Fréttir - Eyjafréttir - 02.11.2000, Side 15
Fimmtudagur 2. nóvember 2000
15
ÞESSI mynd gæti verið sex til átta ára gömul en þarna er Sigurður við gróðurvinnu og sáningu með
öðrum félögum úr Sjálfstæðisfélögunum í Vestmannaeyjum. Fremst eru Marta María
Þorbjarnardóttir, Magnús og Sigurður, synir Sigurðar. I miðröðinni eru Ingibjörg Johnsen, Margrét
Sigurðardóttir, Guðrún Jóhannsdóttir, Arnar Hjaltalín, Sæfinna Sigurgeirsdóttir; Auróra Frið-
riksdóttir og Októvía Andersen. Aftast eru Bragi I. Olafsson, Guðjón, Sigurður og Olafur Lárusson.
SIGURÐUR var finnskur konsúll. Hér eru hann og Guðbjörg að taka á móti Finnlandsforseta í
húsnæði ísfélagsins í september 1995. Frá vinstri, Vigdís Finnbogadóttir þáverandi forseti íslands, frú
Attisari, Guðbjörg, Attisari Finnlandsforseti og Sigurður. Fleiri þjóðhöfðingjar heimsóttu Isfélagið, má
þar meðal annars nefna Spánarkonung.
KRISTBJÖRN Árnason,
skipstjóri á afla- og
happaskipinu Sigurði VE
ásamt Sigurði.
BOGI Sigurðsson hefur
hefur staðið það lengi
vaktina íFes, loðnu-
bræðslu Isfélagsins, að
hann er sjaldan kall-
aður annað en Bogi í
Fes. Hér er hann með
Almari Hjarðar og
Erni Guðmundssyni.
NÝJU skipi fagnað. Antares VE kom til heimahafnar í
Vestmannaeyjum í apríl 1996. Grímur Jón Grímsson, Guðjón
Hjörleifsson bæjarstjóri og Sigurður við komu Antares.
ÞEIR störfuðu lengi saman, Hörður fjármálastjórí, Garðar
Ásbjörnsson útgerðarstjóri og Sigurður. Myndin er tekin í brúnni á
Suðurey VEárið 1986.
HER eru Jón Ólafur Svansson framleiðslustjóri og Sigurður að
taka við viðurkenningu frá SH úr hendi Páls Péturssonar sem
stendur á milli þeirra.