Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Síða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Síða 2
2 Fréttir Fimmtudagur 21. desember 2000 Guðný Bjarnadóttir Ijósmóðir: Jólahugvekja ,,At3 vera bam sem brosir, þráir, dreymir, Að vera bam og eiga vona mál trúa á lífið tákn þess fagra og góða treysta Guði og eiga kœrleiksþrá, að eiga œsku, elsku, von og gleði, að eiga lífog bjartan sólskinsdag. Það er að vera Ijós í lífsins heimi því lítið barn erfegurst jarðarblóm. Þetta ljóð varð á vegi mínum fyrir nokkrum árum í Morgunblaðinu. Það fylgdi grein sem fjallaði um ólæknandi sjúkdóma hjá bömum. Þegar ég var beðin um að tala til ykkar hér í dag kom mér þetta ljóð í hug. I því felst speki, sem ég vil hugleiða með ykkur nú á aðventunni. Baminu sem er líkt við „fegursta jarðarblóm,“ hvar er það? Er það ekki einmitt fæðingarhátíð þess sem við emm að undirbúa okkur að halda hátíðlega? Emm við ekki hvert um sig „fagurt jarðarblóm.“ Guð birtist okkur með því að gefa okkur frelsarann sem fæddur er á jólunum, gaf okkur hann sem lítið barn, sem fæddist fátækum hjónum við erfiðar aðstæður. Þessi vitnisburður fær fólk um alla heimsbyggðina til að staldra við og hugleiða inn á við. Fæðing frelsarans við fátækt og erfiðleika fær okkur til að hugsa um hvað raunverulega skiptir máli. Það er ekki umgjörðin, ættarveldi, né veraldlegur auður. Gleði og hamingja eru ekki bundin ytri gæðum, heldur eru það okkar innri tilfinningar sem skapa hamingjuna. Þegar nýfætt bam lítur fyrst dagsins ljós, þekkir það eingöngu gæsku móður sinnar. Hún hefur fóstrað það af sínum líkama, varðveitt það og nært. Þegar heim- urinn allt í einu stækkar í augum nýfædda bamsins má líkja því við akur. Böm em frá náttúrunnar hendi plægðjörð. Þau eru frjósamurjarðvegurog heimurinn er sáðmaðurinn. Útsæðið þyrlast inn í þau frá nánasta umhverfi og samfélaginu í heild. Reynslan í upp- vextinum er sæðið sem verður kafsprottinn akur. Hlutverk uppalenda felst fyrst og fremst í sáðmennskunni -henni má stjóma að einhverju leyti. Ef sáð er ást lærir bam að elska, ef íslensku máli er sáð lærir bam íslensku, ef engu orði er sáð lærir það ekki að tala. Bamið er opinjörð -það velur ekki sjálft fræin sem falla. Það er berskjaldað. Því sem ekki er sáð, það verður ekki uppskorið. Maðurinn lærir að vísu svo lengi sem hann lifir, en sumu verður ekki sáð nema í batnæsku. Ást, vinátta, virðing, öryggi og agi er sæði sem erfitt er að byija að gefa á fullorðinsárum. Þetta sæði er forsenda gæfunnar og ber ekki ávöxt nema það falli í nýplægða jörð bamsins. Uppalandinn er sáðmaðurinn á akri barnsins og samfélagið er tíðarfarið. Akurinn verður fyrir áhrifum vinda og veðra. En við ræktum akurinn og skýlum honum ef okkur þykir þörf á. Aðventan er undir- búningstími til að fagna fæðingarhátíð frelsarans. í íjórar vikur emm við að sýsla við að fegra umhverfi okkar, velja gjafir til vina og ættingja, skrifa jóla- kveðjur, undirbúa mat o.fl. Á þessu tímabili er áberandi mikil þörf til að halda í gamla siði. Siði sem fullorðnir einstaklingar muna eftir frá sínum bemskujólum. Við erum að leita að þeim fræjum sem sáð var í okkar sál í bernsku. Það er ákveðin stemming sem við leitum eftir. Stemming frá þeim tíma sem við vorum áhyggjulaus börn í skjóli foreldra. Ást þeirra og umhyggja speglar sig í gjörðum okkar sem fullorðinna einstaklinga. Þannig endurtekur sagan sig til næstu kynslóða. Þannig emm við, kæru systkin, ætíð í hlutverki sáðmannsins. Við megum aldrei gleyma því. Að vera leiðsögumanður um akur nútímabarnsins er vanda- samt verk. Til þess að rækta „fögur jarðarblóm" á þeim akri má enginn skjóta sér undan ábyrgð. Böm mega ekki upplifa heiminn afskiptalaus og án leiðsagnar geta þau ræktað með sér ranghugmyndir. En eigi þau sér gæslumann sem skýrir jafnóðum fyrir þeim það sem fellur í akur hugans geta þau staðist og upprætt rót sem gefur illan ávöxt. Megi Guð gefa ykkur öllum gleðileg kœrleiksrík jól. Guðnýflutti hugvekjuna í Aðventkirkjunni nú á aðventwmi. Uttl jóíofj áramót Jól og áramót í Landakirkju Aðfangadagur jóla, 24. desember Bænastund í Kirkjugarðinum kl. 14.00. Fólk komi með úíikerti til að tendra þau saman og bera að leiðum ástvina. Aftansöngur með hátíðarlögum kl. 18.00. Jólin ganga í garð í Eyjum. Jólanótt, 24. desember: Hátíðarhelgistund kl. 23.30. Jóladagur, 25. desember Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00. Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur jólalög frá kl. 13.40 og leikur með organleikara og kirkjukór í guðsþjónustunni. Annar dagur jóla, barnadagurinn, 26. desember Fjölskylduguðsþjónusta og skímir kl. 14.00. Litlir lærisveinar syngja, jólasaga, bæn og blessun. Jólahelgistund á Hraunbúðum kl. 15.10. Litlir lærisveinar syngja. Jólahelgistund á Heilbrigðisstofnuninni kl. 16.15, dagstofu 3. hæð. Litlir lærisveinar syngja. 3. dagur jóla, miðvikudagurinn 27. desember Jólatrésskemmtun og helgileikurkl. 16.30 í Safnaðarheimilinu. Nemendur úr 6. bekk Bamaskólans flytja helgileik. Litlir lærisveinar leiða söng og jólasveinar gætu óvænt rekið inn nefið. Kvenfélag Landakirkju sér um kaffið og gos oggóðgæti handa bömunum. Hljóðfæraleikarar á jólaballinu eru Osvaldur Freyr og Högni. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Gamlársdagur, sunnudagurinn 31. desember Aftansöngur með hátíðarlögum kl. 18.00. Nýársdagur, 1. janúar 2001 Hátíðarmessa kl. 14.00 með altarisgöngu og hátíðlegum söng. - Guð gefi þér gleðileg jól - Hvítasunnukirkjan Aðfangadagur Kl. 18.00 Jólahátíðin hefst við það að heyra Fagnaðarerindið. Jóladagur Kl. 15.00 Hátíðarsamkoma. Snorri Óskarsson talar. 2. jóladagur Kl. 15.00 Vér fögnum komu Frelsarans, með gleði og söng. Gamlársdagur kl 18.00 Öldin kvödd með vitnisburðum og ávörpum Nýársdagur Kl. 15.00 Hátíðarsamkoma, mun heilagur andi tala á þessari öld? Snorri Óskarsson talar. Samkomur okkar er öllum velkomið að sækja Hvítasunnukirkjan óskar öllum Vestmannaeyingum nœr og jjœr gleðilegra jóla ogfarsœldar á nýju ári, í Jesú nafni. Aðventkirkjan Laugardagur 23. desember Kl. 10.00 Biblíurannsókn. Jóladagur 25. desember Kl. 14.00 Hátíðarguðsþjónusta. Laugardagur 30. desember Kl. 10.00 Biblíurannsókn. Allir velkomnir. Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu Er ekkert rúm í gistihúsum (hinum kirkjunum) á aðfangadag? Komið í kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu. Kannski er það gripahús (íbúð) en það er samt hús Drottins. Heiðarvegi 62, niðri. Samkoma kl. 11.00 á aðfangadag.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.