Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 27.02.2003, Qupperneq 7

Fréttir - Eyjafréttir - 27.02.2003, Qupperneq 7
Fimmtudagur 27. febrúar 2003 Fréttir 7 Var útboðið á Herjólfi skrípaleikur settur á svið af Vegagerð og samgönguráðherra? Greiðsla til Samskipa hefur tvöfaldast á tveimur árum SAMKVÆMT upplýsingum frá Vegagerðinni fóru 329 milljónir króna í rekstur Herjólfs á síðasta ári. Þar af 188,4 milljónir í afborganir og vcxti, 3,7 milljónir króna í tryggingar, 12,5 milljónir í annan kostnað sem rakinn er til endurnýjunar á björgunarbátum og ýmis vinna fyrir samgönguhóp ráðherra. Því er ljóst að Samskip fékk 124,4 milljónir króna í rekstrarstyrk á síðasta ári sem er 60 milljónum króna mcira en upphaflcgt tilboð gerði ráð fyrir en þess ber að geta að ferðum Herjólfs fjölgaði mikið á árinu. Enn ó ný hafa málefni Herjólfs verið í umræðunni og nú vegna viðaukasamnings um rekstur skipsins milli Sam- skipa og Vegagerðarinnar. Reyndar áfti ekkert að opin- bera samninginn en bæjar- yfirvöld í Eyjum leituðu til úrskurðarnefndar um upp- lýsingamál til að fá samn- inginn og féll úrskurður þeim í vil í lok janúar. Samningur- inn var gerður í október. Það er ýmislegt fróðlegt sem kemur fram í viðaukasamn- ingnum sem rakið er hér að neðan en einnig þótti rétt að rifja upp hvernig málin hafa þróast. Tilboð Samskipa langt undir kostnaðaráætlunum Þegar tilboð voru opnuð í rekstur Herjólfs á sínum tíma voru menn yfírleitt mjög hissa á því hversu mikill munur var á tilboðum Herjólfs hf. og Samskipa. Þeir síðamefndu buðu í reksturinn 64 milljónir króna á ári, eða 192 milljónir þau þrjú ár sem upp- haflega útboðið náði til. Raun- kostnaður 1999 var rúrnar 70 milljónir króna. Herjólfurh/fbauðafturámóti í reksturinn rúmar 108 milljónir á ársgmndvelli eða 325 milljónir króna. Mikið var Ijallað um kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar næstu daga og vikur eftir að tilboð vom opnuð og hvaða forsendur lágu að baki 222 milljón króna tölunni sem þeir gáfu upp. Ekki fékkst það gefið upp þar sem litið var á þessa áætlun sem innanhúsplagg hjá Vegagerðinni. Stjóm Herjólfs hf. var ósátt við þessa niðurstöðu og heimtaði að Vegagerðin gerði plaggið opinbert. Það var gert um síðir. Fækkun í áhöfn og notkun svartolíu spamaðaráform Kom þá í ljós að hugmyndir Vega- gerðarinnar um spamað í rekstri vom m.a. á kostnað þjónustu þar sem gert var ráð fyrir fækkun í áhöfn og notkun svartolíu í stað gasolíu. Herjólfur hf. hafði farið fram á það við Sigl- ingastofnun að fá að fækka í áhöfn en alltaf fengið synjun þar um og aldrei hafði áður komið til greina að nota svartolíu. Vom því komnar háværar raddir um að stjóm Herjólfs hf. haft verið höfð að fífli í útboðinu. Stjóm Herjólfs kærði útboðið til kæmnefndar útboðsmála þar sem hún taldi kostn- aðaráætlun Vegagerðarinnar ekki standast útboðsgögnin. Kæran var svo dregin til baka þegar ljóst var að búið væri að semja við Samskip um rekst- urinn. Fljótlega fækkað um einn vélstjóra Magnús Jónasson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Herjólfs hf., var þung- orður í garð samgönguráðherra og Vegagerðarinnar í viðtali við Fréttir í nóvember 2000. Sagði hann ráðherra hafa svikið þá og beinlínis logið að þeim varðandi hvenær gengið var frá bindandi samkomulagi milli Vega- gerðarinnar og Samskips um rekstur skipsins. Þegar nær dró áramólum varð mönnum ljóst að Samskip tækju við rekstri skipsins. I lok nóvember var gengið frá sölu Vestmannaeyja- bæjar á hlut í Herjólfi hf. til ríkisins fyrir 55 milljónir króna. Ennþá var kurr í Eyjamönnum með niðurstöðu mála og fannst mörgum þetta léleg framkoma. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra var yfirleitt miðpunktur gagn- rýninnar og svaraði hann fyrir sig í heilsíðugrein í Fréttum 7. desember 2000. Þar fór hann yftr málin og gagnrýndi stjóm Herjólfs og þá aðallega hvemig þeir stóðu að sínum málum og taldi hann það stjóm og framkvæmdastjóra Herjólfs hf. til vansa. Nánast allir starfsmenn á Herjólfi voru endurráðnir en fljótlega var fækkað um einn vélstjóra um borð. I framhaldi af því var fækkað um einn í þjónustu og um leið var efri saldnum lokað nema í undantekinga tilfellum. Gjaldskrá hækkar og ferðum ijölgar I febrúar á síðasta ári var svo samið um fleiri ferðir skipsins en jafnframt um hækkun á gjaldskrá, frekari fækkun í áhöfn og svo var skipið „minnkað" úr 500 farþega ferju niður í 300 farþega ferju. Þetta fór illa í marga sem mótmæltu þessu og töluðu um skerðingu á þjónustu. Eins hefur fólk gert athugasemdir við opnunar- tíma afgreiðslu Herjólfs en áður var skrifstofan opin frá 7.30 til 17.00 en í dag er hún opin frá 7.30 til 16.00. Þetta er þó samkvæmt útboðsgögnum þar sem talað var um að hafa skrifstofu opna frá 8 til 16 eða 9 til 17. Gjaldskrá Heijólfs hækkaði um þrett- án prósent á einu bretti og á sama tíma hafði fjöldi farþega vaxið verulega enda sífellt færri sem höfðu efni á að ferðast með flugi. Hvað kostar hver aukaferð? Samskip buðu 145 þúsund krónur í hverja ferð en Herjólfur hf. verðlagði hverja ferð á 245 þúsund krónur. Herjólfur hafði auk þess gert tilboð í aukaferðir upp á 350 þúsund krónur. í nýjasta viðaukasamningnum er gert ráð fyrir að hver aukaferð kosti rúm- lega 800 þúsund krónur og hljóta menn að spyrja sig hvað hafi breyst á þessum tveimur -árum sem réttlæti slíkar hækkanir. Samkvæmt upplýsingum frá Vega- gerðinni fóru 329 milljónir króna í rekstur Herjólfs á síðasta ári. Þar af 188.4 milljónir í afborganir og vexti, 3,7 milljónir króna í tryggingar, 12,5 milljónir í annan kostnað sem rakinn er til endurnýjunar á björgunarbátum og ýmis vinna fyrir samgönguhóp ráð- herra. Því er ljóst að Samskip fékk 124.4 milljónir króna í rekstrarstyrk á síðasta ári sem er 60 milljónum króna meira en upphaflegt tilboð gerði ráð fyrir en þess ber að geta að ferðum Heijólfs fjölgaði mikið á árinu. Einingaverð fyrir aukaferðir sem samið var um í fyrra, alls 57 ferðir hefur ekki fengist uppgefið en það er samkvæmt upphaflega tilboðinu. Ef notað er einfalt reiknidæmi, þ.e. hversu mikið Vegagerðin borgaði aukalega til Samskipa í fyrra þá er einingaverðið rúmlega milljón á ferð. Þetta er þó líklega mikil einföldun en þar sem ekki fást neinar tölur upp- gefnar verður að geta í eyðumar. Rekstur skipsins 150 milljónir fram úr áætlun Þó er hægt að segja að reksturinn er að kosta miklu meira en áætlanir Vega- gerðarinnar gerðu ráð fyrir, þrátt fyrir að nú var skipið keyrt um tíma á svartolíu en því var hætt nýlega og það hefur fækkað um tvo í áhöfn. Enn- fremur hefur aukinn hluti þrifnaðar fallið á starfsfólkið um borð á móti minni aðkeyptri þjónustu. 64 millj- ónimar sem Vegagerðin ætlaði að borga á hverju ári em nú orðnar 124 og þegar samningstíminn er gerður upp hefur reksturinn kostað ríkið 150 milljónum króna meira en áætlanir gerðu ráð fyrir. Auðvitað hafa auka- ferðimar kostað sitt en spumingin hlýtur að vera einingaverðið. Upphaflega tilboð Herjólfs hf. var upp á 300 þúsund krónur á hverja aukaferð og aukaferðimar 57 sem samið var um í fyrra um leið og fargjöld hækkuðu hefði kostað ríkið rúmar 17 milljónir. 1 staðinn eru borgaðar 60 milljónir og í nýjasta viðaukasamningnum kostar hver aukaferð 8(X) þúsund krónur, auk þess er 5 milljóna króna eingreiðsla á ári vegna breyttra forsendna og þá sérstaklega tekið fram 30% aukning ferða. Það má velta þeirri spurningu upp hver ástæðan sé fyrir eingreiðslu vegna breyttra forsendna, nú hefur farþegum fjölgað mikið á tímabilinu og þar af leiðandi tekjur Samskipa af Herjólfi sem koma þá væntanlega á móti. Miðað við tilboð Herjólfs hf. gætum Eyjamenn fengið 200 auka- ferðir fyrir sama pening og verið er að borga Samskipum fyrir 57 ferðir. Það hefði kostað ríkissjóð 108 milljónir króna árlega að bjóða upp á tvær ferðir alla daga, allt árið miðað við það sem Heijólfur hf. bauð í aukaferðir. Miðað við nýjasta viðaukasamning, þar sem hver aukaferð er verðlögð á rúmlega 800 þúsund krónur, myndi það kosta ríkissjóð 288 milljónir á ári að bjóða upp á þá þjónustu með samningnum við Samskip. Ekki skylt að fara eftir klukkan þrjú Veðrið hefur verið heldur hvimleitt undanfamar vikur og hefur það bitnað á áætlun Herjólfs sem tvívegis á skömmum tíma hefur þurft að fella niður ferð. I útboðsgögnunum er fjallað sérstaklega um frestanir ferða og segir þar að falli ferð niður vegna veðurs eða af öðrum óviðráðanlegum orsökum skuli ferð farin eins fljótt og unnt er, svo framarlega sem íyrirsjáan- legt er að ferðinni verði lokið áður en næsta ferð samkvæmt áætlun á að hefjast. Ennfremur segir að Sam- skipum sé þó ekki skylt að sigla af stað eftir klukkan 15.00. Ekkert er minnst á aukaferð skips- ins ef ferð fellur niður sem er fullbókuð. T.a.m. má taka dæmi um sunnudagsferð sem fellur niður vegna veðurs en þá daga er oftast erfiðast að fá far fyrir bifreiðir enda tvær ferðir á föstudögum en aðeins ein til baka á sunnudeginum. Ferðin fellur niður og talsvert pantað á mánudeginum. Því er fyrirséð að farþegar sem áttu pantað á sunnudeginum komast jafnvel ekki heim fyrr en á þriðjudeginum þar sem ekkert er minnst á að bæta upp fyrir þær ferðir sem falla niður, til dæmis með því að fara tvær ferðir á mánu- deginum. Gjaldskrá hækkar nú árlega 1 viðaukasamningnum segir að gjald- skrá hækki í samkomulagi við bæjarstjórn Vestmannaeyja og sam- kvæmt vísitölu verksamnings 1. janúar ár hvert. 1 svari Vegagerðar- innar við spumingum áður en útboðið var klárað kemur fram að ekki sé heimilt að hækka fargjöld án sam- þykkis verkkaupa og þurfi að sækja um það með þriggja mánaða fýrirvara. í útboðsgögnum var verð fyrir fullorðna 1500 krónur en hefur síðan hækkað upp í 1700 krónur. Þann 1. janúar mun svo gjaldskráin hækka samkvæmt vísitölu verksamnings. Nú á að endurskoða einingaverðið Eins er gert ráð fyrir endurskoðun á einingaverði verksamnings vegna breytinga í rekstrarumhverfi, talin eru upp hækkun olíuverðs, kjarasamn- inga, hækkun á aðkeyptri þjónustu, þjónustugjöldum og tryggingum sem vísitala verksamningsins nærekki til. Þetta er þvert á upphaflegar upplýs- ingar frá Vegagerðinni sem tekur það skýrt fram í svörum við fyrirspurnum Samskips og Heijólfs hf. að almennar verðhækkanir og álögur hins opinbera verði ekki bættar. Hverju náðu menn fram með útboði? Nú er komin tveggja ára reynsla á rekstur Herjólfs undir merkjum Sam- skipa og þrátt fyrir ýmsa byrj- unarörðuleika hefur reksturinn gengið nokkuð vel og almenn ánægja með þá þjónustu sem fyrirtækið veitir. Aftur á móti hljóta að vakna spum- ingar um aðkomu Vegagerðarinnar og samgönguráðherra að þessu máli. Lítur allt út fyrir að spamaðurinn sem átti að ná fram hafi ekki skilað sér, heldur þvert á móti hafi kostnaður við rekstur Herjólfs hækkað umtalsvert. Um leið hafa tekjur Samskipa aukist vemlega, enda eins og Björgvin Amaldsson fyrrverandi rekstrarstjóri Samskipa í Vestmannaeyjum benti á í viðtali við Fréttir nýlega, jókst farþegafjöldi um 25.000 manns á milli ára. Auðvitað þýddu fleiri ferðir einnig meiri launakostnað en spuming hvort gríðarleg aukning farþega hafi ekki „dekkað" þann kostnað. Einnig hafa fargjöld hækkað talsvert og munu hækka árlega héðan í frá í sam- komulagi við bæjaryfirvöld í Eyjum. Upphafleg hugsun Vegagerðarmanna og þá ráðherra með útboði á ferjuleiðinni hlýtur að hafa verið spamaður fyrir ríkissjóð og sú hagræðing sem fengist með því að einkaaðilar rækju ferjuna. Svo virðist sem það hafi mistekist hrapallega og þegar rekstur Heijólfs fer aftur í útboð árið 2005 má búast við að menn endurskoði hlutina að einhveiju leyti. svenni @eyjafrettir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.