Fréttir - Eyjafréttir - 01.11.2001, Page 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 1. nóvember2001
Landakirkja
Fimmtudagur 1. nóvember
Kl. 9.00. Fermingarmót í
Landakirkju allan daginn. Mót-
inu lýkur með kvöldvöku kl.
20.00 og helgistund sem ætluð
er fermingarbörnum og for-
eldrum þeirra. Mömmumorg-
unn fellur niður á fimmtudag, en
æfing Hátíðakórs Vest-manna-
eyja verður í sal Tón-
listarskólans á venjulegum tíma.
Sunnudagur 4. nóvember
Kl. 11.00. Barnaguðsþjónusta
með söng, leik og lofgjörð.
Guðfræðingamir Karitas Krist-
jánsdóttir og Ingólfur Hart-
vigsson leiða stundina, en þau
eru hér í starfsþjálfun.
Kl. 14.00. Messa með altaris-
göngu. Allra heilagra messa.
Kveikt á kertum og beðið fyrir
minningu allra þeirra sem látist
hafa síðastliðna 12 mánuði
samkvæmt prestsþjónustubók
Landakirkju. Auk þeirra taka
prestarnir fáslega niður nöfn
þeirra sem fólk vill að verði
nefndir í bæninni.
Kaffisopi og spjall á eftir í
Safnaðarheimilinu.
Kl. 20.00. Æskulýðsfundur í
Safnaðarheimilinu. Ækulýðs-
félag Landakirkju-KFUM&K.
Mánudagur 5. nóvember
Kl. 17.30. Æskulýðsstarf fatl-
aðra, eldri hópur.
Kl. 20.00. Vinnufundur í
Kvenfélagi Landakirkju.
Þriðjudagur 6. nóvember
Kl. 16.30. Kirkjuprakkarar.
Kirkjustarf 6-9 ára krakka.
Kl. 17.30. TTT - kirkjustaif 10-
12 ára. Pizzufundur.
Miðvikudagur 7. nóvember
Kl. 11.00. Helgistund á
Hraunbúðum. Allir velkomnir.
Kl. 20.00. Aglow fundur í
Safnaðarheimilinu.
KI. 20.00. Opið hús unglinga í
KFUM&K lrúsinu við Vest-
mannabraut.
Fimmtudagur 8. nóvember:
Kl. 10.00. Mömmumorgunn.
Hvítasunnukirkjan
Fimmtudagur
Kl. 20:30 Biblíufræðsla.
Föstudagur
GOSPELTÓNLEIKAR
í Höllinni í Löngulág,
sjá auglýsingu.
Laugardagur
Kl. 20:30 Gospelkvöld,
sungið og leikið í léttri
sveillu, Guði til dýrðar.
Allir velkomnir.
Sunnudagur
Kl. 15:00 Samkoma.
Mikill söngur og gleði með
þátttöku gospelhópsins
úr Reykjavík.
Allir hjartanlega velkomnir.
Þriðjudagur
Kl. 17.00 KRAKKAKIRKJAN
Gleði, gaman og alvara fyrir öll
börn.
Aðvent-
KIRKJAN
Laugardagurinn 3. nóventber
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Allir velkomnir.
BÆNDURNIR. klæddir eins og hæfir stéttinni, Magnús og Einar.
Bændaglíma GV:
Einar í Heiðarbæ stóð uppi sem sigurvesari
Um síðustu helgi var eitt at-
hyglisverðasta mót sumarsins, sjálf
bændaglíman. Loks tókst að halda
keppnina sem tvívegis hefur verið
frestað.
Bændur voru Einar Ólafsson og
Magnús Kristleifsson. Alls mættu 56
keppendur til leiks, 28 í hvoru liði og
kepptu tveir og tveir saman eftir Texas
scramble kerfi. Hart var barist, enda
mikið í húfi, en tapliöið þjónaði
sigurvegurunum til borðs um kvöldið.
Lið Heiðarbæjar-Einars sigraði lið
FjallaManga með 24 punktum gegn
18. Bændur vilja þakka öllum hjúum
sínum fyrir hetjulega baráttu.
Um helgina er svo lokamót
sumarsins en þá er 18 holu punkta-
keppni og verða veitt verðlaun fyrir
efstu þrjú sætin ásamt nándarverð-
launum. Mótið hefst klukkan lOoger
mótsgjaldið 1500 krónur. Nú er um
að gera fyrir kylfinga að fjölmenna
enda er þetta síðasta tækifærið jretta
árið að spila á sumarflötum vallarins
en þeim verður lokað að keppni
lokinni.
Laugardaginn 10. nóvember verður
svo nóg að gera þegar vinnudagur
golfara fer fram og um kvöldið verður
herrakvöld GV en sérstaklega er tekið
fram að aðgangur hunda og kvenna er
bannaður.
Knattspyrna: Birkir ólöglegur með ÍBV?
KSÍ hafði ekki
samband við ekkur
-segir formaður knattspyrnudeildar um fullyróingu
framkvæmdastjóra sambandsins um að hann hafi látið ÍBV
vita af þeim möguleika að Birkir gæti ekki leikið með ÍBV
næsta sumar eftir að hann skipti yfir í Stoke
Birkir Kristinsson markvörður
ÍBV gerði nýlega stuttan samning
við Stoke City og var á vara-
mannabekknum í tveimur leikjum
vegna meiðsla markvarða liðsins.
En spurningar hafa vaknað hvort
Birki sé heimilt að spila með IBV
næsta suinar því samkvæmt nýjum
aljtjóðlegum félagaskiptareglum
mega félagaskipti milti landa aðeins
fara frani einu sinni á ári.
Samkvæmt heimildum blaðsins var
forráðamönnum ÍBV gert viðvart af
KSI með nýju reglurnar þegar Birkir
var lánaður til Stoke en Asmundur
Friðriksson sagði að sú tilkynning
hafi aldrei borist til ÍBV. „Okkur
Jóhanni Inga framkvæmdastjóra brá
nokkuð þegar við lásum það sem haft
var eftir Geir Þorsteinssyni að KSI
hefði varað okkur við enda hefðum
við aldrei skrifað upp á lánssamning
ef svo hefði verið. Það vildi svo
skemmtilega til að við Jóhann vorum
báðir staddir í Herjólfi daginn eftir að
Birkir fór til Stoke og hvorugur hafði
heyrt neitt frá KSI. Annars held ég að
þar sem þessar reglur eru nýtilkomnar
þá munum við sleppa með skrekkinn
og málið leysist af sjálfu sér. Birkir er
núna að skoða málið úti í Stoke en
Minnsta bjórhátíðin
stærri en margan grunar
Bjórhátíðin á Mánabar, sem vertarnir í hógværð sinni, kalla minnstu
hjárhátíð í heimi, fór fram um helgina, töstudag og laugardag.
Mikið var um dýrðir og aðsókn góð að sögn Sigfúsar Gunnars og
Tryggva Más sem reka Mánabar. Veigarnar runnu í stríðum
straumum og ekki minna en einn lítri í boði. Nokkrir hljóðfæraleikarar
mættu og skenimtu gestum og þar fór Rúnar Karlsson fremstur í
flokki. Vil ja þeir þakka góðar viðtökur vonast til að sjá enn fleiri á
næsta ári.
RÚNAR þótti standa sig vel á gítarinn.
SUNGIÐ og trallað á bjórhátíðinni.
ÞAÐ yrði niikið áfall fyrir ÍBV
ef Birkir verður ekki í ntarkinu
næsta sumar.
annars er staðan í hans máli sú sama.
Það má reyndar segja það sama um
alla leikmennina sem eru með lausa
samninga hjá okkur að það hefur lítið
breyst, Kjartan er enn í fríi, Hjalti fór
á sjóinn og Hlynur er enn að hugsa sig
um en ég hef trú á því að málin eigi
eftir að skýrast áður en langt um
líður," sagði Asmundur.