Fréttir - Eyjafréttir - 02.11.2000, Side 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 2. nóvember 2000
Rekstrarreikningur Vinnslustöðvarinnar fyrir síðasta rekstrarár:
Tapið 256 milliónir
-en var 850 milljónir árið á undan - Starfsfólki fækkaði úr 290 í 175
Hendur skiptu
Þrjár líkamsárásir voru kærðar til
lögreglu í vikunni. Um miðja vik-
una var kærð árás sem átti sér stað
við Framhaldsskólann en þar höfðu
nemendur í kvöldskóla látið hendur
skipta. Ekki mun þó slíkt vera hluti
af námi þeiira og ekki vitað hvort
þetta ósætti spannst af deilum um
námið eða af öðrum sökum. Alvar-
leg meiðsl urðu ekki af og ættu því
báðir að geta haldið áfram sínu
námi.
Aðfaranótt laugaidags áttu sér svo
stað tvær líkamsárásir. Sú fyrri á
Lundanum þar sem nokkrir gestir
lentu í átökum. Ekki var um al-
varleg meiðsli að ræða þar. Hin
seinni átti sér stað í heimahúsi þcg;u'
komið var fram undir morgun. Þar
sinnaðist tveimur gestkomandi með
þeim afleiðingum að annar sló hinn
í höluðið með flösku. Varð hann að
leita sér læknisaðstoðar þar sem
hann skarst á enni og augabrún.
Bjargað úr höfninni
Alls voru 209 færslur í dagbók
lögreglu f sl. viku eða svipað og í
vikunni á undan. En töluverður erill
var hjá lögreglu um helgina enda
tjöldi fólks að skemmta sér. M.a.
þurfti lögreglan að bjarga tveimur
mönnum sem féllu í höfnina
aðfaranótt laugardags. Hafði annar
þeirra stokkið út í, án þess að
kunnugt sé um ástæðu þess, og hinn
ætlaði sér að bjarga honum. Ekki
fór þó betur en svo að hvorugur
þeirra gal komið sér hjálparlaust á
þurrt en lögreglu tókst, með aðstoð
vegfaranda, að koma þeim á land.
Eitthvað mun Bakkus hafa komið
við sögu í þessari hafnarferð tví-
menninganna.
Skemmdarverk
Tvö skemmdai-verk voru kærð í
vikunni lil lögreglu. Átti annað sér
suið á Helgafellsbraut. Þar var farið
inn í bifreið, aðfaranótt föstudags,
hún tekin úr handbremsu og gír og
látin renna þar til hún hafnaði á
annairi bifreið. Nokkrar skemmdir
urðu á báðum bifreiðum við þetta.
Þá var brotin rúða að Kirkju-
bæjarbraut 3 aðfaranótt sunnudags.
Ekki er vitað hverjir voru að verki í
þessum tveimur tilvikum og óskar
lögregla eftir upplýsingum.
Stútur á ferð
Aðeins lágu fyrir þrjár kærur eftir
vikuna vegna umferðalagabrota.
Einn ökumaður var tekinn, grunað-
ur um ölvun við akstur, einn var
tekinn fyrir að leggja ólöglega og
einn fyrir að hafa ekki ökuskírteini
meðferðis. Eitt umferðaróhapp var
tilkynnt í vikunni. Tveggja bíla
árekstur varð á gatnamótum Heið-
arvegar og Vestui-vegar. Ekki urðu
slys á fólki en bifreiðarnar
skemmdust lítils háttar.
Eyjar 2010 í bæjarráði
Á fundi bæjarráðs á mánudag vonj
bornar fram þakkir bæjarráðs til
þeirra sem unnu að undirbúningi og
framkvæmd ráðstefnunnar Eyjar
2010 og bæjarbúum jafnframt
þökkuð góð þátttaka. Guðriin Er-
lingsdóttir, fulltrúi V-listans, bar
fram tillögu um að í framhaldi af
ráðstefnunni samþykkti bæjaiTáð að
boða til sameiginlegs fundiir bæjar-
stjórnar og stjómar Þróunarfélags
Vestinannaeyja. Þessi tillaga var
sainþykkt enda hefur stjórn Þró-
unarfélagsins óskað eftir reglu-
legum fundum með bæjarstjóm.
Niðurstaða rekstrarreiknings
Vinnslustöðvarinnar hf. fyrir
síðasta rekstrarár er rúmlega 256
milljóna króna tap en tapið á fyrra
rekstrarári var 850 milljónir króna.
Afkoma félagsins var lakari en
áætlanir gerðu ráð fyrir. Ástæðan
er sögð annars vegar sú að félagið
varð fyrir 175 milljóna króna
gengistapi síðustu þrjá mánuði
rekstrarársins, hins vegar var 85
milljóna króna viðskiptakrafa á
hendur færeyska hlutafélaginu P/f
Gulldrangi gjaldfærð.
í frétt frá Vinnslustöðinni segir að
rekstrartekjur Vinnslustöðvarinnar
hafi verið 2.373 milljónir króna og
drógust saman um 4,1% frá fyrra ári.
Rekstrargjöld vom 1.872 milljónir
króna og drógust saman um 21%.
Framlegð af rekstri félagsins nam
21,1% en var 4,2% á fyrra rekstrarári.
„Gert var ráð fyrir um 600 milljóna
króna framlegð af rekstri á nýliðnu
rekstrarári en framlegðin reynist vera
hálfur milljarður króna,“ segir í frétt-
inni. „Skýringin á þessu 100 milljóna
króna fráviki er fyrst og fremst sú að
framlegð uppsjávarveiða og vinnslu
var 75 milljónum króna lakari en
áætlað var vegna aukins olíukostnaðar
og lægra afurðaverðs, einkum verð-
falls á lýsi. Þá var gengi íslensku
krónunnar mjög hátt þegar framleiðsla
og sala félagsins var í hámarki á
liðinni vetrarvertíð. Ennfremur skal
þess getið að félagið flutti umtalsvert
aflamark af síðasta rekstrarári yfir á
yfirstandandi rekstrarár."
Hagnaður fyrir afskriftir var liðlega
500 milljónir á móti 105 milljónum
árið á undan. Afskriftir lækkuðu úr
443 milljónum í 418 milljónir.
Rekstrartapið losaði 1 milljón en
var 570 milljónir á fyrra rekstrarári.
Endanlegt tap var 256 milljónir á móti
850 milljónum í fyrra og er við-
snúningurinn tæpar 600 milljónir
króna.
Veltufé frá rekstri er 189 milljónir
en það var neikvætt um 322 milljónir,
handbært fé frá rekstri er 418
milljónir en var neikvætt um 82
núlljónir.
Eigið fé í árslok var 1540 milljónir
og hafði lækkað úr 1697 milljónum.
Skuldir lækkuðu úr 5.680 milljónum
króna í 5.544 milljónir króna.
Fjöldi starfsmanna var að meðaltali
175 á móti 290 árið á undan.
Sjálf-
stæðis-
menn
gagn-
rýna
Sturlu
Sturla Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra, fær þungar ákúrur hjá
flokkssystkinuin sínum í full-
trúaráði Sjálfstæðisfélaganna í
Vestmannaeyjum. Á fundi full-
trúaráðsins, sem haldinn var sl.
þriðjudagskvöld, voru vinnu-
brögð hans í Herjólfsmálinu for-
dæmd.
í ályktun fundarins er vitnað í
framgöngu samgönguráðherra, eftir
að kæra var lögð fram hjá kæru-
nefnd útboðsmála þann 4. október
sl„ því þrátt íýrir það var gerður
bindandi samningur við Samskip
þann 6. október. I ályktuninni segir
síðan orðrétt:
,T*að er dapurt til þess að vita að
ráðherra ráði ekki betur við fram-
gang mála í undirstofnun sinni,
Vegagerðinni, og láti starfsmenn
þ;ir taka fram fyrir hendur sínar og
stjóma framgangi jafn viðkvæmra
mála og útboðsferli Heijólfs er í
Vestmannaeyjum. Undirmenn
hans gerðu ráðherra ómerkan orða
sinna og það er ömurlegt til þess að
vita að ráðherra láti skáka sér í
aftursæti starfsmanna sinna og sitji
uppi með að standa ekki við gefin
loforð um að málið fengi eðlilegan
framgang hjá kærunefnd útboðs-
mála.'1
Þessi ályktun var samþykkt
samhljóða á fundi fulltrúaráðsins
Hæstu meðallaun ársins 1999 í sjávarútvegi:
Áhöfnin á Ófeigi VE
með 7,3 milljónir króna
en er ekki á lista Frjálsrar verslunar yfir hæstu fyrirtæki
Tímaritið Frjáls verslun hefur tekið saman hvaða
íslensk sjávarútvegsfyrirtæki greiddu hæstu meðallaun
á árinu 1999.
Af 25 hæstu fyrirtækjunum em fjögur fyrirtæki frá
Vestmannaeyjum en hjá öllum þessum fyrirtækjum em
meðallaun yfir þrjár milljónir króna. Hér er þó ekki allt
sem sýnist því að Fréttum er kunnugt um a.m.k. eitt
fyrirtæki í Vestmannaeyjum sem ekki er á listanum en
greiddi þó hærri meðallaun en það fyrirtæki sem trónir efst.
Það er Stígandi hf. sem gerir út togskipið Ofeig VE en
samkvæmt upplýsingum frá útgerðinni vom meðallaun 12
skipverja á árinu I999kr. 7,3 milljónir. Fijáls verslun setur
þann vamagla við sínar upplýsingar að listinn sé ekki
tæmandi þar sem skráning á hann sé undir því komin að
fyrirtækin gefi sjálf upp greidd laun. Sú mun þó ekki
skýringin á því hvers vegna Stígandi hf. er ekki á listanum
því að allar upplýsingar vom gefnar af fyrirtækinu, að sögn
útgerðamanns. En listinn yfir þau sjávarútvegsfyrirtæki,
sem greiddu hæst meðallaun 1999, lítur þannig út. Tekin
em fimm hæstu fyrirtækin á landsvísu og síðan þau
fyrirtæki frá Vestmannaeyjum sem em á listanum:
Fyrirtæki:
1. Gunnar 1 Hafst. Rvk.
2. Gullberg efh. Seyðisf.
3. Stálskip hf. Hafnarf.
4. Rifsnes Hellissandi
5. Bergur-Huginn Vestm.
13. Sæhamarhf. Vestm.
19. ísleifurehf. Vestm.
23. Vinnslustöðin Vestm.
Gunnar I. Hafsteinsson gerir út togbátinn Freyju RE en
hann var einnig í efsta sæti í fýrra. Bergur-Huginn var í 7.
sæti í fyrra en hækkar nú upp í 5. sæti. Og eins og áður
sagði voru greidd meðallaun skipveija á Ofeigi VE í fýrra
kr. 7,3 milljónir, þó svo að fyrirtækið sé ekki á lista
Fijálsrar verslunar.
Meðallaun: Arsverk:
6.950.000 12
6.418.000 17
6.209.000 55
6.143.000 7
5.900.000 44
4.080.000 25
3.507.000 15
3.266.000 290
Stórdansleikir á Lundanum
1/2 í HV0RU
Lundinn um helgina:
Stórdansleikur með
1/2íhvoru
föstudags- og
laugardagskvöld.
Mætið tímanlega því siðast
komust færri að en vildu
Verð 1000 kr.
Útgefandi; Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gisli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjafrettir.is
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vömval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn og í Jolla í Hafnarfirði. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000
eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
FRETTIR