Fréttir - Eyjafréttir - 02.11.2000, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 2. nóvember 2000
Fréttir
17
íhverfi, samkennd íbúanna og nálægð við náttúruna.
Hver krókur og kimi í Týsheimilinu var nýttur og hér er einn hópurinn að störfum í búningsklefa.
-Vinimir em famir.
Eftirfarandi þœttir voru taldir þungir
á metum sem svar við spumingu
númer tvö:
-Menntamál, þjónusta, lífsgæði og
samgöngur.
-Menning og afþreying.
-Launakjör.
-Einhæft atvinnulíf og litlir atvinnu-
möguleikar.
Þau atriði sem hópurinn einkum benti
á sem svar við þríðju spurningunni,
voru þessi:
-Gott ástand í menntamálum er eitt-
hvað sem fólk telur sjálfsagt og þarf
að vera í lagi svo að fólk vilji snúa
aftur til Eyja.
-Aukin upplýsingatækni gefur fleiri
tækifæri, fleiri atvinnumöguleika. Þar
er atvinnugrein án landamæra, grein
sem miklir fjármunir liggja í.
-Nýjar leiðir í markaðssetningu.
-Ferðamál og aukna samvinnu.
Hópurinn bendir einnig á
eftirfarandi atriði:
-Einstaklingurinn þarf að taka fmm-
kvæðið.
-Reglulegir viðburðir þurfa að eiga sér
stað.
-Bæta þarf möguleika unglinga til
muna. Þar er bent á þann möguleika
að taka „Hitt Húsið“ sem fyrirmynd.
Að lokum velti hópurinn fyrir sér
spumingunni, Hvemig sjáum við
Eyjarárið 2010? Niðurstöður þeirrar
umrœðu urðu þessar:
-Sýnum frumkvæði sjálf.
-Ytum undir atvinnusköpun.
-Stöndum sjálf fýrir atvinnusköpun.
-Höfum áhrif.
I lok ráðstefnunnar var lesin upp
niðurstaða þess sem fram kom í
hópavinnunni, tekin saman þau atriði
sem þyngst vógu í umræðum hóp-
anna.
Styrkur Vestmannaeyja
liggur einkum íþessu:
-Vemdað, fjölskylduvænt umhverfi.
-Samkennd íbúanna.
-Nálægð við náttúmna.
Vankantar Vestmannaeyja
eru einkum þessir:
-Takmarkaðir möguleikar í menntun
og atvinnu.
-Ovissa um framtíðina.
Helstu niðurstöður
ráðstefnunnar eru:
-Vestmannaeyingar eiga að vera
númer eitt í sjávarútvegi og öllu því
sem honum tengist, ekki aðeins í
framleiðslu, heldur einnig námi og
rannsóknum á lífríki sjávar.
-í ferðamálum þarf að stefna að því að
markaðssetja eigin ferðaskrifstofu.
-Leggja þarf áherslu á það sem við
höfum fram yfir aðra staði; veðráttu,
úteyjar, Surtsey, eldgos og Tyrkja-
ránið.
-Leggja þarf áherslu á Vestmanna-
eyjar sem umhverfisvænt samfélag og
efla aðstöðu til að taka á móti stómm
hópum.
-Taka þarf forystu í fjarvinnslutækni í
námi og þjónustu.
-Stefna á að því að sjúkrahúsið verði
einkavædd heilsustöð.
-Byggja þarf upp skemmtilegan
miðbæjarkjama með menningarlífi og
afþreyingu, ekki síst fýrir ungt fólk og
fjölskylduna.
-Stefna á að því að Vestmannaeyjar
verði alhliða íþrótta- og útivistar-
paradís. Samræma þarf markmið
bæjarbúa, bæjaryfirvalda og íþrótta-
hreyfingarinnar.
-Af hverju ekki að stefna að
Landsmóti UMFÍ árið 2010?
-Samgöngur skipta höfuðmáli í
Eyjum. Mikilvægt er að þau mál séu í
höndum heimamanna meira en nú er,
bæði í sjó og í lofti.
-Fylgjast þarf með nýrri tækni í
samgöngum á sjó, með aukinni
ferðatíðni og ekki gleyma hug-
myndinni um göng milli lands og
Eyja.
-Metnaðarfull stefna í málum
grunnskólanna á að vera homsteinn
menntunar í Eyjum
-Framhaldsmenntun þarf að vera
fjölbreytt og í tengslum við
atvinnulífið.
-Skapa þarf aðstöðu til aukins
fjamáms.
Framsögumenn ánægðir með hvernig til tókst og telja margar hugmyndirnar athyglisverðar:
Ráðstefnan er samt aðeins upphafspunkturinn
Fimm frummælendur
töluðu um afmörkuð
viðfangsefni á ráð-
stefnunni Eyjar 2010.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskól-
ans á Akureyri, ræddi um há-
skólamenntun og byggðaþróun, Ami
Sigfússon, framkvæmdastjóri Tækni-
vals hf., ræddi um forsendur öflugs
samkeppnishæfs atvinnulífs í Eyjum,
Guðni Valtýsson, kerfisfræðingur,
ræddi um hugbúnaðargerð í Vest-
mannaeyjum, Ulfar Steindórsson,
framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs,
ræddi um hlutverk sjóðsins og
Byggðastofnunar og Andrés Sigur-
vinsson, kennari og leikstjóri, flutti
erindi sem hann nefndi „Hvar er húfan
mín“ og fjallaði um viðhorf hans sem
gamals Vestmannaeyings sem ný-
fluttur er heim á ný. Til stóð einnig að
ANDRÉS
Öm D. Jónsson, forstöðumaður
nýsköpunarsviðs Háskóla Islands,
talaði á ráðstefnunni en hann for-
fallaðist.
Gerður var góður rómur að erindum
þeirra fimmmenninga sem vom stutt
og hnitmiðuð. En hvemig þótti þeim
ráðstefnan takast?
Þorsteinn Gunnarsson:
„Mér fannst hún takast afar vel. Þessi
mikla þátttaka kom mér skemmtilega
á óvart og einnig hvað ráðstefnugestir
mættu vel undirbúnir til hennar.
Greinilegt var að undirbúningsstarf
hafði verið vel unnið. Þátttaka unga
fólksins var líka áberandi og það
skiptir miklu máli. Þá þóttu mér
niðurstöður úr hópastarfinu fram-
sæknar og líklegar til að árangur náist.
Þessi ráðstefna var afbragðs framtak
ÁRNI
og mjög gaman að fá að taka þátt í
henni.“
Guðni Valtýsson:
„í heild fannst mér þetta mjög gott.
Kannski aðallega hvað þetta var
málefnalegt og fólk niðri á jörðinni.
Fmmmælendumir fannst mér líka
flestir góðir og sumir afbragðs góðir
eins og Andrés Sigurvins sem fór á
kostum. Mér fannst líka jákvætt að
það sem hópamir komu fram með,
vom engar skýjaborgir. Að vísu
kostar fé að ráðast í margt það sem þar
kom fram en þungamiðjan í þeim
ályktunum, eins og raunar á
ráðstefnunni í heild, var að við hættum
að láta aðra gera hlutina og lítum í
eigin barm.“
Andrés Sigurvinsson:
„Þetta tókst framar öllum vonum,
GUÐNI
fannst mér. Bæði skemmtilegt og
fróðlegt. Fólk er í startholunum, klárt
til að gera eitthvað. Nú þurfa bara allir
að styðja við alla og hefjast handa,
boltinn er hjá okkur. Þetta finnst mér
hafa komið út úr ráðstefnunni og er
hægt að ætlast til meira? Orð em til
alls fýrst.“
Árni Sigfússon:
„Mér fannst ánægjulegt að sjá áhuga
svo margra Vestmannaeyinga, jafnt
ungra sem aldinna á viðfangsefninu.
Þá þóttu mér ábendingar sem komu úr
hópunum mjög athyglisverðar. Nú
hef ég setið marga fundi þar sem
mikið hefur verið talað og margt sagt
en oft hef ég saknað framkvæmdanna
eftir þá fundi. Spumingin er núna
hvað menn gera og aðhafast, eftir því
bíðum við.“
ÞORSTEINN
Úlfar Steindórsson:
„Það sem kannski kom mér hvað mest
á óvart við þessa ráðstefnu var hve
þátttakan var ótrúlega mikil. Það eitt
og sér sýnir að fólk er tilbúið að takast
á við það að gera betur. Aftur á móti
má segja að ráðstefnan sjálf sé ekki
höfuðatriði, heldur framhald hennar.
Það sem gerist í framhaldi af henni
skiptir höfuðmáli. Og þar held ég að
Þróunarfélag Vestmannaeyja hafi
miklu hlutverki að gegna.“
Sigurg.
ÚLFAR