Fréttir - Eyjafréttir - 02.11.2000, Qupperneq 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 2. nóvember 2000
Landa-
KIRKJA
- hjartanlega velkomin!
Fimmtudagur 2. nóvember
KJ. 10:00. Foreldramorgun, Kristín
Sigurðardóttir kynnir ungbama-
nudd.
Kl. 14:30. Helgistund á Heil-
brigðisstofnun, dagstofu 3. hæð.
Heimsóknargestir velkomnir.
Kl. 17.30. TTT. Allir 10-12 ára
krakkar hjartanlega velkomnir.
Laugardagur 4. nóvember
Kl. 11:30. Æfíng fellur niður hjá
Litlum lærisveinum þessa viku.
Sunnudagur 5. nóvember
Kl. 11:00. Bamaguðsþjónusta. Lof-
gjörð, leikur, saga og mikill söngur.
Kl. 14:00. Allra heilagra messa.
Minnst verður þeirra sem látist hafa
síðustu tólf mánuði með því að lesa
upp nöfn þeirra í almennri
kirkjubæn. Ábendingar um þá sem
látist hafa utan Eyja em kær-
komnar. Allir hjartanlega vel-
komnir og sérstaldega þeir sem
hafa misst ástvini sína. Kaffisopi
eftir messu en þá verður einnig
opnuð myndlistarsýning sjö lista-
kvenna í Safnaðarheimilinu sem
ber nafnið „Tíminn og trúin“.
Kl. 20.30 Æskulýðsíundur í Landa-
kirkju. Kynning á blaðaútgáfu.
Leikir, bæn og sprell.
Mánudagur 6. nóvember
Kl. 20:00 Vinnufundur Kvenfélags
Landakirkju vegna jólabazars þann
3. desember.
Þriðjudagur 7. nóvember
Kl. 16.30 KKK KirkjuKlúbburinn
Kirkjuprakkarar með Hrefnu og
félögum. Hver veit nema trúður
komi í heimsókn?
Miðvikudagur 8. nóvember
Kl. 11:00. Helgistund í Hraun-
búðum. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Kl. 12-12:20. Kyrrðar og bæna-
stund. Velkomið að koma
bænarefnum til prestanna.
Kl. 20-22 Opið hús í KFUM&K-
húsinu fyrir unglinga 8., 9. og 10.
bekkjanna. Utanlandsferð næsta
sumars verður kynnt lauslega.
Spjallað saman um síðustu móts-
ferð.
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Fimmtudagur 2. nóvember
Kl. 20:30 Biblíulestur, hvers vegna
var Jesús Krossfestur?
Laugardagur 4. nóvember
Kl. 20:30 Bænasamkoma, beðið
fyrir landi og þjóð.
Sunnudagur 5. nóvember
Kl. 15:00 Vakningarsamkoma,
ræðumaður Snorri Óskarsson Hvað
styður þá fullyrðingu að kristin trú
sé sú eina rétta? Hefur Biblían
eitthvað framyfir aðrar trúarbækur?
Velkomin að hlýða á og skoða
málin!
Þriðjudagur 7. nóvember
Kl. 17:30 Krakkakirkjanífúllujöri,
öll böm velkomin!
Hjartanlega velkomin á sam-
komur Hvítasunnumanna-
meðan húsrúm leyfir!
Aðventkirkjan
Laugardagur 4. nóvember
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Allir hjartanlega velkomnir.
ÍBV-íþróttafélag bauð til
mikillar veislu í Þórsheimilinu á
laugardagskvöldið.
Þarna var boðið
stuðningsfólki sem lagt hafði
hönd á plóg við Shell-mótið,
Vöruvalsmótið og Þjóðhátíðina.
Grilluð voru einhver ókjör af
lambalærum og voru þau
framreidd með dýrindis
meðlæti. Lamhakjötið brást
ekki enda grillað af mikilli list
og ekki skemmdi að einnig var í
boði drykkur úr krana til að
skola kræsingunum niður.
Þátttaka fór langt fram úr
björtustu vonum, alls mættu
liðlega 100 manns og hafa gestir
aldrei verið fleiri í sögu
félagsins við sama tækifæri.
HÉR er glatt á hjalla enda verið að rifja upp stórvirki sumarsins.
ÓLI í Skipalyftunni, Þura, Sveinbjörg og Stefán í Þór létu sig ekki
vanta enda hafa þau öll lagt lagt íþróttum lið í gegnum tíðina.
FRIÐRIK veitustjóri er hér í hópi fagurra kvenna enda drengurinn
eitt sælubros.
Fittness: Sigurlína í 3. sæti í undankeppni
Tekur þátt í alþjóðlegri keppni á laugardasinn
Á laugardaginn kemur verður
haldin alþjóðleg Fitness-kcppni í
Laugardalshöllinni í Reykjavík.
Einn Vestmannaeyingur er meðal
keppenda í kvennaflokki, Sigurlína
Guðjónsdóttir. Fyrir fjórum árum
náði Vestmannaeyingurinn
Sigurbjörg Ágústsdóttir mjög
góðum árangri í svipaðri keppni.
Sigurlína segir að hún hafi tekið
þátt í undankeppninni sem haldin
var í Ketlavík á laugardaginn var.
Þar kepptu 11 stúlkur um fjögur
sæti í aðalkeppninni og varð
Sigurlína þar í 3. sæti sem tryggði
henni þátttökurétt á laugardag.
Sigurlína segir að þarna keppi
einnig fjórar eða fimm erlendar
stúlkur og einhverjar þeirra séu
atvinnumanneskjur í greininni. Þá
verður og keppt í karlaflokki. 28
karlar mættu í undankeppnina og
einnig fjórir sem komast í
aðalkeppnina. I karlaflokki munu
einnig útlendingar mæta til kcppni.
Að sögn Sigurlínu er keppnin
tvískipt, annars vegar
styrkleikaþraut þar sem reynir á
líkamsstyrk keppenda og hins
vegar samanburður á
fíkamsbyggingu þeirra.
Sigurlína segist vera búin að
Stefna að þessu í einn og hálf'an
mánuð með æfingum og sérstöku
mataræði þar sem m.a. öll fita
hefur verið útilokuð og lítil
sykurneysla.
„Ég er mjög ánægð með að hafa
komist í aðalkeppnina, reiknaði
alls ekki með því að komast svo
langt. Nú þekki ég ekkert til
erlendu keppendanna en reikna
með að við íslensku stelpurnar
komum til með að standa okkur
vel í styrklcikahlutanum.
Sennilega standa þær erlendu
betur að vígi í líkamlegum
samanburði. Ég veit bara að ég
ætla að gera mitt besta á
laugardaginn," sagði Sigurlína
Guðjónsdóttir.
SIGURLÍNA er tilbúin í
slaginn.
I/
Ólafía Ásmundsdóttir frá Hlíðarenda
Með Ijósmyndabók
-sem helguð er æskustöðvunum
Ólafia Ásmundsdóttir frá
Hlíðarenda hefur sent frá sér
bókina Ur sumarsænum -
Vestmannaeyjabók- sem er
ljósmyndabók. Eins og nafnið
bendir til er myndefnið sótt til
Vestmannaeyja en þar er
höfundur fædd og uppalin.
Ólatía er frá Hlíðarenda í
Vestmannaeyjum og hér ólst hún
upp en flutti frá Eyjum um tvítugt.
Olafia hefur lengi tekið ljósmyndir
og fyrir mörgum árum kviknaði
hjá henni hugmynd að bókinni.
Hún fékk son sinn Ásmund
Ingason í lið með sér við töku
myndanna en sjálf skrifar hún
allan textann.
„Ég er með útgáfu bókarinnar
að láta gamlan draum rætast, að
búa til Ijósmyndabók um
æskustöðvarnar á Heimaey,“ segir
Ólafia um bók sína. „Bókin er safn
nýrra ljósmynda sem teknar eru á
Heimaey að sumarlagi. Má segja
að efni hennar sé lítið ferðalag um
eyna sem byrjar við innsiglinguna
inn Víkina. Síðan er haldið inn á
Eiði, niður á bryggju og vestur á
Hamar. Eftir viðkomu í bænum er
farið út í Klauf, upp á Stórhöfða og
þaðan austur með Eyju og út á
Nýjahraun.“
Ölafia segir að hvar sem drepið
sé niður fæti blasi við mikil
náttúrufegurð og fjölbreytnin sé
ótrúleg. „Þessu er ég að reyna að
koma til skila í bókinni. Það er
annarra en mín að dæma um
hvernig til hefur tekist en ég hef
lagt allt mitt í bókina og vonast til
að þess sjáist merki í bókinni. Ég
átti skemmtileg æskuár í
Vestmannaeyjum og hér liggja
ræturnar.“
Bókin er 80
blaðsíður í stóru
broti, oftast ein
mynd á síðu, og hinn
eigulegasti
prentgripur. Texti
er á íslensku, ensku
og þýsku og er til
sérkápa fyrir hvert
tungumálanna. „Ég
ákvað að gefa
bókina út sjálf og sjá
einnig um dreifingu.
Það er mikið verk en
vonandi gengur allt
að óskum hjá mér,“
sagði Ólafía að
lokum.
ÓLAFÍA með bókina góðu.