Fréttir - Eyjafréttir - 02.11.2000, Page 19
Fimmtudagur 2. nóvember 2000
Fréttir
19
Nissandeildin: IBV22-IR21
Háspenna í lokin
ÍBV tók á móti ÍR í sjöttu umferð
Nissandeildarinnar síðastliðinn
laugardag. Leikurinn átti upphaf-
lega að fara fram kvöldið áður en
var frestað sökum veðurs. Frekar
fámennt var á leiknum en þeir
áhorfendur sem létu sjá sig fengu
hins vegar að sjá æsispennandi
lokamínútur leiksins. ÍBV sigraði
með einu marki, 22-21 og tryggði
sér þar með dýrmæt tvö stig á
heimavelli.
Leikurinn byrjaði reyndar ekki
gæíúlega fyrir ÍBV. ÍR-ingar spiluðu
sömu vamaraðferð og ÍBV, svokall-
aða 3-2-1 vöm sem er mjög fram-
liggjandi og áttu leikmenn ÍBV í
mestu vandræðum með að finna
glufur í vöm gestanna. Jón Andri
Finnsson sá þó til þess að ÍR-ingar
náðu aldrei að stinga af í byijun en
hann skoraði fyrstu tvö mörk liðsins úr
vítaskotum. Smátt og smátt náðu
strákamir tökum á leiknum og náðu að
komast yfir, 3-2. Eftir það jókst
munurinn á milli liðanna og í hálfleik
leiddi ÍBV með fjórum mörkum, 13-9.
I upphafi seinni hálfleiks leit allt út
fyrir stórsigur ÍBV enda juku leik-
menn liðsins muninn strax í fimm
mörk. En mjög slæmur leikkafli liðs-
ins um miðjan hálfleikinn gaf gest-
unum kjörið tækifæri á að komast inn
í leikinn sem þeir nýtm sér til fulls.
Gestimir komust tveimur mörkum yfir
þegar tæplega tíu mínútur vom eftir en
góður endasprettur ÍBV þar sem Jón
Andri skoraði síðustu tvö mörk
leiksins, tryggði ÍBV sigurinn.
Guðfinnur Kristmannsson spilaði
vel í leiknum, var reyndar með slaka
skotnýtingu en bætti það upp með því
að búa til færi fyrir samhetja sína og
góðum vamarleik. Guðfmnur sagði í
samtali við Fréttir eftir leikinn að liðið
væri hægt og sígandi að ná betri
tökum á leik sínum. „Við vomm að
spila fína vöm í byrjun og við emm
bara að þreifa okkur áfram í þessu.
Þeir vom líka að spila ágætis vöm en
við héldum bara boltanum og spil-
uðum skynsamlega. Við leituðum
bara eftir góðum fæmm enda vomm
við ekkert að klikka oft í sókninni.
Við náðum góðri forystu í byrjun
seinni hálfleiks en svo var eins og
menn héldu að þetta væri bara búið og
við hreinlega klúðruðum forystunni
sjálfir. En við náðum að rífa okkur
upp í lokin og næla okkur í þessi tvö
stig. Mér fannst þetta bara góður
karakter í liðinu að koma aftur til baka
eftir að hafa lent undir og vinna
leikinn. Við emm hins vegar ennþá
að vinna í okkar leik, mér finnst við
eiga að geta spilað betri vöm en
sóknarleikurinn er svona hægt og
sígandi að koma.“
Mörk IBV: Mindaugas Andriuska 6,
Jón Andri Finnsson 6/5, Guðfinnur
Kristmannsson 4, Aurimas Frovolas 2,
Svavar Vignisson 2, Daði Pálsson 1 ,
Erlingur Richardsson 1.
Varin skot: Gísli Guðmundsson 11.
Handknattleikur kvenna: Víkingur 28 - IBV 13
Versti leikur sem éj hef spilað
-sesirVisdís Sisuróardóttir, markmaður íslandsmeistaranna
Það verður seint sagt að ÍBV hafi
riðið feitum hesti frá viðureign
liðanna síðastliðinn laugardag. ÍBV
átti aldrei möguleika gegn sterku
liði Víkinga og endaði leikurinn
með hvorki meira né minna en
fimmtán marka tapi ÍBV, 28-13.
Leikurinn var í jafnvægi til að byija
með en þegar um það bil tíu mínútur
vom liðnar af honum tóku heima-
stúlkur í Víkingi góðan kipp, skomðu
úr sjö hraðaupphlaupum og hefðu
getað bætt við fleiri mörkum en
Vigdís Sigurðardóttir í marki ÍBV hélt
ÍBV á floti. Staðan fór úr því að vera
jöfn, 2-2 í 12-4 og óhætt að segja að
leikurinn væri nánast búinn. ÍBV náði
þó aðeins að klóra í bakkann fyrir
leikhlé, staðan þá var 14-7 og ljóst að
á brattann yrði að sækja fyrir IB V.
í seinni hálfleik var ÍBV liðið
gjörsamlega á hælunum. Amela
Hegic var sú eina sem þorði, enda var
hún sú eina sem skoraði í seinni
hálfleik. Amela var svo tekin úr
umferð og við það hmndi sóknarleikur
ÍBV endanlega og Víkingsstúlkur
með Guðbjörgu Guðmannsdóttir í
fararbroddi völtuðu hreinlega yfir
Islandsmeistarana. ÍBV skoraði að-
eins sex mörk í seinni hálfleik á
meðan Víkingsstúlkur skomðu ijórtán
og niðurstaðan fimmtán marka tap
ÍBV.
Vigdís Sigurðardóttir sagði í samtali
við Fréttir að leikurinn hefði í einu
orði sagt verið hörmung. „Það var
nánast allt að í leiknum, ég veit ekki
hvort við höfum hreinlega ekki verið
tilbúnar í leikinn en þetta er alveg
ömgglega versti leikur sem ég hef
nokkum tíma spilað síðan ég byijaði í
handbolta. Þetta hefur verið mjög
erfitt hjá okkur að undanfömu, við
emm náttúmlega Islandsmeistarar og
það er erfitt fyrir ungu stelpumar að
standa undir því. Við emm kannski
að gera allt of miklar kröfur til þeirra
en það er bara svo svekkjandi að hafa
verið bestar í fyrra en vera með lélegri
liðum núna. En það er að koma hlé á
deildinni og við munum nýta það til
fulls til að koma báðum nýju leik-
mönnunum inn í þetta og til að bæta
okkar leik.“
Mörk ÍBV: Amela Hegic 7/1,
Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir 2, Anita
Andreassen 2, Aníta Ýr Eyþórsdóttir
1, Bjamý Þorvarðardóttir 1.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 15.
EDDA Garðarsdóttir, sem er
komin til liðs við ÍBV á ný á
erfitt verk fyrir höndum með
stöllum sínum en nái þær að ná
betur saman eru þær til alls
líklegar.
Körfuboltinn: Bikarkeppni KKÍ
Steínlásu fyrír íslandsmeisturunum
ÍV tók á móti íslandsmeisturum KR í 32ja liða
úrslitum bikarkeppninnar í körfuknattleik
síðastliðinn laugardag. Gengi KR-inga hefur
fram til þessa ekki verið glæsilegt og hafði liðið
ekki enn unnið leik í deildinni þegar kom að
leiknum gegn IV. Eyjamönnum var þar af
leiðandi ekki sýnd nein miskunn og endaði
leikurinn með stórsigri Islandsmeistaranna,
70-120.
Þrátt fyrir þessar ótrúlegu tölur þá vom það leik-
menn IV sem byijuðu leikinn betur og leiddu fyrstu
mínútumar. En í stöðunni 12-7 settu Vesturbæingar
í fluggírinn og náðu ömggri forystu áður en fyrsti
leikhluti var úti. Leikmenn ÍV náðu aðeins að laga
stöðuna í öðmm leikhluta en staðan í hálfleik var
38-57, eða aðeins 19 stiga munur. Leikurinn var í
nokkm jafnvægi, allt þar til síðustu mínútur leiksins
þegar leikmenn IV gáfust upp og KR-ingar skomðu
hverja þriggja stiga körfuna á fætur annarri.
Lokatölur gefa ekki rétta mynd af leiknum, fimmtíu
stiga munur var of stórt tap en engu að síður átti IV
ekki möguleika gegn hinu ört vaxandi liði KR-inga.
Kristinn Þór Jóhannesson sagði eftir leikinn að
það hefði fyrst og ffemst verið gaman að mæta KR-
ingum. „Þetta var góð tilbreyting að mæta úrvals-
deildarliði og ég er ekki frá því að hefðum getað
staðið í þeim ef þeir hefðu ekki verið búnir að fá
þennan Bandaríkjamann fyrir leikinn gegn okkur.
Hann var mesti munurinn á liðunum enda rúmlega
tveggja metra sláni. Einnig áttum við í vandræðum
með að stoppa þriggja stiga skotin hjá þeim enda
einbeittum við okkur að því að stoppa risann, þá
fengu þeir frið fyrir utan. Þetta hefði ekki átt að
enda með svona miklum mun, þegar fimm mínútur
voru eftir þá vom aðeins tæplega þijátíu stig á milli
liðanna en við ákváðum að sýna góð tilþrif í lokin í
stað þess að halda muninum niðri.“
Stigahæstir í liði IV: Amsteinn Ingi Jóhannesson
24, Eggert Baldvinsson 15, Kristinn Þór Jó-
hannesson 10.
Anita
komin
aftur
Anita Andreasen, sem spilaði með
kvennaliði IBV meistaratímabilið
1999 - 2000 hefúr gengið til liðs við
liðið að nýju. Lengi stóðu vonir
manna til þess að leikmaðurinn
kæmi aftur að nýju en Anita var til
reynslu hjá liði í Danmörku og vildi
reynakomastaðþarílandi. Þegar
það gekk ekki upp stóð ekkert í vegi
fyrir því að Anita kæmi aftur en hún
lék sinn fyrsta leik með liðinu gegn
Víkingum sl. laugardag.
Annar leikmaður er einnig á
leiðinni til liðsins, Tamara Mand-
izch heitir hún og kentur frá
Júgóslavíu. Tamara er rétthent en
getur spilað báðar skyttustöðumar
og sem leikstjómandi.
Spilað
heiman
og heima
Islandsmeistarar og meistarar
meistaranna í handknattleik kvenna
ÍBV mæta þýska liðinu Buxtehude
í tveimur leikjum í Evrópukeppni
félagsliða. Leikimir munu fara
fram bæði úti og hér í Eyjum en
fyrri leikurinn fer fram í Þýskalandi
nú um helgina. Heimaleikurinn
verður síðan helgina 10-12 nóv-
ember. Leikmenn og forráðamenn
deildarinnar ganga nú í hús og selja
happdrættismiða, til að brúa bilið
íjárhagslega en miðinn gildir einnig
sem aðgangsmiði á heimaleikinn.
Fyrstu
stigin hjá
öðrum
flokki
Annar flokkur karla í handknattleik
átti að mæta jafnöldrum sínurn úr
Mosfellsbæ í leik botnliðanna í A-
riðli um helgina. Gestimir sáu sér
hins vegar ekki fært um að mæta til
leiks, því var ÍBV dæmdur sigur og
fengu strákamir því sín fyrstu stig á
vetrinum og lyftu sér þar með af
botninum.
Fram-
undan
Föstudagur 3. nóvember
Kl. 20.00 HK-ÍBV karlar
Laugardagur 4. nóvember
Kl. 14.00 Breiðablik-ÍV
Sunnudagur 5. nóvembcr
Kl. 12.00 Snæfell-ÍV
Þriðjudagur 7. nóvember
Kl. 20.00 IBV-Valur