Fréttir - Eyjafréttir - 02.11.2000, Blaðsíða 1
27. árgangur * Vestmannaeyjum 2. nóvember 2000 ■ 44. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími:481 3310 • Fax:481 1293
Eyjar 2010:
5200 íbúar
Ráðstefnan Eyjar 2010, sem haldin
var í Týsheimilinu á laugardaginn
heppnaðist í alla staði mjög vel og
fór aðsókn fram úr björtustu
vonum aðstandenda.
Þar kom fram að mikill hugur er í
Vestmannaeyingum til sóknar á nær
öllum sviðum bæjarlífsins. Vinnu-
hópar, sem starfað hafa síðustu vikur
og mánuði, skiluðu af sér en sam-
eiginlegt markmið þeirra er að eftir tíu
ár, þ.e. árið 2010 verði íbúar í
Vestmannaeyjum 5200. Þetta kom
fram í máli Guðrúnar Kr. Sigur-
geirsdóttur ráðsteíhustjóra.
Ljóst er að mikil vinna er framundan
að vinna úr þeim hugmyndum sem
fram komu á ráðstefnunni. Fram-
kvæmdastjóm ráðstefnunnar, sem
skipuð er auk Guðrúnar þeim Ómari
Garðarssyni, Þorsteini Inga Sigfússyni
og Þorsteini Sverrissyni fram-
kvæmdastjóra, hefur ákveðið að starfa
áfram. Bæjarstjóm hefur lýst ánægju
sinni með ráðstefnuna og mun taka
upp nánara samstarf við Þróunar-
félagið en það kemur í hlut þess að
vinna skýrslu um það sem ffam kom.
Frummælendur lýsa ánægu sinni
með ráðstefnuna. „Mér fannst hún
takast afar vel. Þessi mikla þátttaka
kom mér skemmtilega á óvart og
einnig hvað ráðstefnugestir mættu vel
undirbúnir til hennar. Greinilegt var
að undirbúningsstarf hafði verið vel
unnið. Þátttaka unga fólksins var líka
áberandi og það skiptir miklu máli.
Þá þóttu mér niðurstöður úr hópa-
starfmu framsæknar og líklegar til að
árangur náist. Þessi ráðstefna var
afbragðs framtak og mjög gaman að
fá að taka þátt í henni,“ segir
Þorsteinn Gunnarsson um ráðstefn-
una. Bls. 10,11,16 og 17.
r
i
FÓLK á öllum aldri sótti ráðstefnuna.
ísfélag og Vinnslustöð:
Samruni úr sögunni
Ekkert verður úr fyrirhuguðum
samruna Isfélags Vestmannaeyja
og Vinnslustöðvarinnar. Hinn 7.
júlí sl. gerðu stærstu hluthafar
fyrirtækjanna samkomulag um
sameiningu þeirra og var loka-
frestur til að staðfesta samkomu-
lagið 31. október.
Stjóm ísfélagsins staðfesti sam-
komulagið á fundi hinn 27. júlf sl. en
stjóm Vinnslustöðvarinnar staðfesti
ekki samkomulagið íyrir nýliðin
mánaðamót og er því samkomulagið
um sameiningu íyrirtækjanna falhð úr
gildi eftir því sem segir í tilkynningu
frá ísfélagi Vestmannaeyja.
Stjóm Vinnslustöðvarinnar sam-
þykkti á fundi í vikunni að óska eftir
tveggja vikna fresti til að ljúka
últeknum verkefnum í viðræðum við
fulltrúa ísfélagsins. Því erindi var
hafnað og því em áform um sammna
félaganna tveggja úr sögunni, segir í
tilkynningu frá stjóm Vinnslustöðv-
arinnar.
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson,
stjómarmaður í Isfélagi Vestmanna-
eyja, segir ástæðuna fyrir þessu þá að
nægjanlegan vilja hafi skort í baMandi
Vinnslustöðvarinnar fyrir sameiningu,
þrátt íyrir undirskrift stærstu hlut-
hafanna. ísfélagið veitti stjóm
Vinnslustöðvarinnar ítrekaða fresti til
að ljúka málinu í samræmi við
undirritað samkomulag frá 7. júlí en
ekki náðist samkomulag meðal
hluthafa Vinnslustöðvarinnar fyrir til-
skilinn tíma og því er fyrirhuguð
sameining úr sögunni.
Geir Magnússon, stjómarformaður
Vinnslustöðvarinnar, segir að þeir hafi
einfaldlega dáið á tíma, samkvæmt
samkomulaginu frá því í júh'. „I raun
var ekki ágreiningur milli okkar og
þeirra Isfélagsmanna um þetta mál.
En eftir á að hyggja var það kannski
vanmat manna að reyna sameiningu
svo skömmu eftir að slitnaði upp úr
þeim viðræðum en það var í nóv-
ember í fyrra. E.t.v. hafa einhver
gömul sár ýfst upp og kannski hefði
verið eðlilegra að láta lengri tíma h'ða
þar til reynt hefði verið að sameina
þessi tvö félög. Það er engin launung
á því að það vom aðallega heima-
menn í stjóm Vinnslustöðvarinnar
sem vom því andsnúnir að sameinast
Isfélaginu, aðrir vora því fremur
hlynntir og ég neita því ekki að þetta
vora mér nokkur vonbrigði,“ segir
Geir.
En á Geir Magnússon von á því að
þar með sé sameining þessara tveggja
fyrirtækja endanlega úr sögunni eða
verður reynt síðar?
„I nóvember í fyrra reiknuðum við
með því að þá væri sameining
endanlega úr sögunni og líklega hugsa
flestir á sama hátt núna. Framtíðin á
eftir að skera úr um það en eins og
stendur er samrani ekki inni í
myndinni," sagði Geir Magnússon.
Róðherra laug vísvitandi
Eins og kunnugt er af fréttum hefur Vegagerð ríkisins ákveðið að taka
tilboði Samskipa hf. í rekstur Herjólfs. Stjórn Herjólfs hf. kærði útboðið
til kærunefndar útboðsmála en dró síðan þá kæru til baka þegar ljóst var
að snemma í október höfðu Vegagerðin og Samskip gengið frá
lokasamningi um rekstur skipsins.
Magnús Jónasson, framkvæmdastjóri Heijólfs hf., er þungorður í garð
Vegagerðarinnar og samgönguráðherra. í viðtali í blaðinu í dag segir hann að
fulltrúar Vegagerðarinnar svo og samgönguráðherra hafi vísvitandi logið að
stjóm Heijólfs hf. um gang mála. Magnús fullyrðir að í hálfan mánuð hafi
ráðherra talið stjóm Heijólfs trú um að þessi mál væra á vinnslustigi þó svo að
hann hafi vitað allan tímann að búið var að ganga frá samningi milli
Vegagerðarinnar og Samskips. Sjá bls. 8.
Brutust inn
og „stálu"
eigin fé
A manudag handsömuðu garð-
yrkjustjóri og þrír starfsmenn
bæjarins tvö svört, ómörkuð lömb
sem gert höfðu sig heimakomin í
húsagarði í Dverghamrinum.
Eftir töluverðan eltingaleik tókst
þeim fjórmenningum að ná lömb-
unum og voru þau vistuð í
geymslu uppi í Dalabúi.
Kristján Bjamason, garðyrkjustjóri,
sagði að sér hafi borist tilkynning
um lömbin á mánudag, hann hafi
safnað liði og lömbin hafi verið
handsömuð. „Við bæði megum og
eigum að gera þetta,“ sagði Kristján
í viðtali við Fréttir á þriðjudag.
„Lausaganga búfjár er bönnuð í
Vestmannaeyjum."
En í gærmorgun dró til tíðinda í
þessu fjármáli. Þá kom Kristján
garðyrkjustjóri að tveimur mönnum
sem höfðu brotist inn í geymsluna
uppi í Dölum, tekið lömbin og sett
þau yfir í íjárgirðingu hjá Dalabúinu.
Kristján segir að þeir hafi hótað sér
öllu illu, þar á meðal líkamsmeið-
ingum. Kristján segist hafa kvatt
lögreglu á staðinn og hefur kært
þetta athæfi tvímenninganna. Lög-
reglan í Vestmannaeyjum staðfestir
að kæra hafi verið lögð fram.
I blaðinu í dag átti að vera aug-
lýsing þar sem lýsa átti eftir eiganda
áðumefhdra lamba en Kristján segist
hljóta að draga þá ályktun af þessum
atburðum að fyrrgreindir aðilar telji
sig eigendur þeinra, öðravísi sé erfitt
að botna í framkomu þeirra. í
auglýsingunni var tekið fram að
eigandi skuh greiða allan kostnað af
þessu, vörslugjald fyrir lömbin, auk
greiðslu fyrir smölun og auglýs-
ingar. Sá kostnaður er talsverður,
t.a.m. kaup fjögurra manna við
smalamennsku og auk þess bætist
væntanlega við kostnaður vegna
skemmda við innbrot. Þó verður
væntanlega ekki rakkað fyrir aug-
lýsingakostnað. Ef eigandi gefur sig
ekki fram mun koma til kasta
sýslumanns að halda uppboð á
lömbunum en eins og áður er greint
er talið fullvíst að eigandinn sé
fundinn og verði krafinn um greiðslu
kostnaðar. Auk þess hefur hann
verið kærður fyrir athæfið og þarf
væntanlega einnig að svara til saka á
þeim vettvangi
■ l l > TM-ÖRYGGI
JgL FYRIR
ÖHVGGI FJÖLSKYLDUNA
Sameinar öll »p/gg rgamálin
- á oilum svidpiTi1 a einfaldan og
hagkvaeman hán
Bílaverkstæðið Bragginn s.f.
Réttingar og sprautun
Flötum 20 - Síml 481 1535
íiíi E y j ii m
IVIanucl. - laugard. kl. 08.15
Sunnudag kl. 14.00
Aukaferð föstud. kl. 15.30
Fiá Þoilakslioln
kl. 12.00
kl. 18.00
kl. 19.00
Herjólfur
Sími 481 2800 - Fax 481 2991