Fréttir - Eyjafréttir - 15.05.2003, Blaðsíða 13
Föstudagur 15. maí 2003
Fréttir
13
Guðrún Rannveig Jóhannsdóttir skrifar:
Gullið tækifæri til að byggja
hraunmenningarhús
Fyrir 70 árum var glæsilegasta og stærsta samkomuhús á
íslandi byggt hér í Eyjum af framsæknu fólki, sem var
staðráðið í að láta meðalmennskuna lönd og leið, eins og
svo margt annað sem fyriirennarar okkar tóku sér fyrir
hendur og gerðu garð Eyjanna á þeim tíma hvað mestan og
létu ekki úrtölufólk og aðra boðbera svartnættis komast upp
með moðreyk. Nú er komið að okkur. Nú skulum við
Eyjamenn byggja sérstæðasta menningarhúsið á Islandi og
þótt víðar væri leitað, því við erum að tala um hús sem hver
einasti ferðamaður sem kæmi til Eyja vildi alls ekki missa
af að heimsækja og ef vel tekst til munu erlendir ferðamenn
koma til landsins fyrst og fremst til þess að sjá Hraunhúsið.
Áformin um
að byggja
menningar-
hús inn í
hrauntung-
una við
Kirkjuveg
og Strand-
veg eru svo
spennandi
að það er
ekki hægt
annað en fagna þeim sérstaklega og
hvetja til þess að það verði gert með
glæsibrag. Teikningamar, sem bærinn
er búinn að láta gera, eru lykill að
einstæðu húsi sem á eftir að verða
gullmoli fyrir ímynd Vestmannaeyja
og ferðaþjónustuna sem á svo mörg
ónotuð tækifæri í Eyjum.
Það skiptir miklu máli fyrir okkur í
Vestmannaeyjum að gera eitthvað
öðruvísi en aðrir eru að gera og þá
höfum við einstæðan möguleika sem
er tenging við eldgosið og náttúru
Eyjanna, hvort sem er á landi eða í sjó.
Við megum ekki nota þetta stórkost-
lega tækifæri, sem framlag ríkissjóðs
er, til þess að lappa upp á gamla
kumbalda, eins og sagt er. Við eigum
að standa saman um að gera nú átak
sem við getum verið stolt yfir og
státað af. Við höfum gert það í
íþróttamannvirkjum og öðru sem
skiptir miklu máli félagslega og nú
höfum við trompið á hendi til að
byggja einstæða og glæsilega bygg-
ingu inn í sjálft hraunið og hug-
myndin um að tengja salthús ísfé-
lagsins inn í pakkann, með hinum
ýmsu söfnum, finnst mér frábær, sjó-
minjasafn, gosminjasafn, nátturu-
gripasafn, Ijósmyndasafn má þar
neftta safrt Sigurgeirs Jónassonar, saíh
Guðríðar Símonardóttur, slysavama-
safn svo eitthvað sé nefnt. þetta er
verk sem við eigum að vinna hratt og
skipulega, það er búið að bíða nógu
lengi.
Grindvíkingar byggðu fyrir skömmu
glæsilegt saltfisksetur fyrir liðlega 200
milljónir króna. Er það alveg til
fyrirmyndar og hefur laðað að fjölda
gesta. Eins eigum við að nýta þetta
einstæða tækifæri með því að ramma
inn söguna, reynslu Eyjamanna,
menningu og margs konar möguleika
í Hraunmenningarhúsi. Það fer saman
að þessi hugmynd er bæði spennandi
og einstök en hún kostar mikla pen-
inga. Ef hún er gerð með glæsibrag
og öllum þeim möguleikum sem slík
útfærsla býður upp á þá mun hún
einnig gefa af sér tekjur, verulegar
tekjur. Ekki síst þess vegna eigum við
að nota þetta gullna tækifæri.
Við eigum ekki alltaf að velja annan
eða þriðja besta kostinn né láta
skammta okkur eitthvað meðaltal. Við
eigum að byggja Hraunmenningarhús
eins og við eigum að leggja áherslu á
jarðgöng milli lands og Eyja, ef
rannsóknir gefa til kynna að það sé
framkvæmanlegt.
Fyrir 70 árum var glæsilegasta og
stærsta samkomuhús á Islandi byggt
hér í Eyjum af framsæknu fólki, sem
var staðráðið í að láta meðal-
mennskuna lönd og leið, eins og svo
margt annað sem fyrirrennarar okkar
tóku sér fyrir hendur og gerðu garð
Eyjanna á þeim tíma hvað mestan og
létu ekki úrtölufólk og aðra boðbera
svartnættis komast upp með moðreyk.
Nú er komið að okkur. Nú skulum við
Eyjamenn byggja sérstæðasta menn-
ingarhúsið á fslandi og þótt víðar væri
leitað, því við erum að tala unt hús
sem hver einasti ferðamaður sem
kæmi til Eyja vildi alls ekki missa af
að heimsækja og ef vel tekst til munu
erlendir ferðamenn koma til landsins
fyrst og fremst til þess að sjá
Hraunhúsið.
Þetta er eitt af því sem okkur vantar
í dag, drífum í því.
Guðrím Rannveig Jóhannsdóttir
Guðjón Hjörleifsson
skrifar:
Þökkum
frábæran
stuðning
Eg vil fyrir
mína hönd
og fram-
bjóðenda
Sjálfstæðis-
flokksins
þakka fyrir
þann mikla
og góða
stuðning
sem við
urðum aðnjótandi í alþingis-
kosningunum 10. maí sl. Við
gerðum okkur grein fyrir því að
það væri á brattann að sækja
eftir 12 ára setu í ríkisstjórn og
klofningsframboð í
Suðurkjödæmi, sem varð til þess
að Sjálfstæðisflokkinn vantaði
120 atkvæði til þess að verða
áfram stærsti flokkurinn í
kjördæminu.
Við munum í störfum okkar
kapp-kosta að vinna
bæjarfélaginu svo og
kjördæminu öllu það gagn sem
við mögulega getum.
Að lokum viljum þakka þeim
fjöl-mörgu sem lögðu sitt af
mörkuni með miklu og
óeigingjörnu starfi í þessum
kosningum.
F.h. frambjóðenda Sjálfstœðis-
flokksins í Suðurkjördœmi
Guðjón Hjörleifsson
ísólfur Gylfi Pólmason skrifar:
Að kosningum loknum
Hér um slóðir var um drengilega kosningabaráttu að ræða
og þakka ég öllu því fólki sem unnið hefur fyrir mig og
Framsóknarflokkinn hér í Vestmannaeyjum, með Oddnýju
Garðarsdóttur í fararbroddi.
Öllu þessu góða fólki vil ég þakka af alhug. Einnig vil ég
þakka Vestmannaeyingum fyrir einstaklega gott og
skemmtilegt samstarf.
Að kosn-
ingum
loknum
verður
spennufall í
þjóðfélaginu
örskamma
stund.
Margir hafa
lagt hart að
sér í kosn-
ingabarátt-
unni bæði þeir sem í framboði eru og
einnig fjöldinn alluraf sjálfboðaliðum.
Þeir sem ná ekki markmiðum sínum
verða auðvitað vonsviknir um stund
en þegar einar dyr lokast opnast aðrar
eins og sagt er. Hér um slóðir var unt
drengilega kosningabaráttu að ræða
og þakka ég öllu því fólki sem unnið
hefur fyrir mig og Framsóknar-
flokkinn hér í Vestmannaeyjum, með
Oddnýju Garðarsdóttur í fararbroddi.
Öllu þessu góða fólki vil ég þakka
af alhug. Einnig vil ég þakka Vest-
mannaeyingum fyrir einstaklega gott
og skemmtilegt samstarf. Ég lít aldrei
á mig sem gest hér í Eyjurn heldur
sem þátttakanda í mannlíftnu svo vel
er mér alltaf tekið.
Eins er ástæða til þess að þakka
framámönnum Frétta fyrir áhuga
þeirra á stjórnmálunum og því sem
við höfum verið að gera. Það er ekki
sjálfgefið að eiga jafn sterkt fréttablað
á ekki stærri stað. Pólitíkinni má líkja
að þessu leyti við lciki IBV, stundum
vinna menn og stundum tapa þeir.
Góður íþróttamaður þarf bæði að geta
tekið sigmm og ósigmm. Nýkjömum
alþingismönnum óska ég velfarnaðar.
Það er von mín að Vestmannaeyjar
megi eflast í öllum skilningi þeirra
orða og að ró komist á bæjarmál
þannig að menn skilji aðalatriði frá
aukaatriðum og öflugt uppbygg-
ingarstarf hefjist á ný.
Eyjavision blásin af þetta árið
VERÐI Eyjavision að veruleika mun hún örugglega hressa upp á
þjóðhátíð.
Eins og greint hefur verið frá í
Fréttum hefur staðið til undanfarið
að hafa undankeppni vegna vals á
þjóðhátíðarlaginu í ár.
Komu rúm tuttugu lög í keppnina
sem auglýst var fyrir skömmu og
fyrirhugað var að halda keppnina 23.
maí nk. Því var svo frestað í síðustu
viku og ný dagsetning fundin, 6. júní.
En í gær bámst þær fréttir að búið
væri að blása forkeppnina af og verður
hlutlaus dómnefnd sett í það að velja
eitt af þeim átta lögum sem valin
höfðu til þess að keppa í úrslitum.
Ástæðan er. fyrst og fremst knappur
tími og treystu tónlistarmenn sér ekki
til þess að útsetja öll lögin á nokkmm
vikum. Menn hafa þó ekki gefist upp
á hugmyndinni og er ætlunin að leggja
fyrr af stað í þessa vinnu fyrir þjóð-
hátíðina 2004 og fá menningar-
málanefnd bæjarins til að gera ráð
fyrir fjármunum í verkefnið fyrir
næsta ár.
Spurt er:
Hvernig líst
þér á karla-
lið ÍBV í
sumar?
Guðný Óskarsdóttir form.
Stuðningsklúbbs ÍBV:
-Mjög vel. Ætli við endum ekki í
fimmta sæti, ég er nokkuð bjart-
sýn og hef trú á strákunum.
Arnar Richardsson verslunar-
stjóri:
-Mér lfst ágætlega á þetta, lísl vel
á þjálfarann fyrir utan það að
hann heldur með Man.Utd. ÍBV
endar í fimmta sæti, fyrir ofan
það er bónus.
Hörður Þórðarson leigubíl-
stjóri:
-Mér líst bara þrælvel á liðið,
þetta eru ungir og sprækir
strákar. Eg hugsa að við verðum
ekki neðar en í þriðja sæti.
Páll Marvin Jónsson:
-Bara glimrandi flott, þeir eiga
eftir að koma skemmtilega á
óvart. Við endum í þriðja sæti.