Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 15.05.2003, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 15.05.2003, Blaðsíða 6
6 Fréttir Fimmtudagur 15. maí 2003 Menningarmiðstöð í Nýja hrauninu: Hugmyndir sem vert er að skoða Fyrir skömmu skrifuðu Ingi Sig- urðsson bæjarstjóri og Tómas Ingi Olrich mcnntamálaráðherra undir samning um byggingu menningar- húss í Vestmannaeyjum. Ríkis- sjóður leggur til 260 milljónir króna og afganginn, 140 milljónir, á bæjarsjóður að koma með. Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvar og hvernig sú bygging verður en margir hafa lýst þeirri skoðun sinni að rétt sé að líta vel á hugmyndir um byggingu menningarhúss inni í hrauninu. Það er raunar einkennilegt að einn merkasti atburður síðustu aldar í Islandssögunni skuli ekki hafa fengið meira vægi hjá yfirvöldum en raun ber vitni. Nú, þrjátíu árum eftir Heima- eyjargosið, er enn ekkert gosminjasafn komið upp. Hugmyndin um menn- ingarmiðstöð inni í hrauninu er upphaflega komin frá Ama Johnsen fyrrum alþingismanni og vann hann að gerð skýrslu um málið sem Pétur Jónsson landslagsarkitekt, ARKIS ehf, arkitektar og ráðgjöf, gerðu í sam- vinnu við Vestmannaeyjabæ fyrir Ijómm árum. í sterkum tengslum við menningu og sögu Saga Vestmannaeyja er samofin gos- sögu landsins og minnir á stöðu Islands sem er eitt af virkustu eldfjalla- svæðum jarðarinnar. Menningarhús í hrauninu við miðbæ Vestmannaeyja yrði einstakt og ætti hvergi sinn líka. Mannvirkið verður í sterkum tengsl- um við menningu, sögu og jarðfræði Vestmannaeyja og landsins alls. Miðpunktur byggingarinnar er hið gamla Heimatorg sem fær nú hlutverk á ný sem miðstöð menningarstarfs íbúa í Eyjum. Þar mun fjölnota salur bjóða upp á möguleika sem tónlistarsalur, fyrir ráðstefnur, til sýningarhalds og sam- komur aðrar. Út frá Heimatorgi til hvorrar handar er gosminjasafn og náttúrugripasafn. Gosminjasafnið yrði staðsett að hluta í Rafstöðvarbygg- ingunni sem nú fengi nýtt hlutverk en þar yrði fræðslu- og sögusetur um gosið í Eyjum árið 1973. Náttúrugripasafnið er fræðslusetur Gosminjasafnið verður staðsett í hluta af grunni gömlu rafstöðvarinnar við Heimatorg. Reiknað er með að framhlið stöðvarinnar verði endurbyggð og myndi þannig andlit safnsins út í miðrými Heimatorgs, beint á móti tanki Náttúrugripasafnsins. Þegar komið er að aðalinngangi menningarmiðstöðvarinnar, halda gestir inn 130 til 150 metra löng aðkomugöng. Fyrir miðjum göngunum Iiggur veitingahúsið „Þingvellir“, staðsett á grunni samnefnds húss sem hvarf undir hraun. I göngunum sæist cldur, gufa og vatn, tákn um myndun Eyjanna. um dýralíf og náttúrufar svæðisins. Sameiginlegt þjónusturými og aðal- inngangur munu tengja saman fjölnotasal, gosminjasafn og náttúru- gripasafn. Syðsta menningarmiðstöð landsins mun efla ferðamennsku og bjóða upp á fræðslu og menningar- starfsemi í spennandi og frumlegu umhverft inni í hrauni sem er aðeins 27 ára gamalt. Grafið inn þar sem Njarðargata var Staðsetning og umhverfi menningar- miðstöðvar verður í nánum tengslum við miðbæ og höfnina í Vestmanna- eyjum. Miðstöðin verður staðsett inni í hrauntungunni sem rann úr Eldfelli inn í miðbæinn. Megininngangur miðstöðvarinnar verður frá Kirkjuvegi til móts við Miðstræti, og er þar gert ráð fyrir aðkomu fyrir bæði gangandi og akandi umferð. Byggingin sjálf verður grafin inn í hraunið þar sem áður lá Njarðargata, Rafstöðin og Heimatorg. Einu sýnilegu ummerki byggingarinnar ofanjarðar verða inn- gangar og hvolfþak, sem standa mun upp úr hrauninu. Heimatorg miðpunkturinn Þegar komið er að aðalinngangi menningarmiðstöðvarinnar, halda gestir inn 130 til 150 metra löng að- komugöng. Fyrir miðjum göngunum liggur veitingahúsið „Þingvellir," stað- sett á grunni samnefnds húss sem hvarf undir hraun. í göngunum sæist eldur, gufa og vatn, tákn um myndun Eyjanna. A leiðinni má búast við minjum í hraunveggjunum. úr bygg- ingum sem urðu undir hrauninu. Við enda ganganna liggur forrými menningarmiðstöðvarinnar. Úr l'orrýminu blasir við miðpunktur byggingarinnar, hið gamla Heimatorg sem fær nú hlutverk íjölnotasalar fyrir menningarhúsið í hrauninu. í dag eru um 15 til 20 metrar niður á torgið. Yfir íjölnotasalnum er kúpull úr stáli og gleri. Hann myndar ásamt hraunveggj- unum meginrými hraunhússins. I salnum er gert ráð fyrir sviði og búnaði fyrir fjölnotasai. I lengslum við forrýmið er fundar- og veitingaaðstaða auk minjagripasölu, skrifstofu og miðasölu. Frá forrýminu liggja göng til beggja hliða. Öðrum megin liggur náttúrugripasafn og gosminjasafn til hinnar handar. Núverandi safn stækkað og betrumbætt Náttúrugripasafnið byggir á núverandi safni, sem verður stækkað og betrum- bætt. Safnið skiptist í aðaldeildir; sem eru fiskasafn með lifandi og upp- stoppuðum fiskum og sjávardýrum, fuglasafn með uppstoppuðum fuglum og steinasafn. Eitt meginaðdráttaraflið verður risastór tankur með lifandi sjávardýmm. Tankurinn verður á milli náttúmgripasafnsins og fjölnotasalar- ins og skapar sjóntengsl á milli rýmanna. 1 náttúmgripasafninu verður Framkvæmdir á mótum Kirkjuvegar og Vestmannabrautar: Gatnamótin hækkuð upp og hellulögð Undanfarnar vikur hafa staðið yfir miklar framkvæmdir ú Kirkjuvegi, núnar tiltekið á horni Kirkjuvegar og Vestmannabrautar. Að sögn Ólafs Ólafssonar bæjar- tæknifræðings er verið að skipta um holræsalagnir og koma fyrir regn- vatnslögnum í götunni. „Við fömm líklega upp fyrir Islandsbanka en á Vestmannabrautinni þurfum við að fara lengra til vesturs enda em lagnir þar ónýtar og verður að skipta þeim út. Astand lagna ofar á Kirkjuveginum er nokkuð gott en þar er aftur á móti burðarlagið í götunni lélegt og gæti þurft að skipta um það. En um þá framkvæmd verður ákvörðun tekin á síðari stigum af bæjarstjóm." Ólafur bætti við að fyrir þremur ámm hafi bærinn byrjað að nota myndavélar til þess að kanna ástand holræsalagna í bænum og hafi þá komið í ljós á þessu svæði að lagn- imar höfðu nánast lagst saman og þurfti því að grípa til aðgerða. „Eins verður skipt um burðarlög og malbik." Verkefnið skiptist í tvennt, þ.e. endumýjun lagna sem á að vera lokið fyrir goslokaafmælið helgina 4. til 5. júlí nk. og síðan frágang á sjálfum gatnamótunum. „Þar er unnið eftir nýju deiliskipulagi í miðbænum þar sem gatnamótin verða hækkuð upp og hellulögð, líkt og gert var á homi Bárustígs og Vestmannabrautar. Ástæðan fyrir því að gatnamótin verði hækkuð lítillega upp er að draga úr hraðakstri á svæðinu og þar með auka umferðaröryggi.“ Reiknað er með að seinni hluta framkvæmdanna verði lokið 1. sept- ember nk. Er þetta liður í níu ára framkvæmdaáætlun um endumýjun á holræsakerfi bæjarins og er þetta annað árið sem unnið er eftir því. Ólafur vildi að lokum biðja Eyjamenn að fara varlega í kringum fram- kvæmdasvæðið. „Eins vil ég fyrir hönd tæknideildar biðja Vestmanna- eyinga afsökunar á þeim óþægindum sem fólk kann að verða fyrir vegna framkvæmdanna.“ FRAMKVÆMDUM á að vera lokið fyrir goslokaafmælið í byrjun júlí. einnig snertiker fyrir sjávardýr og lifandi lundapysjur í sínu rétta umhverfi. Þá er fyrirhugað rými, sem tileinkað verður Keikó. I tengslum við náttúrugripasafnið verður rannsóknastofa og skrifstofa, auk stoðrýma svo sem tæknirými og geymslur o.s.frv. Gamla Rafstöðin framhlið gosminjasafnsins Gosminjasafnið verður staðsett í hluta af gmnni gömlu rafstöðvarinnar við Heimatorg. Reiknað er með að fram- hlið stöðvarinnar verði endurbyggð og myndi þannig andlit safnsins út í miðrými Heimatorgs, beint á móti tanki náttúmgripasafnsins. Aðalsýn- ingarrými safnsins verður þar sem vélarrými rafstöðvarinnar var. Gert er ráð fyrir að nota leifar vélanna sem nú liggja undir hrauninu sem hluta af minjasafninu. Hluri sýningarrýmisins mun nýtast fyrir fræðslu- og kvik- myndasýningar. Stoðrými gosminja- safns innihalda tækja- og stjómklefa, skrifstofu og geymslu. Tæplega 2500 fermetra mannvirki Menningarhúsið verður hluti af nán- asta umhverfi bæjarins. Hraun- kanturinn við aðalinngang verður mótaður sem forrými að mannvirkinu. Gert verður ráð fyrir aðkomu lang- ferða- og leigubíla auk skammtíma- bílastæða við aðalinnganginn. Bíla- stæði menningarmiðstöðvarinnar samnýtast með öðmm byggingum í nágrenninu. Menningarmiðstöðin í hrauninu tengist hinu nýja deili- skipulagi sem þar verður. Gert er ráð fyrir aðalgöngustíg frá miðbænum yfir hraunkantinn fram hjá aðalinngangi og yfir á Skansinn. Við hvolfþakið sem fellt er að hluta inn í hraunið með hraunhleðslum verður áningar- og útsýnisstaður með yfirsýn yfir bæinn, höfnina, Heimaklett, Eldfell og Helgafell. Helstu stærðir sem hugsað- ar em í hugmyndinni em þær að fjölnotasalur verði 630 fermetrar, Náttúmgripasafnið fær 410 fermetra, gosminjasafn 400 fermetra, sam- eiginleg stoðrými verða 450 fermetrar og gang- og tengirými 560 fermetrar. Byggingin á því að vera um 2450 fermetrar. sveimi@eyjafrettir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.