Fréttir - Eyjafréttir - 02.11.2000, Side 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 2. nóvember 2000
Bókvitið
'askana
Nýfæddir______ ?cr
Vestmannaeyingar
Vil fá matgæðinginn aftur
Ég þakka skólasystur minni, Helgu
Tryggva, kærlega fyrir áskorunina (við
tilheyrum hinum frábæra '66 árgangi
sem hélt skemmtilegasta árgangsmót
sem sögur fara af ekki alls fyrir löngu).
Ég vil nú byrja á því að nota tækifærið
og lýsa yfir sárum söknuði á Mat-
gæðingi vikunnar sem var fómað á síð-
um Frétta fyrir bókaorm vikunnar. Ég og
Stymmi Gísla erum sammála um það að
þennan þátt þarf að taka upp á ný,
spuming hvort matgæðingurinn verði
ekki í boði Kráarinnar!
í stuttu máli sagt hef ég alla tíð verið
mikill bókaormur. Móðir mín hafði
miklar áhyggjur af mér fram eftir ung-
lingsámnum því í stað þess að fara á
diskótekin í Kiwanis eða Féló eyddi ég
öllum mínum tíma á bókasafninu og
drakk þar í mig ýmsan fróðleik á milli
þess sem ég tefldi stundum við Sigga
Frikka og Elías Friðriks en oftar en ekki
fannst Helga Bernódussyni bókaverði
(núna skrifstofustjóra á Alþingi) nóg um
hávaðann í okkur og henti okkur út.
Endataflið var mín sterkasta hlið í skák-
inni og fengu Siggi og Elías iðulega að
kenna á því.
I stuttu máli sagt er ég alæta á bækur
og les allt á milli himins og jarðar,
(slenskt sem erlent. íslenskar skáldsögur
em reyndar í sérstöku uppáhaldi hjá mér
og sér í lagi Hallgrímur Helgason en 101
Reykjavík er algjört meistarastykki.
orsteinn Gunnarsson
er b kaunnandi
vikunnar
Skyldulesning á hverju heimili. Næst á
dagskrá er að sjá bíómyndina. Einar
Kárason er frábær rithöfundur og ég les
reglulega gömlu stórmeistarana, á nátt-
borðinu hjá mér núna er t.d. Salka Valka.
Meistari Þórbergur höfðar mest til mín
af þessum snillingum.
Spennubækur Amalds Indriðasonar
em virkilega vel skrifaðar, loksins er
kominn alvöm íslenskur spennusagna-
höfundur. Það em aðallega tveir útlendir
höfundar sem ég held mikið upp á.
Thomas Harris hefur skrifað magn-
þmngnar spennubækur. Frægust er
auðvitað Lömbin þagna en flestir muna
eftir bíómyndina frægu þar með Antony
Hopkins fór á kostum sem Dr. Hannibal
Lecter. I vor las ég svo framhald þeirrar
bókar, sem ber einfaldlega heitið Hanni-
bal, og að mínu mati er hún enn magn-
aðri en sú fyrri, og er þá fokið í flest
skjól. Nú þegar er farið gera bíómynd
eftir þeirri bók.
Uppáhalds rithöfundur minn í heild-
ina er Svíinn Jan Guillou. Þessi sænski
snillingur, sem þótti afar snjall rann-
sóknarblaðamaður á sínum tíma, hefur
skrifað margar frábærar bækur. Ég hef
lesið þær flestar en því miður hefur allt
of lítið verið gert af því að þýða hann á
íslensku. Frægastur er Jan Guillou lík-
lega fyrir spennusögur sínar um njósnar-
ann Coq Rouge en þessa dagana er ég að
byrja á því að lesa eina af Coq Rouge
bókunum sem nefnist upp á sænsku, /
Nationens intresse. En hér er mál að
linni.
Ég skora á Fréttir að taka upp mat-
gæðinginn á ný og jafnframt ætla ég að
halda bókaáskomninni innan þessa
magnaða '66 árgangs og vil að Kolbrún
Kristjánsdóttir, höfundur hins magnaða
slagorðs árgangsins, 66 = miklu betri en
67, gefi okkur innsýn í bókaheim sinn.
Góðar stundir.
Et það sem mér er saat að éta
Fyrirskömmu varráðið í starf þjónustufulltrúa
bæjarins og sóttu hvorki fleiri né færri en 17
um það starfen sérstaklega var tekið fram að
starfið krefðist nokkurra líkamlegra burða. Egill
Egilsson var ráðinn til starfans og hann er
Eyjamaður vikunnar.
Fulltnafn? Egill Egilsson.
Fæðingardagur og ár? 23. nóvember 1947.
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? Kvæntur Ernu Jóhannes-
dótturog við eigum þrjá syni.
Menntun og starf? Gagnfræðingur úr G/V,
iðnskólanám í Vestmannaeyjum, starfa sem
trésmiður og er að taka við sem þjónustufulltrúi
stofnana Vestmannaeyjabæjar.
Laun? Vonandi verða þau þokkaleg.
Bifreið? Vinnubíllinn Clio tilheyrir mér. Svoá
Erna annan bíl sem ég fæ að nota spari.
Helsti galli? Sumir telja það galla að ég segi
sjaldan nei.
Helsti kostur? Yfirleittjákvæður.
Uppáhaldsmatur? Lambakjöt.
Versti matur? Enginn, ét það sem mér er sagt að éta.
Uppáhaldsdrykkur? Vatn þegar það á við. Annaðágóð-
um stundum.
Uppáhaldstónlist? Tom Jones að sjálfsögðu.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að vera
með henni Ernu minni og vera ígóðra vina hópi.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að bóna bílinn.
Hvað myndirðu gera efþú ynnir milljón í happdrætti?
Bjóða Ernu með mértilÁstralíu og heimsækja kunningja þar.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Pass.
Uppáhaldsíþróttamaður? Kvenna- og karlalið ÍBV og svo
að sjálfsögðu Manchester United.
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Kiwanis-
klúbbnum Helgafelli og Golfklúbbi Vestmannaeyja.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Allar fréttir og íþróttir.
Uppáhaldsbók? íslenska alfræðiorðabókin kemurséroft vel.
Hvað metur þú mest í fari annarra? Jákvæðni og
glaðværð.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?
Andstæðurnar við þetta hérá undan.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Sá sem ég bý
á, Vestmannaeyjar, og hefég þó víða komið.
Hvenær tekur þú til starfa sem starfsmaður bæjarins?
17. nóvember næstkomandi.
Ihverju erþetta starf aðallega fólgið? Hafa umsjón með
Skanssvæðinu, þjónusta Ráðhús, Safnahús og fleiri
stofnanir.
Hvernig tilfinning er það að vera talinn hæfasturaf 17
umsækjendum? Ég telmig hvorkihæfariné lakarien aðra
þá sem sóttu um.
Kvíðir þú líkamlegri áreynslu ístarfinu? Nei, hún hefur
verið töluverð hingað til.
Eitthvað að lokum? Til þjónustu reiðubúinn!
Þann 28. september eignuðust Hrefna Jónsdóttir og Bjöm Matthíasson dóttur.
Hún vó 16 merkur og var 54 sm að lengd. Hún fæddist á fæðingardeild
Landspítalans. Ljósmóðir var Margrét Bjamadóttir. Fjölskyldan býr í Kópavogi.
Þann 7. okt. eignuðust stúlku Fjóla Björk Jónsdóttir og Ingi Sigurðsson. Hún hefur
fengið nafnið Éva Lind. Hún vó 14,5 merkur og var 52 sm að lengd. Ljósmóðir var
Dýrfmna Siguijónsdóttir. Með litlu systur á myndinni er Jón bróðir hennar. Fjöl-
skyldan býr í Vestmannaeyjum
Á döfinni 4*
2. nóv. Bingó í Þórsheimilinu kl. 20.30
3,- 4. nóv. Dnnsleikir ó Lundnnum mei „1/2 í hvoru"
4. nóv. Róislelnun Eyjor 2010 endursýnd ó Fjölsýn kl. 13.
5. nóv. Myndlistorsýningin „Tíminn og trúin" opnui eftir messu í
Landakirkju kl. 14 í Sofnoiarheimilinu
6. nóv. Arsþing ÍBV héraissumbands í Þórsheimilinu kl. 18.00
8. nóv. Bæjarstjórnarfundur kl. 17 í fundorsal Bæjarveitno
10. nóv. ÍBV - Fram í Nissandeild korla kl. 20.00
10.-12. nóv. Nómskeii í líföndun. Leiibeinandi Guirún Arnalds
Fréttir - í hverri viku