfingri og
varð að spelka fingurinn. Ingi segist
ekki vita hver eftirmál þetta hafi,
dómarar leiksins hljóti að klára þetta
mál enda beri þeim að gera það.
I Morgunblaðinu á þriðjudag vandar
Amór Guðjohnsen, leikmaður með
Val, Inga Sigurðssyni ekki kveðj-
umar, ásakar hann um leikaraskap og
segir að Ingi sé þekktur að slíku.
„Ég hef nú hingað til ekki verið
bendlaður við leikaraskap og mér
finnst það hálfskondið að maður með
jafnmikla reynslu og Amór
Guðjohnsen skuli láta hafa svona eftir
sér. Ég kann enga aðra skýringu á
þessu en að hann sé bara svona tapsár
og ég ætla mér ekki að svara þessu.
Þeir sem sáu þetta atvik í sjónvarpinu
geta dæmt um hvort þetta var
leikaraskapur. Ég held það þurfi ekki
vitnanna við, ég var með löppina í
henglum á eftir og varla var ég að
leika mér að því að detta, var að
komast einn í gegn. Amór gerir
hvorki sér né sínu liði gagn með svona
bulli,“ sagði Ingi Sigurðsson.
Pysju-
ferðir
til Eyja
auglýstar
Að undanfórnu hefur mátt
heyra og sjá auglýsingar á
Bylgjunni og Skjá einum þar
sem meginlandsbúar eru
hvattir til að mæta til
pysjuleitar og björgunar í
Vestmannaeyjum.
Það er Hótel Þórshamar sem
staðið hefur fyrir þessum
auglýsingum. Jóhann
Heiðmundsson, hótelstjóri,
segir ætlunina með þessu að ýta
undir áhuga um að heimsækja
Vestmannaeyjar, ekki síst hjá
fjölskyldufólki. „Þetta er
tilraun til að lengja
túristatímabilið svolítið. Ég hef
fengið nokkur viðbrögð síðustu
daga en hvort það tengist
þessum auglýsingum beint, á
eftir að koma í ljós,“ segir
Jóhann. Hann segir ennfremur
að eftir næstu viku ætti að vera
ljóst hvort þessar auglýsingar
hafi skilað árangri. „Éf þetta
skilar sér, þá eru það fleiri en
við sem njóta góðs af, t.d.
flutningsaðilar og þeir sem eru í
veitingarekstri,“ sagði Jóhann
Heiðmundsson.
Formaðurinn ósáttur
„Eg hef til dæmis heimildir fyrir því að þjóðhátíð sé að færa meiri
virðisauka í bæinn heldur en til að mynda jólin. Ég hefði viljað sjá til
dæmis fyrirtæki í bænum koma meira að þessu, svipað og þegar fyrirtæki
á Akureyri komu að markaðssetningu Halló Akureyri,“ segir Þór
Vilhjálmsson formaður IBV-íþróttafélags.
„ Auðvitað er það líka álag, bæði á stjómendur þjóðhátíðar og félagsins; að
búa við að leggja allt undir áður en þjóðhátíðin byijar og sitja svo einir uppi með
skellinn ef illa gengur. Á meðan er fjöldi aðila að hafa mjög gott út úr þessu og
taka engan þátt í því. Eins og fyrir þjóðhátíðina núna, að hér skyldu vera aðilar
niðri í bæ sem vom að auglýsa Húkkaraball á móti því Húkkaraballi sem við
höfum staðið fyrir í mörg ár. Ég er mjög ósáttur við þetta. Þetta er ekki bara
spuming um samkeppni heldur líka siðferði í viðskiptum.“
Sjá miðopnu.
Rútuferðir - Bus tours
Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa
ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM
(3)4811909-896 6810-£ax 4811927
I Vilhjálmur Bergsteinsson I
481-2943 S£MaÍF£HMSÍLi. I
* 897-1178 y
PYSJUKRAKKAR hafa haft nóg að gera síðustu daga.
Vikutilboð
vikuna 17
ÍASYBOX
BAUTABURIÐ
TjlJ lííF/Il
I
I
I
I
I
I
I