Fréttir - Eyjafréttir - 02.11.2000, Page 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 2. nóvember 2000
Myndir úr ævi Sigurðar Einarssonar
-sem hefði orðið 50 ára í gær
Sigurður Einarsson, forstjóri, ísfélagsins, sem lést þann 4. október hefði orðið 50 ára í gær, miðvikudaginn 1. nóvember.
Af því tilefni birta Fréttir hér nokkrar myndir úr lífi Sigurðar úr safni Sigurgeirs Jónassonar. Sjálfur hafði Sigurður pantað pláss undir hcilsíðuauglýsingu þar sem hann
ætlaði að bjóða Eyjamönnum til mikillar afmælisveislu. Því miður varð ekkert af þeirri fyrirætlun Sigurðar.
Myndirnar eru teknar síðustu 15 árin og sýna athafnamanninn, bæjarfulltrúann og manninn Sigurð Einarsson sem lét sér fátt óviðkomandi.
SIGURÐUR Einarsson. Myndin er tekin árið 1986 en þá var hann
forstjóri Hraðfrystistöðvarinnar.
SIGURÐUR ásamt Guðbjörgu Matthíasdóttur konu sinni og syninum Kristni. Myndin er tekin árið
1996 en þá var Sigurður orðinn forstjóri Isfélagsins eftir sameiningu þess og Hraðfrystistöðvarinnar.
ísfélagið er elsta hlutafélag landsins, stofnað 1. desember 1901. Var haldið upp á 95 ára afmæli þess
árið 1996 og eru Sigurður og Guðbjörg að taka á móti gestum í afmælisveislunni.
STYRKUR Sigurðar sem
stjórnanda var að velja sér gott
samstarfsfólk og hér er hann
með framvarðasveitinni á
skrifstofunni. F.v. Hörður
Oskarsson fjármálastjóri,
Eyþór Harðarson, Tómas
Jóhannesson, Helga
Hallbergsdóttir, Halldóra
Gísladóttir, Sigurður og
Eyjólfur Martinsson.
myl
nlsTiu-' /jX ■"* S/U
SYNIRNIR fengu
ungir að kynnast
starfi föður síns því
Sigurður tók þá oft
með sér. Hér eru
eldri bræðurnir,
Einar og Sigurður
með föður sínum.
Myndin er sennilega
frá árinu 1986 og
tekin um borð í
Suðurey VE.
EFTIR sameiningu ísfélags og Hraðfrystistöðvar í upphafi árs 1992
stóðu Sigurður og Magnús Kristinsson saman við stjórnvölinn. Hér
eru þeir að afhenda fulltrúum Islandsbanka, Val Valssyni og
Svanbirni Thoroddsen frá SH hlutabréfum sem tcljast til