Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Page 19

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Page 19
Fimmtudagur 21. desember 2000 Fréttir 19 það sér vel. En sjómennimir komu ekki með. þeir urðu eftir til að sinna sínu starfi og ég man enn þegar við konumar stóðum einar á bryggjunni með bömin og þurftum að sjá um hlutina. Þar kom kannski gleggst fram hve hlutskipti sjómannskonunnar er og hefur verið frábmgðið hlutskipti annarra kvenna. Það var mikið stríð að standa í öllu því sem gosinu fylgdi, það þurfti ekki bara að flytja búslóðina suður heldur lfka allt sem við kom útgerðinni, veiðarfæri og annað. Til stóð að bæði Leó og Þómnn lönduðu í Grindavík en svo lenti það í einhveiju pexi og úr varð að Leó landaði sínum afla í Hraðfrystihúsið á Eyrarbakka en Þómnn hjá Meitlinum í Þorlákshöfn. Það gekk ótrúlega vel þessa vertíð, miðað við allt það umrót og erfiðleika sem gosið olli og Sigurjón varð aflakóngur á vertíðinni á Þómnni með 872 tonn. Leó var með 637 tonn og í eitt skiptið kom Óskar með 62 tonn á honum til Eyrarbakka. Aldrei hafði annar eins afli borist þangað af einum bát í einum róðri. Við fluttum aftur til Eyja í desember 1973. Þá var dimmt yfir, ekki beint jólalegt, og svarti liturinn ansi ráðandi á öllu. En þetta ár held ég að augu mín hafi opnast fyrir því hve gott var að búa í Vestmannaeyjum, t.d. hvað höfnin okkar var langtum betri en flestar hafnimar uppi á landi. Það var aldrei spuming um annað en að við flyttum aftur til Eyja og mikið var ég þakklát og ánægð þegar ég var aftur komin heim." Við vorum álltaf afskaplega náin Hvencer lést Oskar? „Hann lést 21. desember 1992. Hann hafði verið kransæðasjúklingur í mörg ár og átti margar innlagnir vegna þess að baki. Það var því alltaf vitað við hveiju mátti búast en engu að síður var ég ekki viðbúin þegar hann kvaddi. Við vorum í Reykjavík í íbúðinni okkar og daginn áður höfðu verið gestir hjá okkur, Baldvin Gíslason og Einar í Betel, ásamt fleira góðu fólki. Svo næstíi dag veiktist hann upp úr hádegi. Eg hringdi í Þómnni, dóttur okkar, sem er hjúkrunarkona. Hún kom og hringdi síðan í sjúkrabíl og við fórum upp á Borgarspítala þar sem Óskar var lagður inn. Við sátum hjá honum fram eftir kvöldi, hann var með fulla rænu og allt virtist vera í lagi. En svo fékk hann kast um FJÖLSKYLDAN saman. Myndin tekin á jólum 1986. nóttina sem varð hans síðasta." Saknarðu hans enn? „Hvað heldurðu? Við vomm alla tíð afskaplega náin og eítir að hann kom í land vomm við mikið saman. Til dæmis héldum við upp á silfur- brúðkaupsafmælið okkar úti á Majorkajtar sem við settum upp nýja hringa. Óskar hafði tapað sínum hring fyrir nokkmm ámm úti í sjó svo að við settum aftur upp hringana, rétt eins og uppi við Saltaberg í gamla daga. Þann hring ber ég enn. En við náðum ekki að halda upp á gullbrúðkaupið okkar. Við ferðuðumst líka mikið saman. Eg fór einu sinni í siglingu með honum, til Englands. Þar var gaman og margt spaugilegt kom upp á eins og þegar hann týndist í London, missti af lestinni. Reyndar var ekkert gaman að því meðan á því stóð en oft var hlegið að því síðar. Það var alltaf líf og fjör í kringum Óskar, hann var hrókur alls fagnaðar, spaugsamur og hafði mest gaman af þessum ófömm sjálfur. Einu sinni sigldum við á Þómnni til Hollands þar sem aflinn var seldur. Söluverð aflans var lagt inn í banka og svo bjuggum við á hóteli þama í grenndinni. Við vorum á bíl og einn morguninn ákvað Óskar að fara í bankann og taka út peninga. Eftir góða stund kemur hann til baka og segir: „Þóra mín, ég held ég sé orðinn eitthvað mglaður, ég finn ekki bank- ÞÓRUNN Sveinsdóttir VE 401, nýjasta skip útgerðarfélagsins sem heitir Ós hf., sama nafni og var á húsinu sem Þórunn Sveinsdóttir, móðir Óskars, bjó í á Eyrarbakka. ann. Þú verður að koma með mér.“ Eg gerði það og við keyrðum þessa leið að bankanum, leið sem við þóttumst þekkja. En þama var bara enginn banki, það var búið að rífa hann. Okkur leist nú ekki beint á blikuna en fómm og höfðum tal af umboðsmanninum. Hann tjáði okkur að reyndar væri búið að rífa bankann en starfsemin hefði verið flutt í annað -JÁ, það veit Guð, að ég er sátt við lífið. Ég fékk til dæmis alltaf alla rnína sjómenn heila heim og fyrir það er ég þakklát. húsnæði. Þetta hafði láðst að segja okkur og satt best að segja létti okkur bara nokkuð þegar við komumst að því að peningamir okkar höfðu ekki horfið með bankanum sem rifinn var. Við fómm líka í margar frábærar ferðir, til Ríó, Kenýa, Bandaríkjanna, um Karabíska hafið og svo til Evrópu, til Noregs, Skotlands og margoft til London. Við höfðum bæði gaman af að ferðast og minningar frá þessum ferðum em ógleymanlegar." Góður afrakstur Ertu sterkt tengd þinni fjölskyldu? „Já, ég held það. Ég hef mjög gott samband við bömin. þau em sjö tals- ins, bamabömin eru 17 og lang- ömmubömin em orðin 16. Ég segi oft að það sé ágætis afrakstur af þessu hjá okkur Óskari. Bömin eru líka mjög góð við mig og bjóða mér oft í mat. Aftur á móti er ég sjálf orðin óttalega löt að bjóða þeim í mat.“ Ertu trúuð? „Ég er ekki kirkjurækin en ég er trúuð. Móðir mín var mjög trúuð kona og það er Guðbjörg systir mín líka. Og ég leita oft til Guðs. Stund- um finnst mér líka að Óskar standi á bak við það ef eitthvað gengur vel hjá mér.“ Hvernig gengur lífið fyrir sig núna? Ertu aldrei einmana? „Ég var óskaplega eirðarlaus Iengi eftir að Óskar dó. Ég var á sífelldu flakki milli Reykjavíkur og Vest- mannaeyja. Svo varð það mér til bjargar að ég tók að mér að skipu- leggja það verk að koma legsteini á gröf langafa míns, séra Sveinbjamar Guðmundssonar, prests í Holti. Sú vinna lenti að miklu leyti á mér og gerði mér mjög gott. Þetta sýndi mér að maður verður að hafa eitthvað fyrir stafni og ég hef gætt þess síðan að hafa alltaf nóg að gera. Til dæmis sökkti ég mér niður í ættfræði af miklum krafti og hef líka verið að punkta niður hitt og þetta sem á dagana hefur drifið. Svo fór ég í ferð með Félagi eldri borgara í sumar og það var alveg yndislegt. Og á hverju ári fer ég til Kanaríeyja." Minnir mig á fyrsta tréð okkar Óskars Ertu sátt við lífið? „Svarar ekki allt gamalt fólk því játandi? Þegar við Öskar vorum að kynnast, fór ég í kaupavinnu í Borgar- fjörðinn en hann var ráðinn á sfid. Hann sagði við mig nokkrum árum seinna: „Þóra, veistu að það munaði engu að ég hætti á bátnum og færi á eftir þér vestur. Ég ætlaði ekki að missa þig en var svo hræddur um að missa þig í sveitastrákana." Það var okkar beggja gæfa að fá að eyða ævinni saman. Þetta var oft streð en við vorum samhent í lífinu. Hann var gestrisinn og bauð oft kunningjum sínum heim upp á glas og aldrei varð neitt vesen út af því. Við vorum að mörgu leyti ólík, hann var ntikill skap- maður, harður og ákveðinn en gat líka verið allra manna blíðastur. Og ég fann alltaf hvað honum þótti vænt um mig. Já, það veit Guð, að ég er sátt við lífið. Ég fékk til dæmis alltaf alla mína sjómenn heila heim og fyrir það er ég þakklát.” Hlakkarðu tiljólanna? ,Já, ég hlakka mikið til jólanna. Bömin mín og íjölskyldan hafa verið mér mikill styrkur eftir að Óskar féll frá, bæði um jól sem og aðra daga. Og systur mínar, þær Björg og Guð- björg, ætla að koma núna og vera hjá mér um jólin. Við höfum alltaf verið mjög samrýmdar systurnar og það hefur líka styrkt mig mikið. „Veistu hvað,“ segir Þóra og bendir á lítið og fallega skreytt jólatré sem stendur á borði í stofunni. „Ég losaði mig við stóra tréð sem ég átti og fékk mér svona lítið í staðinn. Þetta jólatré minnir mig á íyrsta tréð sem við Óskar eignuðumst." Sigurg.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.