Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Qupperneq 14

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Qupperneq 14
14 Fréttir Fimmtudagur 21. desember 2000 Starfefraeðsludagar 8. og 9. bekkinga í grunnskólunum: Kynntu sér tæknistörf í Eyjum -og skiluðu mörgum verkefnum sem voru mörg athyglisverð Starfsfræðsludagar Barnaskólans voru haldnir fjórða sinn í núverandi mynd dagana 14., 15. og 18. desember. A hverju ári er krökk- unum fengið þema til að vinna eftir og að þessu sinni var þemað, Störf í Vestmannaeyjum sem tengjast tækni. Bekkjunum er skipt upp í hópa sem hver sitt verkefni og í lokin voru veittar viðurkenningar fyrir besta og frumlegasta verkefnið og bestu kynninguna. Helga Tryggvadóttir, námsráðgjafi, segir að starfsfræðsludagana sé skóla- starfið brotið upp þannig að nemendur geta einbeitt sér að verkefnunum. „Tilgangurinn er að krakkamir fái að kynnast atvinnulífinu og núna kynntu þeir sér störf í Vestmannaeyjum sem tengjast tækni. Um leið áttu þeir að átta sig á mikilvægi þeirra fyrir samfélagið Vestmannaeyjar," segir Helga. Dagskráin var þannnig að fyrsta daginn var verkefnið kynnt og vett- vangsferðir undirbúnar og að því loknu haldið út í fyrirtækin sem átti að kanna. Á föstudeginum tók við úr- vinnsla úr vettvangsferðunum og vom krakkamir hvattir til að láta ímynd- unaraflið ráða. Á mánudaginn var svo komið að því að kynna og sýna afraksturinn. Þar átti að segja frá hvað starfið felur í sér eða hvað fram fer í fyrirtækinu, menntunarkröfum og mikilvæginu fyrir Vestmannaeyjar. Þá átti að ræða við starfsmann og fá hann til að segja álit sitt á starfinu. Loks átti hópurinn að leggja mat á starfið og bæta því við sem honum þótti eiga heima í verkefninu. „Við fengum gesti, Friðrik Frið- riksson veitustjóri og Páll Marvin Jónsson forstöðumaður Háskólans í Vestmannaeyjum og Athafnaversins sögðu 8. bekk frá starfsemi sinna stofnana og Páll Zóphóníasson tækni- fræðingur og Davíð Guðmundsson í Tölvun, sögðu frá sínum fyrir- tækjum." Helga og kennaramir Andrés Sigur- vinsson, Bjöm Elíasson, Sigurhanna Friðþórsdóttir, Dóra Björk Gunnars- dóttir og Svanbjörg Oddsdóttir voru sammála um verkefnin hefðu verið mjög góð og ekki vantaði fmm- leikann. „Þetta hefur aldrei tekist eins vel og núna og var okkur virkilegur vandi á höndum að velja úr verkefnunum. Við urðum að meta hvort þau næðu að draga upp heildarmynd af starfseminni, gera grein fyrir menntunarkröfum og mikilvæginu,“ sagði Helga. í níunda bekk fengu Orri Amórs- son, Dorthy Lísa Woodland, Andri Eyvindsson, Olafur Þór Berry og Sigurbjörg Sigurbjömsdóttir viður- kenningu fyrir bestu kynninguna og þau vom einnig með besta verkefnið sem fjallaði um hugbúnaðargerð en þau höfðu heimsótt Tölvun. Frum- legust þóttu Kristjana Jónsdóttir, Helena Osk Ragnarsdóttir, Valgerður Erla Oskarsdóttir og Gunnar Friðberg Jóhannsson sem gerðu líkan af tölvu með handsnúnum skjá. Besta og frumlegasta verkefnið í áttunda bekk áttu Rúnar Einarsson, Brynjar Frímannsson, Benóný Þóris- son, Gísli Valur Gíslason og Birkir Einarsson sem gerðu líkan af veitukerfi hitaveitu Bæjarveitna. Besta kynningin var hjá Kára Yngvasyni, Baldri Einarssyni, Heimi Gústafssyni, Alex Daníel Dúasyni og Auðuni Elíassyni. LV ÁTTUNDU bekkingarnir voru ekki síður stoltir af sínum árangri en þar í hóp var engin stúlka. ÞESSIR krakkar í rnunda bekk fengu viðurkenningarskjöl fyrir góðan árangur á starfsfræðsludögunum. ÞANNIG leit það út líkanið af dreifíkerfi hitaveitunnar. KOM sá og sigraði. Mikið var um dýrðir í Landakirkju sem var full út dyrum á árlegum jólatónleikum kórs kirkjunnar. Einsöngvari með kórnum var Sigrún Hjálmtýsdóttir og fékk hún feikigóðar undirtektir eins og alltaf þegar hún kemur fram. Stjórnandi kórsins er Guðmundur H. Guðjónsson. Nýr fram- kvæmdastjóri ísfélagsins Stjórn ísfélags Vestmannaeyja hf. hefur ráðið Ægi Pál Friðbertsson, viðskiptafræðing, sem fram- kvæmdastjóra félagsins og tekur hann við starfinu í janúar nk. Ægir Páll útskrifaðist sem við- skiptafræðingur frá Háskóla íslands árið 1991. Hann starfaði hjá Frosta í Súðavík á námsárum sínum, m.a. sem skrifstofustjóri og frá 1990 til 1991 var hann stjómarformaður Sparisjóðs Súðavíkur. Ægir Páll starfaði hjá íslandsbanka hf. frá 1992 til 2000, m.a. sem viðskiptastjóri sjávarútvegsfyrirtækja í fyrirtækja- þjónustu bankans en undanfama mánuði hefur hann verið fjármála- stjóri Samvinnuferða Landsýnar hf. Ægir Páll er 34 ára, kvæntur Huldu Pétursdóttur og eiga þau fjögur böm. Frá andláti Sigurðar Einarssonar, aðaleiganda og förstjóra ísfélagsins, hefur Jóhann Pétur Andersen gegnt starfi íramkvæmdastjóra tímabundið. Hann mun hverfa aftur til fyrri starfa sem yfirmaður uppsjávarsviðs.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.