Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Side 6

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Side 6
6 Fréttir Fimmtudagur 21. desember 2000 Bókvitið 'askcma Nýfæddir ?cr Vestmannaeyingar Ekki fyrir viðkvæmar sálir Ég vil byrja á því að þakka honum bróður mínum fyrir að skora á mig. Mér finnst mjög gaman að lesa en þykir verra að hafa ekki mikinn tíma til þess. Ég reyni þó alltaf að hafa eitthvað á náttborðinu til þess að glugga í. Oftast er það afþreyingarefni og ekki nrikið fræðilegt. Harry Potterer í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Við höfum nefni- lega öll gott af því að láta ímyndumar- aílið ráða ferðinni stundum. Bækumar eru eins og flestir vita um strák sem er nrikill galdramaður. Hann gengur í virtann galdraskóla, Hogwartsskóla og lendir þar í ýmsum ævintýrum. Þessar bækur hef ég verið að lesa fyrir krakk- ana mína í þriðja bekk. Stundum held ég reyndar að kennarinn hafl meira gaman af sögunni en bömin. Einnig dáist ég að þessum rithöfundi. Hún hafði ekki mikið milli handanna en fékk þessa frábæru hugmynd og kom henni í verk. Þorsteinn talaði um að ég hefði gaman af Stephen King og það er alveg satt. En nú er ég búin að finna annan höfund sem fæst meira við glæpi sem eru nær okkur í raunveru- leikanum. Hún heitir Patricia Corn- well og skrifar um réttarlækninn Kay Scarpetta. Hún fæst við morðmál af verstu gerð og lýsingarnar á óhugn- aðinum em all ýtarlegar! Ekki fyrir viðkvæmar sálir. Einnig hef ég uppgötvað rithöfund spennusagna sem heitir James Patter- Anna Lilja Sigurðardóttir er bókaunnandi vikunnar son. Þessi maður skrifaði söguna sem bíómyndin Kiss the girls er gerð eftir. Einnig frekar ógnvekjandi og ógeð- felldar lýsingar. Nú halda bæjarbúar líklega að ég lesi ekkert nema viðbjóð. En það er nú ekki satt. Ég fékk til dæmis í arf eftir afa minn nokkrar bækur úr Islenskum örlagaþáttum eftir Sverri Kristjánsson og Tómas Guðmundsson. Égeralltaf með eina slíka á náttborðinu. Mannlífs- lýsingamar í þessum bókum em alveg frábærar. Einnig hef ég gaman að því að lesa eina og eina frásögn í bók sem heitir Súpa jyrir sálina eftir Jack Can- field og Mark Victor Hansen. Þetta em frásagnir um mannlega reynslu og samskipti. Lifandi vísindi, Móðir og bam, Krossgátur og ýmsar jólauppskriftir er núna einnig að finna á mínu náttborði. Svo vona ég að Eyjabúar eigi eftir að fá góða bók í jólagjöf og njóta hennar vel. Að svo komnu vil ég nota tækifærið og óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. En á einhvem verður að skora. Ég ætla að skora á mág minn Björgólf Ingason. Hann veit svo margt um svo margt. Jólalög og Radiohead Jólasveirtar hafa sést á stjákli í bærtum að undartförnu. Hvað mest hefur borið á þremur í hóp sem farið hafa um bæinn og einnig verið í verslunum og dreift þar t ýmsu góðgæti. Sá hávaxnasti þeirra er Eyjamaður vikunnar. Fulltnafn? Hurðaskellir Grýluson. Fæðingardagur og ár? 29. febrúara.d. 1000. Fæðingarstaður? Rétthjá fyrstu stafkirkjunni í Vestmannaeyjum. Fjölskylduhagir? Ókvæntur og barnlaus, bý enn í foreldrahúsum ásamt tólf bræðrum. Menntun og starf? Útskrifaður frá Jóla- sveinaskólanum á Grænlandi sem útskrifað hefur 13 nemendur. Er um þessar mundir leiksoppur verkfalls framhaldsskólakennara en starfa sem jólasveinn, bæði sjálfstætt og eins fyrir hinar og þessar verslanir í bænum. Laun? Aðallega fólgin í gleði barnanna ogsvo vasapeningar frá mömmu. Bifreið? Aðallega þrírjafnfljótir, sauðskinnsskór á tveimur þeirra. Þegar mikið liggur við er notaður sleði af árgerð 1739. Helsti galli? Á það til að brjóta gler íhurðum efég skelli offast. Erlíka frekar morgunsvæfur. Helsti kostur? Gjafmildur. Þyki líka ágætur í umbroti, nongi og öðru snuddi á Fréttum. Uppáhaldsmatur? Allur þorramatur, svið, pungar, slátur og hákarl, hamborgarahryggur til hátíðabrigða. Verstimatur? Flatbökur og pylsur. Uppáhaldsdrykkur? Mysa og íslenskt vatn. Mamma bannar mér að drekka bjór sem mér finnst líka rosalega góður. Uppáhaldstónlist? Hvers kyns jólalög starfsins vegna. Svo held ég líka upp á Radiohead. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að gefa í skóinn. Og dunda mér við tölvur. Hvað erþað leiðinlegasta sem þú gerir? Að þrífa hellinn og þurfa að vakna snemma á morgnana. Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti? Kaupa mér vélsleða. Uppáhaldsstjórnmálamaður? ísólfur Gylfi Pálmason. Hann er svo líkur Stúfi bróður mínum. Uppáhaldsíþróttamaður? Steingrímur Jóhannesson. Hann er svo líkur Gáttaþef bróður mínum. Ertu meðlimur íeinhverjum félagsskap? Jólasveina- klúbbnum og nemendafélagi MR. Uppáhaldssjónvarpsefni? Jóladagatal sjónvarpsins, Friends og Strandverðir. Uppáhaldsbók? Jólagjafahandbók Frétta og Nong. Hvað metur þú mest í fari annarra? Að ég sé ekki vakinn snemma á morgnana. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Þegar fólk vekur mig fyrir hádegi. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Kalifornía. Hvert er þitt höfuðmarkmið í lífinu? Nú er stórt spurt. Að kæta börn og finna mér konu. Veistu um einhverja á lausu? Reyndar vil ég vekja athygli á smáauglýsingu frá mér í Fréttum í dag um það mál. Hvað þurfa sannir jólasveinar að hafa til brunns að bera? Góða skeggrót (ég stefni að henni) gott skap (ég stefni líka að þvl), gjafmildi (hana hef ég) og að geta vaknað á morgnana (að þvístefni ég líka í framtíðinni). Eitthvað að lokum? Gleðilegjól og gleðilega nýja öld. Hurðaskellir Grýluson er Eyjamaður vikunnar Þann 4. nóvember sl. eignuðust strák Margrét Rós Andrésdóttir og Guðjón Jónsson. Hann vó 14 merkur og var 50 sm að lengd. Drengurinn hefur fengið nafnið Daníel Helgi. Með honum á myndinni em bræður hans Guðbjöm og Andrés Egill. Fjölskyldan býr í Vestmannaeyjum. Ljósmóðir var Valgerður Olafsdóttir. Þann 11. nóvember sl. eignuðust strák Sigríður Guðmundsdóttir og Jens Karl Magnús Jóhannsson. Hann vó 14'/2 mörk og var 54 sm að lengd. Drengurinn hefur fengið nafnið Jóhannes Helgi. Með honum á myndinni er bróðir hans Armann Halldór. Fjölskyldan býr í Vestmannaeyjum. Ljósmóðir var Drífa Bjömsdóttir. Þann 14. nóvember eignuðust stúlku Kristín Jóna Guðjónsdóttir og Þráinn Hafsteinsson. Stúlkubamið var 14 merkur og 51 sm. Fjölskyldan býr í Hafanrfirði. Á döfinni 4* Desember 21. Jilaskemmtun í Sparisjóðtwm milli kl. 14.30 og 16.00. 21. Vetrarsólstöiur. 21. Hluthalalundur í Herjólli hf. í Hóskólanum kl. 10.00. 21. félagsfundur sjómanna í Jötni kl. 17 í Alþýðuhúsinu. 24. ■ 26. Jólahólíi í hverju húsi. Sji augl. um helgihald safnaia ó bls. 2. 26. Dansleikur með Dansi ó risum í Týsheimilinu kl. 23.00. 28. Bæjarstjórnarfundur í Listaskilanum kl. 18.00. 31. Síðasti dagur aldarinnar, loksins. Janúar 1. Morgunskíma nýrror oldor fyrir ouston Cyjar. 6. Crímuball lyverjo, en hvor? Það kemur í Ijós.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.